Morgunblaðið - 15.05.1984, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 15. MAÍ 19B4
37
Kjartan
Bitru —
Fæddur 26. nóvember 1908
Dáinn 5. maí 1984
Kjartan varð bráðkvaddur að
heimili sínu Garðsenda 5 í Reykja-
vík, en þar hafði hann búið sl. 12
ár ásamt konu sinni, Sesselju
Gísladóttur, og Jóni, syni þeirra,
sem alltaf hefur átt heimili hjá
foreldrum sínum.
Kjartan Jónsson var fæddur og
uppalinn að Brjánsstöðum á
Skeiðum, sonur hjóna sem þar
bjuggu lengi, Jóns Sigurðssonar
frá Galtalæk í Biskupstungum,
Teitssonar í Skáldabúðum Jóns-
sonar. Helga móðir Kjartans var
Þórðardóttur bónda í Þrándar-
holti, Oddssonar í Austurhlíð.
Kona Þórðar í Þrándarholti og
amma Kjartans var Anna Páls-
dóttir frá Brúnastöðum, Jónsson-
ar þar, Pálssonar í Úthlíð, Snorra-
sonar á Gýgjarhóli.
Kjartan ólst upp í stórum systk-
inahópi því foreldrar hans eignuð-
ust 18 börn og náðu 14 þeirra full-
orðinsaldri. Tæplega tvítugur fór
hann alfarinn að heiman til Hafn-
arfjarðar þar sem hann nam hús-
gagnabólstrun og stundaði síðan
að loknu sveinsprófi þá iðn í all-
mörg ár, og bjó þá í Hafnarfirði og
Reykjavík. Kjartan kvæntist árið
1931 Sesselju Gísladóttur frá
Vesturholtum i Þykkvabæ, 19 ára
gamalli myndarstúlku, og hefur
sambúð þeirra verið mjög farsæl.
Þau eignuðust fjögur börn, þrjá
pilta og eina stúlku. Barnaláni
hafa þau átt að fagna, því öll eru
systkinin sæmdar- og dugnaðar-
fólk. Þrjú þeirra eru gift, eiga
börn og heimili.
Þó Kjartani vegnaði vel við iðn
sína bjó alltaf í honum þrá til
sveitalífs og búskapar og að kom-
ast í átthagana eða í nánd við þá.
Hann greip því tækifærið árið
1940 þegar jörðin Bitra í Hraun-
gerðishreppi var til sölu, náði
kaupum á henni og gerðist bóndi
þar. í Bitru bjuggu þau hjón þar
til þau urðu að selja jörðina 1972
og flytja burt vegna heilsubilunar
Kjartans. Var þetta allþung
ákvörðun því hvort tveggja var, að
þau hjón höfðu í 32 ára búskap
fest tryggð við jörð sína og einnig
hitt, að þau áttu marga góðvini í
sveitinni, sem þau urðu nú að fjar-
lægjast. En til að rótslitna ekki að
fullu frá jörð og sveitalífi tók
Kjartan það til bragðs að eiga
áfram hluta af Bitrulandi, þar
sem hann reisti þægilegt sumar-
hús og dvöldu þau hjónin þar oft
sér til ánægju og tóku móti göml-
um vinum og nágrönnum. Kjartan
ræktaði þar túnblett og hafði reit
fyrir kartöflugarð. Við þessi rækt-
unarstörf hlaut hann bæði ánægju
og holla hreyfingu.
Þegar Kjartan bjó í Bitru var
hann óskiptur við heimili sitt og
búrekstur. Gerði hann miklar um-
bætur þar bæði í byggingum og
ræktun. Naut hann við þau störf
dyggilegrar aðstoðar barna sinna
eftir því sem þeim óx fiskur um
hrygg, sérstaklega Jóns, yngsta
sonarins.
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, aö
afmælis- og minningargreinar
veröa að berast blaöinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaöi, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. f
minningargrcinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
Jónsson
Minning
Þrátt fyrir góða hæfileika hélt
Kjartan sér ekki fram til trúnað-
arstarfa og olli því meðfædd hlé-
drægni hans. Þó sat hann nokkur
á í Iðnfræðsluráði Árnessýslu og
nálægt aldarfjórðungi var hann í
kirkjukór Hraungerðiskirkju enda
var hann gæddur sönggáfu og
hljómlistareðli.
Kjartan og kona hans áttu bæði
oft við taisverða vanheilsu að búa,
en með trú og bjartsýni unnu þau
sitt ævistarf. Kjartan var hinn
mesti drengskaparmaður, þýður
og hógvær í dagfari, hagvirkur og
hygginn. í hverju máli vildi hann
hafa það sem sannara reyndist.
Hér hefur mikill heiðursmaður
horfið yfir landamærin. Hallgrím-
ur segir í hinum fræga sálmi: „Þó
leggist lík í jörðu, lifir mín sála
frí.“ Ég trúi þeim orðum og að við
taki nýtt líf. Víst er sviplegt og
sárt fyrir lífsförunaut Kjartans,
Sesselju Gísladóttur, sem í 53 ár
hafði notið sambúðar við hinn
ljúfa og þýða ástvin sinn að verða
að horfa honum á bak. En hrein
minning um hinn mæta mann er
arfur, sem Sesselja mun eiga og
búa að þar til endurfundir verða.
Þegar Kjartan Jónsson nú er
kvaddur með þakklátum huga af
okkur vinum og samferðamönnum
eru um leið konu hans og ástvin-
um öllum færðar samúðarkveðjur.
Ágúst Þorvaldsson
Þegar við kveðjum Kjartan
Jónsson, fyrrv. bónda í Bitru,
Hraungerðishreppi, fer ekki hjá
því að við rifjum upp liðnar stund-
ir.
Við minnumst Kjartans sem
þess manns er reyndist okkur
ávallt hinn glaði og góði velgjörð-
armaður. Alltaf traustur og ein-
stakur. Alltaf kátur og vildi hvers
manns götu greiða. Alltaf orðvar
og grandvar í öllum gjörðum.
Það var ávallt einstaklega
ánægjulegt að heimsækja þau
hjón, Kjartan og Sesselju Gísla-
dóttur, að Bitru og síðar í Garðs-
enda. Við hugsum um það nú, að
það var alltof sjaldan, sem við
heimsóttum þau. Kannski var það
fjarlægðin hin seinni ár, kannski
hið nútíma „stress" og tímaleysi,
sem allir virðast svo mjög haldnir
í dag. En svona er gangur hins
daglega lífs fólks í dag. Kannski er
það aftur á bak.
Við eigum þeim Kjartani og
Sesselju og börnum þeirra margt
að þakka. Af óvandabundnu fólki
hafa þau verið okkur sérstök. Er
við minnumst Kjartans er okkur
efst í huga góðvild og hjálpsemi.
Við Guðrún Bryndís og Logi
vorum hjá þeim Kjartani og Sess-
elju í sveit, sem kallað er, flest
okkar bernskuár, en við vorum
meira en í sveit hjá Kjartani og
Sesselju, við vorum hjá Kjartani
pabba og Sesselju mömmmu, það
segir nokkuð um þessi ágætu hjón
og þeirra fjölskyldu. Þannig eru
þau hjón í okkar huga í dag og
hafa verið frá upphafi okkar
kynna.
Kjartan og Sesselja áttu því
láni að fagna að eignast fjögur
börn og fjölskyldan var einstak-
lega samhent og hamingjusöm.
Þau eignuðust þrjá drengi, Rögn-
vald, Grétar og Jón og dótturina
Jóhönnu Sólrúnu.
Allt þetta fólk er okkur ein-
staklega kært, einkum dóttir
þeirra Kjartans og Sesselju, sem
bjó hjá okkur í mörg ár og var sem
ein af fjölskyldunni, dóttir og
systir.
Það er einstök lukka, að kynnast
slíkri fjölskyldu, sem fjölskyldu
Kjartans Jónssonar. Það er ham-
ingja í lífi fólks að geta yljað sér
við svo góðar minningar.
Við kveðjum Kjartan Jónsson.
Við þökkum honum allt það sem
hann var okkur: Góður, traustur,
hreinlyndur, ráðhollur og sann-
gjarn. Það var einstakt lán að
kynnast slíkum manni. Honum
þökkum við, er hann kveður hið
jarðneska líf.
Sesselju, börn þeirra og aðra
ástvini biðjum við Guð að styrkja
í sorg þeirra.
Guðrún Bryndís, Logi, Erla
og Hörður Valdimarsson.
Finnbogi Magnús-
son — Kveðja
Fæddur 28. maí 1931
Dáinn 2. maí 1984
Síðastliðinn laugardag var
Finnbogi Magnússon skipstjóri
jarðsettur í heimabyggð sinni,
Patreksfirði. Ég kynntist Finn-
boga barn að aldri, því leiksystir
mín og vinkona var Sigurey dóttir
hans. Mér er minnisstæð sú ástúð
og hlýja sem hann sýndi mér sem
barni og ávallt síðar, er ég kom á
heimili þeirra hjóna. Sannaði það
mér að Finnbogi var mikill og
tryggur í sinni vináttu. Nú þegar
hann er horfinn á vit feðra sinna,
vil ég þakka öll vináttutengsl
okkar og bið ég honum Guðs bless-
unar. Ég votta þér, Dómhildur
mín, börnum þínum og öðrum ætt-
ingjum, innilegustu samúð mína
og fjölskyldu minnar.
Ásthildur Ágústsdóttir
t
Þökkum innilega samúö og vináttu vegna andláts og útfarar föður
okkar, tengdafööur og afa,
ARNODDS JÓHANNESSONAR,
Vesturgötu 25, Keflavík.
Jóhanna Arnoddsdóttir,
Sigvaldi Arnoddsson,
tengdabörn og barnabörn.
t
Alúöarþakkir fyrir hluttekningu viö fráfall
DR. EINARS ÓL. SVEINSSONAR,
prófessors.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hvítabandsins.
Sveinn Einarsson, Þóra Kristjánsdóttir,
Ásta Kristjana Sveinsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúö viö andlát og útför eiginkonu minnar,
móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
ÓLAFAR KRISTJÁNSDÓTTUR (LÓU),
Marklandi 10, Reykjavik.
Sérstakar þakkir til lækna hennar og starfsfólks deildar 12A
Landspítalans.
Guösveinn Þorbjörnsson,
Gunnar Guösveinsson, Helga Guðmundsdóttir,
Oddrún Guösveinsdóttir, Gestur Guónason,
og barnabörn.
##
COLLECTION MONICA
gullfallegar og vandaðar
postulínsvörur.
Andlitsmyndirá postulíni eftir Monicu Beauv-
is, París. Myndir af níu fallegum Konum
„gullaldartímabilsins", þarsem „rómantíkog
elegans" naut sín til fulls.
Postulíns hálsmen, - veggplattar, - diskar, -
vasar, - spegill í veski, - skartgripaskrín og
ekki síst mokkabollar.
Petta eru einstaklega hlýlegar litlar gjafir,
sem eiga við öll tækifæri, - og fyrir allan
aldur.
«1
V '<«*
TEKJK'-
KKISTIII
Laugavegi15 sími 14320
Vandað postulin Vinsæl gjöf
ALT
tTIRSCHENREUTH)
1838
GERMANY