Morgunblaðið - 31.05.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1984
13
Nýkjörin stjórn Norræna félagsins £ Egilsstöðum; talið frá vinstri: Bjarni
Björgvinsson, formaður, og Helga Jóna Þorkelsdóttir (sitjandi) — Ólöf
Guðmundsdóttir og Ragnheiður Þórarinsdóttir (standandi). A myndina vant-
ar 5. stjórnarmanninn, Hans-Uwe Vollertsen.
Egilsstaðir:
Stjórnars
Norræna
EgilsstÖAum, 28. maí.
ADALFUNDUR Norræna félags-
ins á Egilsstöðum var haldinn
fyrir skömmu. Ólafur Guð-
mundsson sem verið hefur for-
maður þess allt frá endurreisn
þess 1975 baðst nú eindregið und-
an endurkjöri og var Bjarni Björg-
vinsson, skattstjóri, einróma kjör-
inn formaður þess til næstu 2ja
ára.
í skýrslu fráfarandi stjórnar
kom m.a. fram að drýgstur tími
stjórnar á síðasta starfsári hefur
farið til undirbúnings þátttöku í
vinabæjamóti er haldið verður í
Soro í Danmörku 6., 7. og 8. júlí í
sumar — svo og til annarra vina-
bæjasamskipta, en vinabæir Eg-
ilsstaða eru auk Soro: Eiðsvellir í
kipti í
félaginu
Noregi; Skara í Svíþjóð og Suol-
ahti í Finnlandi. Þá barst félaginu
jólatré frá vinabænum Skara fyrir
síðustu jól — en það er orðin föst
venja að Skara og Eiðsvellir skipt-
ist á að senda Egilsstaðabúum
jólatré fyrir hver jól.
Auk Bjarna Björgvinssonar
voru eftirtaldir kjörnir í stjórn
Norræna félagsins á Egilsstöðum:
Ólöf Guðmundsdóttir, Helga Jóna
Þorkelsdóttir, Ragnheiður Þórar-
insdóttir og Hans-Uwe Vollertsen
— en Elísabet Svavarsdóttir,
Helgi Halldórsson og Halldór Sig-
urðsson — sem lengi hafa átt sæti
í stjórninni — báðust nú undan
endurkjöri.
— Ólafur
Verndum við-
kvæmt land
— eftir Vigdísi
Finnbogadóttur
forseta íslands
Land, þjóð og tunga, þrenning sönn og ein,
þér var ég gefinn barn á móðurkné;
ég lék mér hjá bér við læk og blóm og
stein,
þá leiddir mig í orðs þíns háu vé.
Svo segir skáldið okkar góða.
Við fslendingar eigum enga
dýrmætari eign en landið okkar,
þjóðerni og tungu. Um þá þrenn-
ingu erum við reiðubúin að
standa vörð. Okkur ber því að
gefa henni gaum alla daga og
skila til vaxandi fjölda landsins
barna svo ósnortna sem kostur
er. Okkur ber einnig skylda til að
miðla öllum nýjum þegnum af
reynslu okkar og þekkingu um
það hvernig best verður staðið
að varðveislu og uppbyggingu.
Á sumri komanda, þegar
minnst ér 40 ára afmælis ís-
lenska lýðveldisins, er stefnt að
miklu átaki til landverndar.
Hvar sem farið er skal umgengni
við landið mótuð þeirri hlýju,
vírðingu og kærleika, sem við í
hjörtum okkar berum til þess.
Um leið og við gætum að gróðri
höfum við fullan hug á að bæta
við hann eftir bestu getu.
Gróður íslands er eins og
börnin okkar. Hann kemst ekki
af nema hlúð sé að honum í vexti
og honum forðað frá spillingu og
slysum svo hann megi koma
framtíðinni til góða, auka yndi
manna og hag. Fæstir veita at-
hygli þeirri smárýrnun sem á sér
stað frá ári til árs. En þegar bú-
seta í landinu er talin í öldum
kemur í ljós að við höfum glatað
allt að 40.000 km2 af gróðurlendi
í landi sem er aðeins 103.000 km2
að stærð. Er þar að sjálfsögðu
mest við óblíða náttúru að sak-
ast.
Þrátt fyrir margvíslegar ham-
farir náttúruaflanna í viðkvæmu
landi okkar hafa íslendingar
aldrei gefist upp við að reyna að
gera það að vini sínum. Nú er
NJÓTUMLANDS
-NfÐUM El
Ferðamálaráð Islands
Vigdís Finnbogadóttir,
forseti íslands.
svo komið hagsæld þjóðarinnar
og þekkingu um landið, að hugur
og hönd geta lagast á eitt til úr-
bóta með sameiginlegu átaki og
jákvæðu hugarfari. Það gefur
auga leið að því betur sem líf-
vera er búin undir æviskeið sitt
því meiri líkur eru á að hún
komist af. Jurtin við götu okkar
er þar engin undantekning.
Það átak sem nú skal gert í
gróðurvernd og gróðuraukningu
er ekki nema brot af því sem við
skuldum landinu. Það er aðeins
upphaf skrefs á langri leið að
settu marki: að gera Island eins
gróðurríkt og það var er menn
völdu það af frjálsum vilja sem
ættjörð sína.
Gullna hliðið jólaleikritið í sjónvarpinu
KVIKMYNDATOKUM fyrir jóla-
leikrit sjónvarpsins í ár, Gullna hlið-
ið eftir Davíð Stefánsso er nú lokið.
Leikstjóri þess er Águst Guð-
mundsson, framleiðandi Andrés
Indriðason og leikmynahönnuðir eru
Gunnar Baldvinsson og Snorri
Sveinn Friðriksson.
Helstu leikarar eru Guðrún
Stephensen, í hlutverki kerlingar-
innar, sálina leikur Jón Sigur-
björnsson, óvininn Arnar Jónsson
og í hlutverki Lykla-Péturs er
Róbert Arnfinnsson, en í leikrit-
inu eru um 20 hlutverk, auk 15
aukahlutverka. Framkvæmda-
stjóri við gerð sjónvarpsleikritsins
er Andrés Indriðason, Gunnar
Baldvinsson hannaði leikmynd og
Snorri Sveinn Friðriksson gerði
málverk við leikmyndina.
ilmvatn frá
Gregory De
Valdes Paris