Morgunblaðið - 29.05.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.05.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1984 Yngvi Jóhannes- son látinn YNGVI Jóhannesson lést í Reykjavík í fyrradag, 87 ára að aldri. Yngvi var verzlunarmaður allan sinn starfsferil, en þekktast- ur var hann fyrir þýðingar sínar. Yngvi fæddist 16. ágúst 1896 á Kvennabrekku, Miðdalahreppi, Dalasýslu. Hann brautskráðist frá Verzlunarskóla íslands 1919 og hóf strax eftir verzlunarpróf störf sem bréfritari og fulltrúi hjá Nathan & Olsen. Þar starf- aði hann til ársins 1929, að hann hóf störf hjá Mjólkurfélagi Reykjavíkur, þar sem hann síð- an starfaði ailan sinn starfsald- ur. Meðfram verzlunarstörfum lagði Yngvi stund á þýðingar- störf, og meðal verka sem hann þýddi er Úr djúpinu eftir Oscar Wilde, Bókin um veginn eftir Lao Tse, sem hann þýddi ásamt Jakob Smára, bróður sínum, og Faust í bundnu máli sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu og síðar gefið út af Menningarsjóði. Þá samdi Yngvi ljóð og var ljóða- bók hans Skjýjarof gefin út árið 1947. Yngvi var kvæntur Guðrúnu Jóhönnu Jónsdóttur Bergmann og lifir Guðrún mann sinn. Þau eignuðust þrjú börn, Örn, Stein- unni og Óttar, sem öllu eru á lífi. Útför dr. Ólafs Jóhannes- sonar fer fram í dag ÚTFÖR dr. Ólafs Jóhannessonar Stephensen jarðsyngur. fyrrum forsætisráðherra, sem andað- Orgelleik við útförina annast ist í Reykjavík 20. maí sl., verður Marteinn H. Friðriksson, Gunnar gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í Kvaran leikur á selló og Dómkór- dag, þriðjudag, kl. 13.30. Fer hún inn syngur. Dr. ólafur verður fram á vegum ríkisins. Séra Þórir jarðsettur í Fossvogskirkjugarði. Fyrirtæki í sjávarútvegi á Austurlandi: Guðmunda Kristinsdóttir, fremst fyrir miðju, ásamt afmælisgestum í gærkvöldi. MorminbimAið Kmilía Stöðvast á næstu vikum með óbreyttri stjórnarstefnu — segir Ólafur Gunnarsson, framkvæmdastjóri, Neskaupstað Héldu upp á afmælið í Reykjavík og París „ÞAÐ er rétt, ég get ekki komið heim til íslands á Listahátíðina vegna þess að ég er svo önnum kafinn við verkefni fyrir Renault- verksmiðjurnar,** sagði listmálar- inn Guðmundur Guðmundsson, Krró, er Morgunblaðið ræddi við hann í París í gærkvöldi. „Renault-verksmiðjurnar pöntuðu hjá mér fjögur stór málverk, sem ég þarf að klára í nóvember. Ég nota aðeins efni sem verksmiðjurnar nota í bíl- ana sína, allt frá vél og uppúr. Þetta er því nýstárlegt verkefni. Verkin ætla þeir að setja á safn í Suður-Frakklandi. Ég vinn af kappi og kemst því ekki til ís- lands. Ég verð að láta nægja að senda fimm stór verk á sýning- una á Kjarvalsstöðum," sagði listamaðurinn. Erró gat þess að lokum að hann væri í miðjum veizluhöld- um þetta kvöld. „Ég fékk sendan reyktan rauðmaga, lax, urriða úr Mývatni og fleira góðgæti frá vini mínum Garðari Svavarssyni og bauð nokkrum Frökkum og Afríkumönnum að snæða með mér. Ég er nefnilega að halda upp á 80 ára afmæli Guðmundu Kristinsdóttur, móðursystur minnar, sem er í dag. Ég held upp á afmælið í París en hún á Freyjugötu 34 í Reykjavík," sagði Erró að lokum. Erró hélt upp á afmælið í París. „NTAÐA fyrirtækja í sjávarútvegi hér á Austurlandi er slík, að með óbreyttri stjórnarstefnu í sjávarút- vegsmálum, stöðvast þau á næstu vikum. Við metum tap saltfiskverk- unar um 5% af tekjum, útgerðar um 15% og frystihúsin eru í mesta lagi í núllinu margumtalaða. Það vantar mikiö upp á það, að tekið hafi verið á málunum eins og um var talað við síðustu fiskverðsákvörðun," sagði Ólafur Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Síldarvinnslunnar í Neskaup- stað, er Morgunblaðið innti hann eftir stöðunni á Austurlandi. Sjávarútvegsmenn á Austur- Hagkaup hefur pantað 100 tonn af kartöflum HAGKAUP hefur pantað 100 tonn af kartöflum sem koma til landsins vikulega út júnímánuð. Fyrirtækið tilkynnti landbúnaðarráðuneytinu um þessar pantanir í gær, en von var á fyrstu sendingunni í gærkvöldi. Aður hafði fyrirtækið fengið tvo kartöflufarma til landsins, annan þeirra varð eins og áður hefur ver- ið sagt frá að endursenda, en hinn seldist upp á skammri stundu í verslunum Hagkaups. landi héldu almennan fund á Eg- ilsstöðum síðastliðinn sunnudag með Halldóri Ásgrímssyni, sjáv- arútvegsráðherra, þar sem þessi staða var rædd. Fundurinn sendi engar ályktanir frá sér af þessu tilefni, en Ólafur Gunnarsson sagði, að það biði í eina viku. Ætl- unin væri að sjá, hvernig fisk- verðsákvörðun yrði háttað og fleiri málum, sem nú væru á döf- inni. Lítið gengi með skuldbreyt- inguna og alls ekkert hefði verið tekið á afkomumálunum og því hrönnuðust lausaskuldirnar upp. Hann vildi gjarnan fá að heyra um þann kaupmann, sem treysti sér til að kaupa vöru á 100 krónur og selja hana aftur á minna verði eins og raunin væri í fiskvinnsl- unni nú. Þá sagði Ólafur, að við hinar nýju áætlanir Þjóðhagsstofnunar, sem nú hefðu litið dagsins ljós, könnuðust menn í sjávarútvegin- um ekki. Þær sýndu hagstæðari rekstur en staðreyndir sýndu, ekk- ert tillit væri tekið til augljósra staðreynda svo sem skuldabagga útgerðarinnar, sem stafaði af gengisþróun undanfarinna ára. Aflasamsetning væri mun óhag- stæðari en gert væri ráð fyrir í þessum áætlunum, birgðahald væri meira og ekki tekið mið af framleiðslutakmörkunum á hag- kvæmustu framleiðslunni, svo sem ýmsum pakkningum af karfa og þorski. %■ -r- Þessi mynd er tekin úr lofti í síðustu viku af Bessastöðum og nágrenni. Samkvæmt fyrra samkomulagi var benzínstöðinni ætlaður staður hérna megin við aðalveginn, sem vörubílarnir aka eftir, en vinstra megin við veginn næst okkur við gatnamótin beint á móti biðskýlinu hvítmálaða. Hreppsnefnd Bessastaðahrepps: HREPPSNEFND Bessastaðahrepps ákvað á fundi sínum sl. laugardag að falla frá fyrri bókun um æskilega staðsetningu benzínstöðvar á Grandastykki á Bessastaðagranda. Erla Sigurjónsdóttir oddviti Bessa- staðahrepps sagði í viðtali við Mbl., að ástæða þessarar ákvörðunar væri hin skýra andstaða, sem fram hefði komið af hálfu íbúa hreppsins gegn benzínstöð á þessum stað, en mikill meirihluti atkvæðisbærra íbúa hefur undirritað mótmælalista gegn stöð- inni. Erla sagði ennfremur að aðal- atriði þessa máls væri það, að nú væri verið að vinna að aðalskipu- lagi Bessastaðahrepps. Þegar það lægi fyrir og þar með ákvörðun um staðsetningu miðbæjarkjarna yrði einnig ljóst hvaða mannvirki, sern tengdust þjónustu við íbúana, yrðu þar. Mótmælalistana undirrituðu að sögn Erlu 219 atkvæðisbærir Bessastaðahreppsbúar, en í síð- ustu kosningum þar voru 289 á kjörskrá. Féll frá heimild fyrir benzínstöð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.