Morgunblaðið - 27.05.1984, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 27.05.1984, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MAÍ 1984 57 „Að sjálfsögðu fylgja því ýmsar skuggahliðar að leika fyrir framan myndavél. Ég kynnist leikstjórunum ekki vel. Ég geri bara það sem mér er sagt. Ég held að það sé þess vegna sem ég er oft ekki mjög góður i kvikmyndum. Þeir eru hræddir við að leiðbeina mér vegna þess hversu gamall og reyndur ég er og mér er illa við að segja: - Svona segið þið mér til!“ faldlega ekki nógu góð til að slá í gegn á sviði. — Til dæmis „Wat- ers of the Moon“ og „Separate Tables". Þau eru alveg út í hött. Ég á bágt með að trúa að okkur hafi nokkru sinni líkað þau. Fyrir 40 árum leikstýrði sir John „The Importance of Being Earnest" við mikinn orðstír. Að tilhlutan Bandaríkjamanna var ætlunin að hann setti það á svið að nýju, en hvarf frá því ráði, þegar í ljós kom að A1 Pacino og Robert Redford áttu að fara með aðalhlutverkin. Sir John fór einnig mjög þakk- samlegum orðum um listamenn þá sem honum hefur auðnazt að starfa með. — Ég var svo gæfu- samur að hefja leikstjórn snemma á fjórða áratugnum og fá að vinna með hópi góðra og reyndra leik- ara, er höfðu starfað með ýmsum helstu leikstjórum Breta. Þeir héldu allir sínum stíl en voru reiðubúnir að taka við tilskipun- um frá mönnum eins og mér. Það var þáttur í lífi þeirra að koma vel fram, sýna stundvísi, kurteisi og háttprýði. Þeir höfðu tamið sér aga og trúmennsku í garð leik- hússins. Ég lærði margt af þeim. Gielgud hefur jafnan lagt kapp á að vinna með hæfileikamiklum listamönnum sem leikstjóri. Leik- stjórinn hefur á stundum skyggt á leikarann í honum, og hann er of samvizkusamur til að nýta sér til hlítar tækifæri til stjörnuleiks. Er það meira en unnt er að segja um ýmsa aðra. Loks rifjaði hann upp atriði, sem voru honum f mjög fersku minni og hann sagði: — Ég var svo heppinn að fá að vera með í „Home“ og „No Man’s Land“. Það voru dásamleg leikrit. Og það var dásamlegt að vinna með Ralph. Og nú er hann farinn, bætti hann við með trega í röddinni. — Ég mun aldrei eignast annan eins sam- starfsmann. Án hans verður leik- húsið aldrei það sama og áður. Og þar fyrir utan var hann einstakur vinur og félagi, sagði þessi aldni listamaður að lokum. 6 ár eru nú liðinn síðan sir John fór síðast með hlutverk á leiksviði, það 126. í röðinni samkvæmt út- reikningum mínum. Það gladdi mig mjög er hann sagði mér, að hann væri ekki hættur að leika á sviði. — Ég myndi mjög gjarnan vilja fara aftur á svið, ef ég fengi gott hlutverk. Það er alveg satt. Hann hefur fengið mörg tilboð um að leika, bæði frá enskum og bandarískum leikhússtjórum. Hingað til hefur hann hafnað þeim öllum, því að vandfýsni er meðal helztu eiginleika hans í daglegu lífi. • Meðal þess, sem hann hefur ver- ið beðinn um, er að fara með hlut- verk skólastjóra í leikritinu „Forty Year On“, en í því sló hann eftirminnilega í gegn. Það var hins vegar fyrir 16 árum og skilj- anlega er honum ekkert um að grafa upp gömul frægðarverk. Slíkt er hann oft beðinn um að gera. Hann fór síðast með hlut- verk Hamlets í Kaíró árið 1946. Níu ár eru liðin frá því sir John var síðast leikstjóri, en oft hefur hann haft meiri ánægju af því að leikstýra en að leika sjálfur. — Núna er ég ekki oft beðinn um að fara með leikstjórn, segir hann. Raunar hafa honum verið boðin allmörg leikrit frá ýmsum tímum, en oft kemst hann að raun um, að leikrit sem sóma sér vel í handriti eða í sjónvarpsupptöku, séu ein- ur með leikstjórum eins og Peter Brook, Peter Hall og Lindsey And- erson, en það eru menn sem eru ekkert hræddir við að segja við mig: — Þetta er orðið úrelt hjá þér! Gerðu þetta ekki aftur! En ég hef þörf fyrir að svona sé talað til mín. Það er erfitt að brydda upp á einhverju nýju og hitta síðan fólk sem segir að maður sé orðinn gamaldags. Það er að sama skapi erfitt að þola fjandsamlega gagn- rýni, en samt þarf maður meira en nokkru sinni fyrr á gagnrýni að halda, þegar maður er orðinn gamall. Stundum er ekki gott að hlusta of mikið á vini sína. Eftir því sem tíminn líður er erfitt að vita nákvæmlega hvar maður stendur. Og svo er það annað. Þeg- ar maður er orðinn, tja, þjóð- sagnapersóna — hann ber orðið fram hægt og hikandi, — þá er erfitt að finna sér stað í nýjum félagskap. Ég spurði hann, hvort honum hefði ekki alltaf hætt við mikilli sjálfsgagnrýni. — Kannski einum of mikið, svaraði hann. — Ég hef alltaf verið mjög örgeðja og hellt mér út í hlutina. Eigi að síður hef ég aldrei verið viss um að slík vinnubrögð séu rétt. Ég er alveg reiðubúinn að taka því þegar mér er sagt að ég hafi farið skakkt aö, og ég er vís með að kúvenda, byrja upp á nýtt og gera eitthvað ger- ólíkt. „Þaö er erfitt aö brydda upp á ein- hverju nýju og hitta síðan fólk sem segir að mað- ur sé orðinn gam- aldags. Það er að sama skapi erfitt að þola fjandsam- lega gagnrýni, en samt þarf maður meira en nokkru sinni fyrr á gagn- rýni að halda, þeg- ar maður er orðinn gamall.“ Kork-o-Plast Gólf-Gljái Fyrir PVC-filmur, linoleum, gúmmí, parket or steinflísar. GC-Floor Polish 2000 gefur end- in(?argóða gljáhúö. ^ Notkun: Þvoið gólfið. Berið CC-Floor Polish 2000 óþynnt á gólfið með svampi eða rakri tusku. Notið efnið sparlega en jafnt. Lát- ið þorna í 30 mín. A illa farin gólf þarf að hera 2—3svar á gólfið. Til að viðhalda gljáanum er nóg að setja 1 tappafylli af CC-Floor Pol- ish 2000 i venjuleua vatnstoiu at' voIku vatni. Til að fjarlægja Kljáann er best að nota R-1000 þvottaefni frá sama framleiðanda. Notið aldrei salmíak eða ðnnur ; sterk sápuefni á Kork-o-Plast. Kínkaumboð á úlandi: 1». horgrímsson & Co., Ármúla 16. Keykjavík,». 3*640. Á $fcfrnclirvcKArt4fe4Arfr\ $UC — vttwr— -jatckar, fiU, tjfMaf cyjljfriijpirr, ólcotciccvf' - -ýiilci-jiBviírjethicSuy"- 'NÍiÍAWAHUrgE^ JANE WlkSTRÖH ■DESI6W SWEOEN 0?«*” <=\-\8 yrui^íö 10-lA Idu. StwJUom cfis-lKGi'-fu. .@í/n&i£ loio étnmi XlS7? VJterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.