Morgunblaðið - 29.05.1984, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1984
Í5
r _ _____
Islensk húsgögn á Scandinavian Furniture Fair í Kaupmannahöfn:
Athyglin beindist einkum að
Maxis-stól Péturs Lútherssonar
ÍSLENSK húsgögn vöktu mikla at-
hygli á stórri alþjóðlegri húsgagna-
sýningu, Scandinavian Furniture
Fair, í Bella Center í Kaupmanna-
höfn fyrr í þessum mánuði. Athyglin
beindist einkum að nýjum stól úr
Maxis-línu húsgagnaverslunarinnar
Axis í Kópavogi en hönnuður línunn-
ar er Pétur B. Lúthersson, húsgagna-
arkitekt. „Það verður að segjast eins
og er, að þetta gekk mjög vel og ég
get fullyrt að við munum á næstunni
selja baeði stólinn og fleiri húsgögn
til nokkurra landa,“ sagði Helgi
Steingrímsson, sölustjóri hjá Axis, í
samtali við blaðamann Mbl. Helgi
var ásamt fleiri starfsmönnum fyrir-
tækisins á sýningunni í Bella Center.
Gert er ráð fyrir að stóllinn fari
í framleiðslu upp úr miðju sumri,
að því er hönnuðurinn, Pétur
Lúthersson, sagði í samtali við
blaðamann Mbl. um það bil sem
sýningin ytra var að hefjast.
„Þessi stóll nýtist sem tveir stólar,
þar sem á þarf að halda, t.d. í
þröngu húsnæði. Með einu hand-
taki breytir hann mikið um útlit
— breytist úr almennum funda-
eða borðstofustól í ágætan hæg-
indastól eða öfugt," sagði Pétur
Lúthersson.
Pétur hefur gengið með hug-
rmrndina að stólnum í nokkur ár.
„Ég var farinn að hugleiða þetta
og velta fyrir mér hönnuninni áð-
ur en ég fór að vinna með Axis
fyrir tveimur árum,“ sagði hann
þegar gestirnir höfðu komið sér
þægilega fyrir í nýja stólnum í
rúmgóðri verslun Axis við
Skemmuveg. „Ég veit að það er
erfitt og jafnvel varasamt að taka
stórt upp í sig í þessu sambandi en
ég þekki ekkert fyrirbrigði af
þessari gerð, við teljum að stóllinn
sé einstæður og höfum á grund-
velli þess sótt um einkaleyfi á
framleiðslu þessa stóls.“
Stóllinn er úr formspenntum
Guðmundur Helgason
Landsvirkjun:
Guðmundur
Helgason
ráðinn
rekstrarstjóri
HINN 31. mars sl. auglýsti Lands-
virkjun stöðu rekstrarstjóra Lands-
virkjunar lausa til umsóknar. Um-
sækjendur voru þrír, þeir Gísli Júlí-
usson, deildarverkfræðingur hjá
Landsvirkjun, Guðmundur Helga-
son, aðstoðarrekstrarstjóri Lands-
virkjunar, og Hákon Örn Arnþórs-
son, nemi í byggingartæknifræði.
Á fundi hinn 1. þ.m. samþykkti
stjórn Landsvirkjunar að veita
Guðmundi Helgasyni stöðuna frá
1. júlí nk. að telja, en þá lætur
núverandi rekstrarstjóri Lands-
virkjunar, Ingólfur Ágústsson, af
störfum hjá Landsvirkjun fyrir
aldurssakir.
spæni úr aski eins og önnur hús-
gögn í Maxis-seríunni. Áklæðið er
íslensk ull. Sérstakt mót var búið
til fyrir hverja einingu fyrir sig,
þ.e. setu og arma, og einingarnar
síðan framleiddar í Þýskalandi,
þar sem ekki er enn hægt að ann-
ast slíka vinnu hér heima. „Askur
hefur lítið verið notaður hér
heima hingað til en þessi viðarteg-
und er mjög áberandi í Evrópu,
bæði lituð og ólituð, eins og við
erum með í Maxix-seríunni. Askur
hefur marga góða kosti og þetta er
ekki óáþekkt eik en hefur meiri
sveigju en flestar heilviðartegund-
ir, enda var askur áður fyrr mikið
notaður í skíði," sagði Pétur.
Scandinavian Furniture Fair er
árleg kaupstefna húsgangafram-
Ieiðenda, tvímælalaust talin þýð-
ingarmesta húsgagnasýning Norð-
urlandabúa. Hana sækja þúsundir
fagmanna og innkaupastjóra víðs-
vegar að úr heiminum til að kynna
sér það nýjasta í norrænni hús-
gagnahönnum og -framleiðslu.
Áuk Axis tóku Víðir og Ingvar &
Gylfi þátt í sýningunni í Bella
Center að þessu sinni.
— Morgunblaðið/RAX
Pétur Lúthersson húsgagnaarkitekt (til vinstri) í nýja stólnum. Þórður Ax-
elsson, framkvæmdastjóri Axis, stendur við stólinn í hægindastólsútfærsl-
unni. Borðið á milli þeirra er ýmist sófaborð eða funda- og borðstofuborð.
öflug hmðflutningspjónusta
Fm verksmiðjidchfrum erlendis
aíla íeið hám í hbð
Nýja hraðflutningsþjónustan okkar, „EIMSKIP -
EXPRESS" tryggir þér mesta mögulegan flutn-
ingshraða á sjóoglandi. „EIMSKIP - EXPRESS"
sér um að sækja vöru þína við verksmiðjudyr
erlendis og annast flutning hennar til útskipunar-
hafnar, þar sem skip Eimskips taka við.
Nú þegar bjóðum við „EIMSKIP - EXPRESS" í
Bretlandi, Belgíu, Frakklandi, Hollandi, Ítalíu,
Þýskalandi og Danmörku, og auðvitað höldum við
áfram útbreiðslu Express-þjónustunnar víðar um
heim.
Flutningur er okkar f ag ■ I P
E W Sl K P 1 h «
Sími 27100