Morgunblaðið - 29.05.1984, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1984
E1 Salvador:
Vinsældir skæru-
liða þverrandi?
San Salvador, 28. maí. AP.
GREGORIO ROSA CHAVES, varaerkibiskup San Salvador sagði í dag, aö
vinsældir og stuðningur við vinstri sinnaða skæruliða í landinu færu ört
dvínandi, fólk væri orðið yfir sig þreytt á borgarastríðinu og sæi Ijós í
myrkrinu eftir að úrslit forsetakosninganna voru kunngerð. Sagði Chaves að
þær aðgerðir skæruliðanna síðustu misserin, að ræna ungmennum í því skyni
að þjálfa þau til skæruhernaðar, benti eindregið til þess að hörgull væri nú á
mannskap í röðum þeirra.
Rosa Chaves hefur í kirkjutíð
sinni gagnrýnt ótæpilega bæði
vinstri og hægri armana í E1
Salvador og átt litlum vinsældum
að fagna í þeim röðum fyrir mikið,
þeim mun meiri á hinn bóginn
meðal friðelskandi fólks. Hann
sagði í sömu ræðu að annað sem
benti til betri tíðar með blómum í
haga fyrir E1 Salvadorbúa væri
hinn harði dómur sem kveðinn var
nýlega upp yfir fimm fyrrum
stjórnarhermönnum sem voru
sekir fundnir að hafa nauðgað og
myrt fjórum bandarískum nunn-
um. Um skæruliðahreyfingarnar
bætti hann svo við að lokum:
„Hugmyndafræðin er þurrausin,
ævintýraljóminn vikinn fyrir
skynsemi og fáviskan hopað fyrir
upplýsingu. Þessu lýkur senn.“
Stjórnarhermenn skjóta á skæruliða á svæðinu Las Maria í austurhluta El
Salvador.
Drottning undir fallbyssurisi
Elísabet Bretadrottning var fyrir skömmu í Dortmund í Vestur-Þýskalandi og skoðaði þar aöbúnað breskra
hermanna, sem þar eru til staðar á vegum NATO. Hér heilsar hún upp á hermenn ásamt breska herforingjanum
og fyrir ofan hana mynda fallbyssuhlaupin óvenjulegt ris.
Líbanon:
Morð, mannrán og
sprengjuhótanir
Kína — Grænland:
Samvinna um
byggingartækni
(■rcnlandi, 28. mai. Krá Niels Jörgen Hruun
frétUr. Mbl.
Grænlendingar og Kínverjar hafa
hafið samvinnu á sviði byggingar-
tækni, frá og með síðustu helgi, en
þá fór frá Grænlandi sendinefnd frá
Kína áleiðis heim með sinn hluta
tvírits af undirrituðum samningi.
Þetta er hálfgerður einstefnu-
samningur, það er að segja Kín-
verjar skuldbinda sig til að miðla
Grænlendingum af reynslu sinni í
húsbyggingum í köldu loftslagi.
20. júní kemur kínverski umhverf-
ismálaráðherran Li Xming í viku-
langa heimsókn til Grænlands og
með honum í för verða 6 til 9 sér-
fræðingar í húsbyggingum á norð-
urhjara. Er það von Grænlend-
inga að þeir geti sýnt gestum sín-
um byggðirnar við Diskóflóa og
þar fyrir norðan. Það er hins veg-
ar ekki útséð um það, þar eð hafís
virðist ætla að doka lengur þar við
á þessu vori en venja er til. Eru
nyrstu byggðirnar á Vestur-
Grænlandi enn einangraðar og
unnið er að því að fá ísbrjót til að
brjótast í gegn.
Beirut, 28. msí. AP.
PALESTÍNUSKÆRULIÐAR úr röðum andstæðinga Yassers Arafat, leiðtoga
PLO, játuðu á sig ábyrgð á árás sem gerð var á ísraelskan herflokk í
suðurhluta Líbanon. Þrír voru drepnir og tveir særðust illa. llmræddir
skæruliðar eru hliðhollir Sýrlendingum og yfirlýsing þeirra kom frá tals-
manni í Damaskus.
í dag varð einnig uppi fótur og
fit í bandaríska háskólanum í
Beirút, en shitar úr „Flokki guðs“,
eins og þeir kalla sig, hótuðu að
ræna öllum bandarískum kennur-
um og nemendum. Fylgdi hótun-
inni að mannræningjarnir myndu
vera gyrtir sprengiefnum, til þess
að tryggja það að fórnarlömb
þeirra myndu láta lífið ef á þá yrði
skotið. Shitar þessir líta á Khom-
eini hinn íranska erkiklerk sem
foringja sinn og leiðtoga. Ekki
verður sagt að vinnufriður hafi
verið í háskólanum, því auk þess
sem að framan er greint frá,
hringdi síminn þar 1 dag og
skuggaleg rödd fullyrti að á næstu
klukkustundum myndi svo öflug
sprengja verða sprengd, að hið
The Wall Street Journal:
Flugleiðir vinna
aftur sinn sess
FLUGLEIÐUM hefur ckki bara
tekizt að þrauka erfiðleikatíma -
meðal annars með því að flytja
raunverulega pílagríma til Mekka
— heldur hefur félaginu meira að
segja tekizt að vinna sér aftur sess
sinn í fluginu yfir Atlantshafiö.
Sumir af keppinautum félagsins á
sviði lágra fargjalda eins og Laker
hafa horfið úr sögunni. Efnahags-
batinn í heiminum hefur orðið til
þess að blása nýju lífi í flugið yfir
AtlanLshaf fyrir nær öll flugfélög.
Og enda þótt flugfélagið Peopíe
Express og leiguflugfélög bjóði
lægri fargjöld tii Evrópu, þá eru
fargjöldin lægri hjá Flugleiðum en
svo til öllum öðrum.
Þetta kemur fram í frétt, sem
birtist á forsíðu bandaríska
blaðsins The Wall Street Journal
sl. þriðjudag, undir fyrirsögn,
VOL. II NO. 79
Retum Tríp
Icelandau Reclaiming
Its Place in Pantheon
Of Travel Bargains
Airline That Brought Europe
Americás Counterculture
Finds Life in Old Routes
Flying Pilgrims to Mecca
By Lawrbncb Ingrassia
Staff Hrporter of Th* Wali. SnutrT JmwiAL
RK3t-_________________________
Fyrirsögnin á forsíðufrétt blaðsins
The Wall Street Journal um Flug-
leiöir.
sem var á þessa leið: „Flugleiðir
vinna aftur sinn sess á vettvangi
hagstæðra fargjalda."
Þá skýrir blaðið frá því, að
Flugleiðir hafi flutt um 208.000
farþega yfir Atlantshaf á síðasta
ári, en þeir hafi orðið fæstir um
100.000 árið 1980. Þetta sé þó
samt færra en metárið 1978, er
félagið hafi flutt 280.000 farþega
á þessari flugleið. Mestu máli
skipti þó, að 3,8 millj. dollara
hagnaður hafi orðið á rekstri
Flugleiða á síðasta ári eftir sam-
fellt fjögurra ára tap.
Flugleiðir hafi aldrei verið
ráðandi aðili í farþegaflutning-
um á Norður-Atlantshafi, en fé-
lagið hafi unnið sér orðstír sem
frumkvöðull lægra fargjalda á
mjög samkeppnishörðum mark-
aði.
þriggja hæða hús myndi hrynja til
grunna og allir innanhúss láta líf-
ið. Voru allir reknir út og leitað
dyrum og dyngjum, en ekkert
fannst. Eigi er vitað hverjir stóðu
á bak við hótunina.
Kyrrt var að mestu við „grænu
línuna", en í stað þess að skjóta
hverjir á aðra, rændu sveitir
stríðsmanna óbreyttum borgurum
sem vildu nýta sér þann mögu-
leika að komast milli borgarhluta
án þess að bíða tjóns á heilsu
sinni. Var alls 50 manns rænt, en
öllum hafði verið sleppt innan
tveggja klukkustunda og tilgang-
urinn sýnilega einungis að skjóta
viðkomandi sakleysingjum skelk í
bringu.
Botha sækir
heim 8 lönd
Jóhannesarborg, 28. maí. AP.
P. W. BOTHA, forsætisráðherra Suður-Afríku, hélt í dag í mestu langferð
sem suður-afrfskur þjóðarleiðtogi hefur farið í 40 ár. Mun hann heimsækja
átta Evrópulönd og byrja á Portúgal. Þangað kemur hann á morgun, þriðju-
dag, en heldur þaðan á fimmtudag til Bretlands.
Botha ætlar að reyna að milda
viðhorf flestra Evrópuþjóða til
Suður-Afríku, en þær viðurkenna
ekki minnihlutastjórn hvítra
manna í landinu undir hans
stjórn. „Botha leiðir Suður-Afríku
út úr einangruninni," mátti lesa á
forsíðum málgagna stjórnarinnar,
en önnur blöð tóku ekki í sama
streng og skiptar skoðanir eru um
hver árangur kann að verða.
Eftir að hafa rætt við ráðamenn
í Bretlandi fer Botha til Vestur-
Þýskalands, síðan Austurríkis. þá
Sviss, Belgíu og Ítalíu, auk þess
sem hann mun koma við í Deville
Wood í Frakklandi, en þar féllu
margir Suður-Afríkumenn í fyrri
heimsstyrjöldinni. I flestum þeim
löndum sem Botha hyggst heim-
sækja, hafa verið skipulagðar
fjöldagöngur til að mótmæla að-
skilnaðarstefnu stjórnarinnar.
Flúði burt frá
Tékkóslóvakíu
Vín. 28. m»í. AP.
TUTTUGU og átta ára gamall Pól-
verji lét hvorki tékkneska landa-
mæraverði né kalt fljótið hindra sig
við að flýja til Austurríkis. Á sunnu-
dag synti maðurinn yfir fljótið Tha-
ya, sem er hluti af landamærunum
milli Tékkóslóvakíu og Austurríkis.
Þá sagði maðurinn, að skotið hefði
verið á sig af tékkneskum landa-
mæravörðum, en þeir hefðu ekki
hitt.
Gert er ráð fyrir, að maðurinn,
sem yfirvöld í Austurríki hafa til-
greint sem Marek M., muni biðja
um hæli sem pólitískur flóttamað-
ur þar í landi. Eitt vitni hefur
staðfest, að það hafi heyrt skot-
hvelli nálægt þeim stað, þar sem
Pólverjinn segist hafa farið yfir
ána. Enn er ekki ljóst með hvaða
hætti manninum tókst að komast
fram hjá öflugum landamæra-
virkjum Tékkóslóvakíu, sém gagn-
gert er ætlað að koma í veg fyrir,
að menn geti flúið yfir landamær-
in til Austurríkis.