Morgunblaðið - 15.05.1984, Síða 31

Morgunblaðið - 15.05.1984, Síða 31
35 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 15. MAÍ 1984 Hagtrygging hf.: Rekstrar- hagnaður nam 1,6 milljónum AÐALFUNDUR Hagtryggingar hf. var haldinn 28. aprfl sl. í Domus Medica í Reykjavík. Ingólfur Hjart- arson hdl. var kjörinn fundarstjóri og Ásgeir Thoroddsen hdl. fundar- ritari. f frétt frá Hagtryggingu hf. seg- ir, að formaður félagsins, dr. Ragnar Ingimarsson, hafi flutt skýrslu félagsstjórnar fyrir liðið starfsár, en framkvaemdastjóri, Valdimar J. Magnússon, skýrði reikninga félagsins og fjárhags- stöðu. Heildartekjur félagsins árið 1983 voru 31,4 milljónir króna þar af höfðu iðgjaldatekjur frum- trygginga aukist um 14,3 milljónir króna eða 86,8%. Rekstrarhagnað- ur nam 1.647 þúsund kr. þegar tek- ið hafði verið tillit til verðbreyt- ingafærslu. Aðalfundur sam- þykkti tillögu stjórnar um ráð- stöfun tekjuafgangs til greiðslu 10% arðs fyrir árið 1983. Arður verður póstsendur hluthöfum á næstu vikum. Þá samþykkti aðal- fundur að gefa út jöfnunarhluta- bréf til tvöföldunar á hlutafjár- eign hluthafa eins og hún var um sl. áramót, þ.e. úr 4,5 milljónum króna í 9,0 milljónir króna. Á fundinum var endurkjörið í aðalstjórn, en hana skipa nú: Dr. Ragnar Ingimarsson, verkfr., formaður, dr. Ágúst Valfells, verkfr., varaformaður, Sveinn Torfi Sveinsson, verkfr., ritari, Ingvar Sveinsson, forstjóri, og Þorvaldur Tryggvason, fulltrúi, meðstjórnendur, Haukur Péturs- son, verkfr., var kjörinn sem sér- stakur fulltrúi neytenda sam- kvæmt tilnefningu Félags ís- lenskra bifreiðaeigenda. Vara- stjórn skipa eftirtaldir menn: Geir U. Fenger, verslunarstjóri, Sveinbjörg Guðmundsdóttir, hús- frú, Valdimar J. Magnússon, framkvæmdastjóri. Endurskoð- endur voru kjörnir: Ólafur V. Sig- urbergsson, löggiltur endurskoð- andi, Hilmar Norðfjörð, fyrrv. loftskeytamaður, Adolf J. E. Petersen, fyrrv. verkstjóri, og til vara: Garðar Sigurðsson, prent- smiðjustjóri. Hluthafar Hagtryggingar eru 969 og hlutafé 9,0 milljónir króna. Fasteignamat húseigna og lóða fé- lagsins er 29,2 milljónir króna. Eigið fé félagsins er 30,4 milljónir króna og tryggingasjóðir 20,6 milljónir króna, segir í frétt frá • félaginu. Húsið, sem björgunarstöðin verður í. , Reisa björgunarstöð í Keflavík Vogum Björgunarsveitin Stakkur hefur fest kaup á hluta af húsi við Iðavelli í Keflavík, að grunnfleti 165m2 á tveimur hæðum um alls 330 m2 und- ir björgunarstöð. Stefnt er að því að neðri hæðin sem er ætluð undir bfla- geymslur verði tekin í notkun í vor, en allt húsið fyrir áramót. Að sögn Þorsteins Marteinsson- ar formanns Stakks er húsið af- hent fokhelt, og munu Stakksfé- lagar vinna að innréttingum í hús- inu í sjálfboðavinnu. Sveitin væri vel búin af iðnaðarmönnum, að öðru leyti en því að múrara hefðu þeir ekki. Hefðu þeir því samið við byggingaverktaka í bænum um skiptivinnu, byggingafyrirtækið útvegaði múrara, en Stakkur tæki að sér að tyrfa í staðinn. Þorsteinn sagði það ekkert nýtt þó björgunarsveitarmenn leggðu á sig mikla sjálfboðavinnu, því sjálfboðavinna við húsnæði og tæki sveitanna, auk fjáraflana tæki oftast mestan tíma, enda sem betur fer lítið um útköll til björg- unarstarfa. Þorsteinn sagði Kefl- víkinga ætíð hafa tekið fjáröflun- um sveitarinnar vel, sem hefði augljóslega komið í ljós að undan- förnu. Til að fjármagna kaupin á nýja húsinu hefur verið ákveðið að selja eldra húsnæði sveitarinnar, sem hefur verið allt of lítið, auk þess sem einn bíll sveitarinnar verður seldur. Þorsteinn Marteinsson formað- ur Stakks sagði að í nýja húsinu yrði bílageymsia, stór fundarsal- ur, hreinlætisaðstaða og geymsl- ur. Sagði hann mikla möguleika bjóðast í húsinu frá því sem áður var. Þarna yrði öll starfsemi sveit- arinnar á einum stað og rými nægjanlegt. E.G. VERKFÆRIN HENTA VIÐAST HVAR. VIÐ SJÁVARSÍÐUNA, IÐNAÐINN, LANDBÚNAÐINN OG HJÁ TÓMSTUNDA FÓLKI V'' A SKELJUNGUR H/F SÍÐUMÚLA 33 SKELJUNGS- SMÁVÖRUDEILD S: 81722 - 38125 BÚÐIN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.