Morgunblaðið - 17.05.1984, Side 2
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ1984
Karlakórinn Stefnir
Söngferð um Borgarfjörð
Á laugardaginn kemur, 19.
þ.m., mun Karlakórinn Stefnir í
Mosfellssveit og Karlakórinn
Þrestir í Hafnarfírði fara í söng-
ferð til Borgarfjarðar og Akra-
ness.
Kórarnir verða fyrst á Akra-
nesi, þar sem Karlakór-Grundar-
tanga tekur á móti þeim og syngja
allir kórarnir á sameiginlegum
konsert í Bíóhöllinni kl. 14.00.
Þá er förinni heitið í Borgarnes,
þar sem kóramir þrír koma svo
aftur fram á konsert í Hótel Borg-
arnesi kl. 17 sama dag. Á efn-
isskrá kóranna eru lög úr ýmsum
áttum, bæði innlend og erlend.
1 lok beggja konsertanna munu
kórarnir allir syngja saman nokk-
ur lög og mynda þá 100 manna
kór, en einnig munu einsöngvarar
koma fram með kórnum.
Stjórnandi Þrasta er John
Speight og undirleikari Sveinbjörg
Vilhjálmsdóttir.
Stjórnandi Grundartangakórs-
ins er, Matthías Jónsson og undir-
leikari Bjarki Sveinbjörnsson.
Stjórnandi Stefnis er, Helgi R. Ein-
arsson og undirleikari Guðlaugur
Viktorsson.
Það er ekki á hverjum degi að
þrír karlakórar koma fram á sama
og eina konsertinum og því er hér
um sérstakt tækifæri fyrir Akur-
nesinga og Borgfirðinga o.fl. að
hlýða á fjölbreyttan og þróttmik-
inn karlakórssöng.
Aðgöngumiðar að konsertunum
verða seldir við inngang á söng-
staðnum.
Egilsstaðir:
Fyrirtæki kynna
starfsemi sína
Egilsstöðum, 24. aprfl.
SÍÐASTA dag vetrar boðuðu forsvarsmenn tveggja nýrra og
vaxandi fyrirtækja hér á Egilsstöðum til fundar með frétta-
mönnum til að kynna starfsemi sína.
Fyrirtækin Vakt sf. og Austur-
verk hf. hafa byggt yfir sig með
allnýstárlegum hætti. Gömul
skemma, sem eitt sinn gegndi
hlutverki fjárhúss og hlöðu, var
flutt utan úr Hjaltastaðaþinghá
og komið fyrir á steyptum grunni
að Miðási 4 hér í bæ. Auk þess
voru gaflar steyptir upp — og hef-
ur fjárhúsið og hlaðan nú tekið á
sig þann virðuleikasvip sem hæfir
vaxandi iðnfyrirtækjum.
Austurverk hf. er verktakafyr-
irtæki í byggingariðnaði. Að sögn
framkvæmdastjórans, Þorkels
Sigurbjörnssonar, eru verkefni
næg — en það stærsta sem fyrir-
tækið hefur tekið að sér til þessa
er bygging verkamannabústaða á
Egilsstöðum. Að sögn Þorkels
vinna að jafnaði 12 manns hjá
Austurverki hf. I stjórn þess sitja:
Haukur Ingvarsson, formaður;
Sigfús Ingólfsson og Guðmundur
Ármannsson.
Vakt sf. er hins vegar fyrirtæki
sem framleiðir hvers konar vörur
úr gúmmíi s.s. tappa, aurhlífar á
bifreiðir og svo mætti lengi telja.
Vélar til framleiðslunnar voru
keyptar erlendis frá og munu
tveir menn að jafnaði vinna við
framleiðsluna.
Eigendur Vaktar sf. eru þeir
Valgeir Skúlason, Karl Sigurðs-
son og Þórhallur Hauksson.
Það kom fram hjá forsvars-
mönnum Vaktar sf. að mark-
aðsmálin verða þeirra helsta við-
fangsefni fyrst um sinn — því að
alltaf tekur drjúgan tíma að
vinna nýrri framleiðslu markað.
Það var gestkvæmt hjá for-
svarsmönnum þessara nýju fyrir-
tækja síðasta vetrardag. Sveitar-
stjórnarmenn og forsvarsmenn
helstu atvinnufyrirtækja á Eg-
ilsstöðum litu inn og ámuðu þeim
heilla og þáðu ljúfar veitingar.
— Ólafur
Karlakórinn Þrestir
Hús Austurverks hf. og Vaktar sf. að Miðási 4 — sem eitt sinn var fjárhús og
hlaða f Hjaltastaðaþinghá. Ljésm.: Mbl./óUfur
Blönduós:
Vorsýning í grunnskólanum
Klönduósi, 9. maí.
í GÆRKVÖLDI var opnuð bráð-
skemmtileg sýning á verkum nem-
enda í Grunnskóla Blönduóss. Mik-
ið hefur verið lagt í sýninguna enda
hófst undirbúningur strax eftir
páska. Hefðbundin kennsla var lát-
in víkja fyrir hópstarfi nemenda og
kennara, þeim til aðstoðar var feng-
inn Þórir Sigurðsson, námsstjóri
mynd- og handmennta hjá Skóla-
rannsóknardeild menntamálaráðu-
neytisins og frá Akureyri komu á
vegum Menningarsamtaka Norð-
lendinga þeir Kristinn B. Jóhanns-
son, skólastjóri, og Guðmundur
Ármann, myndlistarmaður.
Vorið var meginstef sýningar-
innar og fjölluðu nemendur um
þá árstíð á margvíslegan hátt, til
dæmis vor í sveit, vor í bæ, vor
við sjóinn og vorleikir. Var þar að
finna fjölbreyttan fróðleik um
Blönduós og næsta umhverfi.
Mesta athygli fréttaritara vakti
líkan af strandlengjunni útfrá ósi
Blöndu.
Nemendur höfðu greinilega
lagt á sig mikið erfiði og mikla
vinnu til að gera viðfangsefnum
sínum sem best skil, þar á meðal
leituðu nemendur fanga hjá öldr-
uðum Blöndósingum um örnefni
byggðarinnar. Aberandi góðar
þóttu myndirnar á sýningunni.
Við opnun sýningarinnar voru
nemendurnir með ágætis
skemmtidagskrá, meðal annars
tískusýningu, og var hluti fat-
anna hannaður og saumaður af
nemendum. Farið var í útileiki
með þátttöku kennara og foreldra
og nemendur áttunda bekkjar
seldu kakó og rjómavöfflur sem
bakaðar voru á staðnum.
Strax á fyrstu stundu voru
mættir hátt í tvö hundruð manns
sem er allgott hlutfall af íbúatölu
bæjarins en byggðin telur nú
rúmlega þúsund manns.
Til að forvitnast um hvernig
nemendunum líkaði þessi til-
breyting í skólahaldinu, ræddi
fréttaritari við tvo nemendur átt-
unda bekkjar, þær Hrönn Sigurð-
ardóttur og Helgu Rut Guð-
mundsdóttur.
„Þetta er búið að vera mjög
gaman og hefur lífgað upp á
skólalífið. Við höfum til dæmis
starfað með krökkum úr öðrum
bekkjum og kynnst skólafélögum
betur en annars hefði orðið. Við
höfum líka lært heilmikið af
þessu og andinn í skólanum hefur
verið einstaklega skemmtilegur."
- BV
„Svona ætti umferöarmerking að vera í bænum okkar“. Gert með aðstoð
lögreglunnar.
Andinn í skólanum hefur verið mjög góður sögðu Hrönn Sigurðardóttir
og Helga Rut Guðmundsdóttir, plötusnúðar og tískusýningardömur á
skemmtuninni. Ljósmyndir: Bjðrn Valdimarsson.
Líkan af umhverfí Blönduóss vakti mikla athygli gesta.