Morgunblaðið - 18.07.1984, Blaðsíða 32
OPIÐALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45 - 23.30
—XUSTURSTfíÆTI 22 7
INNSTfíÆTI. SlMI
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
MorgunMaðið/Friðþjófur
Hlaup í Súlu
í fyrrinótt hófst hlaup í Súlu sem fellur úr Grænalóni við jaðar Skeiðarárjökuls og fellur í Núpsvötn. Talið er að hlaupið
hafí náð hámarki í gær. Sigurjón Rist vatnamælingamaður sagði í samtali við blm. Morgunblaðsins að þetta virtist nærri
því eins stórt hlaup og í fyrra, en hlaupið þá var það stærsta sem komið hefur um árabil. Mannvirki eru ekki í verulegri
hættu og hvergi flæddi yfír veginn yfír Skeiðarársand.
Framleiðsla þorskflaka
á Bretlandsmarkað hafin
Kemur í kjölfar mikils framboðs í Bandaríkjunum og birgðasöfnunar á þann markað
Grænlenzkt
fyrirtæki leit-
ar viðskipta
við íslenzkan
verksmiðju-
togara
— bjóða fisksölu í hafi
FYRIRTÆKIÐ AMBA í Arsuk á
vesturströnd Grænlands hefur
lýst áhuga sínum á viðskiptum
við íslenzkan verksmiðjutogara.
Viðskiptin eru hugsuð með þeim
„ hætti að grænlenzk fískiskip
selji þorsk um borð í verk-
smiðjutogarann, sem vinni hann
síðan í salt eða frystingu. Einnig
stendur fískúrgangur til boða
fyrir lítið verð.
Ekki fengust nákvæmar upp-
lýsingar um fiskverðið, en það
mun nokkru hærra en upp úr
sjó hér. Hins vegar binda for-
ráðamenn fyrirtækisins vonir
við það, að samningar náist
^þrátt fyrir það, þar sem út-
gerðarkostnaður viðkomandi
togara yrði í lágmarki. Starf-
semi grænlenzka fyrirtækisins
byggist á söltun þorsks og get-
ur það annað 50 til 60 lestum
daglega. Hins vegar er fisk-
veiðifloti staðarins fær um að
afla 120 til 130 lesta daglega á
vertíðinni. Þess vegna er það
staðnum nauðsynlegt að fá
verksmiðjuskip í viðskipti til
að kaupa og framleiða úr dag-
legu umframmagni, sem er á
bilinu 20 til 60 lestir. Vertíðin
er nú að hefjast og stendur hún
í 40 til 60 daga.
Undanfarin ár hefur fyrir-
tækið verið í viðskiptum við
portúgalskan togara, en af
framhaldi þess getur nú ekki
orðið. Því hafa forráðamenn
þess leitað eftir skipum annars
staðar, meðal annars hér á ís-
landi vegna frétta um bága
stöðu útgerðar, rýrnandi afla
og um það að einstaka skipum
hafi verið lagt eða verði lagt
um lengri eða skemmri tíma.
Framkvæmdastjórn Vinnuveit-
endasambands íslands samþykkti
á fundi, sem haldinn var í gær, að
fara þess á leit við Alþýðusam-
bandið að viðræður verði hafnar
um mismun á útreikningum ASÍ
og VSÍ á kaupmætti launa og kaup-
máttarþróuninni á árinu, frá því
heildarsamningar sambandanna
voru gerðir 21. febrúar í vetur.
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að VSÍ
færi fram á þessar viðræður svo
að staða rnála mætti skýrast og
aðilar gætu áttað sig á hvað á
FRYSnHÚS hér á landi eru nú byrj-
uð á framleiðslu flaka á Bretlands-
markað þrátt fyrir mjög óhagstætt
gengi pundsins. Stafar þetta aðal-
lega af því, að miklar birgðir eru nú
af frystum fiski á Bandaríkjamark-
að, bæði hér heima og vestan hafs.
Mun hér um að ræða 6 til 7 mánaða
birgðir samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins.
Mikið framboð hefur verið á
frystum fiski í Bandaríkjunum að
milli bæri. Þá væri ákvæði um
það í heildarsamningnum frá þvi
í vetur að aðilar beittu sér fyrir
aðgerðum sem miðuðu að auk-
inni framleiðni og verðmæta-
sköpun á öllum sviðum íslensks
atvinnulífs.
„Við höldum að það hefði verið
miklu farsælla fyrir ASl að snúa
sér að slíkum viðræðum og skoða
leiðir sem gætu verið til úrbóta,
með sameiginlegu átaki beggja
aðila, í stað þess að segja upp
samningum og hafna rúmlega
6% kauphækkun á samnings-
tímabilinu," sagði Magnús.
undanförnu i kjölfar stöðugrar
styrkingar dollarans, aðallega af
blokk. Hefur framboð þetta meðal
annars haft það í för með sér að
verð á blokkinni hefur lækkað úr
1.16 dollurum um áramót í 1,02 um
þessar mundir. Magnús Gústafs-
son, framkvæmdastjóri Coldwat-
er, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að mikið hefði verið talað
um þessa hluti að undanförnu. Sér
væri kunnugt um, að einhver
Benti Magnús á nýgerða
samninga við hafnarverkamenn,
sem dæmi um samninga sem
væru báðum til hagsbóta, en
væru ekki verðbólguhvetjandi.
Samningurinn hefði fært verka-
mönnum verulegar kauphækk-
anir, en jafnframt hefði verið
komist að samkomulagi um
skipulagsbreytingar, sem auð-
velduðu skipafélögunum að auka
framleiðni og afköst. „Ég held
við getum farið þessa leið í
miklu ríkari mæli en hingað til,“
sagði Magnús.
Magnús benti ennfremur á
skattalækkanir sem mögulega
lækkun hefði orðið á blokkinni hjá
Kanadamönnum, eða um 2 sent.
Um frekari lækkanir í kjölfar
mikils framboðs hefði hann ekki
frétt. Þó hefði norska fyrirtækið
Frionor verið með einhver tilboð
um sölu á flökum á 1,70 dollara, en
verð á þorskflökunum væri nú 1,80
og hefði verið það lengi. Norð-
menn virtust hafa efni á því að
haga sér eins og þeim sýndist í
þessum málum. Hins vegar teldi
leið til kjarabóta. Sú leið væri
miklu síður verðbólguvaldandi
en óraunhæfar kauphækkanir,
sem leiddu til aukinnar verð-
bólgu, samanber framkomnar
kröfur VMSÍ, sem í reynd væru
krafa um kaupmáttarlækkun
miðað við núverandi samninga.
Morgunblaðinu tókst hvorki
að ná tali af Ásmundi Stefáns-
syni, forseta ASf, né Birni Þór-
hallssyni, varaforseta ASÍ, í
gærkveldi.
Sjá ennfremur viðtal við
Magnús Gunnarsson á
miðsíðu blaðsins.
hann, að um þessar mundir væri
engin almenn tilhneiging til lækk-
unar á flakaverði. Blokkaverð hjá
íslenzku fyrirtækjunum væri enn
1,02 og flakaverð 1,80 nema í sér-
samningum við Long John Silv-
er’s.
Magnús sagði ennfremur, að
birgðir á Bandaríkjamarkað væru
þó nokkrar, en ráðstafanir yrðu
nú gerðar til þess, að þær yrðu
innan skynsamlegra marka um
áramót. Því yrðu framleiðendur
hér að pakka þorskflökum fyrir
Bretland eða grípa til einhverra
annarra ráða.
Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, for-
stjóri SH, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að ýmsar leiðir
væru til þess að takmarka fram-
leiðslu á Bandaríkin, en það væri
bæði viðkvæmt og erfitt að fara út
í slíkt. Því væri ekki búið að ganga
frá reglum þar að lútandi, en það
yrði gert fljótlega. Búið væri að
segja framleiðendum að fram-
leiðslutakmarkanir yrðu teknar
upp, en ekki i hvaða mynd og þær
myndu þá gilda frá og með 1. júli.
Framleiðslunni yrði þá beint
inn á Bretland, það væri númer
eitt vegna þess að þangað hefði
engin framleiðsla verið að undan-
förnu. Menn væru þegar byrjaðir i
verulegum mæli á framleiðslu
þangað, þrátt fyrir óhagstætt
gengi pundsins. Eins og staðan
væri nú, þýddi ekkert að fást um
það.
Vinnuveitendasambandið vill
viðræður við Alþýðusambandið