Morgunblaðið - 18.07.1984, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1984
29
Enskir
punktar
Fré Bob Honnossy, fréttamanni Morgun-
blaötini í Englandi.
Tony Barton, sem rekinn var
nýlega frá Aston Villa, hefur tekiö
viö framkvæmdastjórastööunni
hjá 4. deildarliöi Northampton.
Barton tók viö stjórninni hjá Villa
er Ron Saunders hætti þar 1982
og strax um vorið sigraöi liöiö í
Evrópukeppni meistaraliöa undir
stjórn hans. Liöiö vann þá Bayerrw
Miinchen 1:0 í úrslitum.
Fleiri til Portúgal
Andy King sem lék með Everton
í vetur, og geröi áöur garöinn
frægan hjá QPR, hefur gengið til
liös viö portúgalska 1. deildarliöiö
Belloneese. Framkvæmdastjóri
liösins er Jimmy Melia, sem var viö
stjórnvölinn hjá Brighton, er liðiö
lék til úrslita um enska bikarinn i
fyrra gegn Manchester United.
Belloneese komst upp úr 2. deild í
vetur undir hans stjórn. Breskir
leikmenn og þjálfarar eru nú
nokkrir í Portúgal — þar ná nefna
John Toshack hjá Sporting Lisbon,
írska leikmanninn Mickey Walsh '
hjá Porto og þá er gamia kempan
John Richards, sem lék með
Wolves í fjölda ára, einnig í Port-
úgal.
Hilaire til Luton
Endanlega hefur veriö gengiö
frá sölunni á framherjanum Vince
Hilaire frá Crystal Palace til Luton.
Palace fékk í staöinn Trevor Ayl-
ott.
Charlton í stjórn United~
Bobby Charlton hefur veriö
geröur aö stjórnarmanni hjá
Manchester United — eina liöinu
sem hann lék meö sem atvinnu-
maöur á átján ára ferli sinum.
Hann er 46 ára aö aldri — og er
fyrsti leikmaöur United síöan um
aldamót sem nær aö komast i
stjórn félagsins. Hann lék sinn
fyrsta leik meö United 1956 gegn
Charlton, 18 ára aö aldri, og skor-
aöi tvö mörk. Hann lék alls 570
deildarleiki meö United og skoraöi
í þeim 192 mörk.
Gibson til West Ham?
West Ham hefur áhuga á því aö
kaupa bakvörðinn Colin Gibson
frá Aston Villa. Hann er frá London
og hefur áhuga á aö komast aftur
á heimaslóöir. Hann er því hrifinn
af tilboöi West Ham, en John Lyall,
framkvæmdastjóri félagsins, hugs-
ar sér hann sem vinstri bakvörö í
staö Frank Lampard. Þó Lampard
hafi veriö félaginu dyggur í mörg ár
veit Lyall sem er aö hann heldur
ekki áfram endalaust.
Morgunblaöiö/Skapti Hallgrtmsson.
e Ásgeir Sigurvinsson skrifar hér undir auglýsingasamninginn við Arnarflug og Hummel-umboöiö á íslandi. Til vinstri er Magnús Oddsson
hjé Arnarflugi en Ólafur H. Jónsson er lengst til hægri é myndinni.
Ásgeir gerði samning
við Hummel og Arnarflug
— „stærsti auglýsingasamningur sem gerður hefur verið viö einstakling á íslandi“
ÁSGEIR Sigurvinsson, knatt-
spyrnumaður érsins í Þýska-
landi é síöasta keppnistímabili,
skrifaöi é dögunum undir aug-
lýsingasamning viö Hummel
umboöiö é Is
Jónsson hf. og Arnarflug.
Aö sögn samningsaöila, á
fundi meö fréttamönnum á dög-
unum, er hér um aö ræöa
stærsta auglýsingasamnlng sem
geröur hefur veriö víö einstakling
á Islandi.
Hummel-fyrirtækiö danska
hyggst framleiða íþróttavörur
með nafni Ásgeirs í framtíöinni
og eölilega munu þær fyrst koma
á markaö hérlendis. Aö sögn
Ólafs H. Jónssonar munu fyrstu
vörurnar veröa tilbúnar síöar á
þessu ári. Skór og æfingagallar.
Hummel-fyrirtækiö var upp-
haflega þýskt — en fyrir nokkr-
um árum keyptu tveir Danir eig-
endur fyrirtækisins út úr því.
Danir þessir geröust áriö 1971
umboösmenn Hummel í Dan-
mörku — og seinna keyptu þeir
fyrirtækiö. „Eggiö gleypti hæn-
una,“ eins og Jón Pétur Jónsson
hjá Hummel-umboöinu sagöi á
fundinum.
Aö sögn þeirra bræöra Jóns
og Ólafs hefur Hummel þegar
unniö nokkurn markað í Þýska-
landi, aöallega í noröurhluta
landsins, og í bígerö er aö teygja
anga fyrirtækisins suöur á bóg-
inn. Þegar þar aö kemur mun
fyrirtækiö því selja vörur tengdar
nafni Asgeirs í Stuttgart og ná-
grenni og hugsa sér gott til glóö-
arinnar.
Hjá Hummel í Danmörku starf-
ar m.a. danski landsliösmaöurinn
Allan Simonsen, sem sölustjóri,
hluta úr degi og á samningi hjá
fyrirtækinu eru nokkrir af bestu
leikmönnum Dana, t.d. Sören
Lerby sem leikur meö Bayern
Múnchen. Þeir munu t.d. koma
saman fram á stórri vörusýningu
í Múnchen i haust, fyrir hönd
Hummel, Ásgeir og Lerby.
Samningsaöilar kynntu samn-
inginn sem „mjög stóran“ og út-
skýröi Magnús Oddsson hjá Arn-
arflugi hlut félagsins í þeim
„stóru“ oröum aö samningurinn
væri mun víöfeömari en aörlr
slíkir samningar sem geröir
heföu veriö hér á landi. „Ásgeir
mun vinna aö kynningu Arnar-
flugs í Evrópu — og vorum viö
mjög ánægöir þegar viö fréttum
aö hann væri tilbúinn til aö gera
samning viö íslenskt fyrirtæki.
Viö teljum hann vera þekktasta
jslendinginn i Evrópu og þaö er
því mjög ánægjulegt aö samn-
ingar skuli hafa tekist,“ sagöi
Magnús.
Ásgeir mun veröa á skrifstof-
um Arnarflugs á meginlandinu á
ákveönum tímum í framtíöinni —
gefa eiginhandaráritanir og
kynna starfsemi félagsins.
Beinu útsendingarnar í Englandi:
Flestir leikir meö
Liverpool og United
Frá Bob Hwinouy, Iréltamanni Morgunblaösina á Englandi.
Ensku sjónvarpsstöövarnar til-
kynntu ( fyrradag hvaöa leikir
yröu sýndir beint þar í landi é
næsta keppnistímabili. Alls veröa
étta leikir sýndir beint — og þar
af eru sex þar sem Liverpool eða
Spánn — ísland:
Síðari leik-
urinn í kvöld
islenska landsliöiö ( hand-
knattleik leikur aftur ( kvöld gegn
Spénverjum ytra. island tapaöi (
fyrrakvöld 14:20 eins og viö sögö-
um fré.
Manchester United eiga í hlut.
Einn reyndar viöureign þeirra
innbyröis é Anfield Road í Liv-
erpool.
Beinu útsendingarnar veröa
annars þessar:
31. ágúst:
Chelsea — Everton.
7. október
Tottenham — Llverpool.
28. október:
Nottingham Foreat — Liverpool.
2. nóvember:
Manchester United — Arsenal.
18. nóvembec
Newcastle — Liverpool.
25. nóvember:
Sheftield Wedn. — Arsenal.
15. marz:
West Ham — Manchester Utd.
31. marz:
Liverpool — Manchester Utd.
Hamingjusamur meistari
Martina Navratilova hampar hérna verðlaunaskildinum sem hún mun varöveita næsta ériö, en þessi
skjöldur er veittur fyrir sigur í kvennaflokki é Wimbledon-tennismótinu sem haldið er érlega é
Englandi. Navratilova sigraói Chris Evert-Lloyd í úrslitaleiknum og er nú ókrýnd drottning tennis-
íþróttarinnar. Hún hefur sigraö fimm sinnum ( Wimbledon og hefur verið ósigrandi nú um nokkurt
skeiö.