Morgunblaðið - 27.06.1984, Blaðsíða 12
Adam frá Meðalfelii, knapi er Sigraldi Ægisson.
Ljósmynd Valdimar Kristinsson
Blakkur fri Reykjum hlaut einkunn 9,0 fyrir skeið sem er frekar sjaldgsft. Píll Pilsson situr
bestinn.
Sýning stóðhestastöðvarinnar:
Synir Hrafns 802
í aðalhlutverkum
Hestar
Valdimar Kristinsson
ÞAÐ VAR margt fallegt sem bar
fyrir augu i stóðhestasýningu Bún-
aðarfélags íslands austur í Gunn-
arsholti sunnudaginn 3. júni. Greini-
legt er að mikill ihugi ríkir orðið
meðal manna fyrir þessum sýning-
ura og starfsemi stóðhestastöðv-
arinnar í heild. Mikill mannfjoldi
fylgdist með sýningunni nú og voru
menn víða að komnir, bæði fri
Barðastrandarsýslu og Eyjafirði.
Nokkrar rútur voru þarna með hópa
bæði af suðvesturhorninu og eins úr
Borgarfirði.
Alls voru sýndir sextán hestar,
þar af tólf frá stöðinni, og voru
þeir bæði í eigu stöðvarinnar og
einstaklinga. Einkum voru það
fimm vetra folarnir sem athygli
manna beindist að því í fyrra
hlutu þessir folar, þá fjögurra
vetra, sumir mjög góða einkunn.
Stóru númerin á stöðinni í dag
eru þeir Adam, Viðar, Snældu-
Blesi og Blakkur. Allir hafa þeir
hlotið góð fyrstu verðlaun, hæstur
þeirra er Adam 978 frá Meðalfelli
með 7,83 fyrir byggingu og 8,65
fyrir hæfileika. Aðaleinkunn 8,24.
Þessi hæfileikaeinkunn er óneit-
anlega há og fannst manni miðað
við sýninguna á sunnudag kannski
full mikið í látið en folinn er mjög
góður, hreyfingarmikill og rúmur.
Næstur á blaði v?rð Blakkur 977
frá Reykjum og var hann með
heldur jafnari einkunnir og hæstu
skeiðeinkunn, sem gefin var að
þessu sinni, 9,0 og sýndist manni
það við hæfi. Fyrir byggingu hlaut
Viðar frá Viðvík.
hann 7,96 og hæfileika 8,47, aðal-
einkunn 8,22. Þriðji í röðinni varð
svo Snældu-Blesi frá Árgerði. Á
síðasta ári gekk hann ekki heill til
skógar og fannst manni hann þá
svona ríflega í meðallagi góður en
nú hefur orðið breyting á. Fyrir
byggingu hlaut hann 7,93 og hæfi-
leika 8,45, aðaleinkunn 8,19. Að
síðustu má svo nefna Viðar 979 frá
Viðvík en hann og Adam voru
stóru stjörnurnar í fyrra. Hann
hlaut aðaleinkunn 8,16, fyrir
byggingu 7,80 og hæfileika 8,52.
Eins og áður segir eru þessir folar
allir fimm vetra og er mann farið
að hlakka til að sjá þessa hesta á
fjórðungs- eða landsmóti. Eitt
Snældu-Blesi undan Hrafni 802 og Snældu fri Árgerði, knapi er Sigvaldi.
eiga þessir folar sameiginlegt en
það er faðirinn Hrafn 802 frá
Holtsmúla. Af þeim sextán folum
sem sýndir voru eru sex þeirra
undan Hrafni 802 og þar af fjórir
hæst dæmdu folarnir eins og hér
kemur fram. Er greinilegt að
Hrafn er mikill stóðhestafaðir.
Einn af fjögurra vetra folunum, Hrókur frá S-Skörðugili.
Af yngri folunum stóð efstur
Gustur 1003 frá Stykkishólmi en
hann er undan Eiðfaxa 958 frá
Stykkishólmi. Hann hlaut I aðal-
einkunn 8,04 sem er gott hjá fjög-
urra vetra hesti. Vert er að minn-
ast á einn fola, en það er Hrókur
1005 frá S-Skörðugili er sá hestur
við fyrstu verðlaun. Er með 7,96
en virkaði nokkuð vel á mann og
kæmi ekki á óvart þótt hann ætti
eftir að hækka sig talsvert í ein-
kunn. Folana frá stöðinni sýndu
þeir Sigvaldi Ægisson og Páll B.
Pálsson og fórst þeim það vel úr
hendi þótt maður hafi það á til-
finningunni að Páll megi hugsa
aðeins betur um hendur og hand-
leggi.
Utlit á folum stöðvarinnar hef-
ur varla verið eins gott í annan
tíma. Voru þeir í mjög skemmti-
legum holdum og spegilglansandi
svo eftir var tekið. Hér áður voru
sýningar stöðvarinnar haldnar í
apríl en þessu var breytt í fyrra og
virðist það til mikilla bóta því veð-
ur var bæði nú og í fyrra mjög
gott meðan á sýningunum stóð og
hefur það mikið að segja.
Þeim fer sífellt fjölgandi sem koma til að berja folana á stóðhestastöðinni augum á vorsýningunni.