Morgunblaðið - 29.05.1984, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1984
29
Námskeið á vegum Landhelgisgæslunnar:
GUNNLAUGUR Halldórsson, arki-
tekt, var sæmdur gullmerki Bygg-
ingaþjónustunnar fyrir gott og mikid
starf að málefnum fyrirtækisins á,
25 ára afmæli þess, 18. apríl síðast-
liðinn. Guðmundur Kr. Kristinsson,
arkitekt, var við sama tækifæri
heiðraður með silfurmerki og einnig
fulltrúar þeirra fyrirtækja, sem tekið
hafa þátt í störfum Byggingaþjónust-
unnar frá upphafi.
Gunnlaugur Halldórsson var
fyrsti formaður Byggingaþjónustu
Arkitektafélags fslands, eins og
fyrirtækið hét í upphafi, en það
var stofnað að frumkvæði arki-
tekta. Guðmundur Kr. Kristinsson
var fyrsti framkvæmdastjóri
Byggingaþjónustunnar. Síðan
hafa mörg samtök og stofnanir
bæst í hóp þeirra, sem reka Bygg-
ingaþjónustuna.
Markmið Byggingaþjónustunn-
ar er að vera vettvangur islenskra
byggingamála, m.a. með því að
auðvelda mönnum kynni af hvers
konar byggingarefnum og notkun
þeirra; að gangast fyrir umræðum
um málefni byggingariðnaðar,
byggingartækni og byggingarlist-
ar; að stuðla að endurmenntun og
fræðslu fagmanna á sviði þessara
faggreina; að gefa húsbyggjendum
og tæknimönnum kost á hlutlaus-
um upplýsingum um byggingar-
málefni; að leggja áherslu á kynn-
ingu á íslenskri byggingarefna-
framleiðslu; að starfrækja verð-
banka og aðstoða við kostnaðará-
ætlanir og útboðsgerð, eins og seg-
ir í skipulagsskrá þjónustunnar.
Hjá Byggingaþjónustunni er
stöðugt í gangi sýning á bygg-
ingarefnum, niðurstöðum kann-
ana og rannsókna Rannsókna-
stofnunar byggingariðnaðarins og
ýmissa framleiðsluvara. Aðgang-
ur að sýningunum og ráðgjöf er
ókeypis. Byggingameistarar eru
með ráðgjöf fyrir almenning á
þriðjudögum kl. 16—18, arkitektar
á miðvikudögum kl. 16—18 og
Ljóstæknifélags fslands á
fimmtudögum. Allt þetta fer fram
í húsnæði Byggingaþjónustunnar í
kjallara iðnaðarhússins að Hall-
veigarstíg 1.
Fastráðnir starfsmenn Bygg-
ingaþjónustunnar eru þrír: Kol-
brún Jónsdóttir, Steinunn Jóns-
dóttir og Ólafur Jensson fram-
kvæmdastjóri. í stjórn eiga sæti;
Anton Bjarnason framkvæmda-
stjóri, frá Félagi ísl. iðnrekenda,
Guðmundur Gunnarsson verk-
fræðingur, frá Húsnæðisstofnun
rikisins, Haraldur Ásgeirsson for-
stjóri, frá Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins, Kristinn
Kristinsson byggingameistari, frá
Leit og björg-
un á hafi úti
Bandarískir sérfræöingar sjá um kennsluna
Stjórn og framkvæmdastjóri Byggingaþjónustunnar. Frá vinstri: Ólafur Sigurðsson, arkitekt, Kristinn Kristinsson,
húsgagnasmíðameistari, Haraldur Ásgeirsson, forstjóri, Guðmundur Gunnarsson, forstöðumaður, Anton Bjarnason,
forstjóri, og Ólafur Jensson, framkvæmdastjóri. Morgunblaðið/Ól.K.M.
Byggingaþjónustan
heiðrar frumherja
NÁMSKEIÐ um leit og björgun á
hafi hófst á vegum Landhelgisgæsl-
unnar í Stýrimannaskólanum í gær,
en þar kenna þrír kennarar frá
bandarísku strandgæslunni, sem
koma allir frá National Search and
Rescue School á Governors Island,
sem annast þjálfun starfsmanna
bandarísku strandgæslunnar. Þetta
námskeið er m.a. haldið fyrir milli-
göngu bandaríska sendiráðsins, og
það eru Bandaríkjamenn sem
standa straum af námskeiðskostnað-
inum að mjög miklum hluta.
„Þátttakendur á námskeiðinu,
sem stendur næstu þrjár vikurnar
eru 27,“ sagði Gunnar Berg-
steinsson forstjóri Landhelgis-
gæslunnar í samtali við blm. Mbl.
í gær, er hann var spurður um
þetta námskeið. „11 af okkar
starfsmönnum taka þátt í nám-
skeiðinu, 4 frá Pósti og síma, 4 frá
Slysavarnafélaginu, 3 frá
Flugmálastjórn, 1 frá
Stýrimannaskólanum og 4 frá
varnarliðinu í Keflavík,“ sagði
Gunnar. Gunnar sagði að nám-
skeiðið væri haldið á vegum Land-
helgisgæslunnar, en með aðstoð
bandaríska sendiráðsins. Nám-
skeiðið væri um skipulagningu og
starf við leit og björgun á hafi úti.
Hann sagði að námskeiðið væri
ansi strangt og að kennararnir
gerðu miklar kröfur, enda væru
þeir kennarar við skóla sem band-
aríska strandgæslan ræki á Go-
vernors Island, en þangað sagði
hann að þeir aðilar sem störfuðu á
þessu sviði, víðs vegar um heim
allan, sendu þá sem þeir vildu
þjálfa á þessu sviði.
Gunnar sagði að Landhelgis-
gæslunni hefði staðið til boða að
senda nokkra menn á þennan
skóla í Bandaríkjunum, en hann
sagðist hafa talið það heppilegri
lausn að halda námskeiðið hér, og
fá kennarana hingað, þar sem það
hefði gert mun fleirum kleift að
sækja þetta námskeið. Hann sagð-
ist telja það mjög þýðingarmikið
að ólíkir starfshópar, sem þó allir
vinna leitar- og björgunarstörf á
sjó, ef svo ber undir, skuli nú sitja
eitt og sama námskeiðið.
Anton Bjarnason, fráfarandi stjórnarformaður Byggingaþjónustunnar, heiðr-
ar fyrsta formanninn, Gunnlaug Halldórsson, arkitekt. Á milli þeirra stendur
Ólafur Jensson, framkvæmdastjóri Byggingaþjónustunnar.
Þorsteinn Þorsteinsson
forseti Skáksarabandsins
Gunnar Gunnarsson gaf ekki kost á sér
ÞORSTEINN Þorsteinsson var
kjörinn forseti Skáksambands ís-
lands á aðalfundi sambandsins
um helgina. Þorsteinn tekur við af
Gunnari Gunnarssyni, sem ekki
gaf kost á sér. Aðrir í stjórn Skák-
sambandsins eru Þráinn Guð-
mundsson, Ólafur Ásgrímsson,
Guðbjartur Guðmundsson, Árni
Björn Jónasson, Jón Rögnvalds-
son og Leifur Jósteinsson.
1 varastjórn voru kosnir, Ólafur
H. Ólafsson, Margeir Pétursson,
Áskell Örn Kárason og Sigurlaug
Friðþjófsdóttir. Þorsteinn Þor-
steinsson hefur starfað í Skák-
sambandinu um árabil og
varaforseti sambandsins.
var
Landssambandi iðnaðarmanna og
Ólafur Sigurðsson arkitekt, full-
trúi Arkitektafélags íslands.
l*orsteinn Þorsteinsson kjörinn for-
seti Skáksambands íslands.
bjoðum aðeins
gæðagrípi
Mesta úrval landsins af þekktum viöur-
kenndum merkjum
10 ára ábyrgö —
Varahluta og viðgeröaþiónusta
Öryggi — Reynsla.
Séryerslun i meira en hálfá öld
.. Reióhjólaverslunin
ORNINN
Spítalastíg 8
Símar; Verzl.: 14661 S. 26888
JfCYCLES
PEIICEOT
Á! KALKHOFF