Morgunblaðið - 27.05.1984, Blaðsíða 28
^oortíw w d:miniWMTT? nrrnA mMTTnwnwr
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MAI 1984
%
A DROTTINSWGI
UMSJÓN:
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
Pélag guðfræðinema
Glatt á hjalla hjá öldruðum í Hveragerði.
Safnaðarstarf
aldraðra
Á uppstigningardag heldur
þjóðkirkjan sérstakan dag ald-
inna. Við fórum því að hringjast
á við séra Tómas í Hveragerði til
að kynna ykkur, kæru lesendur,
þennan merka kirkjudag. Svo
hittumst við í morgunkaffi og
séra Tómas Guðmundsson sagði:
— Þjóðkirkjan skipaði öldr-
unarnefnd á öldrunarárinu 1982.
í henni eru þessi fimm: Ég er
formaður nefndarinnar, Margrét
Hróbjartsdóttir, safnaðarsystir i
Laugarnesi, Esra Pétursson
læknir, séra ólafur Skúlason
vígslubiskup og séra Sigurður H.
Guðmundsson sóknarprestur.
Hvert er starfssvið nefndarinn-
ar?
— Það hefur fyrst og fremst
verið að reka áróður fyrir félags-
starfi fyrir eldri borgara sem og
öllum þeim málum, sem varða
velgengni þeirra. Árangurinn er
sá að nú er félagsstarf í mjög
mörgum söfnuðum landsins,
mismikið eftir aðstæðum, og
víða í samvinnu við sveitarfélag-
ið og Rauða krossinn, sérstak-
lega á landsbyggðinni.
Það er oft talað um þörf á heim-
sóknarþjónustu í söfnuðunum.
Heldurðu að eitthvað hafi gerzt á
því sviði?
— Já, það er verið að reyna að
fá safnaðarfólk til að sinna því
starfi, sem safnaðarsystur
starfa í grannlöndunum. Safnað-
arsystur starfa í nokkrum söfn-
uðum hér en alltof fáum. Þess
vegna þarf að fá starfsfólk úr
söfnuðunum til að taka þátt í
þessu starfi og miða að því að
það geti fengið laun fyrir það í
framtíðinni. Það hefur ýmislegt
gerzt. Margs konar félög hafa
verið afskaplega hjálpleg við
margt í sambandi við starfsem-
ina, kvenfélög, lionsfélög,
rotaryfélög og kiwanisfélög og
ýmis önnur félög, sem mætti
kalla einu nafni þjónustufélög.
Séra Tómas Guðmundsson er
formaður öldrunarncfndar Þjóð-
kirkjunnar.
Hvernig tengjast þessi félög
starfinu?
— Einn þáttur er að aka fólki
til kirkju ef það óskar þess. Nú
er nefndin að reyna að reka
áróður fyrir því að fá aðstoð
safnaðarfólks til að hafa sam-
band við fólk, sem er farlama
eða á erfitt með að komast leiðar
sinnar svo að því sé veitt sú
þjónusta sem það vill þiggja.
Okkur finnst við myndum þiggja
einhverjar leiðbeiningar ef við ætl-
uðum að sinna svona starfi. Hefur
nefndin einhverjar slíkar á reiðum
höndum?
— Öldrunarnefndin hafði
samvinnu um námskeið í vetur
við Ellimálaráð Reykjavíkurpró-
fastsdæmis. Námskeiðið var í
Bústaðakirkju og þar var hvert
rúm skipað og fleiri hefðu ekki
komizt að.
Segðu okkur eitthvað úr safnað-
arstarfinu hjá þér um þessi mál
okkur hinum til uppörvunar.
— Það vill nú svo til að ný-
afstaðin er mikil og skemmtileg
hátíð fyrir aldraða. Við buðum
þangað líka fólkinu úr dvalar-
heimilinu í Ási. Svo þetta varð
um 100 manna hátíð. Við spiluð-
um bingó og kvenfélagið sá um
veitingar, þar sem ekki sá högg á
vatni. Á eftir spilaði harmon-
ikkuklúbburinn í Hveragerði
fyrir dansi. Fólk dansaði af
miklu kappi, henti meira að
segja hækjunum og dansaði.
Finnst þér flestir hinna öldruðu
tilbúnir til að taka þátt í starfinu?
— Fólkið, sem tekur þátt í
. starfinu, er þakklátt fyrir það að
eitthvað skuli gert. En sumir
fást ekki til að vera með. Sumir
koma einu sinni en ekki oftar.
Sumum hentar ekki það form
sem er á starfinu. Þetta er ná-
kvæmlega það sama og á við um
unglingana. Það þarf að fá þá til
að vera með.
Og hver er framtíðarstefnan?
— Hlutverk nefndarinnar er
að hvetja til starfa og opna augu
fólks fyrir nauðsyn þessa starfs
og ánægjunni, sem það veitir.
Það heldur áfram að vera stefna
okkar.
Bæn um lækningu
af böli áfengis
og fíkniefna
í dag er hinn almenni bæna-
dagur þjóðkirkjunnar. Biskup-
inn, herra Pétur Sigurgeirsson,
hefur óskað eftir því að sameig-
inlegt bænaefni okkar sé: Bæn
um trú til að lækna þjóðina af böli
áfengis og neyzlu flkniefna. Við
leituðum því til nokkurra í hópi
þeirra, sem hafa sérstakt vit og
reynslu í þessum málum, og
sendum ykkur svörin.
Hvaða ráð gæflrðu ef við værum
sjúk af áfengisdrykkju eða flkni-
efnaneyzlu?
Óli Ágústsson í Samhjálp:
í gegnum tíðina hafa milljónir
karla og kvenna um víða veröld
upplifað það að Jesús Kristur
hefur breytt sorgum þeirra og
angist í sigur og heilbrigði. Ég
geri orð hans í Mark. 1.10 að
mínum: TRÚIÐ Á GUÐ.
Hvað myndirðu ráðleggja okkur
ef við værum vandamenn áfeng-
issjúklinga?
Ég myndi benda ykkur á Al-
Anon-samtökin, sem eru samtök
aðstandenda alkóhólista. Ég
myndi bjóða ykkur einkaviðtal
og benda ykkur á kynningar-
fundina, sem eru á fimmtu-
dagskvöldum kl. 8 í Síðumúla og
á fjölskyldunámskeiðin á vegum
Áfengisvarnadeildar Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur í
Síðumúla. Ég myndi segja ykkur
að þið þurfið ekki að bíða eftir
því að áfengissjúklingurinn leiti
hjálpar heldur er full ástæða til
þess að þið leitið eftir hjálp fyrir
sjálf ykkur.
Kristín Waage hjá Áfengis-
varnadeild Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur.
Hvaða gagn hefðum við af því að
vera í AI-Anon-samtökunum?
Kona, að sjálfsögðu ónafngr-
eind:
í Al-Anon ríkir fullkomið
trúnaðartraust. Þar finnur mað-
ur skilning, samúð og huggun.
Þar fer fram það sama starf að
mannskilningi og mannrækt,
sem ástundað er í AA.
Hvers vegna berstu gegn áfeng-
isneyzlu?
Ólafur Haukur Árnason hjá
Áfengisvarnaráði:
Vegna þess að það er grund-
vallaratriði að augu fólks opnist
fyrir því að áfengi er vímuefni,
sem ber að flokka með slíkum
efnum, en ekki með hlutum, sem
eru nauðsynlegir og þarfir.
Ólafur Haukur Árnason
Kristín Waage
Óli Ágústsson
Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig
við það, sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því, sem ég get breytt,
og vit til að greina þar á milli.
Biblíulestur vikuna 27. maí—2. júnf
Ógæfa áfengisins
Sunnudagur 27. maí: Orðskv. 23.29-35 — Óvit vínsins
Mánudagur 28. maí: Jes. 5.11-12 — Gleymska samdrykkjunnar
úriðjudagur 29. maí: Róm. 13.13-14 — Osómi ofdrykkjunnar
Miðvikudagur 30. maí: Orðskv. 21.17 — Vín eyðir fé
Fimmtudagur 31. maí: Gal. 5.22 — Vín leiðir til spillingar
Föstudagur 1. júní: Orðskv. 20.1 — Vínið er spottari
Laugardagur 2. júní: Matt. 7.7-12 — Blessunar bænarinnar
Hver hjálpar?
AA-samtökin
Ai-Anon-samtökin
Vífilsstaðir
Göngudeild Landspítalans
D 33 á Landspítalanum
Fræðslu- og leiðbeiningastöð
SÁÁ í Síðumúla
Vogur
Samhjálp á Hverflsgötu
Hlaðgerðarkot