Morgunblaðið - 17.05.1984, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1984
15
Starfshópur um heimavistarþörf á Akureyri:
Ótvíræð þörf á að byggja heima
vist fyrir 200—225 nemendur
Akureyri, 9. maí.
Morgunblartid (iBerg.
Á FUNDI bæjarstjórnar í gær var
lagt fram álit „starfshóps um
heimavistir framhaldsskóla á Ak-
ureyri", sem bæjarstjórn skipaði
fyrr í vetur. Fram kemur að
starfshópurinn hefur haldið 7
fundi og skilaði hann frá sér eftir-
farandi áliti, sem ástæða þykir til
að birta í heild:
Verkefni nefndarinnar var sam-
kvæmt bréfi menntamálaráðu-
neytis 4. janúar 1984 „að fjalla
um húsnæðismál framhaldsskóla
á Akureyri" og samkvæmt bókun
bæjarráðs Akureyrar 25. október
1983 að gera:
a) Rannsókn á þörf framhalds-
skólanemenda á Akureyri fyrir
heimavistarhúsnæði.
b) Athugun á hverskonar húsnæði
henti best.
c) Könnun leiða til fjármögnunar.
d) Gerö tillagna um rekstur og
nýtingu.
Nefndin hefur haldið 7 fundi,
þann fyrsta 21. janúar 1984.
Nefndin lét það verða sitt
fyrsta verk að kalla skólastjóra
framhaldsskólanna á Akureyri
og ræða ítarlega við þá um
heimavistarmál og hleraði þær
hugmyndir, sem þeir höfðu. Á
þeim fundi setti Tryggvi Gísla-
son, skólameistari MA, fram þá
hugmynd að byggt yrði við
heimavist MA. Slík viðbygging
nýttist mjög vel fyrir þær bygg-
ingar, sem fyrir eru, vegna þess
að ýmis konar þjónusta, sem nú
þegar er fyrir hendi, nýttist til
Heimavist MA.
fulls. Auk þess er það ódýrara
en að byggja nýjar vistir.
Nefndin fól Bernharð Har-
aldssyni, skólameistara VMA,
að kanna skiptingu framhalds-
skólanemenda á Akureyri eftir
lögheimili. Leitaði hann eftir
upplýsingum frá öllum fram-
haldsskólunum og lagði fram
skýrslu. Einnig var Gunnari
Frímannssyni, félagsfræðingi,
og félagsfræðideild MA falið að
gera félagsfræðilega könnun á
viðhorfum nemenda og vilja til
ólíkra tegunda húsnæðis.
Hinn 25. febrúar 1984 var
haldinn fundur með forystu-
mönnum ferðamála á Akureyri
til að kanna vilja þeirra til að
taka þátt í byggingu húsnæðis,
sem hentaði bæði sem heima-
vist og hótel, og ræða rekstr-
arhætti slíks fyrirtækis og stað-
arval. Skólameistari VMA og
formaður nefndarinnar hittu
einnig ferðamálafrömuði í
Reykjavík. Á þessum fundum
kom ekki í ljós vilji eða frum-
kvæði ferðamálamanna til að
byggja slíkt húsnæði.
Á fundi í byrjun mars lagði
Gunnar Frímannsson fram
niðurstöður könnunar, em hann
hafði unnið ásamt nemendum
sínum. í henni kom fram, að við
óbreyttar aðstæður væri þörf á
heimavistarrými fyrir 180—200
nemendur. Hafa verður í huga,
að nemendaspá fyrir VMA, gerð
af menntamálaráðuneytinu,
gerir ráð fyrir 700—750 nem-
endum að meðaltali á ári í
framtíðinni í stað um það bil
600 nemenda, sem nú eru í þeim
skólum, sem VMA tekur við af
1. júní nk. Má því ætla að
raunveruleg þörf sé á bilinu
200—225 til viðbótar því sem nú
er.
Leigumarkaður á Akureyri er
um þessar mundir mjög að-
gengilegur og rúmur, en þar er
ekki á vísan að róa.
Ályktun:
Að áliti nefndarinnar er það
bestur kostur að byggja við nú-
verandi húsnæði heimavistar
MA. Þar eru, eins og áður hefur
verið nefnt, ýmsir þjónustu-
möguleikar, sem ekki hafa verið
fullnýttir og með viðbyggingu
mætti auka fjölbreytni í gerð
húsnæðis og félagslegrar að-
stöðu nemenda. Nemendur
beggja skóla eru á svipuðum
aldri og hafa um margt líkar
þarfir og viðhorf þó að þeir
stundi nám á ólíkum sviðum og
brautum. Skólarnir eru nær
samtímis og mynda ásamt öðr-
um skólum og íþróttaaðstöðu
skemmtilegan reit á grónum
bæjarhluta. Augljóst er að fjár-
hagslega er þetta einnig auð-
veldasti kosturinn, tæknilega
fremur einfaldur og ætti að
geta tekið skamman tíma, ef
fjármagn er fyrir hendi.
NiAurstaða:
1. Þörfin er ótvíræð og byggja
þarf heimavistir fyrir
200—225 nemendur.
2. -3. Ódýrasti kosturinn er að
byggja við núverandi heima-
vistir MA fyrir u.þ.b. 150
nemendur. í framtíðinni
verði reist annars konar hús-
næði og athugaður möguleiki
á að fjármagna það úr hús-
næðislánakerfinu.
4. Rekstur verði í hefðbundnu
formi með sjálfstæðri stjórn
en í nánu samráði við skóla-
meistara framhaldsskólanna
beggja.
í starfshópi þessum sátu,
skipuð af bæjarstjórn Akureyr-
ar: Haukur Árnason, Helga
Eiðsdóttir, Bárður Halldórsson,
Gunnar Jónsson og Torfi Sig-
tryggsson. Skipaðir af mennta-
málaráðuneytinu í hópinn voru:
Guðmundur Heiðar Frímanns-
son og Tómas Ingi Olrich.
GBerg
Beckers
Sænsk gæöamálning
íléttumoglaglenum litumáallt húsið
DeiiACCAyc. SCOTTE:
RENASSANS:
Otimálning á steinveggi sem ekki hafa verið málaðir áður. flagnar
ekki og gengur vel inn í steininn. Blandast með terpentínu og
hrindir vel frá sér vatni. Sjö litir. 1,4 og 12 Itr. dósir.
UTANHUS-AKRYLAT:
Útimálning á steinveggi og timbur, sem hefur verið málað áður og
einnig sem nýmálning. Akryl-plastmálning með góða út-öndun.
Allir litir. 4 og 12 Itr. dósir.
EXPONIL PL 50:
Fúavarnarefni í tíu mismunandi litum. 1,4 og 12 Itr. dósir.
TACKLASYR:
Þekjandi fúavarnarefni, ætlað á timbur og er í átta mismunandi
litum, m.a. hvitt, brúnt, rautt og blátt. 1 og 4 Itr. dósir.
PLOMB-T AKFÁRG:
Sendin þakmálning i sex litum. Mikil viðloðun og auðveld í með-
förum.
4 og 10 Itr. dósir.
GRUNNMÁLNING:
Renassans grunnmálning á steinveggi fyrir nýmálningu. Hefur
mikla viðloðun og þynnist með terpentinu. 4 og 12 Itr. dósir.
VÁGGFÁRG:
Plastveggmálning með 7% gljáa ætluð á stofur og svefnherbergi.
24 grunnlitir og möguleikar á blöndun allt að 400 litaafbrigða. 1,4
og 12 Itr. dósir.
VÁGGFÁRG:
Plastveggmálning með 35% gljáa, ætluð á eldhús, baðherbergi og
ganga. Sérlega slitsterk málning í 24 grunnlitum og 400
blöndunar- og litaafbrigði.
1,4 og 12 Itr. dósir.
4r
\
V
ÖLL EFNISEM ÞÚ ÞARFT
ALLIR REGNBOGANS LITIR BLANDAÐIR
Á STAÐNUM
SCOTTE:
Mjög þykk og þekjanleg málning, með teygjanlegum eiginleika.
Fáanleg með 3%, 7% og 20% gljáaáferð. Um 400 litir mögulegir úr
Beckers-litrófinu.
1,4 og 12 Itr. dósir.
SCOTTE-LETTAK:
Akrylmálning með eðlisþyngd 6 á móti 10, þurrefnisinnihaldið er
gasblásnar plastkulur. Sérlega góð fyrir loft, steinmött í hvftu. 12
Itr. dósir.
GÓLFMÁLNING:
Gólf-akrylat, ódýrt og slitsterkt ætlað á stein- og timburgólf. Lyktar-
laust. Átta grunnlitir. 1,4 og 12 Itr. dósir.
STÁRKA-GOLV:
Tveggja þátta uretan lakkmálning á gólf, t.d. stigapalla, þvotta-
hús, geymslur, svalir og bilageymslur. Otrúlega slitsterk og hörð
málning í átta litum Þessi málning býður upp á fjölda möguleika og
mikla endingu. 0,4 og 2ja Itr. dósir.
PARKETLAKK 200:
Lyktarlaust vatnslakk með 80% gljáa. Mjög auðvelt í meðförum.
5 og 20 Itr. dósir.
GUSCKO:
Olíu-parketlakk með 50% og 90% gljáa. Þveggja þátta. Mjög
slitsterkt.
5 og 25 Itr. dósir.
HURÐA- OG GLUGGAMÁLNING:
Lakkmálning með mikilli fyllingu í hvítu og hvít-gráum lit. 25% og
85% gljái,
1 og 4 Itr. dósir.
Vörumarkaðurinn hf.
ÁRMÚLA 1a SÍMI: 86117