Morgunblaðið - 29.05.1984, Page 23

Morgunblaðið - 29.05.1984, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1984 27 1 iaranum EITINNI raman af ungviðinu. Ekki er annað vitað en sauðburður hafí gengið essar vormyndir tók Sigurður Sigmundsson austur í Tungum og runum. íarsson, Tinna Björk Sigmundsdótlir og Bergur Þráinn Sveinbjörnsson sitja undir í Syðra-Langholti. Unniö við fermingu Rainbow Hope í Njarðvíkurhöfn í gærdag. Morgunbiaðið/KEE. •ItllH „Já, ég sé ekkert því til fyrir- stöðu.“ — Heldurðu að skipið anni öll- um flutningunum? „Ef raunin verður önnur á ég ekki von á öðru en fyrirtækið bæti við öðru skipi." — Nú hefur það verið umrætt, að Rainbow Hope hefur aðeins við- komu í Norfolk en ekki einnig í New York eins og íslensku skipafélögin gerðu til þess að bæta þjónustuna. Þýðir þetta ekki að það skipti her- inn engu máli hvort þjónusta á leið- inni er slæm eða góð? „Nei, þetta kemur því máli ekkert við. Herinn áætlar flutningskostnað á hvern og einn gám. Sé umræddur gámur í New York er ekkert því til fyrirstöðu að íslensk skipafélög flytji hann ef það kostar meira að koma honum til Norfolk til okkar og þaðan til íslands." — Borgið þið flutning á milli New York og Norfolk eða gerir her- inn það? „Slíkur kostnaður kemur að sjálfsögðu í hlut okkar." — Áttu von á því að þróunin verði sú, að Rainbow Navigation taki alla flutninga varnariiðsins í sínar hendur? „Um slíkt er erfitt að spá. Það er hins vegar gamall siður í Banda- ríkjunum að hirða ekki alveg allt af keppinautinum, skilja eitthvað eft- ir. Ætli þetta verði ekki ofan á, þ.e. að lausnin verði einhvers konar málamiðiun." Guðfinnur Einarsson, stjórnarformaður Tryggingamiðstöðvarinnar, afhendir Haraldi Henryssyni, formanni Slysa- varnafélags fslands, bréf þar sem greint er frá gjöf fyrirtækisins. Lengst til vinstri er Gísli Ólafsson, forstjóri, og lengst til hægri er Ester Kláusdóttir, varaformaður SVFÍ. Tryggingamiðstödin gefur SVFI eina milljón króna — Stofnaður sjóbjörgunarsjóður Slysavarnafélagsins TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN hf. hefur ákveðið að leggja fram eina milljón króna til slysa- og tjónvarna vegna sjóslysa og veröur fé þetta afhent Slysavarnafélagi íslands. Er það ósk fyrirtækisins aö stórn SVFÍ ráöstafi þessu fé innan sinna vébanda til kaupa á tækjum og búnaði á sviði sjóslysavarna. Slysavarnafélag fslands metur ákaflega mikils þann höfðingsskap og viðurkenningu á starfi félagsins, sem hér kemur fram af hálfu Trygg- ingamiðstöðvarinnar hf. og er þetta ekki í fyrsta skipti, sem fyrirtækið styrkir myndarlega starf SVFÍ. Má og með sanni segja, að þetta fram- lag komi sér vel nú því einmitt um þessar mundir er mjög til umræðu innan björgunarsveita félagsins að auka búnað og efla þjálfun sjóbjörg- unarflokka björgunarsveitanna. Var stigið mikilvægt skref í þessu sam- bandi, þegar hópur björgunarsveita- manna fór á vegum félagsins í sér- staka þjálfunar- og kynnisferð til Skotlands á síðasta ári undir farar- stjórn Hannesar Þ. Hafstein, fram- kvæmdastjóra. Kynntust menn þar m.a. nýjum gerðum björgunarbáta, þ.e. stórum slöngubátum með hörð- um botni og öflugum vélum, sem nágrannaþjóðir okkar eru farnar að nota í auknum mæli og hafa gefist vel. Hafa nokkrar björgunarsveitir SVFÍ við sjávarsíðuna að undan- förnu verið að huga að möguleikum á kaupum á þannig bátum til notk- unar við björgunar- og leitarstörf, þar sem aðstæður eru erfiðar, t.d. við innsiglingar. Bátar þessir eru all dýrir. A nýafstöðnu landsþingi SVFÍ í Véstmannaeyjum var og samþykkt að leggja á næstunni sér- staka áherslu á þessi mál. Það myndarlega framlag, sem Tryggingamiðstöðin hf. hefur lagt hér fram, kemur sér því vissulega vel og mun flýta mjög fyrir því að unnt verði að láta draum björgun- armanna um öflugri og betri báta rætast. Hefur SVFÍ ákveðið að stofna sérstaka sjóbjörgunarstöð til þessara verkefna og mun gjöf Tryggingamiðstöðvarinnar hf. lögð sem stofnframlag í þann sjóð. Slysavarnafélag fslands hlýtur að þakka Tryggingamiðstöðinni af al- hug fyrir þetta höfðinglega og mik- ilsverða framlag og mun kappkosta að það nýtist sem best til þess mál- efnis, sem það er ætlað til. (Úr fréttatilkynningu frí SVFÍ.) Stjórnendur Slysavarnafélags fslands og Tryggingamiðstöðvarinnar. Heilbrigðisrádherra með fundi í öllum kjördæmum HEILBRIGÐIS- og tryggingamálaráð- herra, Matthías Bjarnas.on, mun ( suniar halda fundi í kjördæmum þar sem gerð verður grein fyrir ýmsum þáttum heilbrigðis- og almannatrygg- ingamála. og mun ráðherra halda inn- gangserindi um þau mál á hverjum fundi, en auk þess munu að jafnaði tveir eða þrír umsækjendur flytja er- indi um ákveðin og afmarkaðri efni. Fyrstu fundirnir verða á ísafirði 7. júní og á Patreksfirði 8. júní, og munu þá ræðumenn verða, auk ráð- herra, þeir Ólafur Örn Arnarson, yfirlæknir, Páll Sigurðsson, ráðu- neytisstjóri, og Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri. Ólafur mun ræða um rekstur sjúkrahúsa og verkaskiptingu heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa; Páli mun ræða um almannatryggingamál og Örn um hollustuvernd og heilbrigðiseftirlit. Á Vesturlandi munu svo verða fundir 14. og 15. júní í Ólafsvík og á Matthías Bjarnason heilbrigðisráðherra Akranesi, og ásamt ráðherra munu koma á þann fund Björn Önundar- son, tryggingayfirlæknir, og ræða um örorkumat, Dögg Pálsdóttir, deildarstjóri, og gera grein fyrir framkvæmd laga um málefni aldr- aðra og Þórarinn Sveinsson, yfir- læknir, og gera grein fyrir skipulagi krabbameinslækninga hér á landi og starfa krabbameinslækninga- deildar á Landspítala. Síðar eru fyrirhugaðir fundir í öðrum kjördæmum og munu fund- irnir verða haldnir á Akureyri og Húsavík, á Blönduósi og Sauðár- króki, á Egilsstöðum og Höfn í Hornafirði, á Selfossi og í Vest- mannaeyjum, i Keflavík og í Hafn- arfirði. Síðar verður tilkynnt frá ráðu- neytinu um fundartima í öðrum kjördæmum en á Vestfjörðum og á Vesturlandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.