Morgunblaðið - 19.08.1984, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 19.08.1984, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984 Útgefandi útiritíb hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstrætí 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjaid 275 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 25 kr. eintakið. Fleira en efnahagsmál Fyrir dyrum stendur að stjórnarflokkarnir komi sér saman um næstu verkefni ríkisstjórnarinnar. Orðaleikir um það hvort verið sé að endurskoða stjórnarsáttmál- ann eða ekki með viðræðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eftir að forsætisráðherra sneri aftur heim frá Bandaríkjunum skipta minnstu þegar hugað er að þeim alvarlegu viðfangs- efnum sem við blasa. Á það þarf að reyna hvort sjálfstæð- ismenn og framsóknarmenn vilja sameiginlega takast á við vandamálin með sama hugar- fari og lá að baki myndun stjórnarinnar fyrir rúmu ári. Atvinnuöryggi, kaupmáttur og staða ríkisfjármála koma helst upp í hugann þegar mál- efnin í þessum viðræðum stjórnarherranna ber á góma. Eðlilegt er að svo sé því að eftir glímu stjórnmálamanna við vandann á þessum sviðum eru þeir oftast dæmdir í kosn- ingaslagnum og að lokum er það buddan en ekki hugsjón- irnar sem ræður ákvörðun flestra kjósenda á kjördag. En stjórnmál snúast sem betur fer um fleira en efnahagsmál og væri æskilegt að reynt yrði að minnast þess í viðræðunum um næstu verkefni ríkis- stjórnarinnar. Efnahagsaðgerðirnar sem ríkisstjórnin greip til 30. júlí síðastliðinn hafa ekki síst vak- ið athygli vegna þess að þá var afnumin miðstýring í vaxta- ákvörðunum. Þetta hefur þeg- ar haft í för með sér miklar breytingar á peningamark- aðnum og er ekki annað að sjá en þær mælist vel fyrir, þótt fyrstu skrefin séu að mörgu leyti flókin eins og sést til dæmis af deilunni sem sprott- ið hefur um það, hvað séu „hæstu lögleyfðir vextir" á al- mennum skuldabréfum fram til 11. ágúst síðastliðins. Til að nefna eitt mál sem ekki lýtur að stjórn efna- hagsmála en eðlilegt er að stjórnarflokkarnir komi sér saman um á næstunni má benda á hugmyndirnar um af- nám ríkiseinokunar á út- varpsrekstri. Undir forystu framsóknarmanna var skipuð nefnd til að gera tillögur um endurskoðun útvarpslaga og lagði hún til að ríkiseinokunin yrði afnumin. Ragnhildur Helgadóttir, menntamála- ráðherra, vann áfram að þessu máli eftir að menntamáia- ráðuneytið féll í hlut Sjálf- stæðisflokksins og á síðasta þingi lagði hún fram frumvarp um málið sem í megindráttum var samhljóða áliti fyrr- greindrar nefndar. Hugmynd- ir um breytingar á frumvarp- inu voru kynntar og það náði ekki fullnaðarafgreiðslu. Þess sjást víða merki að ein- staklingar séu teknir til við að búa sig undir útvarpsrekstur eftir afnám einokunarinnar. Auðvitað á framkvæmdin í því efni ekki eftir að ganga snurðulaust fyrir sig frekar en framkvæmd vaxtafrelsisins en mestu skiptir að skrefið til frjálsræðis sé stigið og til þess þarf að myndast meirihluti á Alþingi. Mikil umsvif mynd- bandaleiga sýna að almenn- ingur vill geta notað sjón- varpstæki sín til að horfa á annað en hið ríkisrekna sjón- varp býður. Hér með er skorað á stjórn- arflokkanna að þeir einskorði sig ekki við efnahagsmálin þegar þeir semja um fram- gang mála á næstunni heldur líti til allra átta og nái sam- komulagi um fleiri þjóðþrifa- mál svo sem afnám ríkiseinok- unar á útvarpsrekstri. Hrydjuverk með tundurduflum Hjá siglingaþjóð eins og ís- lendingum sem eiga allt sitt undir sjósókn og samgöng- um á sjó hljóta fréttirnar um tundurdufl við Súez-skurð og í Rauðahafi að vekja óhug. Því virðast lítil sem engin tak- mörk sett hvað ofbeldis- mönnum kemur til hugar til að ógna öðrum. 17 skip hafa þegar orðið fyrir tjóni vegna tundurduflanna og enn hafa ekki verið færðar fullnægjandi sönnur á hverjir hafa staðið fyrir því að koma þeim fyrir á þessum slóðum. Athyglin beinist einkum að tveimur ofbeldisríkjum, íran og Líbýu. Þeir sem ferðast með flug- vélum verða að sætta sig við strangar öryggisráðstafanir áður en þeir stíga um borð í vélarnar vegna baráttu yfir- yalda við ofbeldismenn. íþróttamanna á ólympíuleik- um er gætt af fjölmennu liði öryggisvarða eftir blóðbaðið á leikunum í Munchen á sínum tíma. Og þannig mætti áfram tíunda ýmsar ráðstafanir sem miða að því að draga úr hætt- um vegna hryðjuverka. Nú er tekið til við að stofna öryggi sjómanna í hættu og jafnvel látið í veðri vaka að tundur- duflum kunni að verða dreift í nágrenni við stórhafnir. Von- andi tekst sem fyrst að finna hina seku í Rauðahafi og gera þær ráðstafanir sem duga til að halda þeim í skefjum. Slys í óbyggðum Um síðustu helgi vor- um við rækilega minnt á það, að Is- land er ekki ein- ungis fallegt land og heillandi til ferðaiaga, heldur og hættulegt. Reynsla þjóðarinnar af sam- skiptum við landið í aldanna rás hefur að vísu kennt okkur (slendingum þessi sann- indi, þótt alltaf sé eitthvað um það, að einstaklingar úr okkar hópi missi lífiö í baráttu við óblíð náttúruöfl. En sú sorg- lega staðreynd, að fimm útlendingar létu lífið um síðustu helgi vegna þekkingar- leysis á landsháttum og aðstæðum undir- strikar þær hættur, sem hér eru á ferðum. Þegar farið er um óbyggðir íslands að sumarlagi er varúðar þörf nánast við hvert fótmál. Arnar, sem fara þarf yfir, eru oft djúpar og straumþungar og breyta sér mjög, frá degi til dags og jafnvel klukku- tíma til klukkutíma. Sandbleytur geta orð- ið ferðalangi skeinuhættar eins og dæmin sanna. Fjallgöngur eru engan veginn hættulausar, t.d. vegna grjóthruns. Fyrir tæpum tveimur vikum mátti litlu muna, að slys yrði í Drekagili skammt frá Öskju, þegar allstórt bjarg losnaði og féll á ungan dreng. Þegar gengið er á jökla, verður ekki nógu varlega farið vegna jökulsprungna sem víða leynast. Höfundur þessa Reykja- víkurbréfs varð vitni að því fyrir skömmu er hópur þýzkra ferðamanna, sem lagt hafði á Kverkjökul í göngu yfir í Hveradali handan jökulsins, sneri við eftir að ótti hafði gripið um sig í hópnum, er einum ferðamannanna skrikaði fótur og féll í jök- ulsprungu án þess þó að veruleg hætta væri á ferðum. Þrátt fyrir þetta hafa íslenzkar óbyggðir ótrúlega sterkt aðdráttarafl fyrir þá, sem þeim kynnast á annað borð og með því að gæta fyllstu varkárni er auðvelt að njóta þeirrar ánægju og endurnæringar, sem ferð um þær veitir hverjum og einum. Sjálfsagt er fyrir þá, sem ferðast um óbyggðir að afla sér rækilegra upplýsinga áður en lagt er af stað. Slíkar upplýsingar er einnig hægt að fá í sæluhúsum Ferða- félagsins víðs vegar um landið, en þangað berast fréttir um ferðalög manna, sem aðrir ferðaiangar geta haft mikið gagn af, svo og í samtölum við þá, sem ferðamenn hitta á leið sinni. Höfundur þessa Reykjavíkurbréfs var á ferð á Gæsavatnaleið viku áður en slysið varð í Rjúpnabrekkukvísl. Þær upplýs- ingar fengust á skrifstofu Ferðafélags ís- lands, þegar spurt var, hvernig bezt væri að fara yfir kvíslir Skjálfandafljóts, sem eru mestur farartálmi á þessari leið, að það væri góð regla að vaða yfir kvíslirnar á klofháum stígvélum og ef það væri á annað borð hægt, væri hægt að aka yfir þær, en ef þær væru ekki væðar væri ekki ráðlegt að aka út í þær, heldur bíða, stund- um í nokkra klukkutíma, stundum í sólar- hring, eftir því að vatnsmagn minnkaði í ánum. I þetta sinn var sáralítið vatn í Rjúpna- brekkukvísl, enda komið að henni snemma dags. Að sögn kunnugra getur vatnsmagn aukizt í henni svo mjög á skömmum tíma, að hún verði að æðandi stórfljóti á einum til tveimur klukkutímum. Botn Rjúpna- brekkukvíslar er einnig nokkuð stórgrýtt- ur, svo að einnig í þeim efnum er nauð- synlegt að gæta nokkurrar varúðar. Dag- inn áður en farið var yfir kvíslina hafði bíll fest sig í henni, líklega vegna þess að of hratt var í ána farið. Þá ber þess einnig að gæta, þegar farið er um þessar slóðir, að árnar breyta sér á skömmum tíma og i þessari ferð var komið að á, þar sem vegarslóði lá að og frá ánni báðum megin, en vatnsmagn greinilega svo mikið á vaðinu, að ekkert vit var að aka út í ána. í slikum tilvikum er oft hægt að aka meðfram ánni og finna betra vað, þótt vegarslóði liggi þar ekki að. Þær ráðleggingar, sem gefnar voru á skrifstofu Ferðafélags Islands, gáfust sem sagt vel og kannski skiptir mestu máli, að erlendum ferðamönnum sé gerð rækileg grein fyrir nauðsyn þess að leita góðra ráða áður en lagt er upp í óbyggðaferð. Jökulsá á Fjöllum stífluö! Margt getur gerzt á ferðum sem þessum. Fyrir sex árum Ias ferðalangur í gestabók í sæluhúsinu í Drekagili frásögn af ævin- týralegri ferð jeppabifreiðar um Gæsa- vatnaleið. Viðtai við eiganda bílsins birtist í Morgunblaðinu í ágústmánuði 1978, en þar sagði svo: „Jeppabifreið af Lada-gerð festist fyrir skömmu í Jökulsá á Fjöllum á Gæsavatna- leið og sat bifreiðin föst í árfarveginum í nokkra daga. Þrennt var í bílnum, þegar hann festist en það liðu aðeins tvær til þrjár mínútur frá því að bíllinn tók að síga í eðjuna og þar til hann var sokkinn í sand og vatn upp fyrir vélarhlíf. Sækja varð trukk til Akureyrar til þess að ná bílnum upp, en á meðan maraði jeppinn í eðjunni, bundinn með löngu bandi við stein á þurru. Fólk, sem fór þessa leið, staldraði við á siysstað í nokkra daga til þess að hjálpa til við að bjarga bilnum og tókst það með því að stífla um tíma Jökulsá á Fjöllum. Er ekki vitað til þess, að það hafi verið gert fyrr á þessum slóðum." Eigandi bifreiðarinnar lýsti þessari ferð svo í viðtali við Morgunblaðið: „Þegar við komum þarna að vestustu kvísl Jökulsár á Fjöllum inn undir Dyngjujökli var auðséð greinileg slóð í árfarveginum og menn, sem við höfðum leitað upplýsinga hjá dag- ana áður, höfðu sagt okkur, að auðvelt væri að fara þarna yfir. Við vorum á leið úr Gæsavötnum niður í Öskju, en á þess- um stað, sem við ætluðum yfir virtist mér vera um 50 metra leið yfir ána. Við vorum rétt komin út í, þegar bíllinn fór að sökkva, en vatnið virtist hins vegar ekki vera nema um 10 sm djúpt. Bíllinn lenti á steini og í holu við hann, en við það fór jeppinn nær á hliðina. Við fórum út til að réyna að rétta hann, en þetta skeði allt á örskömmum tíma, því að um sama leyti var að byrja hlaup í ánni og meðan við tíndum dótið okkar út úr bílnum, sökk hann dýpra og dýpra. Eftir örfáar mínútur var farið að flæða yfir vélarhlífina og bill- inn virtist síga stanzlaust fram í ána og sandinn. Ég náði þá i langt nælonband, sem var uppi á toppnum og batt það aftan í bílinn og hinn endann í stóran stein i landi. Ef við hefðum ekki gert þetta, tel ég, að billinn hefði sokkið enn dýpra, en á tímabili fór hann á kaf í vatn. En síðan sjatnaði í ánni og stundum var hægt að ganga þurrum fótum út að bílnum, þar sem hann sat fastur. Fjórir bílar úr Reykjavík stoppuðu þarna hjá og fólkið sló upp tjöldum, tveir menn á jeppa úr Reykjavík töldu sig ekki muna um að skutia konunni minni til Akureyrar, fjór- tán tíma akstur, til þess að koma hjálpar- leiðangri af stað með trukknum. Þeim þótti þetta sjálfsagt og þannig voru allir sem leið áttu um, þeir hjálpuðu okkur. Þegar kranatrukkurinn kom frá Akureyri voru um 22 manns á staðnum og allt liðið vann við að grafa og ná upp bílnum. M.a. urðum við að stífla ána þarna og var það gert með því að moka sandi í um 200 poka, sem trukkurinn kom með. Þegar við grip- um til þessa ráðs, hafði sandurinn hlaðizt upp á miðjar hliðarrúðurnar og það var þriggja tíma törn með allt þetta lið að ná upp bilnum, en þá var holan í farveg Jök- ulsár líka orðin um tveggja metra djúp.“ Þessi frásögn lýsir því vel, sem fyrir get- ur komið á þessum leiðum. Hún gefur einnig glögga mynd af þeirri samhjálp, sem einkennir öll samskipti fólks, sem hittist á ferðalögum í óbyggðum. Gengið á Herðubreiö Slysið, sem varð í Herðubreið á dögun- um, er enn eitt dæmi um þær hættur, sem hér eru á ferðum. Það var nefnilega lengi talið, að Herðubreið væri nánast ókleif. í hinni ágætu bók Landið þitt, ísland, eftir Þorstein Jósefsson og Steindór Steindórs- son, sem bókaútgáfan Örn og Örlygur gaf út, segir svo um Herðubreið: „Lengi var talið, að ógengt væri á Herðubreið. Fyrstir manna, sem gengu á fjallið svo víst sé voru þýzki jarðfræðingurinn dr. Hans Reck og fylgdarmaður hans, Sigurður Sumarliða- son, bóndi í Bitrugerði í Kræklingahlíð, en Sigurður var hinn mesti ferðamaður og oft í fylgd með erlendum ferðamönnum um öræfi íslands. Þeir gengu á fjallið 13. ágúst 1908 og fóru þeir upp litla vatnsrás norð- vestan á fjallinu. Varð þeim uppganga næsta erfið, en af lýsingu Recks má ráða, að eitthvað sé málum blandið um hæð ein- stakra áfanga. Ef þeir félagar hafa farið á sama stað og venja hefur verið, hefur fjall- MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984 29 ið breytzt mikið og má vel vera, að hrunið hafi úr hömrunum. Bandaríkjamaður einn, William Lee Howard, kvaðst hafa gengið á Herðubreið árið 1881, en öll sögn hans er með þeim ýkjublæ, að hann hefur lítt verið tekinn trúanlegur. Þó segir How- ard, að Herðubreið sé eldfjall, en það hafði enginn gert fyrr og hann lýsir byggingu fjallsins furðu rétt. Svo fullvissir þóttust menn um, að Herðubreið væri ókleif, að ýmsir drógu sögn þeirra Recks og Sigurðar í efa, að þeir hefðu komizt alla leið upp á fjall. Árið 1927, hinn 27. júlí, gengu þeir Þjóðverjinn dr. Sorge og Jóhannes Ás- kelsson jarðfræðingur á fjallið. Þeir fóru suðaustan á fjallið og var það hið mesta torleiði. Lýsti Jóhannes ferð þeirra í riti (Lesbók Mbl. 1927). Voru þá tekin af öll tvímæli um, að fært væri á Herðubreið. Síðan hafa margir gengið á fjallið og notið hinnar stórkostlegu útsýnar." Frásögn Jóhannesar Áskelssonar af göngu hans og dr. Sorge birtist í Lesbók Morgunblaðsins hinn 20. nóvember 1927 og þar segir m.a.: „Við dr. Sorge vöknuðum klukkan tvö aðfaranótt hins 22. júlí, en þann dag höfðum við ákveðið að ganga upp á Herðubreið, ef þess væri nokkur kostur, eða a.m.k að ganga úr skugga um að það væri yfirleitt fært. Eins og kunnugt er hef- ur Herðubreið lengstum verið talin ógeng. Að vísu gekk dr. Reck upp á hana sumarið 1908, en nágrannar Herðubreiðar, Mývetn- ingar, drógu orð hans mjög í efa, mest vegna þess þeim þótti hann vera furðu fljótur í ferðum. Síðan hefur engin tilraun verið gerð fyrr en okkar...“ Síðan segir Jóhannes Áskelsson í grein sinni: „Við gengum upp djúpa kleif er skorizt hafði í móhelluna og vorum komnir upp að sjálfu berginu eftir nálega 50 mín- útur. Bergið er mjög núið af vindi og vatni og sundursprungið á ýmsa vegu eins og móhelluberg vanalega er. Þessi vegur var ekki ýkja langur né sérlega brattur, en þreytandi. Allt lausgrýtisurð, sem hrundi undan fótunum í hvert sinn, sem þeim var stigið niður. Varð því að hafa hina mestu aðgæzlu svo eigi yrði slys að, fylgdumst við fast að svo að eigi hryndi frá þeim efri á hinn neðri. Næsti áfanginn var öllu óárennilegri enda hið torsóttasta á allri leiðinni. Voru þetta móbergshamrar þverhníptir og sundursprungnir, svo voru þeir lausir í sér, að hvergi var örugga fót- eður handfestu að fá. Sóttist okkur ferðin seint, því að ýmist þurftum við að víkja til hægri eða vinstri og klifra yfir berghryggi eggmjóa eða ofan við djúpar skorir og kleifar... Hvergi gat ég séð ísrákir þar sem við fórum og gætti ég þó sérstaklega að þeim, en þess ber að gæta, að þar sem fjallið er snarbratt og við urðum stöðugt að hafa vakandi auga á, að hvorki fót- né handfestar sviki, var ekki unnt að skoða bergið nákvæmlega og því ekki óhugsandi, að okkur hafi sézt yfir isrákir. Þó má geta þess, að dr. Reck, sem gekk á fjallið frá hinni hlið þess eða frá norðvestri — við gengum suðaustan á fjallið, fann heldur ekki ísrákir eður nokkrar jökulminjar. í efstu brúninni hékk hjarnfönn, að því er ég komst næst allt í kringum fjallið. Spor- uðum við okkur upp hana með ísbrjót er við höfðum tekið með. Var hjarnveggurinn næstum lóðréttur og nálega 10 til 15 metra hár. Er við höfðum komizt upp fönnina vorum við komnir á brún fjallsins og var klukkan þá fimm að morgni eða nálega þrjár klukkustundir frá því að við lögðum frá tjaldstað." Eins og þessi frásögn Jóhannesar Ás- kelssonar ber með sér, var ekki talið auð- hlaupið að ganga á Herðubreið á þessum tíma. í árbók Ferðafélags (slands frá 1981 um Ódáðahraun, segir svo um þessar fyrstu ferðir, sem vitað.er um, á Herðu- breið: „Þegar litið er til lögunar Herðubreiðar, hæðar fjallsins og brattleika, þarf það ekki að vera undrunarefni, að mönnum, sem óvanir voru fjallgöngum og þekktu engan útbúnað til þeirra, sýndist hún ókleif. Slík mun skoðun manna almennt hafa verið þeirra, sem komust í námunda við fjallið á síðustu áratugum 19. aldar meðan rann- sóknaráhugi manna á ódáðahrauni vakinn af Öskjugosinu 1875 var við lýði. Fyrsta gangan á Herðubreið, sem staðfest verður með vissu, var sumarið 1908. Þýzki jarð- fræðingurinn dr. Hans Reck, sem þá var hér á ferð vegna eftirmála hins sviplega slyss í Öskju sumarið áður, gekk á fjallið með íslenzkum fylgdarmanni sínum, Sig- urði Sumarliðasyni. Eftir því sem næst REYKJAVÍKURBRÉF laugardagur 18. ágúst verður komizt, völdu þeir þá uppgönguleið, sem hér á undan var gert ráð fyrir, að notuð væri. Síðan liðu 19 ár, en sumarið 1927 var næst gengið á fjallið svo vitað sé. Aftur voru Þjóðverji og íslendingur að verki, dr. Sorge, sennilega jarðfræðingur að menntun, og Jóhannes Áskelsson jarðfræðingur. Þeir völdu sér leið upp fjallið að suðaustanverðu, sú leið er síðan þekkt, en ekki almennt notuð. Hæfir tæp- lega öðrum en þeim, sem einhverja þjálfun og kunnáttu í fjallgöngum hafa umfram almenning. Þeir Sorge og Jóhannes fóru svo niður af fjallinu norðvesturleiðina. Hugsanlega eru fleiri uppgönguleiðir á fjallið en þessar tvær, en ekki verður mælt með annarri en norðvesturleiðinni fyrir al- menna ferðamenn. Áður en skilizt er við þetta efni, verður að geta um þann mögu- leika, að gengið hafi verið á Herðubreið Örlög í óbyggðum Mannslátin nú í óbyggðum, sem mestar umræður hafa vakið, eru ekki hin fyrstu á þessum slóðum. Mikið umtal vakti fyrir tæpum 80 árum dauði tveggja Þjóðverja í Öskjuvatni á árinu 1907 og segir í fyrr- nefndri árbók Ferðafélagsins að „voveifleg ævilok" þeirra „hafi gert nafn Öskju þekktara á meginlandi Evrópu um árabil en nokkurt annað íslenzkt örnefni". Þar segir ennfremur, að þetta sumar hafi mikil leit farið fram að líkum þeirra félaga eða öðru því sem „gæti varpað ljósi á hinn dularfulla atburð". Árið eftir kom unnusta annars þeirra, Ina von Grumbkow, til Is- lands og um það segir: „... sem gerði sér ferð alla leið út hingað svo að hún gæti með eigin augum séð þann stað sem bjó ástvini hennar aldurtila og gert sér sínar ur óbyggðaferðir um 30—40 ára skeið og sást síðast til hennar á Kverkjökli, þar sem hún tiplaði léttilega á milli jökul- sprungna, þar sem yngri menn höfðu ekki talið fært að fara um nema rækilega bundnir í kaðli. Þótt skemmtilegt sé að hitta fólk, sem orðið er nokkuð við aldur, en hefur þennan kraft í sér til ferðalaga, er ekki síður ánægjulegt að hitta fyrir ungt fólk, sem er að kynnast öræfunum í fyrsta sinn og svo var um unga stúlku og pilt, sem höfðu verið á ferð um óbyggðir á aðra viku og höfðu farið ótrúlega víða um Fjallabaks- leið syðri og nyrðri, Lakagiga og nú Gæsa- vatnaleið, Oskju og Herðubreiðarlindir og voru á leið í Kverkfjöll og að Snæfelli. I Nýjadal á Sprengisandi voru á ferð mið- aldra hjón, sem fyrr í sumar höfðu gengið í 10 daga frá Nýjadal í Lakagíga. Þannig Herðubreið og Herðubreiðarlindir. Margir telja Herðubreið eitt fegursta fjall á íslandi. 1881. Það ár virðist hafa verið hér á ferð bandarískur maður, William Lee Howard. Víst er, að þá um haustið birtist í blöðum vestra frásögn hans af ferðum hans á ís- landi, full af hinum ótrúlegustu ýkjum. Þar á meðal er lýsing á göngu á Herðu- breið, þar sem m.a. var notaður flugdreki til þess að krækja akkeri í klettabeltin ofan til í fjallinu og klifraði Howard svo eftir kaðli, sem festur var í akkerið. Þetta endurtók Howard svo mörgum sinnum og komst á tindinn á 38 tímum. Þetta gefur hugmynd um stilinn á frásögn Howards." I þessari árbók Ferðafélagsins er þeirri uppgönguleið á Herðubreið, sem mælt er með fyrir almenna ferðamenn, lýst svo: „Algengasti uppgöngustaður á Herðubreið er norðvestan til á fjallinu ... Uppgöngu- staðurinn er ekki vandfundinn, taka má mið af móbergsstykki, sem hrunið hefur úr hömrunum og ofan til í fjallinu og situr i skriðunni neðst í því. Fyrri hluta sumars liggur hjarnfönn uppi á þeim stað, þar sem hamrabeltið er næstum sundurslitið og göngumönnum fært án sérstaks fjall- göngubúnaðar. Vísar fönnin á rétta leið og léttir gönguna bæði á leiðinni upp og niður. Uppgangan á Herðubreið vex ýms- um all mjög í augum. Fullyrða má þó, að hún er engu fullfrisku fólki ofraun, ef þess er nægjanlega gætt að fara rólega af stað í byrjun og hafa stutta áfanga og margar hvíldir á uppleiðinni. Fjallshlíðin sjálf gef- ur engin grið að því leyti, að brattinn er sífelldur og vex þó að mun eftir því sem ofar dregur. Uppi í hamrabeltinu neðan við fjallsöxlina er göngumanninum líka mest nauðsyn að eiga enn krafta afgangs og geta stigið niður styrkum fæti. Senni- legur tími fyrir gönguna upp á öxl fjallsins er tveir og hálfur til þrír tímar. Þar við bætist h.u.b. hálftíma gangur frá öxlinni upp á hátind þess.“ hugmyndir um tildrögin. Nokkurra daga dvöl hennar í Öskju í seinnihluta ágúst það ár, kynni hennar af tign og stórfeng- leika staðarins og duttlungum íslenzkrar veðráttu munu hafa fært henni heim sann- inn um, að mannlegur máttur væri örsmár og vanmegnugur andspænis valdi höfuð- skepnanna og fengið hana til að sætta sig við þau örlög, sem ekki varð um þokað... Ina von Grumbkow ritaði bók um ferð sína til (slands og þau áhrif sem hún varð fyrir í henni.“ Fólkið í óbyggðum Lengi hefur það verið svo, að íslenzka hefur ekki endilega verið algengasta tungumálið, sem heyra hefur mátt talað á þessum slóðum. Nú á dögunum var áber- andi hve mikið var um þýzka ferðamenn, eins og lengi hefur verið, en Frakkar voru einnig margir og er bersýnilegt, að tölu- vert stór hópur fólks frá nokkrum Evrópu- löndum leggur mikið á sig til þess að und- irbúa ferðir um óbyggðir íslands. Það er stórfróðlegt að fylgjast með þeim útbún- aði, sem þetta fólk hefur með sér og fer ekki á milli mála, að miklum tima og fjár- munum er varið í þennan undirbúning. í mörgum tilvikum er hann einstaklega hugvitssamur og merkilegt að fylgjast með útbúnaði margra þeirra bifreiða, sem erlendir menn koma á hingað til lands til þess að ferðast um þessar slóðir. Þótt útlendingar séu fjölmennir á öræf- um er þar einnig margt um íslenzka ferða- langa, bæði unga og aldna. Fyrir tveimur vikum var t.d. á ferð í Herðubreiðarlindum 75 ára gömul kona, sem var þess albúin að ganga á Herðubreið með hópi ferðamanna sem hún var í, þótt ekki yrði af því í það sinn, og nokkrum dögum siðar mátti sjá í Kverkfjöllum eldri konu, sem stundað hef- mætti lengi segja frá því fólki sem ferða- menn hitta á þessum öræfaleiðum. Aðstaða til fyrirmyndar Ferðafélag íslands og ferðafélög á Norð- urlandi og Austurlandi hafa komið upp sæluhúsum á helztu öræfaleiðum, sem auðvelda farðamönnum mjög óbyggðaferð- ir og er rekstur þessara sæluhúsa til mik- illar fyrirmyndar. Þau eru mismunandi að gerð og mörgum finnst hin eldri þeirra skemmtilegri aðkomu en þau sem nýrri eru og mun sú gagnrýni hafa heyrzt á fundum Ferðafélagsins. Snyrtiaðstaða á fjölförnum leiðum eins og í Herðubreiðar- lindum er ekki til mikillar fyrirmyndar. Um leið og þetta er sagt, er ástæða til þess að vara við því, að of langt verið gengið í að skapa ferðamönnum þægindi á ferðum sem þessum. Hluti af ánægju ferðamann- anna er einmitt sá að búa við frumstæðari skilyrði en gengur og gerist í ferðalögum nútímans. Þó er sérstök ástæða til að fagna því, að nú er rekin benzínsala við Sigöldu, sem ekki hefur alltaf verið á und- anförnum árum og er full ástæða til að hvetja Landsvirkjun til að greiða fyrir því að svo verði áfram. Það er til mikilla þæg- inda fyrir þá, sem leggja í óbyggðir að geta tekið benzín við Sigöldu. Annars vekur það óneitanlega eftirtekt, hvað virkjunar- framkvæmdir eru komnar langt inn í land- ið. Framkvæmdir við Kvíslarveitur eru mikiu lengra inni á hálendinu en höfundur Reykjavíkurbréfs hafði gert sér grein fyrir þar til ekið var um Sprengisandsleið og þótt þar sé vafalaust um nauðsynlegar og gagnlegar framkvæmdir að ræða, setur óneitanlega nokkurn óhug að mönnum, ef „menningin" á eftir að ryðja sér um of til rúms á hálendi (slands. „Fyrir tveimur vikum var t.d. á ferð í Herðubreið- arlindum 75 ára gömul kona, sem var þess albúin að ganga á Herðu- breið með hóp ferðamanna, sem hún var í... og nokkrum dögum síðar mátti sjá í Kverkfjöllum eldri konu, sem stundað hefur óbyggðaferðir um 30—40 ára skeið og sást síðast til hennar á Kverk- jökli, þar sem hún tiplaði léttilega á milli jökul- sprungna, þar sem yngri menn höfðu ekki talið fært að fara um nema rækilega bundnir í kaðli.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.