Morgunblaðið - 18.07.1984, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.07.1984, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 18. JÚLl 1984 Umhverfis jörðina Hér er „Landkönnuðurinn" í Kfingaflugi yfir Mojava-eyðimörkinni, en flugmennirnir tveir, Richard Rutan og Jeane Yeager, hyggjast fijúga kringum hnöttinn á henni á 12 dögum nú í haust eða næsta vor ef allt gengur samkvæmt áætlun. Flugvélin líkist U-2 könnunarflugvélum Bandaríkjamanna og er búin 16 eldsneytisgeymum. Aukið eftirlit með tölvusölu til Rússa Ný stjórn í Egyptalandi Kairó, 17. jíB. AP. HOSNI Mubarak, forseti Egypta- lands, skipaði í dag nýja ríkis- stjórn, sem í eru 32 ráðherrar. Forsætisráðherra er Kamal Hass- an Aly, sem var áður utanríkisráð- herra landsins. Við embætti utan- ríkisráðherra tekur Esmat Abdel Meguid, fyrrverandi sendiherra Egyptalands hjá Sameinuðu þjóö- unum. Ein mikilvægasta breytingin á stjórninni felst í því, að skip- aðir voru nýir menn í stöður þeirra ráðherra, sem mestu ráða um fjármál ríkisins. Engin skýr- ing hefur verið gefin enn á þess- um breytingum, en stjórnmála- sérfræðingar telja, að ekki sé von á róttækri breytingu á stefnu stjórnarinnar í efna- hagsmálum. Við skipun hinnar nýju stjórnar lagði Mubarak áherzlu á „að fjárhagsleg byrði fjöldans yrði gerð léttbærari, komið yrði á meira réttlæti í landinu og opinber þjónusta yrði endur- skipulögð." Pólland: Boða sakaruppgjöf V.rajá, 17. júK. AP. Kommúnistastjórnin í Póllandi hyggst leggja fram frumvarp um sakaruppgjöf pólitískra fanga á laugardaginn kemur. Skýrði Jerzy Urban, talsmaður stjórnarinnar, frá þessu í dag og sagði hann ástæðuna vera „minnkandi áhrif óvina kerfisins" í Póllandi. Endanlegt frumvarp um þessa sakaruppgjöf liggur enn ekki fyrir og er alls ekki víst, að hún muni ná til allra pólitískra fanga í Póllandi, en þeir eru 660 að tölu. Af þeim hafa 58 hlotið dóm, en 602 er haldið í varðhaldi án þess að mál þeirra hafi komið fyrir dóm. London, 17. júlí. AP. AÐILDARÞJÓÐIR NATO og Japan hafa komist að samkomulagi sam- kvæmt breska útvarpinu, BBC, og dagblöðum í Lundúnum um að herða eftirlit með sölu á tölvum og Dýrasta vínflaska í heimi 17. júlí. AP. Listaverkasali frá Texas borg- aði í gær 26.445 pund (rúml. 1. millj. ísl kr.) fyrir eina vínflösku og er talið, að þetta sé hæsta verð, sem nokkru sinni hafi verið greitt fyrir vínfiösku. Það var milljónamæringurinn Bill Bur- ford, eigandi Texas-listaverka- safnsins í Dallas, sem keypti vín- flöskuna á uppboði í London, en hún er frá árinu 1870. Vínflaska þessi var geymd í vínkjallara Rotschildættarinn- ar í 102 ár, unz hún var seld óþekktum manni 1972 fyrir 17.000 dollara. Bill Burford hyggst nú selja hana aftur á uppboði, sem haldið verður 6. október nk. í listaverkasafni hans, en þar verða seldar margar gamlar og fágætar vfn- flöskur. Samkvæmt heimsmetabók Guinness er hæsta verð til þessa fyrir eina vínflösku 13.410 pund og var það fyrir vínflösku frá árinu 1822. Hana keypti Bandaríkjamaðurinn John Grisanti á uppboði í San Francisco árið 1980. öðrum rafeindabúnaði til Sovétríkj- anna og Austur-Evrópu. BBC segir að með samkomulag- inu, sem hafi verið gert í síðustu viku f París á lokuðum fundi, hafi verið bundinn endi á deilu, sem staðið hefur nokkra mánuði, um hvort leyfa skuli sölu á smátölvum til landanna austan járntjalds. Einnig hafi þurft að endurnýja fyrri samning vestrænna þjóða um útflutning á rafeindabúnaði vegna þeirrar öru þróunar, sem nú á sér stað í þessum iðnaði. Upphaflega var útflutningsbann sett á ýmsar rafeindavörur til austantjaldslandanna til að koma í veg fyrir að unnt væri að nota þær í hernaðarskyni. Samkvæmt breska blaðinu The Guardian náðist nú samkomulag um að herða eftirlit með við- kvæmum tæknibúnaði til Sovét- ríkjanna, en hins vegar hefði út- flutningur þangað á smátölvum verið gefinn frjáls. Er tekið fram að allar aðildar- þjóðir NATO nema ísland standi að samkomulaginu. Sýknaður eftir 3 ára afplánun ut»LLkAi«i i n uu p.< rui. «?i™ Stokkbólmi, 17. jóli. Frá Olle Ekatröm, frétUriUra Mbl. í DAG veitti dómstóll I Málmey „raggaranum“ Keith Cederholm frá Helsingborg uppreisn æru. Cederholm var sýknaður af öllum ákæruatriðunum, sem hann var áður Mikilvæg efni gera rækjuskel verðmæta Osló, 16. júlí. Frá Jan Erik Uure, frétUríUra Mbl. RÆKJUSKELJAR innihalda efni sem hafa ríka eiginleika til að binda þungmálma, segir í álitsgerð nokk- urra bérlendra vísindamanna. Þessi eiginleiki gerir m.a. kleift að nýta rækjuskelina við hreinsun ERLENT kæiivatns frá kjarnorkuverum, en hingað til hefur skelin aöeins ver- ið úrgangsefni. Fiskveiðirannsóknadeild há- skólans í Tromsö og Tæknirann- sóknastofnun sjávarútvegsins hafa hvor tveggja með höndum rannsóknir á rækjuskel. „Það er jafnvel hugsanlegt að við höfum fundið þá eiginleika hjá þessari afurð, sem eigi eftir að gera hana að verðmætri auðlind," segir Jan R& prófessor í samtali við Aftenposten. Tæknirannsóknastofnun sjávar- útvegsins hefur nýlokið tilrauna- framleiðslu á fóðurefni fyrir eld- isfisk. Með því að ná vatninu úr skelinni og bæta við rotvarnarefn- um hefur fengist verðmætur við- auki við matseðil eldisfisks. í janúar hefjast hjá stofnuninni tilraunir til að nýta skelina við hreinsun frárennslisvatns í rækjuiðnaðinum. dæmdur fyrir í hæstarétti í samtals tíu ára fangelsi. Þar af hafði hann afplánað þrjú ár. Sakir þær sem á Cederholm voru bornar voru íkveikja og aðild að misþyrmingu og mannráni. Til- efnið var að raggara hafði verið misþyrmt svo, að hann hlaut dauða af. Frá því að málarekstur hófst á hendur Cederholm hefur mál hans farið víða í dómskerfinu, fram og til baka, í næstum fimm ár, og sjö sinnum áður hefur það komið fyrir dóm. Eftir mikla baráttu hins kunna blaðamanns Jan Guillou, bæði í blöðum og sjónvarpi, samþykkti hæstiréttur í nóvember sl., að málið yrði tekið fyrir að nýju. Sýknun Cederholms má bæði þakka þrotlausri baráttu Guillous, svo og framlagi hins þekkta verj- anda í málinu, Henning Sjö- ströms. Unglingar stálu tölvu- upplýsingum frá NASA Huntorille, 17. jólí. AP. TÖLVUR bandarísku geimferða- stofnunarinnar NASA voru hleraðar ólöglega og voru þar að verki ungl- ingar að því er virðist Skýrði banda- riska alríkislögreglan FBI frá þessu í gær, eftir að húsleit hafði verið gerð á fjórum heimilura. „Mikilvægum tölvuupplýsingum var stolið og enn aðrar eyðilagð- ar,“ var haft eftir Cecil Moses, talsmanni FBI. Hann vildi hins vegar ekki skýra frá því, hvers konar upplýsingum hefði verið stolið, en sagði, að vísindamenn við geimferðastofnunina hefðu ekki getað hagnýtt sér þessar upp- lýsingar á meðan hleranirnar stóðu yfir. Starfsmenn NASA uppgötvuðu þessar hleranir 28. júní sl. og til- kynntu þær þá til FBI. Hinn 6. júlí byrjaði FBI að rannsaka síma þá, sem notaðir voru til þess að hlera tölvurnar. Unglingar frá fjórum heimilum voru strax grunaðir um þessar meintu tölvuhleranir. Haft var eftir Cecil Moses, að engar kærur hefðu þó verið bornar fram og að FBI myndi ekki skýra frá nöfnum unglinganna né heldur, hve margir þeir hefðu verið. Sá, sem fundinn er sekur fyrir dómi í Bandaríkjunum um þjófnað á eignum ríkisins, getur átt yfir höfði sér 10.000 dollara sekt og allt að 10 ára fangelsi. FBI-skýrsla um Greene á uppboði London, 17. júlf. AP. SKÝRSLA bandarísku alríkislög- reglunnar, FBI, um brezka rithöf- undinn Graham Green, var í dag seld á uppboði Sotheby’s fyrir and- virði um 70 þúsund íslenzkra króna. I skýrslunni, sem var gerð vegna þess að Greene þótti hall- ur undir kommúnisma, er meðal annars að finna blaðaúrklippur um hann og skrá yfir ferðir hans til Suður-Ameríku og Karíba- hafs. Greene skrifaði nýlega í brezkt dagblað, að eyðilagðar hefðu verið 16 blaðsíður úr skýrslunni með bleki, og þar væri ýmsum rangfærslum til að dreifa. T.d virtist vanta í hana talsvert um mótmæli hans gegn Víetnam-stríðinu, fæðingardag- ur hans sé þar rangur, og stund- um hefði líkamsþyngd hans einnig verið vanmetin. Graham Greene

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.