Morgunblaðið - 27.05.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MAÍ 1984
95
Úr blaðadómum um
Hefty Load
Hefty Load viröist ekki þurfa annaö en tónlist sína til þess aö
komast inn á markaöinn. Án nokkurra auglýsingabragöa komu
fram eftirfarandi athugasemdir er plata þeirra, samnefnd
þeim, kom á markaöinn. Eftirfarandi er haft eftir stærri blöö-
um.
Helsingin Sanomat (leiö-
andi finnskt dagblað, 12. mars
’84).
— í þeirri teknó-fönk tónlist
sem er á þessari plötu birtist
örvæntingarkraftur hinna firrtu
borgarbarna, hún hefur kröft-
ugan takt, dáleiöandi takt,
taugaveikluð, nýtískuleg, og ef
til vill rómantísk, allt aö einu þá
sigrar hún hlustandann.
Schlager (leiöandi Skand-
inavískt (sænskt) rokkblaö, 7.
febrúar ’84).
— Án efa er þetta ein at-
hyglisverðasta hljómsveit í
Skandinavíu í dag. Á þessari
hljómplötu er allt það aö finna,
sem ég leita eftir í tónlist.
Ilta-Sanomat (leiðandi
finnskt kvöldblað. 13. nóv-
ember '83).
— Helsinki hefur ekki orðiö
fyrir öðru eins „sjokki” síðan á
Ólympíuleikunum ’52.
Ilta-Lenti (annað stærsta
kvöldblaöiö 14. febrúar ’84).
— Þegar þú ert staddur á
hljómleikum hjá Hefty Load
upplifirðu undarlega hluti.
Hefty Load skapar brálæöis-
kenndan dans, með sterkri er-
ótískri tilfinningu.
Rumba (stærsta rokkblað
Finna nr. 6 ’84).
— Tónlist Hefty Load er
danshæfust þeirrar fönk-tón-
listar sem ég hef heyrt í
Skandinavíu í langan tíma.
Sterk svört áhrif eru í tón-
listinni allt frá fæöingardegi til
prinsins, en furðulegt þó þá
kemur eigin stíll hljómsveitar-
innar í Ijós í gegnum þessi
áhrif.
Seura (stærsta vikublaö
Finna, nr. 15 ’84).
— Fyrir rokktónlistina þaö
sem Jean Paul Sartre er fyrfr
bókmenntirnar.
Soundi (hátt skrifað finnskt
rokkblað, nr. 4 ’84)
— Það eru 5 finnskir tón-
listarmenn í Hefty Load, sem
líta út eins og tré-
skuröarbrúöur sem mótaðar
hafa verið með öxi og einn
svartur Svíi. Tónlist þeirra er í
anda iðnaðar og köld, en hins
vegar góð danstónlist í háum
gæðaflokki.
Brot úr spjalli við
Cirkus Modern
„Velkomin, velkomin dömur
mínar og herrar. Viö bjóðum þér
hinn babelska hátíöasöng, viö
bjóöum allar nýjar útgáfur af lyg-
inni.“
Tilboöiö kemur frá mjög at-
hyglisveröri nýsköpun I norskri
rokktónlist, hljómsveitinni CIRK-
US MODERN.
Bak viö þetta nafn felst þraut-
reynt fólk meö bakgrunninn í fram-
úrstefnuböndunum Kjott og De-
Press ásamt nýgræöingi meö
klassískan bakgrunn (tónlistarl-
ega). Og langt frá pönktónlist Kjott
frá fyrri tíma og framúrstefnutil-
raunum DePress er komin ný tón-
list. CIRKUS MODERN spila rokk.
Punktur.
— Þaö skiptir miklu aö ná sam-
bandi viö fólk, ná út. Það er lítíö vit
í aö vera kjallaraband og ofsalega
framúrstefnandi, ef enginn nennir
aö hlusta á þaö, segir söngvarinn
og textahöfundurinn Helge Gaard-
er.
— Eru þeir hættir tilraunastarf-
seminni?
— Nei segir Jorn Christensen
gítarleikari. Viö erum sér í lagi meö
tilraunir en ekki aðeins tilraunir.
Viö höfum lært mikiö á því aö gera
einkennilega hluti. Þungamiöja
okkar nú er samt miölun.
CIRKUS MODERN er mun
melódískari en Kjott og Montasje
voru segir Helge. Viö höfum notaö
mikinn tíma til þess að finna okkar
eigin stíl þannig aö sá stíll sé ekki
eingöngu svolítiö frá Kjett og svo-
lítiö frá DePress.
— CIRKUS MODERN eru allir
mikilvægir. Viö vinnum að lögun-
um í sameiningu. Enginn kemur
meö úthugsaöar hugmyndir og
keyrir þær í gegn, segir trommu-
leikarinn Ola Snortheim.
— Allir finna sinn staö i hverju
einasta lagi. Endanleg útkoma er
oft allfrábrugöin upprunalegu
hugmyndinni segir Helge. Þaö er
afbragö aö vinna svo náiö saman
meö svo sterka einstaklinga.
Norski flokkurinn Cirkus Modsrn.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Stálgæði: Remanit 4301 IIIC
Stálgæði: Remanit 4016
Plötuþykktir: 0.8 - 3.0 mm
Plötustærðir: 1250 x 2500 mm
SINDRA
STALHF
Ðorgartúni 31 sími 27222
Nýr sykurlaus
appelsínu drykkur
Nýjung!
Sætiefnið Nutra Sweet
er notað í Topp
TOPP
appelsínu drykkur
Fæst í öllum matvöruverslunum
SÓL H/F.