Morgunblaðið - 27.05.1984, Side 22
MOftÖ'ÚNBLÁÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MAl 1984
70
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
SKYR
Skyrterta
Botninn:
100 g hveiti
lk tsk. hjartarsalt
25 g sykur
75 g smjör
1. Sigtið saman hveiti og hjartarsalt, bætið sykri út í.
2. Skerið smjörið smátt og blandið saman við. Hnoðið.
3. Þrýstið á botninn á springmóti, óþarft er að nota
hringinn.
4. Hitið bakaraofninn í 180°C og bakið botninn í 10
mínútur.
Fyliingin:
500 g skyr í pökkum eða plastpokum
125 g lint smjör
175 g + 75 g sykur
3 eggjarauður
10 bl. matarlím
safi úr 1 sítrónu og börkur af 'k
1 peli rjómi
3 eggjahvítur
l‘k dl rúsínur
1. Hrærið lint smjörið með 175 g af sykri. Bætið eggja-
rauðum út í, síðan skyri. Rífið sítrónubörkinn og bland-
ið saman við. Hrærið vel saman.
Vitað er að skyrgerð hefur tíðkast á íslandi síðan á landnámsöld. Land-
námsmenn fluttu skyrið með sér til landsins, en á þeim tíma var skyrgerð
iðkuð víða um Evrópu. Þær þjóðir hafa týnt niður skyrgerðinni en hún hefur
varðveist á íslandi og er því með sanni hægt að segja að skyr sé íslenskur þjóðar-
réttur. Skyr er ekki framleitt nema á íslandi, en Danir hafa þó framleitt lítils
háttar af skyri og lært það af íslendingum.
Ég ætla ekki að lýsa hér aðferðinni við að búa til skyr, en ekki eru mörg ár síðan
það tíðkaðist á mörgum heimilum einkum til sveita að gera skyr.
Tvenns konar skyr er á markaði, dósaskyr og ópakkað skyr, sem nú er farið að
selja í plastpokum. Pakkaskyrið og dósaskyrið er látið gerjast á sama hátt, en svo
skila leiðir. Pakkaskyrið er sí-
að með gömlu aðferðinni í lér-
eftspokum sem settir eru í
stóra rimlasívalninga sem snú-
ast og pressast þá mysan úr
því. En dósaskyrið er sett í
skilvindur sem fengnar voru
frá Þýskalandi og notaðir eru
til framleiðslu á kvarki. Þurr-
efni í pakkaskyrinu er 20% en
í dósaskyrinu 17,5%. Dósa-
skyrið er hitað upp í 68°C áður en því er pakkað í dósirnar og dregur það úr
áframhaldandi gerlagróðri, enda geymist það mun betur en pakkaskyrið.
Á markaði er svonefnt rjómaskyr, en nafnið gefur vissulega villandi upplýsingar.
Þetta skyr er alls ekki búið til úr rjóma eins og ætla mætti, heldur er 3% af fitu
(rjóma) bætt í undanrennuna, sem skyr er venjulega búið til úr. Rjómaskyrið er því
heldur fitusnauðara en venjuleg nýmjólk sem er með 3*/2% fitumagn.
Sætt skyr með rjóma hefur lengi þótt góður matur að ógleymdu berjaskyri.
Ýmislegt er hægt að búa til úr skyri, skyrsmjör, ídýfur, tertur og búðinga svo
eitthvað sé nefnt.
2. Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn í 10 mínútur.
Vindið síðan upp úr vatninu og bræðið yfir gufu. Bland-
ið sítrónusafanum út í. Hrærið síðan út í soppuna.
3. Þeytið rjómann og blandið saman við, þeytið síðan
hvíturnar með 75 g af sykri og blandið saman við hitt.
4. Þvoið rúsínurnar og setjið út í.
5. Losið kökubotninn af mótinu, leggið botninn á tertu-
fat. Setjið hringinn af springforminu utan um botninn
og hellið skyrkreminu inn í hann. Látið stífna í kæli-
skáp í minnst 6 klst.
6. Skerið niður með hringnum, takið hann af kökunni.
Athugið: Fallegt er að skreyta kökuna með ávöxtum,
t.d. niðursneiddu kiwi, rifsberjagreinum, þegar þær eru
til, eða einhverjum öðrum fallegum ávöxtum.
Skyrbúðingur með
jarðarberjum
1 stór dós jarðarberjaskyr
1 peli rjómi
3egg
1 msk. sykur
8+6 blöð matarlím
1 heildós niðursoðin jarðarber
1. Leggið 8 blöð af matarlími í bleyti í kalt vatn í 10
mínútur.
2. Takið helming safans úr dósinni, hitið og bræðið
matarlímið í honum. Kælið en látið ekki hlaupa saman.
3. Setjið skyrið og sykurinn í hrærivélarskál, hrærið
eggjarauðurnar út í. Bætið matarlímssafanum varlega
saman við.
4. Þeytið hvíturnar og síðan rjómann. Bætið í skyrið.
Hellið í skál. Geymið í kæliskáp þar til þetta er orðið
stíft.
5. Leggið 6 matarlímsblöð í kalt vatn í 10 mínútur. Hitið
hinn helming safans og bræðið matarlímið í honum.
Kælið en látið ekki hlaupa saman.
o. Raðið jarðarberjunum fallega ofan á skálina og hellið
safanum yfir.
Athugið: Bláber er hægt að nota í stað jarðarberja og
þá auðvitað bláberjaskyr.
Skyrsmjör með graslauk
og salthnetum
1 lítil dós skyr án bragðefna
200 g smjör
lk dl fínt malaðar salthnetur (peanuts)
mörg strá ferskur graslaukur eða 2 msk. þurrkaður
1 tsk. paprikuduft
8 dropar tabaskósósa
Vt tsk. nýmalaður pipar
1. Hrærið mjúkt smjörið með skyri, malið hneturnar og
bætið í ásamt graslauk, pipar, tabaskósósu og papriku-
dufti. Hrærið vel. Meðlæti: Gróft hrökkbrauð.
ídýfa (dip) úr skyri
meö lauksúpu og rjóma
1 stór dós skyr án bragðefna
1 pakki lauksúpa
1 dl rjómi
5 dropar tabaskósósa
Hrærið allt saman í hrærivél. Látið standa í kæiiskáp
í 1—2 klst áður en borið er fram.
J
Krtatmann Guömumteaon
Elnn af vfötesnustu höfundum
landstns Nokkrar af bókum
hans hafa veriö þýddar aö
minnsta kosti á 36 tungumAl.
Skáldverk
Kristmanns Guömundssonar
.
Brúöarkyrtillinn
Morgunn lífsins
Arfur kynslóöanna
Ármann og Vildís
Ströndin blá
Góugróöur
Nátttrölliö glottir
Gyöjan og nautiö
Þokan rauöa
Safn smásagna
Fjalliö helga
r
Almenna Bókafélagiö
y/% Austuratraati 18, Skemmuvegur 36,
•fml 25544. *ími 25544
L
r
Verö kr. 4 OOO.
Utb. k r. 800.
k r 3.200 -
Innheimtuk. kr. 400 -
Eftistööv. kr. 3.600 -
Hringið
og við sendum sölumann til ykkar.
sem má cjreiöa á sex mánuöum, kr. 600 pr. mánuö Á