Morgunblaðið - 29.05.1984, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1984
37
þeim lífskjörum sem við búum við
í dag. Þau þykja að vísu ekki góð,
en hvernig hefði þau verið, ef upp-
bygging áttunda áratugarins hefði
aldrei átt sér stað. — Það ættu
menn að hugleiða, ekki síst þeir
sem búa utan þéttbýlisins við
Faxaflóa.
Margir sóttu Ólaf heim á 70 ára
afmæli hans hinn 1. mars 1983.
Þegar ég heilsaði honum og árnaði
honum heilla, þá sagði hann: Ég
var að vonast eftir afmæliskveðju
frá þér í bundnu máli. — Mér varð
hverft við og mun hafa orðið hálf-
vandræðalegur. Ég svaraði ólafi,
að ég væri engan veginn fær um
að setja saman ljóð, sem væri hon-
um samboðið, enda hefði það ekki
einu sinni hvarflað að mér að
reyna það. Þá svaraði Ólafur:
Enginn frekar en þú gætir það af
þeim sem þekkja mig best.
Þessi orð hafa aldrei fallið mér
úr minni og hafa nú sótt á mig
með auknum þunga, eftir að mér
barst fréttin um að hann væri
horfinn yfir móðuna miklu. Bara
það að hann skyldi láta í ljós ósk
þess efnis, að ég reyndi að setja
saman ljóð til hans gerir það að
verkum, að mér finnst hann eiga
það hjá mér, að ég geri tilraun til
þess að setja saman eftirmæli um
hann, þegar tækifæri og næði
gefst. En hvort það verður annað
en tilraunin verður framtíðin að
leiða í ljós.
Með ólafi Jóhannessyni er
genginn einn merkasti stjórn-
málamaður þessarar aldar. Um
hann gustuðu oft nöturlegir
stormar, blátt áfram gjörninga-
veður, sem gerði honum lífið leitt
og olli honum hugarkvöl. En hann
rak allar slíkar sendingar af hönd-
um sér og stóð jafn réttur eftir.
Ég hygg, þegar upp er staðið, að
þá hafi enginn íslenskur stjórn-
málamaður á síðustu árum notið
jafn almennrar virðingar og ólaf-
ur Jóhannesson. Það eitt sýnir
hvaða mannkostum hann var bú-
inn.
Dóra mín. Við Fjóla sendum þér
og dætrum þínum innilegar sam-
úðarkveðjur með þeirri ósk, að sá
sem öllu ræður styrki ykkur og
styðji í raunum ykkar.
Stefán Valgeirsson
íslandsmeistararnir í tvímenningi 1984, Jón Baldursson og Hörður Blöndal ásamt, forseta Bridgesambands
íslands, Birni Theodórssyni. Á bak við Hörð er eiginkona Jóns, Elín Bjarnadóttir. MorKunbiaðið/Arnór.
Islandsmótið í tvímenningi:
Hörður Blöndal og Jón
Baldursson sigurvegarar
Fjórði sigur Jóns í mótinu á jafnmörgum árum
Bridge
Arnór Ragnarsson
Jón Baldursson gerði hið
ómögulega á íslandsmótinu í
tvímenningi sem lauk sl. sunnudag
á Hótel Loftleiðum. Jón sigraði í
mótinu ásamt spilafélaga sínum
Herði Blöndal og er þetta í fjórða
sinn á jafnmörgum árum sem
hann vinnur íslandsmeistaratitil-
inn. Jón vann mótið 1981 og 1982
með Val Sigurðssyni og í fyrra með
Sævari Þorbjörnssyni. Það má því
segja að það sé ekki lengur spilað
um 1. sætið í fslandsmótinu, það
virðist vera frátekið hver svo sem
meðspilari Jóns Baldurssonar er.
Gífurlegur fjöldi tók þátt í
undankeppninni (96 pör) sem
fram fór fyrir hálfum mánuði og
sigruðu þá Stefán Pálsson og
Rúnar Magnússon. Jón Bald-
ursson og Hörður Blöndal urðu
þá í 16. sæti en helztu keppendur
þeirra í mótinu nú, Guðmundur
Páll Arnarson og Þórarinn Sig-
þórsson, urðu í 19. sæti í undan-
keppninni.
Keppnin hófst kl. 13 sl. laug-
ardag og voru spiluð 5 spil milli
para.
Staðan eftir 6 umferðir:
Stefán Pálsson
— Rúnar Magnússon 73
Jón Alfreðsson
— Eiríkur Jónsson 71
Jón Ásbjörnsson
— Símon Símonarson 62
Ólafur Valgeirsson
— Ragna Olafsdóttir 45
Guðbrandur Sigurbergsson
— Ásgeir Ásbjörnsson 44
Jón og Hörður voru í 8. sæti
með 21 stig en Guðmundur Páll
og Þórarinn voru með 11 mín-
usstig. Eins og sjá má á stöðu
efstu para var ekki óeðlilegt að
ætla að miklar sviptingar yrðu
um efstu sætin eins og kom á
daginn en staðan eftir 12 um-
ferðir var mjög ólík:
Jón Ásbjörnsson
— Símon Símonarson 107
Stefán Pálsson
— Rúnar Magnússon 80
Jón Baldursson
— Hörður Blöndal 80
Guðmundur Páll Arnarson
— Þórarinn Sigþórsson 71
Jón Alfreðsson
— Eiríkur Jónsson 70
Aðalsteinn Jörgensen
— Óli Már Guðmundsson 57
Ólafur Lárusson
— Hermann Lárusson 44
Guðmundur Hermannsson
— Björn Eysteinsson 29
Miklar tilfærslur voru milli
umferða í efstu sætunum. Aðal-
steinn og Óli Már tóku um tíma
forystu í mótinu og eftir 18 um-
ferðir var staðan mjög jöfn og
spennandi og aðeins 5 umferðum
ólokið.
Aðalsteinn — Óli Már 107
Jón B. — Hörður 106
Jón — Símon 104
Þórarinn — Guðmundur Páll 99
Tveimur umferðum sfðar voru
Jón og Hörður annars vegar og
Guðmundur Páll og Þórarinn
hins vegar orðnir hnífjafnir með
143 stig og útséð að þessi pör
myndu berjast um titilinn. Þó
voru Óli Már og Aðalsteinn ekki
búnir að gefast upp, höfðu 128
stig. Lokasprettur Jóns Bald-
urssonar og Harðar Blöndal var
hins vegar meiri en andstæð-
ingarnir réðu við og sigur þeirra
í höfn verðskuldaður.
Guðmundur Páll og Þórarinn
áttu afleita síðustu setuna og
máttu þakka fyrir að halda öðru
sætinu.
Lokastaðan:
Jón Baldursson
— Hörður Blöndal 176
Guðmundur Páll Arnarson
— Þórarinn Sigþórsson 119
Óli Már Guðmundsson
— Aðalsteinn Jörgensen 111
Sigurður Sverrisson
— Valur Sigurðsson 84
Ólafur Lárusson
— Hermann Lárusson 77
Símon Símonarson
— Jón Ásbjörnsson 77
Stefán Pálsson
— Rúnar Magnússon 51
Ásmundur Pálsson
— Karl Sigurhjartarson 43
Jón Hjaltason
— Guðmundur Sveinsson 29
Bræðurnir Hermann og ólaf-
ur hlutu 5. sætið í mótinu skv.
reglugerð en þeir voru með jafn-
mörg stig og Jón og Símon.
Keppnisstjóri var Agnar Jörg-
ensson og reiknimeistari Vigfús
Pálsson. Áhorfendur voru fáir
nema síðustu umferðirnar.
Bridgefélag
Breiðholts
Þriðjudaginn 22. maí ’84 lauk
firmakeppni félagsins. Þetta var
tveggja kvölda keppni og urðu
úrslit þessi:
Firmakeppni:
Litaver
(Sp. Bergur Ingimundarson) 119
Neonþjónustan
(Sp. Stefán Oddsson) 113
Versl. Kjötborg
(Sp. Ragnar Hermannsson)112
Heimilistæki
(Sp. Jón Björgvinsson) 110
Versl. Bangsimon
(Sp. Guðmundur Samúelss. 106
Efnalaugin Hraðhreinsun
(Sp. Sigfús Skúlason) 104
Einmenningskeppni
Úrslit:
Bergur Ingimundarson 210
Ragnar Hermannsson 205
Sigurður Björnsson 205
Sigfús Skúlason 205
Jón Björgvinsson 203
Meðalskor 180
Næsta þriðjudag fer fram
verðlaunaafhending fyrir keppn-
ir vetrarins. Einnig verður spil-
að létt rúbertubridge. Spilað er í
Gerðubergi kl. 19.30 stundvís-
lega.
Garðhúsgögn
í fjölbreyttu úrvali
Góöir
greiösluskilmálar
Hagstætt verð
Bláskógar
Ármúli 8, sírai 86080.
SÍMASKRÁNA
íMfóarkápu!
Símaskráin er allsstaðar nauðsynleg. En eftir nokkra
notkun vill hún verða snjáð. Stundum rifna blöð úr
og þá geta skapast vandræði. Forðum því.
Hlífðarkápan frá Múlalundi er lausnin.
Endist ár eftir ár og er ódýr í þokkabót. ®
Hafið samband við sölumann. jf
Múlalundur
Ármúla 34 - Símar 38400 og 38401 - 105 Reykjavík