Morgunblaðið - 17.05.1984, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1984
27
MorgunblaAiA/HBj.
Jón og Stefán Haraldssynir í verslun sinni ásamt starfsfólkinu.
Jón og Stefán Borgarnesi:
Verslunin stækkuð
og sett upp kjötborð
Borgarnes.
JÓN OG STEFÁN Haraldssynir,
eigendur Verslunar Jóns og Stefáns
í Borgarnesi, hafa stækkað verslun-
ina og gert á henni breytingar. Versl-
unin hefur verið stækkuð um 50—60
fermetra og þar sett upp kjötborð og
fullkominn mjólkurkælir.
Ráðinn hefur verið matreiðslu-
maður sem þar er við afgreiðslu og
við að tilreiða kjötið. „Þessu hefur
verið afar vel tekið," sögðu Jón og
Stefán Haraldssynir í samtali við
fréttaritara. „Fólk hefur kunnað
að meta þessa þjónustu og kokkur-
inn varla haft undan síðan kjöt-
borðið var sett upp. Grillofn sem
settur var upp í tengslum við
kjötborðið meðal annars til að
geta boðið upp á grillaða kjúkl-
inga á föstudögum hefur til dæmis
ekki haft við og allt selst úr hon-
Arlegur
hreinsun-
ardagur
Nk. laugardag, 19. maí, gengst
Framfarafélag Breiðholts III fyrir
hinum árlega hreinsunardegi í
hverfínu, en það spannar Fell,
Hóla og Berg.
Allir íbúar hverfisins eru
hvattir til að taka til hendinni í
þessari vorhreingerningu, því
mikið af alls kyns rusli er nú
komið í ljós eftir veturinn.
Undanfarin ár hefur þessi ár-
lega vorhreingerning tekist
mjög vel og má í því sambandi
geta góðrar aðstoðar hreinsun-
ardeildar borgarinnar, sem lagt
hefur til ruslapoka og hefur
einnig verið með bíla í gangi um
hverfið allan daginn til brott-
flutnings á fylltum ruslapokum
sem skildir eru eftir við aðalgöt-
urnar.
Ibúum hverfisins verða af-
hentir ruslapokar í Menning-
armiðstöðinni við Gerðuberg,
Hólabrekkuskóla og Fellahelli
frá kl. 10 á laugardagsmorgun-
Fréttatilkynning
Kartöflubændur
mótmæla frjáls-
um innflutningi
um jafnóðum." Aðspurður um
hvernig verslunarreksturinn gengi
sögðu þeir bræður: „Okkar versl-
unarrekstur hefur gengið vel og
mikil og stöðug aukning verið í
versluninni þann tíma sem við
höfum verið með þessa verslun.
Við höfum gert gagngerar breyt-
ingar á versluninni þrisvar sinn-
um á þeim rúmum 4 árum sem við
höfum rekið hana og mjög
ánægjulegt er hvað Borgnesingar
hafa tekið breytingunum vel og
kunnað að meta það sem við höf-
um verið að gera.“
Verslun Jóns og Stefáns er til
húsa í Nesbæ við Borgarbraut.
Auk allrar almennar mat- og ný-
lenduvöru eru þar á boðstólum
búsáhöld, leikföng og snyrtivörur.
- HBj.
KARTOFLUBÆNDUR hafa sent
frá sér mótmæli gegn frjálsum
innfíutningi kartaflna. Mótmælin
eru undirrituð af stjórnarmönnum
í félögum kartöflubænda og
Landssambandi þeirra. Mótmælin
eru svohljóðandi.
„Stjórnir Landssambands kart-
öflubænda, Félags kartöflubænda
á Suðurlandi, Félags kartöflu-
bænda við Eyjafjörð, Félags kart-
öflubænda í Öræfum og Kartöflu-
bændafélagsins Arðs, Hornafirði,
mótmæla harðlega hugmyndum
um frjálsan innflutning á kartöfl-
um og benda á eftirtalin atriði í
því til stafestingar.
1. Slíkur innflutningur gæti
valdið mikilli ringulreið og skipu-
lagsleysi á markaðnum og mestur
er vandinn þegar von er nýrrar
íslenskrar uppskeru en sá tími er
ákaflega mikilvægur fyrir bændur
og afkomu þeirra og brýnt að þá
séu ekki fyrir í landinu birgðir er-
lendra kartaflna. í meðalárferði
eru erlendar kartöflur á markaðn-
um í aðeins fáar vikur.
2. Mikil hætta getur verið á að
ýmsir kartöflusjúkdómar berist
til landsins ef innflutningur er á
margra höndum.
3. Fullyrða ná að neytendur
yrðu fyrir tjóni þar sem margfalt
dreifingakerfi yrði mun dýrara en
það sem nú er og rýrnun yrði velt
yfir á herðar neytenda."
Kartöflubændur óánægðir með þær finnsku:
Kennir fólki að
borða allt ann-
að en kartöflur
— segir Ingvi Markús-
son í Þykkvabæ
„VIÐ ERUM afskaplega mikið á
móti því. Við teljum annmarkana
svo marga og á þessum innflutningi
verði að vera svo afskaplega hart
eftirlit ef ekki á að drepa innlendu
framleiðendurna. Það er að vísu
einnig hægt að drepa þetta niður
með innflutningi eins og í vetur,“
sagði Yngvi Markússon kartöflu-
bóndi í Oddsparti í Þykkvabæ er
hann var spurður að því hvort bænd-
ur væru samþykkir frjálsum inn-
fíutningi á kartöflum.
Yngvi sagði að þó hann hefði
ekki verið ánægður með allt sem
Grænmetisverslunin hefði gert á
umliðnum árum þá hefði þetta yf-
irleitt gengið vel hjá þeim. Taldi
hann að innflutningurinn væri
best kominn í höndum eins eða
tveggja aðila, vegna þess mikla
eftirlits sem þyrfti að vera með
þessum innflutningi vegna sjúk-
dómahættuuu. Það atriði sagði
hann að kartöflubændur væru
hræddastir við, það er að slys yrðu
í sambandi við sjúkdómavarnir.
Hinsvegar sagði hann að það væri
auðvitað alvarlegt mál gagnvart
bændum sjálfum, ekki síður en
neytendum, það sem nú hefði
komið á daginn með finnsku kart-
öflurnar, því með þeim væri verið
að kenna fólki að borða allt annað
en kartöflur.
Tilboö sem verður ekki endurtekið
__________Gildir til 19. maí ’84._
30% staðgreiðsluafsláttur
af öllum vörum verzlunarinnar
ATH: OPIÐ:
alla daga frá kl. 9—6 laugard. 19.5 frá kl. 10—3 e.h.
Sídasti dagur K.M. Húsgögn
19. mai. Langholtsvegur 111 — Símar 37010 — 37144 — Reykjavík.
Tilboöiö veröur
ekki endurtekiö
2000 - Nýr vett-
vangur nýrr-
ar menningar
2000 — Vettvangur nýrrar menn-
ingar nefnist nýtt tímarit sem nú er
komið á markaðinn. Fyrsta tölublað
ritsins er 55 blaðsíður að stærð og er
Baldur Hermannsson útgefandi.
ábyrgðarmaður og ritstjóri.
Tímaritið mun koma út sex
sinnum fyrir næstu áramót að
sögn Baldurs Hermannssonar og
fjalla um lífshætti nútímamanns-
ins, tölvur kvikmyndagerð, ferða-
lög, listir, fjölmiðlun og þjóðmál.
Verð ritsins í lausasölu er 98
krónur.
«% Z r4- n ■mm í«n ■
Kiscaretvii
ogþrep
Heitgalvaniserað ristarefni
úrgæðastáli. Bættvinnu-
aðstaða og aukið öryggi
starfsfólks er allra hagur.
Borgartúni 31, 105 Reykjavlk,
sími: 27222, bein Kna: 11711.
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
fundir — mannfagnaöir
Aðalfundur Húselninga hf.
Aðalfundur Húseininga hf., á Siglufiröi veröur
haldinn í kaffistofu fyrirtækisins laugardaginn
26. maí kl. 16.00. Venjuleg aöalfundarstörf.
Stjórn Húseininga hf.
Hf. Skallagrímur Akranesi
heldur aöalfund sinn föstudaginn 1. júní kl.
14 á Heiöarbraut 40 Akranesi (Bókasafn
Akraness).
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnurmál._
Stjórn Hf. Skallagríms.
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS
Skólaslit
Verslunardeild veröur
slitiö föstudaginn lö.
maí nk. kl. 2 e.h. í Hátíöarsal.
Stúdentar verða brautskráðir fimmtudaginn
31. maí kl. 2 e.h. einnig í Hátíöarsal skólans.
Einkunnir í 3. bekk verða afhentar mánudag-
inn 21. maí kl. 2 e.h.
Verzlunarskóli íslands.
'rro t’cbfit
-’i *,