Morgunblaðið - 18.07.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 18. JÚLÍ1984
5
Hættulc
hellir ná
Bláfjall
skálanu
UM síðustu helgi sigu 3 ungir
menn niður í 120 metra djúpan
helli nálægt Bláfjallaskálanum.
Um hálftíma gangur er frá hellin-
um að bílastæðum skíðalandsins.
Þarna eru engin merki eða nokkuð
til að vara fólk við hættunni, sem
er mjög mikil að mati þeirra sem
sigið hafa niður í hellinn.
Höskuldur ólafsson var einn
þeirra sem fór niður í hellinn og
sagði hann að það væri ábyrgð-
arhlutur að merkja ekki staðinn
og vara við hættunni. Hann
sagði að alltaf væri hætta á að
fólk sem kæmi í skíðalöndin í
Bláfjöllum ætti leið þama um.
Höskuldur sagði að nauðsynlegt
væri að girða í kringum svæðið,
svo ekki yrði slys þarna. Hann
sagði að opið væri aflíðandi og
þarna væri mikið af lausu grjóti
sem yki enn hættuna. Af þessum
sökum er fólki ráðlagt að koma
þarna hvergi nálægt. Opið er
nokkuð stórt, en breikkar neðst
og er mikið grjót í botninum.
Fyrst var vitað um þennan
helli fyrir um 5—6 árum og hef-
ur nokkrum sinnum verið sigið
niður í hann á þessum tíma.
Morgunbladid/ljósm. Höskuldur ólafsson.
Taugin liggur úr hellisopinu, nálægt því er einn þeirra sem sigu niður í
hellinn um síðustu helgi. Léleg birta var og þoka, svo erfitt var um
myndatökur.
Myndin er tekin niðri í hellinum. Ef hún prentast vel má sjá stórgrýtið á botninum.
75 % af útsöluverði
gasolíu er innkaups-
verð og flutningsgjald
— segir Indriði Pálsson forstjóri
„SJÖTÍU og fjögur prósent af útsöluverði gasolíu á fslandi er svokallað
cif-verð eða innkaupsverð og flutningsgjald. Þannig að ef þessar upplýsingar
eru réttar, þá þyrfti ekki aðeins að fella niður allan þann kostnað, er leggst á
hér á landi, heldur líka hluta af cif-verðinu,“ sagði Indriði Pálsson, forstjóri
Olíufélagsins Skeljungs, er hann var spurður um ástæður þess að olíuverð á
íslandi er samkvæmt frétt Morgunblaðsins sl. sunnudag 48% hærra en í
Bretlandi.
Þá benti Indriði á að oft vildi
það gleymast þegar rætt er um
gasolíu, að um margar tegundir er
að ræða en ekki eina, eins og
margir halda: „Við kaupum aðeins
eina tegundina hingað með mjög
lágu brennisteinsmarki." Þá lagði
Indriði Pálsson á það áherslu að
nefnd olíufélaganna og LÍÚ væri
starfandi, og fjallar hún um þessi
mál. Að öðru leyti vildi hann ekki
tjá sig um málið, og sagði að upp-
lýsingar Morgunblaðsins væru
nýjar fyrir sér.
Eins og áður segir er cif-verð
74% af útsöluverði gasolíunnar,
en opinber gjöld nema 3%, dreif-
ingarkostnaður olíufélaganna er
14%, verðjöfnunargjald 6% og til-
lag í innkaupajöfnunarsjóð nemur
3% af útsöluverði gasolíunnar.
Landgræðslan krefst
ítölu á Grímstunguheiði
í A-Húnavatnssýslu
LANDGRÆÐSLAN hefur krafiat
ítölu á Grímstunguheiöi i Austur-
Húnavatnssýslu vegna gróöurvernd-
arsjónarmiða. Að sögn Sveins Run-
ólfssonar landgræðslustjóra er
ástandið á heiðinni orðið mjög slæmt
eftir undangengin fjögur kuldaár en
ekki næst samstaöa með heimamönn-
um um nauðsynlegar gróðurverndar-
aðgerðir.
Grímstunguheiði liggur mjög
hátt og greri hún mjög seint í vor
og sumar að sögn Sveins. Sagði
Sveinn að heiðin væri verulega
ofbeitt en ekki næðist samstaða
meðal heimamanna um gróður-
verndunaraðgerðir og hefði Land-
græðslan því krafist ítölu. Sagði
Sveinn að í Áshreppi vildu menn
gróðurverndaraðgerðir en bændur i
hinum hreppnum sem upprekstur á
á heiðina, Sveinsstaðahreppi, væru
lítt til viðtals um slíkt. Þegar ein-
hver til þess bær aðili krefst ítölu
skipar viðkomandi sýslumaður
ítölunefnd sem metur beitarþol
viðkomandi afréttar og skiptir á
milli eignaraðila I hlutfalli við
eignarhluta þeirra. Sýslumaður
skipar formann, annan nefndar-
mann eftir tilnefningu Búnaðarfé-
lags Islands og þann þriðja eftir
tilnefningu Landgræðslunnar.
Tölvukaup ríkisstofnana:
Þremur til-
boðum tekið
INNKAUPASTOFNUN ríkisins,
ásamt Fjárlaga- og hagsýslustofnun
og Skýrsluvélum ríkisins gerðu í vor
útboð í tölvukaup ríkisstofnana og
menntastofnana og var það í tvennu
lagi. Ákveðið hefur verið að taka til-
boði Radíóbúðarinnar og kaupa
fjörutíu Apple-tölvur fyrir fram-
haldsskólana á þessu ári, og fer
stærsti hlutinn í menntaskólana á
Lögbann sett á innflutning Spar-hreiniætisvara að beiðni Frigg:
„Eingöngu vegna þess að
við erum með ódýrari vöru“
— segir Sveinlaugur Kristjánsson hjá Sund hf., sem flytur Spar-vörurnar inn
SÁPUGERÐIN Frigg í Garðabæ hef
ur krafist lögbanns á innfiutning
hreinlætisvara undir merkinu Spar,
sem Sund hf. hefur flutt inn. Frigg
framleiðir m.a. þvottaefni með nafn-
inu Sparr og hefur gert í 30 ár. Sund
hf. hefur hætt innflutningi á hreinlæt-
isvörum undir þessu nafni, en fiytur
áfram inn fjölda annarra vörutegunda
undir sama nafni.
„Við neyddumst til að krefjast
lögbanns vegna þess að þeir neituðu
að hætta að fljrtja þessar vörur
inn,“ sagði Gunnar J. Friðriksson,
forstjóri Frigg, í samtali við blm.
Mbl. í gær. „Frigg hefur átt þetta
vörumerki í 30 ár og hyggst nota
það áfram. Það voru mörg tilfelli,
þar sem fólk ruglaði þessum merkj-
um saman, og því fórum við fram á
lögbann á notkun nafnsins. Þegar
maður hefur í huga hvernig fór þeg-
ar Líf varð að lúta lægra haldi fyrir
bandaríska tímaritinu Life og
breyta nafni sínu held ég þetta liggi
alveg á borðinu."
„Við höfum stöðvað sölu á dreif-
ingu á þeim hreinlætisvörum, sem
við vorum með undir þessu merki,"
sagði Sveinlaugur Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Sunds hf. er
blm. Mbl. ræddi við hann í gær.
„Við vorum með um 30 vörutegund-
ir sem flokkuðust undir hreinlæt-
isvörur, en Frigg ekki nema þrjár
þannig að við töpum þarna mikilli
sölu,“ bætti hann við.
Sveinlaugur sagðist sannfærður
um að lögbannskrafan hjá Frigg
ætti rætur sfnar að rekja til könn-
unar Verðlagsráðs frá f vetur. Þar
hefðu vörur frá Spar komið mjög
vel út, mun betur en t.d. vörur frá
Frigg, og Spar-vörur verið teknar
að hafa töluverð áhrif á sölu vara
frá Frigg. „Hálfum mánuði eftir
þessa könnun fengum við bréf frá
lögfræðingi þeirra,“ sagði Svein-
laugur.
Þá sagði Sveinlaugur, að trygging
sú er fógeti krafðist af hálfu Frigg
vegna lögbannskröfunnar væri út í
hött. Við fórum fram á 10 milljónir
en fógeti óskaði eftir 80.000 króna
tryggingu." „Tap okkar nemur 10
milljónum ef við reiknum með 2—3
ára málaferlum vegna þessa. Mér
finnst hins vegar nauðsynlegt, að
það komi fram, að þarna er ein-
göngu verið að krefjast lögbanns
vegna þess að við erum að selja
miklu ódýrari vörur,“ sagði Svein-
laugur Kristjánsson.
höfuðborgarsvæðinu. Alls verða
keyptar 120 tölvur næsta eina og
hálfa árið.
Að sögn Ásgeirs Jóhannessonar,
forstjóra Innkaupastofnunar, er
samningurinn við Radíóbúðina
ekki mjög stór, þar sem tilboð
hennar var mjög hagstætt og mun
hver tölva kosta liðlega 30 þúsund
krónur, en tólf tölvur í stofu með
tilheyrandi búnaði kosta um hálfa
milljón króna.
Þá voru einnig boðin út tölvu-
kaup fyrir ríkisstofnanir og var
niðurstaðan sú, að ákveðið var að
taka tilboði frá Radíóbúðinni í
minni gerðina, sem er samskonar
tölva og fyrir framhaldsskólana,
en með öðrum hugbúnaði. 1 stærri
gerð var tilboði Gísla J. Johnsen
tekið og er þar um að ræða IMB-
PC-tölvur, en einnig var ákveðið
að taka tilboði Atlantis, sem er
íslenskt fyrirtæki, og býður Atl-
antis-vélar. Að sögn Ásgeirs
Jóhannssonar eru þessi kaup
skemmra á veg komin en kaupin
fyrir skólana, en Fjárlaga- og hag-
sýslustofnun hefur sent út bréf til
ríkisstofnana og ráðuneyta þar
sem þörfin fyrir samræmda
stefnu í tölvukaupum ríkisstofn-
ana er kynnt. Skýrsluvélar ríkis-
ins annast skipulag á nauðsyn-
legri fræðslu. Aðspurður sagði
Ásgeir Jóhannesson, að á þessu
stigi væri ekki hægt að segja til
um hversu umfangsmiklir samn-
ingar verða gerðir við þessi þrjú
fyrirtæki.