Morgunblaðið - 27.05.1984, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.05.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MAÍ 1984 7-7 Aðalfundur Rithöfundasambandsins: Sambandið fái greiðslur eftir 50 ár frá láti höfunda AÐALFUNDUR Rithöfundasam- band fslands var haldinn 5. maí 1984. Þar var samþykkt áiyktun þess efnis að skora á ríkisstjórnina að fela nefnd, skipaðri fulltrúum stjórnvalda og samtökum rétthafa, að semja frumvarp til laga um gjald, sem greiða skuli fyrir afnot verka þegar 50 ára verndartími frá láti höf- undar er liðinn. Skuli slíkt gjald renna til samtaka eigenda höfund- arréttar til ráðstöfunar samkvæmt meginreglum, sem nefndin geri til- lögur um. artímans. Tekjur af gjaldi þessu fyrir afnotin renna í sjóði, sem notaðir eru til að styðja bæði lif- andi höfunda og afkomendur lát- inna höfunda. Ekki verður talið ósanngjarnt að þeir, sem fénýta sér verk höf- unda sem látnir eru fyrir meira en 50 árum, gjaldi fyrir slík afnot að einhverju marki. Er það í sam- ræmi við þá viðteknu reglu, að af- not fjármuna séu ekki endur- gjaldslaus og þá reglu að framleið- endur verðmæta og þeir, sem síðar taka við verðmætunum, skuli njóta fjárhagslegra tekna af verð- mætunum. Ennfremur má á það benda að við hækkandi tilkostnað útgáfu getur orðið tilhneiging til að gefa út verk, sem fallin eru úr vernd í stað þeirra, sem enn njóta verndar, til að spara þann hluta sem felst í endurgjaldi til höfund- ar eða erfingja hans. Lagt er til að stjórnvöld hafi frumkvæði um að semja frumvarp til laga um málefni þetta í sam- ráði við samtök rétthafa." Sólbað f búðarglugga Það mátti sóla sig, jafnt utan dyra sem innan, í Hafnarstrætinu sl. föstudag, verslunin Heimilistæki bauð þá vegfarendum að reyna nýja sænska sólbekki, Solana, sem verslunin hefur nú hafið sölu á. Var sólbekk komið fyrir í glugga verslunarinnar og verður sami háttur hafður á á mánudag. í greinargerð Rithöfundasam- bandsins segir: „Svo sem alkunna er helst höfundarréttur uns 50 ár eru liðin frá næstu áramótum eft- ir lát höfundar. Um þetta eru ákvæði í 43. gr. höfundarlaga nr. 73/1972. Önnur fjármunaréttindi haldast um ótakmarkaðan tima og er því reglan um 50 ára gildistíma höfundarréttinda eftir lát höfund- ar sérregla, sem er frábrugðin al- mennum reglum og takmarkar gildi höfundarréttinda miðað við önnur fjármunaréttindi. Regla þessi leiðir til þess að höfundar- réttindi verða almannaeign og getur hver sem er haft af þeim fjárhagslegar nytjar að liðnu 50 ára tímabilinu án nokkurs endur- gjalds. Regla þessi hefur ekki þótt sanngjörn í alla staði og hefur leitt til þess að í nokkrum löndum hafa verið settar reglur um smá- vægilegt gjald fyrir afnot verka, sem fallin eru úr vernd skv. höf- undarlögum vegna 50 ára vernd- Ferðaskrifstofa stúdenta: Uppselt í ferðir fram í ágúst nk. UPPSELT er í ferðir á vegum Ferða- skrifstofu stúdenta fram í ágúst nk. Samkvæmt upplýsingum sem blm. Mbl. fékk á skrifstofunni, er um að ræða ferðir til Kaupmannahafnar, Osló, Stokkhólms, Luxemborgar og Amsterdam, en ferðaskrifstofan hefur 20 sæti í flugvélum Flugleiða til þess- ara staða, einu sinni í viku og stundum oftar. Ferðirnar eru mikið notaðar af ís- lendingum, sem stunda nám erlendis og munar töluverðu á verði miðað við almenn fargjöld. Fyrir þá, sem kaupa farmiða hjá Ferðaskrifstofu stúdenta utan og heim aftur, munar einnig nokkru á verði miðað við ódýrasta almenna fargjaldið, en misjafnlega miklu eftir áfangastöð- um. Slíkir miðar gilda í sex vikur. Coldwater: Veitir fimm frystihúsum viðurkenningu Á aðalfundi Sölumiðstöðvarinnar kom meðal annars fram, að Coldwater hefði ákveðið að veita 5 frystihúsum innan SH viðurkenningu fyrir góða frammistöðu og úrbætur í framleiðslu. Þessi hús eru Hraðfrystihúsið í Hnífsdal, Fiskiðjan í Vestmannaeyj- um, Útgerðarfélag Akureyringa, Jökull á Raufarhöfn og Haraldur Böðvarsson & Co. á Akranesi. Magn- ús Gústafsson, framkvaemdastjóri Coldwater, mun veita þessar viður- kenningar í frystihúsunum f sumar í ljósi þess, að þær eru ekki sfður til almenns starfsfólks þeirra en stjórnenda. VIÐ FENGUM RAUÐA ROS í SLOPPANA ÞEGAR VIÐ FLUTTUM í SÍÐUMÚLA 4 Veggfóðrarinn hf. og Málning & Járnvörur hf. hafa um áratuga skeið séð viðskiptavinum sínum fyrirvönduðum bygginga- vörum. Eins hafa starfsmenn þessara rótgrónu verslana gefið öllum sem leitað hafa til þeirra holl ráð og leiðbeiningar. IMú hafa starfsmenn beggja verslana tekið höndum saman, og starfa framvegis undir sama þaki, í nýjum og rúmgóðum húsakynnum í Síðumúla 4. V, VtCCFÓÐRARINN - Áfram verða á boðstólum þrautreyndar gæðavörur: málning, dúkar, veggfóður, járnvörur, verkfæri og ótalmargt annað sem húseigendur og iðnaðarmenn þurfa á að halda. Engar breytingar verða í starfsliði eða í þjónustu. Það er aðstaðan sem breytist. Þú munt örugglega finna það sem þú leitar að í björturr^og rúmgóðum húsatynnum okkar. Við munum leggja okkurfram við að liðsinna þér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.