Morgunblaðið - 29.05.1984, Síða 17
mortAM oo wTTnArrTTTnT«<T QiaA mT/TTOírnM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAI 1984
máli um þetta og notuðu stór lýs-
ingarorð þegar rætt var um Hrímni
og frammistöðu hans. Ginn sagði að
þetta væri líkast málverki af
draumahestinum sínum. Voru
menn einnig sammála um að hest-
urinn hafi aldrei verið eins góður og
einmitt nú, þó að hann hafi áður
staðið efstur á landsmóti og í tölti á
íslandsmóti. Af sýningaratriðum
Toppsýningar er svo eftir að minn-
ast á þátt skeiðhestanna. Þar voru
mættir til leiks Leistur, Torfi,
Fannar, Börkur, Jón Haukur og
Máni, allt þekktir og þrautreyndir
kappreiðavekringar og knaparnir
einnig. Sérstaklega vil ég minnast á
Leist sem Sigurbjörn Bárðarson
sat, en þeir sýndu mjög góða spretti
og ekki bara einn heldur hvern á
fætur öðrum sýningu eftir sýningu.
Þar var samspil manns og hests í
fulikomnu lagi og aðdáunarvert
hversu gott jafnvægi hesturinn hef-
ur á skeiðinu.
Þrír Evrópumeistarar mættu til
leiks, þeir Aðalsteinn Aðalsteins-
son, Tómas Ragnarsson og síðast en
ekki síst Þjóðverjinn Hans Georg
Gundlach sem var með námskeið
hérlendis fyrir tamningamenn fyrr
í þessum mánuði. Hans Georg sýndi
frábæra reiðmennsku á Tígli frá
Holti, sem er landskunnur gæðing-
ur.
Nokkrar kunnar hestakonur
sýndu reiðmennsku kvenna fyrr á
tfmnm bað er að segja söðulreið.
miður voru undantekningar á því
hvað varðar góða reiðmennsku. Var
það sérstaklega einn knapi sem
sýndi af sér mjög grófa reið-
mennsku — svo grófa að varla sést
annað eins á kappreiðum þar sem
stundum er gengið út fyrir allt vel-
sæmi. Um leið og hér eru látin falla
stór lýsingarorð um það sem já-
kvætt var þá er því miður ekki hægt
að komast hjá að minnast á þessi
leiðindi í þeirri von að slíkir hlutir
endurtaki sig ekki. Rétt er þó að
taka það fram að þó eitt fölnað
laufblað í skóginum sé fordæmt þá
stendur skógurinn eftir sem áður
jafngóður.
Þarfasti þjónninn
Á undan Toppsýningu var áhorf-
endum gefin innsýn inn í hlutverk
hestsins hér á árum áður. Var sýnd-
ur flutningur á heyi eða heybands-
lest eins og það var kallað, hestar
fyrir vagni, póstlest var sýnd og
sett var á svið kaupstaðarferð með
áburðarhesta. Til þess að gera sýn-
ingu þessa mögulega þurfti að fá
lánuð ýmiskonar hestaáhöld og
verkfæri sem ekki hafa sést í notk-
un nú um 30 ára skeið. Þetta atriði
og sýning stúlknanna sem áður var
á minnst, gaf mönnum nokkuð góða
mynd af notkun hesta hér á árum
áður og er vonandi að atriðum sem
þessum verði viðhaldið á sýningum
sem þessari. Eftir að hafa séð þessi
eldri vinnubrögð gerir maður sér
Sigurbjörn Bárðarson og Háfeti frá Kirkjubæ settu íslandsmet í hæðar-
stökki.
Var þetta bæði fróðlegt og
skemmtilegt sýningaratriði, en
sennilegt er að fæstir áhorfenda
hafi séð slíkt áður. Fóru konurnar á
brokki, tölti og skeiði, riðið bæði
hægt og yfirferð.
Ennþá gleður
Náttfari augað
Náttfari 776 frá Ytra-Dalsgerði
kom nú fram á sjónarsviðið eftir
fimm ára hlé og fylgdu honum nú
tíu afkvæmi en ekki börn eins og
þulurinn hafði á orði. Manni datt
nú svona í hug að ef farið verður að
kalla afkvæmi hrossa börn er þá
ekki næst að stóðhestarnir hætti að
fylja hryssurnar en fari í þess stað
að barna þær.
Á síðasta landsmóti fullyrti
hrossaræktarráðunautur BÍ að ef
Náttfari hefði verið sýndur þar með
afkvæmum hefði hann fengið góð
fyrstu verðlaun og það er augljóst
mál að nú stendur spurningin um
það hvort hann eigi möguleika á
heiðursverðlaunum eða ekki. Hæfi-
leikar afkvæmanna eru ótvíræð en
byggingin er veiki punkturinn.
Verður fróðlegt að fylgjast með
framvindu mála því senn hlýtur að
koma að því að Náttfari verður
leiddur í dóm með afkvæmum. Af
þeim afkvæmum sem sýnd voru nú
bar hæst þá Hlöð frá Hvoli og Eld-
járn frá Hvassafelli. Auk þess
mætti nefna Fylki frá Bringu,
Stóra-Hofs hryssurnar Hyllingu og
Buslu, fínlegar og vel vakrar báðar
tvær. Náttfari sjálfur stóð vel fyrir
sínu og átti hann gott „come back“
svo maður seilist nú í orðasmiðju
fótboltamanna.
Eitt fölnad laufblað
Áður en skilið er við Toppsýning-
una er ekki úr vegi að minnast
lítilsháttar á reiðmennskuna þessa
helgi. Yfirhöfuð sýndu knapar fal-
lega og fágaða reiðmennsku, voru
öruggir í sýningum sem kröfðust
nákvæmrar samvinnu milli manna.
Stundvísi var í góðu lagi svo sýn-
ingarnar gengu vel fyrir sig. En því
óneitanlega betur grein fyrir nafn-
giftinni þarfasti þjónninn.
Fyrsta vörusýning sinn-
ar tegundar hérlendis
Eins og kemur fram í upphafi
greinarinnar var haldin vörusýning
inni í Garðalundi, félagsmiðstöð
Garðabæjar, og var þar sýnt flest
allt sem viðkemur hestum og hesta-
mennsku. Reiðtygjaversalnir voru
flestar ef ekki allar með bása, bæði
innflytjendur og nokkrir söðlasmið-
ir. Kom greinilega í ljós á þeim ís-
lensku hnökkum sem þarna voru
sýndir að söðlasmiðir eru í ríkum
mæli farnir að breyta hnökkum í
samræmi við kröfur nútímans. Á
efri hæðinni var sýning á gömlum
reiðtygjum og ljósmyndasýning um
íslenska hestinn. Var þessi sýning
og munir fengnir frá Árbæjarsafni.
Stórkostlegt átak hjá
litlu hestamannafélagi
Það er í einu orði sagt aðdáunar-
vert að svo lítið félag sem Andvari
er, skuli hafa bolmagn og getu til að
hrinda í framkvæmd sýningu sem
hér um ræðir. Þarf stóran hug og
mikinn kjark til að slíkt sé gerlegt.
Einnig þarf mikið fjármagn að
koma inn ef sýningin á að standa
undir sér, því vitað er að kostnaður-
inn við hana skiptir hundruðum
þúsunda, jafnvel þó mest öll vinna
hafi verið gefin. Þegar þetta er
skrifað er ekki ljóst hvernig málin
standa peningalega, en ljóst er að
tæplega kemur þetta til með að
skila gróða, því aðsókn var dræm
föstudag og laugardag og aðgangs-
eyri mjög í hóf stillt. Ekki er
ósennilegt að veðrið hafi eitthvað
sett strik í reikninginn en eigi að
síður er það umhugsunarefni af
hverju aðsókn var svo dræm.
En svona í lokin er rétt að óska
þeim Andvaramönnum til ha-
mingju með þetta góða framtak
sem óneitanlega minnir um margt á
söguna um Davíð og Golíat.
NEGATIV
LIMSTAFIR
í MÖRGUM LETURGERÐUM & LITUIVI
OG ÖLLUM stærðum frá 1cm upp í GOcm háa stafi
SKRIFTIN GETUR VERIÐ RÉTT EÐA
DUTO (spegilskrift), POSITIV EÐA
HaUandi fram og VvaWavwSx atwuv. fyrir hverskonar
merkingar á skilti, verslunarglugga, bila, báta o.s.frv.
Möguleikamir eru ótrúlegir.
HÆGT ER AÐ FÁ STAFINA UPPSETTA I ORÐUM,
MEÐ RÉTTU STAFABIU TILBÚNA TIL ÁUMINGAR.
VID VEITUM FÚSLEGA ALLAR UPPLÝSINGAR.
UMFERÐARMERKIHF, Skilti & Auglýsingar
BRÆDRAB0RGARST1G 9 - SÍMI22191 ^
Ungi fiskimaöurinn
er fyrsta verkið í nýjum
flokki listaverka frá Glit.
Aöeins veröa gefin út
15 tölusett eintók at þessu
sérstæða listaverki og þvi er
hér um oveniuoott tilefoi
Verkið er brennt
í grófan steinleir
hæð 32 cm.
R Verkið verður selt eftir
því sem pantanir berast.
Hvert eintak á kr. 14.800,—
HÖFÐABAKKA 9
SiMI85411
Ungi fiskimaðurinn
listaverk eftir
Ragnar Kjartansson
myndhögvara