Morgunblaðið - 27.06.1984, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐID, MIDVIKUDAGUR 27. JÚNl 1984
57
heimsmeistari" í
ers í lengstu
i NBA til þessa
dul- Jabbar hafði ekki höfuðverk síðasta leikdaginn
ngruðu Los Angeles Lakers í úrshtakeppninni 13. júní í hremum úrslitaleik með
rd, framherji Boston, var kosinn leikmaöur mótsins.
iir gerðu það að verkum, að úrslitakeppnin varð jafnframt sú lengsta í sögunni.
iiðlast þátttökurétt í úrslitunum. Keppnin er útsláttarkeppni, en liö er þó ekki úr
itu umferö duga þrír sigrar til aö komast áfram, en siðan þarf lið að vinna fjórum
in ér. Þeir hafa sigraö í vesturdeildinni fjórum sinnum á sfðustu fimm árum, þar
eið. Þeir sigruöu Kansas City Kings með þremur sígrum gegn engum í fyrstu
ns áttu aldrei moguleika í síöustu umferd vesturdeildarinnar (4—2). Liðið var
urdeildarinnar. Liðíð lék mjog ve! í vetur og var meo bestu útkomuna að lokinni
ð að Boston lægi fynr New York Knickerbockers. New York voru með mjög gott
lernard King, sem skorar 40—50 stig í hverjum leik. Að sex leikjum loknum var
leiknum.
3. leikur:
Los Angeles 137 — Boston 104,
í Los Angeles 3. júní
Þaö stóö ekki steinn yfir steini í
leik Boston Celtics þennan sunnu-
dag. Lakers-sirkusinn setti á sviö vel
metna sýningu fyrir sitt heimafólk.
Þeir komust í 22—6. í hálfleik var
staoan 57—46. Lokatölurnar eru
stærsti sigur i úrslitakeppni frá upp-
hafi. Boston voru eins og byrjendur,
staöir eins og beljur.
Öll veömál voru nú Los Angeles í
hag. Þaö var von manna, aö fyrstí
leikurinn heföi veriö óeölilega slakur
af hálfu Boston, en sú von var
greinilega á sandi byggö.
Allt gekk upp hjá Los Angeles
Lakers. Þeir tóku alls 63 fráköst,
sem þeir fylgdu eftir meö næstum
omannlegum sprengikrafti. Enginn
var betri en Magic Johnson í þess-
um leik. Þrátt fyrir að hafa skoraö
þrjátíu stig í leiknum, var Larry Bird
algerlega i skugganum þennan dag.
Hann reyndi samt aö gera lítiö úr
niöurlægingunni, viðurkenndi þó, aö
þeir hefdu gert mörg slæm mistök,
en þetta heföi bara ekki veriö þeirra
dagur.
Ahangendur liösins bjuggust ekki
vid, aö Boston eignaðist annan dag.
300 fylgismenn, sem fóru meö liðinu
til Los Angeles, tóku næstu vél heim
til Boston. Þetta var búiö.
4. leikur:
Boston 121 — Los Angeles 103,
í Los Angeles 6. júní
Kareem Abdul Jabbar er kapítuli út
af fyrir sig. Hann er nú 37 ára og er
enn í fullu fjöri. Þeir sem hafa ein-
hvern snefil af körfuknattleik f blóð-
inu, bera ómælda viröingu fyrir
þessum 219 sentimetra himnastiga
Hann er hin gullna fyrirmynd utan og
innan vallar, sýnir stillingu og er
kurteis í háttum. Kareem er fyrlrliöi
Los Angeles Lakers. Sem slíkur
haföi hann orð fyrir liðinu í lok þriöja
leiksins. Fréttamenn blóölangaöi í
stórorðar yflrlýsingar. Allir geröu sér
grein fyrir þýöingu sigurs í fjóröa
leiknum. Hann gæfi Lakers tveggja
leikja forskot og upp kæmi staöan
3—1, nokkuö sem engu liöi hefur
tekist aö vinna upp í titilslag. i
ofanálag hefðu Lakers efni á aö tapa
fimmta leiknum í Boston (3—2) og
vinna síöan titilinn á heimavelli, sem
er draumur allra liða. En Kareem er
eldri en tvævetur og eftir 15 ár í
atvinnumennsku veit hann vel, aö
ekkert er öruggt í iþróttum. Frétta-
mönnum varö ekki að ósk sinni.
Kareem var hæverskur aö vanda:
„Leikurinn á miðvikudaginn byrjar á
0—0 eins og allir hinir. Celtlcs vita
þaö og viö líka."
Og það voru orö aö sönnu. Celt-
ic-stoltiö haföi verið sært og sjá
mátti á Celtics strax í upphafi leiks,
aö barizt skyldi til siðasta manns.
Mikiö var um pústra og handalög-
mál. Ekkert var sparað, ef á annaö
borð þurfti aö brjóta á andstæöingi.
Eitt sinn lá við slagsmálum. Kevin
McHale (Boston) flaug á Kurt Ramb-
is (L.A.), þegar sá siðarnefndi var í
þann veginn aö leggja boltann í
körfuna í hraöauþþhlaupi. Vara-
menn þustu inn á völlinn og marglr
hnefar voru á lofti Dómararnir áttu
fullt í fangi meö aö greiöa úr flækj-
5. leikur:
Boston 121 — Los Angeles 103,
í Boston 8. júní.
Hitabylgja gekk yfir austurströnd
Bandaríkjanna þessa daga. Þaö var
29 stiga hiti í Boston þennan dag, en
inni í gömlu Boston Gardens, þar
sem loftræsting er léleg, var hita-
stigiö 36 gráöur. Ekki bætti úr skák
mikill loftraki, sem oft fylgir miklum
hitum á austurströndinni. Þessar aö-
stæöur settu svip sinn á leikinn.
Vökvatap leikmanna var gífurlegt og
margir þeirra þornuðu upp og uröu
hálfringlaöir í kollinum. Lakers höföu
súrefniskút á varamannabekknum
tiltækan. Kom hann aö góöum not-
um í seinni hálfleik, þegar Kareem
Abdul Jabbar fékk andarteppu.
Þaö var samt ekki hitinn og rak-
inn, sem geröu út af viö Los Angeles
Lakers. Larry Bird sá um þaö aö
mestu leyti, en í þokkabót duttu
Boston Celtics loksins niöur á leiö til
aö stööva Magic Johnson. Dennis
Johnson, sem Boston keypti frá
Phoenix í fyrra, skipti um stööu í
vörninni um stundarsakir viö félaga
sinn Gerald Henderson og tók Mag-
ic aö sér. Hann náöi slíkum tökum á
vörninni, aö Magic nánast hvarf í
leiknum og hraðinn um lelö. Bird var
betri en nokkru sinni. Hann var eins
og segull á boltann og var hvatinn í
efnahvörfum, sem nú áttu sér staö í
liöi Boston Celtics. Bird var ógnvekj-
andi. Hann var alls staöar og skaraoi
fram úr, hvar sem á var litiö, skoraöi
37 stlg, hitti úr 13 skotum af 20 utan
af velli, þar af úr báöum þriggja stiga
tilraunum sínum (3ja stiga reglan er
• Kareem Abdul-Jabbar (t.h.) Gérungum þótti það ekki góos viti að hann
vœri ekki með höfuðverk siðasta leikdaginn.
unni. Þjalfari Lakers, Pat Riley, sagði
eftir leikinn, aö Boston heföi spilaö
villimannabolta. Hvaö sem leikaö-
ferö Boston kallast, þá dugöi hún til
aö drepa broddinn í hraöaupphlaup-
um Lakers. Þeir misstu einbeiting-
una í slagsmálunum. Þrátt fyrir þaö
hafði Los Angeles alltaf yfirhöndina.
Kareem var óstöövandi og nýtti
svelfluskot sín til fullnustu, uns hann
varö aö víkja af velli, þegar þrjár
mínútur voru til leiksloka. 5 stig
skildu liðin, er 56 sekúndur voru til
leiksloka. Áhorfendur í Inglewood
Forum voru farnir aö fagna sigri.
En hiö ótrúlega skeði, eins og svo
oft á síöustu mínútu leikjanna í NBA.
Boston náði aö jafna. Magic John-
son átti tvær ónákvæmar sendingar,
sem Celtics nýttu sér til hins ýtrasta.
Nákvæmlega sama uppákoma og í
leik numer tvö. Óskiljanlegt klúöur á
síöustu mínútum leiksins.
Jafn lamaðir í framlengingunni og
í Boston í vikunni áöur og auk þess
meö Kareem utan vallar, voru Lak-
ers auðveld bráö fyrir Boston Celt-
ics. Staöan í úrslitunum var nú 2—2.
Dapurleg staöreynd fyrir Los Angel-
es Lakers, sem meö yfirvegun í
þessum leik, sem og þeim seinni í
Boston, heföu nú staðiö uppi sem
sigurvegarar.
enn ein sérreglan í NBA. deildinni.
Dregin hefur veriö bogalína i um þaö
bil 10 metra fjarlægö frá körfunni.
Heppnaö körfuskot fyrir aftan þá
línu gefur 3 stig), tók alls 17 fráköst,
átti óteljandi frábærar sendingar,
stal boltanum og varði skot. Loks
fékk hann aðeins 6 mínútna hvíld af
48 mínútna heildarleiktíma. Lamandi
hitinn virtist hafa örvandi áhrif á
Larry Bird.
En kappinn var ekki einn aö verki.
Liðið allt vaknaöi til lífsins. A öllum
sviöum leiksins í vörn og sókn voru
Celtics Lakers langtum fremri. 57
fráköst á móti 37 fráköstum Lakers.
51,7 prósent hittni utan af velli og
nánast óbrigöul vitahittni.
Botnfalliö var allt Lakers megin.
Styrkur liösins felst fyrst og fremst í
bráðdrepandi hraðaupphlaupum og
frábærri skotanýtingu, sem sjaldan
er undir 50 prosentum Hittnin brast,
varö aðeins 42,8 prósent (þaö þætti
nú gott á sumum bæjum) og Celtics
hleyptu mesta vindinum úr hraöaup-
phlaupunum meö því að taka Magic
Johnson úr umferö strax á vallar-
helmingi Lakers. Los Angeles liðið
sá aldrei glætu í þessum leik. Bost-
on Celtics var gjörbreytt liö frá
fyrstu fjórum leikjunum og yröi fram-
hald þar á, dygði Lakers ekkert
nema toppleikir til aö sigra. Staöan
var nú 3—2 Boston í hag og sviöiö
færist til Los Angeles.
6. leikur:
Los Angeles 119 — Boston 108,
í Los Angeles 10. júní
Lakers varð aö vinna þennan leik til
aö ná fram 7. leiknum og eiga mögu-
leika á titlinum. Þrátt fyrir stuöning
áhorfenda á heimavelli bjóst enginn
við auðveldum sigri Lakers í þessum
leik.
Leikurinn var vel leikinn af beggja
háltu og sem slíkur sá besti í úrslit-
unum fram aö þessu. Allar sóknir
beggja liöanna í upphafi leiksins
enduðu á körfu og eftir 6 mínútna
leik var staðan 20—20. Seigir sem
ól smásigu Celtics fram úr. Larry
Bird náöi aö leika nokkuö lausum
hala og urðu Lakers oft að brjóta illa
á honum til aö koma í veg fyrir körf-
ur. Hann skoraði 17 stig i fyrri hálf-
leik, hitti þar af úr 9 vítaskotum af 10
tilraunum. i hálfleik var staðan
65—59 Boston í vil.
Tvær Boston-körfur strax í byrjun
seinni hálfleiks juku muninn í tíu stig.
Kareem, rétt nýlaus viö enn einn
mígrenihausverkinn, hélt Lakers á
floti, skoraði 6 stig í röö meö óverj-
andi sveifluskotum og lagfæröi stöð-
una, 71—69. Celtics, minnugir ófar-
anna úr þriöja leiknum, héldu áfram
störfum. Um miðjan hálfleik var
staðan 84—73 þeim i vii og virtist
ekkert geta komið í veg fyrir sígur
þeirra. Þetta hljóp í skapiö á Los
Angeles-leikmönnum og um þessar
mundir mátti sjá Ijótasta ásetn-
ingsbrotiö í allri úrslitakeppninni
Hinn fislétti James Worthy, sem áð-
ur er nefndur, eltl Cedric Maxwell,
dauðafrian í hraöaupphlaupi, náöi
honum upp viö körfuna, tók af hon-
um jarðsambandið og hrinti á körfu-
undirstöðurnar. Ahorfendur fögnuöu
og töldu, aö nú væri hefnt fyrir atvik-
ið í leik númer 4. Dómararnir sáu
ekki ástæöu til aö reka Worthy af
velli og slapp hann billega þar.
Þegar hór var komiö sögu sýndu
Celtics ótrúlegt kæruleysi. Einum of
öruggir um sigur kepptust þeir um
að taka ótímabær og vafasöm skot,
sem öll misstu marks. Meira aö
segja sjálfur Larry Bird tókst á hend-
ur ævintýralegt feröalag aftur fyrir
körfu Lakers, sigldi síöan fram i víta-
teiginn og reyndi skot aftur fyrir sig.
Skömmu áöur vék Magic Johnson af
velli fyrír nýliöanum Byron Scott. Úr
sæti sínu á varmannabekknum
horföi Magic á nýliöann koma Celt-
ics úr jafnvægi meö því aö glæöa
hraðaupphlaupin lífi á ný og á ör-
skammri stundu sneru Los Angeles
leiknum viöog sigruöu örugglega.
Tíminn var of naumur fyrir Boston
Celtics til aö hervæðast á ný.
Oskastaða var komin upp fyrir
körfuknattleiksunnendur. Liöin
höfðu sigraö þrisvar sinnum hvort
og hreinn úrslitaleikur var stað-
reynd.
7. leikur:
Boston 111 — Los Angeles 102,
í Boston 12. júní
Los Angeles Lakers höföu allt á
móti sér fyrir þennan leik. í fyrsta
lagi skyldi leikiö í Boston viö óstööv-
andi óhljoðahljomkviðu 14 þúsund
áhorfenda. i öðru lagi var viö sögu-
legar goðsagnir aö etja. Þegar sjö
leikja hefur veriö þörf til að vinna
titilinn, hefur Boston alltaf sigraö, en
Los Angeles alltaf tapað. Celtics
unnu St. Louís 1957 og 1960 í
sjöunda leik, Los Angeles 1962,
1966 og 1969 og Milwaukee 1974.
Auk osigranna gegn Boston tapaöi
Los Angeles fyrir New York í 7. leik
1970. i þokkabót hafa Lakers aldrei
náö aö sigra Celtics í keppni um tit-
ilinn. Þetta var í áttunda sinn, sem
liðin kepptu í úrslitum og í öll fyrri
skiptin sjð báru Boston Celtics sigur
úr bytum. Loks þótti hjátrúarfullum
gárungum ekki góös viti, aö Kareem
var laus viö allan hausverk þennan
dag.
Hvaö sem allri tðlfræöi og hjátrú
líður, þá var þessi leikur aö sjálf-
sögöu leikur mótsins. Hann var æsi-
spennandi frá upphafi til enda Bost-
on höföu alltaf frumkvæöiö i leiknum
og léku nú af sömu getu og Lakers.
Hlttni Los Angeles var aldeilis frá-
bær og þaö brá fyrir einu og einu
Magnús Þrandur Þóróarson skrífar frá Kaiiforníu
hraöaupphlaupi. Celtics hittu líka vel
utan af velli, sem neyddi Lakers til
að fylgja mönnum fastar eftir í vörn-
inni. Það hins vegar gaf framherjum
og miöherjum meira frelsi til athafna
í nálægö körfunnar. Þeir notfæröu
sér þaö grimmt og máttl oft sjá Kar-
eem Abdul Jabbar einn aö berjast
viö þrjá Celtics-leikmenn. Þó langur
sé, gekk honum ekkert of vel. Rob-
ert Parish, miðherji Celtics (215 cm),
hafði í fullu tré við Kareem og eftir-
leikurinn var því alla jafna auðveldur
fyrir Larry Bird (206 cm), Cedric
Maxwell (205 cm) og Kevin McHale
(206 cm), sem auk þess er meö
lengstu hendur, sem sést hafa í
bandanskum atvinnukörfuknattleik.
Þeir tóku 20 sóknarfráköst á móti 9
hjá Lakers, en heildarfraköst voru
52 gegn 33 Celtics í hag.
i hálfleik var staöan 58—52 Celt-
ics í vil. Þaö var sigurstemmning f
húsinu og var mönnum tíörætt um,
aö Magic Johnson sýndi ekki sömu
snerpu og fyrr í keppninni og Boston
væri í slíkum ham þetta kvöld aö
þeir yröu ekki auöunnir.
i upphafi seinni hálfleiks var eins
og Celtics hægöu á og hreyfanleik-
inn hvarf úr leik liösins. Pat Riley,
þjálfari Lakers, sá sér leik á boröi,
kippti Magic Johnson út af og setti
nýliöann, Byron Scott, inn á. Hugöist
hann greinilega leika bragöiö úr
sjötta leiknum og gera út um leikinn
meö hraðaupphlaupum. Staöan var
75—72 fyrir Boston og um það bil
átta mínútur liðnar af seinni hálfleik.
Svar K.C. Jones viö tilburöum
Lakers-þjálfarans var ótrúlegt en
snjallt. Hann tók stjörnuna, Larry
Bird útaf. Larry hafði til þessa sýnt
góöan leik og átt sinn þátt í aö halda
frumkvæöi Celtics. En sóknarleikur-
inn einskoröast um of við að koma
Larry í skotfæri meö takmörkuöum
árangri. Celtics hysjuöu nú upp um
sig buxurnar. Þegar Bird kom inn á
aftur fjórum mínútum síðar, var
staöan 91—78 Celtics í vil.
Þetta geröi út um leikinn. Celtics
léku mjög skynsamlega, nýttu sókn-
irnar vel og naðu aö pressa Lakers í
vörninni og dreifa þeim um völlinn
Cedric Maxwell, sem var kosinn leik-
maöur mótsins 1981, þegar Boston
unnu titilinn siöast, lék aöalhlut-
verkiö á vellinum viö mikil fagnaöar-
læti. Fyrirliðinn, Larry Bird, lék við
hvern sinn fingur á varamanna-
bekknum og sté hvern stríösdansinn
á fætur öörum meö handklæði aö
vopni.
Lakers áttu ekkert svar viö þess-
ari óvæntu árás. Þeir voru vonleysið
uppmálaö. Boston Celtics voru alls-
ráöandi á vellinum. Er sex mínútur
voru til leiksloka, var 17 stiga munur
og þá var eins og Lakers áttuöu sig
á því, í hvert óefni var komiö. En
tíminn var of naumur og Boston
Celtics auk þess ekkert á þvi, aö
gefa eftir sigurinn. Staöan var
99—89, fimm mínútur eftir og Los
Angeles komnir i gang. Þessar sið-
ustu mínútur voru þrungnar spennu.
Lakers komu muninum í þrjú stig
102—105, þegar ein mínúta var eftir
en náðu ekki aö reka endahnykkinn.
Þeir reyndu þriggja stiga skot, sem
brast. Brotiö var tvívegis á Larry
Bird, sem hitti úr öllum fjórum víta-
skotum. Þá ætlaði allt vitlaust aö
veröa í Boston Gardens og var
vandkvæöum bundiö aö Ijúka lelkn-
um. Dennis Johnson átti síöasta
oröið með tveimur góöum víta-
skotum. Þaö var táknrænt, þvi aö
vítaskotin riöu raunverulega bagga-
muninn í þessum leik. Boston tók 51
vítaskot og hitti úr 43 (84,3%). Denn-
is Johnson hitti úr öllum 12 tilraun-
um sinum Larry Bird átti 8 tilraunir
og hitti úr öllum. Cedric Maxwell hitti
úr 14 af 17 og Robert Parish úr 6 af
9. Los Angeles á hinn bóginn hittu
aöeins úr 18 tilraunum af 28,
Glappaskotin á síöustu sekúndum
annars og fjórða leikjar stoöu sem
opin svöðusár. Johnson er ekki hinn
óbrigöuli undramaöur. Hann er
mannlegur eins og fleiri og mun
væntanlega njóta meiri viröingar
fyrir vikiö.
Engin mottökunefnd beiö í Los
Angeles, en Boston-borg réð ekki
viö sig af kæti. Daginn eftir fóru
leikmenn í opnum vagni um götur
borgarinnar og talíö var, aö 300
þusund manns heföu streymt út á
göturnar til aö fagna meisturunum.