Morgunblaðið - 31.05.1984, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 31.05.1984, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1984 Sjúkra- og lyfjakostnaður hækkar frá 1. júnf: Sparar ríkissjóði 100 millj. kr. í ár — 180—190 millj. kr. á ársgrundvelli REIKNAÐ er með að ný reglugerð varðandi hlutdeild notenda í kostn- aði við sjúkra- og lyfjaþjónustu spari ríkLssjóði um 100 millj. kr. i þessu ári, en 180 til 190 millj. kr. á árs- grundvelli, að sögn Ingimars Sigurðs- sonar deildarstjóra hjá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Reglu- gerðin var gefin út 25. maí sl. með vísan til laga um ráðstafanir í ríkis- fjármálum og tekur hún gildi 1. júní nk. Eftir breytinguna greiðir sam- lagsmaður samlagslækni á lækn- ingastofu 75 kr. í stað 25 kr. áður og hver vitjun læknis til sjúklings er nú greidd með kr. 110 í stað 50 kr. áður. Hver koma tilsérfræðings kostar samlagsmann nú 270 kr. og hver rannsókn á rannsóknastofu, eða hjá sérfræðingi og hver röntgen- greining hið sama, en þessi þjón- usta var áður greidd með kr. 100. Elli- og örorkulífeyrisþegar skulu áfram greiða hálft gjald, eða kr. 135 í hvert skipti, en ef sami ein- staklingur í þessum þjóðfélagshópi þarf á slíkri þjónustu að halda oftar en 12 sinnum á einu ári fær hann þjónustuna fría eftir 12. skiptið. Þá breytist einnig gjaldskrá lyfja þannig að nú greiðir samlags- maður fyrstu 120 krónur af gjaldi vegna lyfja í lyfjaverðskrá I, sem eru innlend sérlyf, í stað 50 kr. áð- ur, og kr. 240 af gjaldi vegna lyfja í lyfjaverðskrá II, erlend sérlyf, í stað 100 kr. áður. Sjúkrasamlag greiðir það sem á vantar fullt gjald. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða hálft gjald, þ.e. kr. 60 og kr. 120, fyrir hverja afgreiðslu. Sé heildarverð viðkomandi lyfs jafnt eða lægra en þau mörk sem um getur, greiðir samlagsmaður það verð. Ferðakostnaðargreiðslur sjúkl- inga innanlands breytast á þann veg, að eftir 1. júní endurgreiðir sjúkrasamlag fyrstu ferð að frá- dregnum kr. 800, en síðari ferðir að frádregnum kr. 400. Tilsvarandi upphæðir voru áður 400 kr. og 200 kr. Til endurgreiðslu reiknast far- gjald, eins og það er með venju- legum áætlunarferðum á hverjum tima. Hafnarfjörður: Umdæmisþing Lions hefst á morgun UMDÆMISÞING Lionshreyringarinn- ar á íslandi verður haldið í Hafnarfírði dagana 1. og 2. júní. Þingið sækja um 300 Lionsmenn alls staðar að af land- inu, auk maka þeirra. Á landinu öllu eru um 2.800 Lionsmenn í 82 klúbbum, auk 5 Lionessuklúbba sem telja um 170 félaga. Á umdæmisþingi ráða Lionsmenn stærstu málum sínum, og verður eitt helsta mál þessa þings ákvörðun um sölu „Rauðu fjaðrarinnar" á næsta ári, en áætlað er að tekjur af sölu hennar renni til kaupa á línuhraðli fyrir Landspítalann, en það er mjög fullkomið geislalækningatæki. Núverandi fjölumdæmisstjóri á íslandi er Jón Isberg, Blönduósi, en umdæmisstjórar eru Svavar Gests, Reykjavík, og Hörður Svanbergsson, Akureyri, en landinu er skipt í tvö umdæmi. (Fréttatilkynning.) atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Vélstjóri óskast á 250 tonna bát gerðan út á rækju frá Vest- fjörðum. Upplýsingar í síma 41749 eftir kl. 17.00 eða 94-7777. Sumarafleysingar Aðstoðarmaður óskast í vélasal, ekki yngri en 20 ára. Upplýsingar í síma 11390 fyrir hádegi á föstudag og mánudag. Viöskiptafræðingur sem lýkur námi í vor á sölusviði fyrirtækja- kjarna óskar eftir sumarvinnu. Tilboð. sendist augl.deild Mbl. fyrir 5. júní merkt: „V — 1016. Kennarar Kennara vantar við Grunnskólann í Stykkis- hólmi. Kennslugreinar: enska, danska — kennsla yngri barna. Nánari uppl. veita for- maður skólanefndar, sími 93-8395, og skóla- stjóri, símar 93-8160 og 91-16198. Starfskraftur óskast á véla- og varahlutalager til alhliða af- greiöslu- og lagerstarfa. Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist á augl.deild. Mbl., fyrir 5. júní nk. merkt: „Þ — 563“. _______ Skrifstofustarf Rótgróið fyrirtæki í Kópavogi óskar eftir að ráöa skrifstofumann (karl/konu) til almennra skrifstofustarfa. Æskilegt er að viðkomandi hafi góða kunnáttu í vélritun, íslensku, ensku og einu norðurlandatungumáli. 1/2 skrifstofustarf Óskum eftir að ráða nú þegar skrifstofumann (karl/konu) til starfa hjá innflutnings- og verslunarfyrirtæki í Reykjavík. Reynsla í al- mennum skrifstofustörfum æskileg. Vinnu- tími 13—17. Móttaka Þjónustufyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að ráða starfsmann til móttöku viðskiptavina og jafnframt að annast símavörslu og vélritun. Viðkomandi þarf að hafa fallega framkomu og hlýlegt viðmót. Vinnutími 13—17. Símavarsla Höfum verið beðin um aö ráða starfsmann til símavörslu- og vélritunarstarfa hjá banka í Kópavogi. Skilyrði er að viðkomandi sé bú- settur eða þekki vel til í Kópavogi og geti hafið störf fljótlega. Vinnutími 9—17. Nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9—15. AFLEVSMGA-OG RÁÐNNGARÞJÓNUSTA Liósauki hf. Hverfisgötu 16 Á, sími 13535. Opid kl. 9—15. Sumarafleysingar Kona óskast á kaffistofu Morgunblaösins. Vinnutími ca. 4 tímar á dag. Uppl. á skrifstofu blaðsins. jZeilafiéúii# *=Ákuteiftat Hafnarstræti 57 . Pósthólf 522 . Slrr.i 2-40-73 Ljósameistari Leikfélag Akureyrar vantar Ijósameistara næsta leikár. Umsóknarfrestur er til 10. júní. Umsóknir sendist til Leikfélags Akureyrar, Hafnarstræti 57, 600 Akureyri. Upplýsingar í síma 96-24073 eða 96-25073. Óskum að ráða I. Rafeindatækni eða rafeindavirkja til sölu og þjónustustarfa. Þarf jafnframt að hafa þekkingu á loftstýringum. Góð enskukunn- átta áskilin.Skemmtilegt framtíöarstarf fyrir áhugasaman eintakling. II. Stúlku til að annast símavörslu ásamt vinnu við tölvu o.fl. Framtíðarstarf. Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf sendist Mbl. merkt „R-0850." Raunvísinda- stofnun Háskólans vill ráða starfsmann til afleysinga á skrifstofu í sumar. Þjálfun í vélritun og enskukunnátta nauðsynleg. Þekking á alhliöa skrifstofustörf- um æskileg. Um framtíðarstarf gæti verið að ræða. Laun skv. kjarasamningi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist framkvæmdastjóra, Dunhaga 3, 107 Reykjavík fyrir 6. júní nk. Járniðnaðarmað- ur/bifvélavirki Smiðja úti á landi óskar eftir að ráða járn- smið eða bifvélavirkja til starfa. Húsnæði í boði. Upplýsingar í síma 25531. Vélstjóri 1. vélstjóra vantar á mb. Orra ÍS 20 sem stundar línuveiðar. Nánari upplýsingar á skrifstofu útgerðar í síma 94-4000 eða hjá skipstjóra í síma 94- 4122. Hraöfrystihúsið Noröurtangi hf., ísafiröi. Afgreiðslustúlkur óskast Ekki sumarafleysingar. Uppl. föstudaginn 1. júní í síma 78125 milli 9-12. Skólasafnvörður Skólanefnd Seltjarnarness óskar að ráöa kennara með viðbótarmenntun í bókasafns- fræðum eða bókasafnsfræöing meö kennslu- og uppeldisfræðimenntun að skólasafni Mýr- arhúsaskóla. Viökomandi þarf að geta hafið störf hiö allra fyrsta. Umsóknir sendist afgreiðslu Morgunblaösins fyrir kl. 17, fimmtudaginn 7. júní nk. eða til formanns skólanefndar Guðmars Magnús- sonar, Baröaströnd 23, fyrir sama tíma. Skólanefnd Seitjarnarness.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.