Morgunblaðið - 29.05.1984, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 29. MAÍ1984
41
Kristín Ingibjörg
Egfells - Minning
Fædd 7. febrúar 1925
Dáin 5. maí 1984
Kristín frænka okkar og heimil-
isvinur er horfin úr tölu lifenda,
en minning hennar lifir. Við
systkinin eigum margar skemmti-
legar minningar frá heimsóknum,
fyrst til Kristínar og Hjálmars, og
síðar til Kristínar og Dóru. Krist-
ín og Ingibjörg móðir hennar
reyndust okkur traustir vinir við
skilnað foreldra okkar, og vináttu-
bönd mömmu og Kristínar styrkt-
ust. Hún bauð oft mömmu með
okkur öll fjögur börnin í mat og
voru það með veglegustu matar-
boðum sem við fórum í á þeim ár-
um. Hún dekraði við okkur og kom
fram við okkur eins og fullorðnar
manneskjur. Við vorum öll hin
mestu átvögl, en Kristínu tókst
meira að segja að fá bræður okkar
til að segja nei við ljúfum heima-
tilbúnum ís. Þetta var að sjálf-
sögðu vel undirbúið, því áður
höfðu þeir haft um það stór orð að
þeir segðu aldrei nei við ís. Þegar
þeir loks gáfust upp og stundu nei,
sagði Kristín kímin „það hlaut að
koma að því“.
Vinátta mömmu og Kristínar
hélst til hinstu stundar, og hafa
þær verið hvor annarri stoð í veik-
indum beggja síðastliðinn vetur.
Kristín frænka var námsfús.
Ekki er langt síðan hún fékk lán-
aða þýska orðabók, hún sagðist
ætla að rifja upp þýskuna til að
geta talað við tilvonandi tengda-
son sinn. Hún ætlaði til Þýska-
lands til Dóru dóttur sinnar í
sumar — þær áttu eftir að gera
svo margt saman. Dóra reyndist
Kristínu einstaklega vel í veikind-
um hennar, og hafði Kristín oft
orð á því og mat Dóru mikils.
Missir Dóru er mikill, og megi hún
öðlast styrk á raunastund.
Hildigunnur og Svana Haraldsdætur
Blaóburóarfólk
óskast!
Úthverfi
Seiöakvísl
Vinnuveitendasamband íslands:
Vilja opna fjölbreyttari leiðir
til mennta á framhaldsskólastigi
MORGUNBLAÐINU hefur borist
fréttatilkynning frá Vinnu-
veitendasambandi Islands um
stefnu þess í menntamálum, sem
samþykkt var á 50. aðalfundi
sambandsins 15. maí sl.
í stefnunni kemur m.a. fram
að VSl vilji koma á góðri sam-
vinnu milli skóla og atvinnuveg-
anna, og telji nauðsynlegt að al-
menn kynning á atvinnulífi
landsmanna fari fram í ríkari
mæli í grunnskólum en gert sé í
dag. Kennarar geti haft áhrif á
skoðanamyndun nemandans og
því sé mikilvægt að þeir þekki
Villa í Frels-
is-grein um
Marx leiðrétt
HÉR MEÐ fer ég fram á að fá birt
eftirfarandi í blaði yðar:
í grein eftir undirritaðan um
hagfræðikenningar Karls Marx
í nýútkomnu hefti Frelsisins
hefur fallið niður hluti máls-
greinar, svo að merking hennar
brenglast. Eru lesendur ritsins
því beðnir að taka upp eftirfar-
andi leiðréttingu og færa inn á
viðeigandi staði.
Á bls. 24, fremra dálki fyrir
miðju, verður leiðrétt málsgrein
sem hér segir:
„Virði fjármagnsins, sem var-
ið var til vinnukaupanna, var
þannig breytilegt í hendi hans
og var nefnt samkvæmt því
(variable capital). Virði þess
fjármagns, sem fór til fram-
leiðslutækja, hráefna og ann-
arra aðfanga, var hins vegar
óbreytanlegt í hendi hans og
meðförum, þar sem vinnuvirðið
í því fólgið hafði þegar verið
aukið um virðisaukann við sölu
fjármunanna eða hugsaða sölu
þeirra til fjárfestingar innan
sama fyrirtækis."
Aðrar ritvillur í greininni
raska ekki merkingu. Með þökk
fyrir birtinguna,
28. maí 1984,
Bjarni Bragi Jónsson.
^terkurog
k~/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Jfloyjyimblabifc
i
atvinnulífið og tengi það hinum
ýmsu þáttum námsins.
í stefnu Vinnuveitendasam-
bands íslands segir einnig: „VSÍ
vill að á framhaldsskólastiginu
verði opnaðar fjölbreyttari leið-
ir til mennta fyrir fólk á sem
flestum stigum atvinnulifsins.
Námið verði eininganám, sniðið
að óskum og þörfum hverrar at-
vinnugreinar. Nám og vinna fer
saman og þar með hagsmunir
launþegans og fyrirtækisins.
íhuga þarf þátt skóla og at-
vinnulífs og þá sérstaklega
hvort hagkvæmt sé, að fræðsla
fari fram í fyrirtækjunum sjálf-
u.LniiK jl 'iwiw a v iitw8au-.i;
um, t.d. í formi fyrirlestra,
námskeiða og ráðstefna.
Atvinnulífið þarfnast í vax-
andi mæli háskólamenntaðra
manna með góða tækni- og við-
skiptamenntun. Nauðsynlegt er
að efla kennslu í þessum grein-
um í Háskóla íslands og Tækni-
skóla íslands og að sú kennsla
sé sniðin eftir íslenskri fram-
leiðslustarfsemi. Sama gildir
um rannsóknir, þar þarf að
koma á auknu samstarfi Há-
skólans, Tækniskólans, rann-
sóknarstofnana atvinnuveg-
anna og atvinnulífsins."
-* i Ja nni'i imoin 13.v enr ijg-n.í.r
FURUHILLUR
Utsðlustaftir: REYKJAVlK: Liturinn Síðumúla 15, KÓPAVOGUR: Byko
Nýbýlavegi 6, HAFNARFJÖRÐUR: Málur Reykjavíkurvegi '10, KEFLAVlK: Dropinn, AKRANES:
Verslunin Bjarg, BORGARNES: K.B. Borgarnesi, HELLISSANDUR: K.B., ÓLAFSVlK: Verslunin
Lára, STYKKISHÓLMUR: Húsið, PATREKSFJÖRÐUR: Ralbúð Jónasar, BOLUNGARVlK: Jón Fr.
Einarsson, ISAFJÖRÐUR: Húsgagnaverslun Isafjarðar, HVAMMSTANGI: Versl. Sig. Pálmas.,
BLÖNDUÓS: Kaupfélag Húnvetninga, SAUÐARKRÓKUR: Hátún, SIGLUFJÖRÐUR: Bólsturgerðin,
ÓLAFSFJÖRÐUR: Versl. Valberg, DALVlK: Versl. Sogn, AKUREYRI: Grýtan Sunnuhiið, HÚSAVlK:
Kaupfélag Pingeyinga, EGILSSTAÐIR: Verslunarfélag Austurlands, SEYÐISFJÖRÐUR: Versl. Dröfn,
NESKAUPSTAÐUR: Nesval, REYÐARFJÖRÐUR: Lykill, FASKRÚÐSFJÖRÐUR: Versl. Þór, VlK,
Kaupfélag V-Skaftfelling, VESTMANNAEYJAR: Þorvaldur og Einar, SELFOSS: Vöruhús K.A.
ÍSSKÁPAR
FYRIR 12Vf 220V, OG GAS
ERU FYRIRLIGGJANDI
Skeljungsbúðin <
SíÖumúla33
simar81722 og 38125
■’H Tíisrmi vjánruint'it urunciij'.W'íS'f
. j«ij.i tii i »o '&ruuiiliruLíinLn
.4J:fcöis iiuniuiut fibe .,U »d-jíiik' itn