Morgunblaðið - 29.05.1984, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1984
27
1
iaranum
EITINNI
raman af ungviðinu. Ekki er annað vitað en sauðburður hafí gengið
essar vormyndir tók Sigurður Sigmundsson austur í Tungum og
runum.
íarsson, Tinna Björk Sigmundsdótlir og Bergur Þráinn Sveinbjörnsson sitja undir
í Syðra-Langholti.
Unniö við fermingu Rainbow Hope í Njarðvíkurhöfn í gærdag. Morgunbiaðið/KEE.
•ItllH
„Já, ég sé ekkert því til fyrir-
stöðu.“
— Heldurðu að skipið anni öll-
um flutningunum?
„Ef raunin verður önnur á ég ekki
von á öðru en fyrirtækið bæti við
öðru skipi."
— Nú hefur það verið umrætt, að
Rainbow Hope hefur aðeins við-
komu í Norfolk en ekki einnig í New
York eins og íslensku skipafélögin
gerðu til þess að bæta þjónustuna.
Þýðir þetta ekki að það skipti her-
inn engu máli hvort þjónusta á leið-
inni er slæm eða góð?
„Nei, þetta kemur því máli ekkert
við. Herinn áætlar flutningskostnað
á hvern og einn gám. Sé umræddur
gámur í New York er ekkert því til
fyrirstöðu að íslensk skipafélög
flytji hann ef það kostar meira að
koma honum til Norfolk til okkar og
þaðan til íslands."
— Borgið þið flutning á milli
New York og Norfolk eða gerir her-
inn það?
„Slíkur kostnaður kemur að
sjálfsögðu í hlut okkar."
— Áttu von á því að þróunin
verði sú, að Rainbow Navigation
taki alla flutninga varnariiðsins í
sínar hendur?
„Um slíkt er erfitt að spá. Það er
hins vegar gamall siður í Banda-
ríkjunum að hirða ekki alveg allt af
keppinautinum, skilja eitthvað eft-
ir. Ætli þetta verði ekki ofan á, þ.e.
að lausnin verði einhvers konar
málamiðiun."
Guðfinnur Einarsson, stjórnarformaður Tryggingamiðstöðvarinnar, afhendir Haraldi Henryssyni, formanni Slysa-
varnafélags fslands, bréf þar sem greint er frá gjöf fyrirtækisins. Lengst til vinstri er Gísli Ólafsson, forstjóri, og
lengst til hægri er Ester Kláusdóttir, varaformaður SVFÍ.
Tryggingamiðstödin gefur
SVFI eina milljón króna
— Stofnaður sjóbjörgunarsjóður Slysavarnafélagsins
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN hf. hefur ákveðið að leggja fram eina milljón króna
til slysa- og tjónvarna vegna sjóslysa og veröur fé þetta afhent Slysavarnafélagi
íslands. Er það ósk fyrirtækisins aö stórn SVFÍ ráöstafi þessu fé innan sinna
vébanda til kaupa á tækjum og búnaði á sviði sjóslysavarna.
Slysavarnafélag fslands metur
ákaflega mikils þann höfðingsskap
og viðurkenningu á starfi félagsins,
sem hér kemur fram af hálfu Trygg-
ingamiðstöðvarinnar hf. og er þetta
ekki í fyrsta skipti, sem fyrirtækið
styrkir myndarlega starf SVFÍ. Má
og með sanni segja, að þetta fram-
lag komi sér vel nú því einmitt um
þessar mundir er mjög til umræðu
innan björgunarsveita félagsins að
auka búnað og efla þjálfun sjóbjörg-
unarflokka björgunarsveitanna. Var
stigið mikilvægt skref í þessu sam-
bandi, þegar hópur björgunarsveita-
manna fór á vegum félagsins í sér-
staka þjálfunar- og kynnisferð til
Skotlands á síðasta ári undir farar-
stjórn Hannesar Þ. Hafstein, fram-
kvæmdastjóra. Kynntust menn þar
m.a. nýjum gerðum björgunarbáta,
þ.e. stórum slöngubátum með hörð-
um botni og öflugum vélum, sem
nágrannaþjóðir okkar eru farnar að
nota í auknum mæli og hafa gefist
vel. Hafa nokkrar björgunarsveitir
SVFÍ við sjávarsíðuna að undan-
förnu verið að huga að möguleikum
á kaupum á þannig bátum til notk-
unar við björgunar- og leitarstörf,
þar sem aðstæður eru erfiðar, t.d.
við innsiglingar. Bátar þessir eru all
dýrir. A nýafstöðnu landsþingi
SVFÍ í Véstmannaeyjum var og
samþykkt að leggja á næstunni sér-
staka áherslu á þessi mál.
Það myndarlega framlag, sem
Tryggingamiðstöðin hf. hefur lagt
hér fram, kemur sér því vissulega
vel og mun flýta mjög fyrir því að
unnt verði að láta draum björgun-
armanna um öflugri og betri báta
rætast. Hefur SVFÍ ákveðið að
stofna sérstaka sjóbjörgunarstöð til
þessara verkefna og mun gjöf
Tryggingamiðstöðvarinnar hf. lögð
sem stofnframlag í þann sjóð.
Slysavarnafélag fslands hlýtur að
þakka Tryggingamiðstöðinni af al-
hug fyrir þetta höfðinglega og mik-
ilsverða framlag og mun kappkosta
að það nýtist sem best til þess mál-
efnis, sem það er ætlað til.
(Úr fréttatilkynningu frí SVFÍ.)
Stjórnendur Slysavarnafélags fslands og Tryggingamiðstöðvarinnar.
Heilbrigðisrádherra með
fundi í öllum kjördæmum
HEILBRIGÐIS- og tryggingamálaráð-
herra, Matthías Bjarnas.on, mun (
suniar halda fundi í kjördæmum þar
sem gerð verður grein fyrir ýmsum
þáttum heilbrigðis- og almannatrygg-
ingamála. og mun ráðherra halda inn-
gangserindi um þau mál á hverjum
fundi, en auk þess munu að jafnaði
tveir eða þrír umsækjendur flytja er-
indi um ákveðin og afmarkaðri efni.
Fyrstu fundirnir verða á ísafirði
7. júní og á Patreksfirði 8. júní, og
munu þá ræðumenn verða, auk ráð-
herra, þeir Ólafur Örn Arnarson,
yfirlæknir, Páll Sigurðsson, ráðu-
neytisstjóri, og Örn Bjarnason,
framkvæmdastjóri. Ólafur mun
ræða um rekstur sjúkrahúsa og
verkaskiptingu heilsugæslustöðva
og sjúkrahúsa; Páli mun ræða um
almannatryggingamál og Örn um
hollustuvernd og heilbrigðiseftirlit.
Á Vesturlandi munu svo verða
fundir 14. og 15. júní í Ólafsvík og á
Matthías Bjarnason
heilbrigðisráðherra
Akranesi, og ásamt ráðherra munu
koma á þann fund Björn Önundar-
son, tryggingayfirlæknir, og ræða
um örorkumat, Dögg Pálsdóttir,
deildarstjóri, og gera grein fyrir
framkvæmd laga um málefni aldr-
aðra og Þórarinn Sveinsson, yfir-
læknir, og gera grein fyrir skipulagi
krabbameinslækninga hér á landi
og starfa krabbameinslækninga-
deildar á Landspítala.
Síðar eru fyrirhugaðir fundir í
öðrum kjördæmum og munu fund-
irnir verða haldnir á Akureyri og
Húsavík, á Blönduósi og Sauðár-
króki, á Egilsstöðum og Höfn í
Hornafirði, á Selfossi og í Vest-
mannaeyjum, i Keflavík og í Hafn-
arfirði.
Síðar verður tilkynnt frá ráðu-
neytinu um fundartima í öðrum
kjördæmum en á Vestfjörðum og á
Vesturlandi.