Morgunblaðið - 15.07.1984, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 1984
Þórhalla Odds-
dóttir 85 ára
ALLTAF Á HUÐJUDÖGUM
LANDSMÓT
UMFÍ
í MÁLI OG
MYNDUM
KNATTSPYRNA
HELGARINNAR
Itarlegar og spennandi íþróttafréttir
Síðastliðinn fimmtudag varð
Þórhalla Oddsdóttir frá kvígind-
isfelli í Tálknafirði 85 ára. Hún
fæddist að Kleifastöðum i Gufu-
dalssveit í Austur-Barðastrand-
arsýslu þann 12. júlí 1899. Voru
foreldrar hennar þau hjónin,
Oddur Magnússon bóndi og Þuríð-
ur Guðmundsdóttir, sem lengst
bjuggu þar að Brekku í sömu sveit,
bæði ættuð úr Austur-Barða-
strandarsýslu.
Árið 1904, þegar Þórhalla var á
fimmta ári, fluttu þau hjón bú-
ferlum vestur í Tálknafjörð og
settust að í Stóra-Laugardal, þar
sem þau bjuggu um langan aldur.
Þau eignuðust 7 börn og eru nú
þrjú þeirra á lífi.
Minnist Þórhalla enn ferðarinn-
ar vestur fyrir 80 árum. Hafði fað-
ir hennar farið landveginn vestur
um Þingmannaheiði til Tálkna-
fjarðar, en móðir hennar sjóveg
með 4 yngstu börnin og nauðsyn-
legustu búslóð. Var þá haldið til
Flateyjar á Breiðafirði með við-
komu í Hvallátrum. Er ÞórhöUu
enn í fersku minni það, sem þar
bar fyrir augu hennar þótt barn-
ung væri. En það voru jarðbætur
þær, sem ólafur bóndi þar Berg-
sveinsson var að framkvæma, en
slíkt var sjaldgæft á þeim tíma.
Vikudvöl höfðu þau í Flatey með-
an þau biðu eftir strandferðaskip-
inu Skálholti. Síðan var haldið
vestur og skipinu lagt á Bótina
fyrir innan Sveinseyri, þar sem
bæði farþegar og farangur var
flutt í land.
f Tálknafirði var farkennsla,
þegar Þórhalla var að alast upp,
og naut hún hennar, en þegar hún
var 11 ára fór hún til vinafólks á
Patreksfirði og dvaldi þar árlangt,
Valid er audvelt!
Þýskur hágæöavagn á frá-
bæru veröi.
Öryggi — Ending — Sparneytni
Verð frá 390.000.-
Hagstæöir greiösluskilmálar.
BÍLVANGUR Sf=
!.. i I í I i i
HOFÐABAKKA 9 IB4 REYKJAVIK 5IMI 687300
1 i i í i I 1______
vann þar í fiskvinnu um sumarið
og gekk í barnaskólann um vetur-
inn. Segist hún hafa haft mikið
gagn af þeirri skólavist síðar f lff-
inu.
í Stóra-Laugardal var tvíbýli á
þessum árum, og var þá á hinu
heimilinu að alast upp Guðmund-
ur Kr. Guðmundsson, nfu árum
eldri en Þórhalla. Hann var sfðar,
eftir lát föður síns, ráðsmaður hjá
móður sinni, festi kaup á hálfri
jörðinni, Kvígindisfelli í Tálkna-
firði og fluttist þangað með móður
sinni árið 1913, en sfðar eignaðist
hann alla jörðina. Þann 8. des-
ember giftust þau Guðmundur og
Þórhalla og bjuggu þar sfðan um
langan aldur, í 54 ár, allt þar til
Guðmundur andaðist hér í
Reykjavík, farinn heilsu, þann 6.
febrúar 1969, 79 ára að aldri. Þá
tóku við búi á Kvígindisfelli
Magnús sonur þeirra og tengda-
dóttir, Halldóra frá Bíldudal, og
búa þau þar enn.
Þórhalla og Guðmundur eignuð-
ust 17 góð og mannvænleg börn,
sem öll eru enn á Iffi, 12 syni og 5
dætur, og eiga nú 11 þeirra heima
hér syðra, en 6 úti á landi.
Guðmundur á Felli, eins og
hann var oft nefndur, var mætur
og virtur dugnaðar- og eljumaður.
Hann hafði jafnan skip fyrir
landi, réri vor og haust frá ver-
stöðvum við utanverðan Tálkna-
fjörð. Hann gegndi einnig mörg-
um trúnaðarstörfum fyrir sveit
sína og hreppstjóri var hann þar
um skeið.
Ung var Þórhalla þegar hún
gekk í hjónaband, á 17. ári. En
hvort tveggja var að þau hjón voru
samhent, dugmikil, kjarkmikil og
ráðdeildarsöm, og einnig var að
jafnan fór vel á með þeim og þau
fengu notið elsku og virðingar
hvors annars, að þeim lánaðist að
koma áfallalaust upp svo stórum
barnahópi, þótt aldri væri þar
auður í búi, en miklum mun meiri
auðna og blessun.
Mikið ævistarf liggur hér að
baki, þrotlaus vinna um áratuga
bil í blíðu og strfðu daganna. Og
margs minnist Þórhalla frá liðn-
um árum, því að enn hefur hún
trútt minni, sjón góða og heyrn og
hress er hún á sál og Ifkama þrátt
fyrir háan aldur. Hún brosir við,
þegar hún minnist morgungjafar-
innar, sem maður hennar færði
henni í skammdegi vetrar fyrir 69
árum, sem var þýsk Singer-
saumavél, mikið þarfaþing á þeim
árum, sem fáir gátu þá eignast, og
kom henni, heimilinu og nágrönn-
um að góðu gagni. Með henni
saumaði hún allt, sem sauma
þurfti á heimilinu, fatnað og
sængurlín, og ekki nóg með það,
heldur og einnig segl á bátinn og
skinnstakka fyrir sjómennina.
Skinnbrækur segist hún ekki hafa
getað saumað f vélinni, vegna þess
hve þykkt skinn þurfti að vera í
þeim. Á þeim tfmum var þetta
einsdæmi og margur sem ekki
hafði trú á endingu vélsaumaðra
skinnstakka, en Þórhalla reið á
vaðið og það heppnaðist vel.
Segi ég þetta til vitnis um fram-
takssemi Þórhöllu, sem var forkur
dugleg, hafði sérstakt lag á stjórn
heimilis og föst tök á stórum
barnabópi. Erfiðast fannst henni,
segir hún, þegar börnin þraut
verkefni eða áttu erfitt með að
finna sér eitthvað til afþreyingar,
því að þá varð hún fyrir óþarfa
töfum meðan hún var að koma því
í lag.
Ég hygg að nær einsdæmi sé
barnalán þeirra hjóna á Kvfgind-
isfelli, og get vart hugsað mér
annað en að Þórhalla, húsmóðirin,
hafi næst forsjóninni átt einn
drýgstan þáttinn f því, þó ekki
væri nema að fleyta börnunum yf-
ir fyrstu árin heilum á húfi. Fyrir
það eitt hefði hún getið hlotið
fyrstu einkunn í skóla Iffsins, þar
sem hún um árabil hafði auk
heimilisstarfa 17 börn, sem þurfti
að ala önn fyrir, fæða og klæða og
hyggja að á hverri stund, — og
hafa auk þess umsjón með 17
barna „dagheimili" og „leikskóla"
allan daginn, úti og inni.
Þórhalla var alla tíð ólaunuð
heimavinnandi húsmóðir, og umb-
un sína fyrir langt og farsælt starf
hefur hún nú hlotið, þótt henni
hafi ekki verið greitt það í reiðnu
fé. Það eru börnin hennar, tengd-
abörnin og afkomendur þeirra,
börnin yngri og eldri, gengi þeirra
og gæfa og Guðs blessun, sem
þeim hefur fylgt og jafnan verið
með heimilinu á Kvigindisfelli.
Eftir lát eiginmanns síns dvaldi
Þórhalla enn um 8 ára skeið heima
á Kvigindisfelli hjá syni og
tengdadóttur, en árið 1978 fluttist
hún alfarin að vestan hingað til
Reykjavíkur og hefur dvalið á
Hrafnistu hér síðan.
Þórhalla er við góða heilsu og
nýtur ævikveldsins í næsta ná-
grenni við börnin sín. Ern er hún
og enn fjörmikil, glöð og ánægð og
lifandi í anda, þakklát fyrir það,
sem Guð hefur gefið henni á
langri lífsleið. Hún fylgist vel með
afkomendum sínum, stendur í
nánu, daglegu sambandi við þá og
hygg ég að ekkert mikilvægt, sem
þá varðar, fari framhjá henni.
Hún á enn samleið með ungu fólki,
unir sér vel með því, jákvæð og
ung í anda, létt i Iund og laus við
allt víl og hugarangur.
Börnin hennar halda henni
samsæti nú í dag, sunnudag, að
Hótel Hofi við Rauðarárstíg frá
kl. 3—7 síðd., þar sem vinum og
kunningjum ásamt 107 afkomend-
um gefst tækifæri til að heils uppá
afmælisbarnið og þyggja veit-
ingar.
Heill Þórhöllu Oddsdóttur á
tímamótum og heiðursdegi.
Grímur Grímsson
Sumarstarf
Garnverslun óskar eftir að ráða starfskraft nú þegar.
Þarf aö hafa góöa kunnáttu og áhuga á prjónaskap.
Um er aö ræöa fullt starf til ágústloka og ígripavinnu
fram eftir vetri.
Umsóknir meö upplýsingum sendist augld. Mbl.
merkt: „Z — 1010“, fyrir þriðjudagskvöld 17. júlí.