Morgunblaðið - 29.05.1984, Side 40
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1984
Fyrsti sigur eftir „upprisu“
íþróttafélagið Leiknir í Breiðholti tekur nú þátt í íslandsmótinu í knattspyrnu á ný, í 4. deildinni.
Félagið var „rifiö upp úr öskustónni" eins og forráðamenn þess sögöu á fundi fyrir alllöngu, og er
mikill kraftur í starfinu. Á dögunum lék knattspyrnulið félagsins sinn fyrsta leik í 4. deildinni eftir
„upprisu" og sigraði þá Gróttu 3:0. Hér má sjá knattspyrnumenn Leiknis.
Dunlop-tennis-
mótið 31. maí
OPNA Dunlop-tennismótið 1984
fer fram dagana 31. maí til 3. júní
nk. Mótið er haldið á vegum tenn-
isdeildar ÍK og Austurbakka hf.
Keppnin fer fram á útivöllum
þeim sem tennisdeild ÍK hefur til
umráöa við Vallargerði í vestur-
bœ Kópavogs.
Keppt veröur i karlaflokki (A og
B), kvennaflokki, unglingaflokki og
flokki öölinga. Einnig veöur keppt í
tvíliðaleik karla. Aö þessu sinni
verður keppt í tveimur nýjum
flokkum. Þátttakandafjöldi í hverj-
um flokki veröur að vera minnst
átta.
Tilkynna þarf þátttöku fyrir kl.
17.00 miövikudaginn 30. maí.
Þátttaka tilkynnist til stjórnar tenn-
isdeildar ÍK, í símum 42542 eöa
53191.
Verölaun í mótinu eru öll gefin af
Austurbakka hf., en þau eru mjög
vegleg, og samanstanda af vörum
til tennisiðkana.
Knattspyrnu-
skóli Fram
KNATTSPYRNUSKÓLI Fram
verður starfræktur nú í sumar
með svipuðu sniði og undanfarin
ár. Hvert námskeið stendur í tvær
vikur og skiptist í tvo hópa eftir
aldri: Eldri hópur kl. 9—12, fædd
1972, 1973 og 1974. Yngri hópur
kl. 13—16, fædd 1975, 1976, 1977
og 1978.
Námskeió veröa sem hér segir:
A. 4. júní til 15. júní
B. 18. júní til 29. júní
C. 2. júlí til 13. júlí
D. 16. júlí til 27. júlí.
Athugiö aö námskeiöin veröa
iíka á föstudögum.
Aðalkennari veröur Sigurbergur
Sigsteinsson, íþróttakennari, og
honum til aöstoöar veröur Gylfi
Orrason. Jafnframt munu ýmsir
þekktir knattspyrnumenn koma í
heimsókn, þar á meðal landsliös-
mennirnir Marteinn Geirsson,
Trausti Haraldsson og Guðmundur
Baldursson. Þá mun þjálfarl meist-
araflokks, Jóhannes Atlason, einn-
ig lita viö.
Verö á hverju námskeiöi er 550
krónur. Innritun fer fram í Fram-
heimilinu viö Safamýri alla virka
daga kl. 13—14 og eftir kl. 17.
Upplýsingar í síma 34792.
Úrslitakeppni NBA:
Fimmtudags-
mót hjá FH
Fimmtudagsmót verður haldið
næstkomandi fimmtudag, þaö er
fimmtudaginn 31. mars. Keppt
verður í eftirtöldum greinum.
Karlar og Konur: 100 m hlaup og
spjótkast.
2 mílur og kringlukast karla, 1
míla kvenna. Míla kvenna og 2
mílur karla eru liöur r Stjörnu-
hlaupum FH.
Keppnin fer fram á Kaplakrika-
velli og hefst klukkan 16. Vænt-
anlegir keppendur eru beðnir að
mæta tímanlega, síöasti skrán-
ingarfrestur er kl. 15.30.
HSK styrkir
ólympíufara
Héraðssambandið Skarphéð-
inn hefur veitt íþróttamönnunum
Vésteini Hafsteinssyni, kringlu-
kastara, Tryggva Helgasyni,
sundmanni og Þráni Hafsteins-
syni, tugþrautarmanni, styrki að
upphæð 27 þús. hverjum vegna
þátttöku í Ólympiuleikunum i
sumar.
Eins og kunnugt er hafa Vé-
steinn og Tryggvi veriö valdir í
Ólympíuliö Islendinga en nú er
Ijóst aö Þráinn keppir ekki á leik-
unum vegna meiösla. Hann fer nú
samt á leikana, því hann veröur
aöstoöarmaöur frjálsíþróttamann-
anna þar.
Sigurður sigraói og
var líka með besta skor
KEPPNIN um Arneseon-skjöldinn
fór fram í Grafarholti á dögunum.
Keppendur voru 67 og úrslit uröu
þessi:
1. Siguröur Péturss. 71+ 3 = 68
2. Einar L. Þórisson 75+ 7 = 68
3.-4. Kristinn Ólafss. 80+10 = 70
3.-4. Hörður Morthens84+14 = 70
Besta skor: Sigöuröur Péturs-
son 71.
Á laugardag hófst keppnin um
Hvítasunnubikarinn. Þátttakendur
voru 48. Úrslit uröu þessi í högg-
leiknum:
1. Halldór Bragason 89+23 = 66
2. Karl Ó. Karlsson 77+ 9 = 68
3. Höröur Guöm.son 98+28 = 70
Besta skor Karl Ó. Karlsson 77.
Á sunnudag fór fram Maímót
unglinga. Clrstit uröu þessi:
Meö forgjöf:
1. Gunnar Grímsson 65
2. Böövar Bergsson 65
3. Ragnhildur Siguróardóttir 69
Án forgjafar:
1. Gunnar Sigurösson 82
2. Jón H. Karlsson 83
3. Eiríkur Guömundsson 83
Þá var haldiö opiö öldungamót
á sunnudag. Keppendur voru 31,
og þar á meðal fjórar konur. Leikn-
ar voru 18 holur á rauöum teigum.
1. Magnús Guöm.son NK88+20 = 68
2. Óli B. Jónsson NK 87+18 = 69
3. Albert Þorkelss. GB 90+21 = 69
Besta skor Þorbjörn Kjærbo GS
77.
Fylkir sigraði
SÚ prentvilla var hjá okkur á dög-
unum aö Stokkseyri heföi sigraö
Fylki 1:0 í bikarkeppni KSÍ. Hið
rétta er að Fylkir sigraöi 4:1. Af-
sakiö.
Lakers unnu
fyrsta leikinn
Boston 27. maí. AP.
KAREEM Abdul-Jabbar skoraöi
32 stig, þar af 23 í fyrri hálfleikn-
um í dag, er Los Angeles Lakers
sigraði Boston Celtics 115:109 í
fyrsta leik liöanna í sjö leikja úr-
slitakeppni þeirra um „heims-
meistaratitilinn“ í körfuknattleik
eins og Bandaríkjamenn kalla
meistarakeppni sína. Liöin mæt-
ast í mesta lagi sjö sinnum — þaö
lið sem fyrst vinnur fjóra leiki
veröur meistari.
Jabbar, sem oröinn er 37 ára er
stigahæsti leikmaöurinn í sögu at-
vinnumannadeildarinnar, átti mjög
góöan leik gegn Celtics. Þetta var
fyrsta tap Celtics á heimavelli sín-
um í tíu leikjum, en sigur Lakers
var öruggur. Liöiö haföi ávallt for-
ystu í leiknum, og Celtics komst
aldrei nær þeim en fjórum stigum.
James Worthy skoraöi 20 stig
fyrir Lakers og „Magic“ Johnson
18. Kevin McHalle geröi 25 stig
fyrir Celtics, Larry Bird 24 og
Dennis Johnson 23.
Guðjón í Stjörnuna
Akureyri, 25. maí. Frá Aðaldaini Sigur-
gairaayni, iréttamanni Morgunblaöaina.
ALLAR líkur eru á því að Guöjón
Guðmundsson, knattspyrnumaö-
ur úr Þór, leiki handknattleík með
Benni með
besta markið
MARK Benedikts Guðmundsson-
ar, UBK, gegn KR í vikunni var
kjörið „Mark umferðarinnar" af
dómurum, eins og komið hefur
fram í Mbl. munu dómarar velja
besta mark hverrar umferðar 1.
deildarinnar. í haust mun síðan
það besta af þeim átján, sem va'-
in veröa, valið mark órsins. Bene-
dikt fær viðurkenningu frá SEIKO
fyrir leik Breiðabliks og Fram í
Kópavoginum á morgun. — SH.
Þrír frá KSÍ
í Ziirich
Ellert Schram, formaður KSÍ,
og stjórnarmennirnir Gunnar Sig-
urðsson og Helgi Daníelsson sátu
afmælisþing FIFA í ZUrich í Sviss
fyrir nokkrum dögum og horfðu á
landsleik Vestur-Þjóöverja og ít-
ala — liðanna sem léku til úrslita
í síðustu heimsmeistarakeppni.
Þjóöverjar sigruðu 1:0 í afmælis-
leiknum. __gH.
Stjörnunni úr Garðabæ næsta
vetur.
Guójón lék handknattleik og
knattspyrnu meö FH áöur en hann
fluttist hingaö noröur — og var
góöur handknattleiksmaóur. Hann
varö aö hætta æfingum vegna
meiösla í hendi.
Ekki er ákveðiö hvort Guöjón
veröur meö Þór í knattspyrnunni
aftur næsta sumar. Þó gæti vel far-
iö svo.
Janus málar
ÞÝSKU knattspyrnunni ar nú
lokið í vetur. Janus Guð-
laugsson leikur sem kunnugt
er með 2. deildarliðinu For-
tuna Köln, en síðari hluta
keppnistímabilsins hefur
hann átt við meiðsli að striða
og ekki keppt. Hann eyddi
því miklum tima i tóm-
stundastarf sitt: að mála, og
hált m.a.s. sýningu á dögun-
um. Þessi mynd birtist af
Janusi við iðju sína i stór-
blaðinu Bild, en hár er hann
að mála mynd af landsliðs-
markverði Þjóðverja (
knattspyrnu, Toni Schu-
macher.