Morgunblaðið - 27.05.1984, Page 46
94
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MAÍ 1984
Sex sveitir
á norrænni rokkhátíð
í Höllinni
EINS og skýrt var frá á
Járnsíöunni fyrir nokkru verö-
ur einn liöurinn í hátíðarhöldum
Listahátíöar norrænir rokk-
tónleikar í Laugardalshöll-
inni þann 5. júní.
Tvær íslenskar sveitir,
Þursaflokkurinn og Vonbrigði,
koma fram fyrir hönd landans,
en fjórar sveitir frá hinum
Norðurlöndunum sækja
okkur heim. Eru þaö Cirkus
Modern frá Noregi, Imperiet frá
Svíþjóð, Hefty Load frá Finn-
landi og Clinic Q frá Dan-
mörku.
Óþarfi er að fara mörgum
orðum um íslensku sveitirnar
tvær, þær þekkja allir. Hér á síö-
unni, sem jafnframt veröur síð-
asta Járnsíðan í umsjá undir-
Egíll Ólafsson, yfirþurs.
ritaðs, er aö finna stuttaralega
kynningu á erlendu sveitunum.
Járnsíðan minnir þó á, að sjón
er sögu ríkari og skorar á alla
rokkunnendur aö fjölmenna í
Höllina til þess aö kynnast nor-
rænni rokktónlist og þá ekki
síöur til þess aö sjá hvar ís-
lensku sveitirnar standa í sam-
anburöi viö þaö besta frá frænd-
þjóðunum. — SSv.
Hljómsveitin Vonbrigöi.
IMPERIET
Sænska hljómsveitin á nor-
rænu rokkhátíöinni veróur Imp-
eriet, sem í dag er ein þekktasta
og frambærilegasta hljómsveit
Svía. Það kemur kannski ekki á
óvart, þar sem imperiet var stofn-
uð upp úr hljómsveitinni Ebba
Grön. En hún haföi geysileg áhrif
á allt rokklíf í Svíþjóð upp úr
1980. Til að fólk átti sig betur á
hvað Ebba Grön var fyrir sænska
rokkmúsík, þá hafói hljómsveitin
álíka þýöingu í Svíþjóð og Utan-
garösmenn hér á íslandi. Tónlist
Ebba Grön einkenndist af því aö
vera kraftmikil rokkmúsík, þar
sem textarnir voru bundnir sterk-
ri þjóöfélagslegri ádeilu. f Ebba
Grön mátti finna sterk áhrif frá
pönkkúlturnum.
Imperiet tók upp þráöinn, þar
sem Ebba Grön hætti og eru textar
Imperiet myndrænir og beinskeytt-
ir, fullir ádeilu á óviöunandi ástand
og spennu í heiminum í dag. Sú
tónlist, sem Imperiet flytur er gíf-
urlega kraftmikil og ber vott um
fjölbreytni og þor. Þessi tónlist er
ekki pönk þó svo aö umfjöllun,
áhrif og hugmyndir þess sóu enn til
staöar hjá Ebba Grön-félögunum í
Imperiet.
Nú hefur Imperiet veriö starf-
andi í rúmt ár og virðist ætla aö ná
svipuöum sess í norrænni rokk-
tónlist og Ebba Grön. Fyrir tæpu
ári kom út fyrsta LP-plata Imperi-
et, sem heitir Rasera og töldu
flestir sænskir og reyndar rokkg-
agnrýnendur í allri Skandinaviu
þetta eina athyglisveröustu plötu
síöasta árs og var hún m.a. kosin
plata ársins í Svíþjóö. Á því eina
ári, sem hljómsveitin hefur veriö
starfandi hefur hún spilað opin-
berlega ótrúlega oft. Þegar Imperi-
et kemur til fslands hefur hún veriö
á tveggja mánaöa tónleikaferö um
öll Noröurlöndin.
Imperiet er óhemju dugleg
hljómsveit og þrátt fyrir velgengni
og aö allt bendi til þess aö hún geti
oröiö stærsta nafniö í norrænni
rokktónlist, leitast hún viö aö
standa á eigin fótum og utan viö
„commercialismann'1. í síöasta
mánuöi kom svo út önnur plata
Imperiet, sem er sjö laga „mini-
album“og benda móttökurnar til
aö Imperiet sé vaxandi hljómsveit.
Spennandi veröur aö fylgjast meö
tónleikum Imperiet hér á íslandi.
Hún hefur allt aö bera, sem krafist
er af góöri rokkhljómsveit: kraft,
innlifun, spilagleöi og skemmtilega
sviösframkomu, góö lög, ágengni
og frábæra texta.
Líkt og ísland stendur Finnland
töluvert utan viö hinn norræna
„kúltúr" og er rokktónlistin þar
engin undantekning.
Finnska hljómsveitin, sem kem-
ur á norrænu rokkhátíöina heitir
HEFTY
LOAD
Hefty Load. Þó aö hljómsveitin sé
tiltölulega ung, hefur starfaö í inn-
an viö eitt ár, hafa flestir meölim-
anna veriö áberandi í finnskri
rokktónlist um alllangan tima.
Hljóðfæraskipan Hefty Load er
nokkuö ólík hinum hljómsveitunum
er mun spila hér, en hún er m.a.
skipuö saxafónleikara. Tónlistin er
undir sterkum áhrifum frá „svartri
fönK" tónlist, flutt af heitri tilfinn-
ingu og sannfærandi, enda er einn
af meðlimum hljómsveitarinnar
negri.
Hefty Load gaf út fyrir nokkr-
um mánuðum sína fyrstu Ip plötu.
Á henni er m.a. lag, sem komst í 5.
sæti óháöa listans í Bretlandi
(Sounds — snemma á árinu).
Finnskar hljómsveitir hafa vakið
töluveröa athygli í brezku rokkpr-
essunni síöustu misserin. Má þar
nefna pönkhljómsveitina, Ratus,
Hanoi Rocks og vitanlega Jimi
Sumén fyrrum gítarleikara Classix
Nouveaux. Sumén er nú kominn til
Finnlnds aftur og hefur hann veriö
upptekinn viö aö aöstoöa ungar
finnskar hljómsveitir í stúdíóum.
En Jimi Sumén stjórnaöl upptök-
unni á nýju Hefty Load plötunni og
er ekki hægt aö segja annað en aö
honum hafi fariö þaö verk vel úr
hendi. Tónlist Hefty Load skilar sér
vel á þessari plötu. Fönkiö er heil-
landi og andstæöurnar í tónlistinni
vinna vel saman. Segja má aó gít-
arleikurinn sé jafn geggjaöur og
útlit og framkoma Mans Kullmans
gefur til kynna.
Tónleikarnir í Reykjavík eru hluti
af tónleikaferö Hefty Load um
Noröurlöndin.
CLINIC Q
Clinic Q er ein af þeim ný-
bylgjuhljómsveitum, sem hafa gert
þaö gott í Englandi og Danmörku.
Hún hefur þegar haft nokkur áhrif
á þessum stööum á heföbundna
rokktónlist meö þeirri blöndu af
rokki, fönki og pönki sem hún spil-
ar. Bandiö á rætur sínar aö rekja
til „underground“-tónlistarlífsins í
Kaupmannahöfn. í upphafi voru
stúlkurnar fjórar en hafa nýlega
bætt viö fimmta meölimnum.
Hæfni hljómsveitarinnar og hug-
myndir hafa hrifiö tónlistargagn-
rýnendur í Danmörku og tónlistinni
veröur best lýst sem melódískri
krefjandi rokktónlist meö „nýjum
takti".
Meölimir Clinic Q eru hluti af
nýrri kynslóö tónlistarmanna, sem
lætur aö sér kveöa í tónlistarheim-
inum meö snjöllum „undergr-
ound“-hugmyndum og snjallri „lýr-
ik“.
Heföbundin form í tónlist eins
og hjá Bob Dylan, Lou Reed og
Roxy Music hafa haft sín áhrif á
meölimi hljómsveitarinnar. En á
sama tíma finna þeir til skyldleika
með sams konar nýjum hljóm-
sveitum í Danmörku.
Clinic Q er sjálfstætt starfandi
kvennaband, en flestlr í Danmörku
viröast gera meira veöur út af því
en stelpurnar sjálfar.
Stóra platan þeirra „Aye“ hefur
eingöngu aö geyma þeirra eigln
tónsmíöar ásamt textum, nema
lagiö „Down Below" sem var á sín-
um tíma skrifaö af Irving Berlin
sáluga, þeim fræga tónsmiö sem
samdi ótal söngleikl. Textinn var
ætlaöur í eina af Chaplin-myndun-
um, en var ritskoðaöur sökum
þess að hann þótti innihalda vafa-
sama hluti.
Clinic Q hefur á síðustu tveimur
árum haldiö tónleika á helstu
konsertstööum Danmerkur og hef-
ur hún fengið orð fyrir líflega og
kraftmikla sviösframkomu.
Stúlkurnar eru um þessar
mundir aö leggja síöustu hönd á
næstu breiöskífu sína.
CIRKUS
MODERN
Cirkus Modern er 4 manna
hljómsveít, sem stofnuö var í
nóvember síöastliönum og hefur
á skömmum tíma skotist upp é
toppinn í norsku rokktónlistarlífi.
Þaö eru engir viövaningar, sem
standa aö hljómsveitinni því þeir
hafa veriö leíóandi í norskri
rokktónlíst um árabil.
Jern Christensen gítarleikari og
Ola Snortheim trommari koma úr
hljómsveitinni DePress sem á sín-
um tíma var ein helsta nýbylgju-
/pönk-hljómsveit í Noregi. Helge
Gaarder söngvari, sem var
aöaldriffjööur í hljómsveitinni Kjott
og Mari Wendelbo hljómborös-
leikari, sem starfað hefur meö fjöl-
mörgum rokk- og Jasshljómsveit-
um.
Árið 1981 fengu Jorn og Ola hln
eftirsóttu Spellemanns-verðlaun
fyrir framlag sitt meö DePress og
sama ár þótti tíöindum sæta aö
Helge Gaarder var látin sitja hjá
viö úthlutun verölaunanna fyrir
stórverk hljómsveitarinnar Kjott
-Op“.
Helge hefur veriö í gegnum árin
geysi afkastamikill textahöfundur
og hefur sýnt og sannaö aö hægt
er aö semja á norsku þannig, aö úr
veröi spennandi og krefjandi text-
ar. Hann hefur auk þess veriö
stjórnandi í upptökum margra
hljómsveita svo sem Raga Rock-
ers, Hiss og flelri. Hann hefur
ennfremur veriö óþreytandi vlö aö
skrlfa í blöö og virkja aöra fjöl-
miöla í baráttunni viö fordóma og
menningarsnobb gegn rokkinu.
Fyrsta plata hljómsveitarinnar
leit dagsins Ijós í mars og heltlr
einfaldlega CIRKUS MODERN. Allt
efni plötunnar er eftir hljómsveit-
armeölimi og hefur platan fengiö
góöa dóma og viötökur í Noregi.
Auk þessa hefur hljómsveitin
þeyst landshorna á milli til hljóm-
leikahalds og troöiö upp í öllum
stærstu borgum Noregs.
í síöasta mánuöi var svo
hljómsveitinni boöiö aö koma fram
í sjónvarpsþættinum Zlkk Zakk,
sem er nokkurs konar Skonrokk
þeirra Norömanna.
Danska hljómsveitin Clinic Q.