Morgunblaðið - 19.08.1984, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 19.08.1984, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984 Tf F Hvað ættum við að lesa F í sumarleyfinu? texti JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR Louis L’Amour: Vestrið tamið Guðni Kolbeinsson þýddi Útg. Kaktus 1984 Líklega er þetta fyrsta „vestrabók" sem ég hef lesið, þótt kvikmyndir af þessari teg- und hafi mér þótt á stundum al- veg frábærar. „Villtra vestrið" er í hugum okkar, friðsælla sveitamanna á íslandi sem erum blessunariega að mestu laus við byssutöffara, hið sérkenni- legasta fyrirbrigði. Á blómatíma vestursins villta létu menn sig ekki muna um að draga byssuna úr slíðrum og skjóta niður menn ef þeir voru eitthvað smávegis að mögla, tvær byssur voru notaðar og skotið samtímis úr báðum ef alvarlegri meiningarmunur kom . LOUIS CflCDOUR VESTRIÐTAMIÐ upp á. Og allir virðast þessir byssumenn hafa notið ótta- blandinnar virðingar í þorpum vestursins, voru oft gerðir að lögreglustjórum og öðrum meiri háttar þegar þeir höfðu skotið nógu marga og eina ráðið til að hemja þá eða að minnsta kosti gera tilraun til þess var að líma framan á þá lögreglustjörnu. Ryan Tyler er 12 ára þegar indjánar drepa föður hans. Upp frá þvi verður hann að bjarga sér eins og bezt gengur og það gengur bara vel, sérstaklega með því að skjóta menn öðru hvoru til að sleppa úr mismunandi al- varlegum vanda. Samt kynnist hann nú ýmsum gæðamönnum og stúlkan Liza verður snemma í bókinni á vegi hans og hverfur ekki úr huga hans síðan, enda eru byssumenn ekki síður róm- antískir en annað fólk, þrátt fyrir töffheitin. Söguþráðurinn er ekki sérlega merkilegur, en bókin er læsileg og hæfilega lygileg, hún er ágætlega íslenzk- uð og það ræður kannski úrslit- um, þýðendur slíkra bóka þurfa líka að hafa ákveðinn skammt af kímnigáfu til að koma söguefn- inu til skila á þann hátt sem bezt að því fellur. Sumarbókin — leikir fyrir alla fjölskylduna Utg. ísafoldarprentsmiðja 1984 Umsjón með útgáfu Fríða Björns- dóttir Bara sniðugt að gefa út svona bók, hvort sem hún heitir Sumar- eða Vetrarbók og hvort sem hún á að vera dægrastytting í hringþeysiakstri um landið eða dund á dimmu vetrarkvöldi. í henni er mikið og aðgengilegt efni, gátur og leikir og þrautir og galdrar og svo ýmiss konar fróð- leikur, ekki þungmeltur heldur þægilega settur fram, svo að öll- um ætti að verða skiljanlegur. Það mætti segja mér að bækur eins og þessi mæltust vel fyrir hjá börnum og raunar ættu jákvæðir fullorðnir einnig að geta skemmt sér býsna vel yfir ýmsum þrautum. Állar þrautir og gátur eru auðveldar þegar bú- ið er að leysa þær, eins og við vitum, og það skerpir hugann að glíma við slíkt efni. Sakar ekki á þessum síðustu tímum, þegar líf- ið gengur út á að þjóðin láti mata sig á sjónvarpi, videói og hamingjan veit hverju, sem rennur í gegn hreint án þess að þurfi að grípa til heilasellanna nema stöku sinnum. Colin Forbes: The Leader and the Damned l'ltg. Panbooks 1984. Marz 1943. Hitler er í heim- sókn á austurvígstöðvunum, en er að búast til brottfarar. Sprengju hefur verið komið í vélinni og rétt áður en hún lend- ir springur hún í loft upp. For- inginn er fallinn. Og hvað er nú leaoer DAMNED COLIN FORBES IHt IATMMH THRULÍ8 Of TH£ UST nm l}£ THf Ht lCH til ráða. Martin Bormann sér, að Þriðja ríkið myndi hrynja til grunna ef fréttir bærust um að Hitler sé látinn. Hann fær þekktan leikara til að taka að sér hlutverk hans. Um svipað leyti kemur Breti nokkur Lindsay að finna Hitler og ætlar að gera við hann „friðarsamning", en líklega vakir eitthvað annað fyrir hon- um í leiðinni. Þegar Lindsay hef- ur aflað upplýsinga gengur hon- um erfiðlega að komast á brottu, en júgósiavnesk-brezk stúlka, sem hefur allar klær úti til að hjálpa honum gegn því að Bretar sendi skæruliðum Júgóslava vopn, reynist honum betri en enginn. Hartmann Abwehr- maður slæst i för með þeim. Hann er skrítinn fugl og grun- samlegur lengi vel. Allt á þetta að fara hljótt en á hverju strái eru njósnarar og gagnnjósnarar. í Bretlandi er Wheely ekki seinn á sér að koma upplýsingum um ferðir Lindsay til Þjóðverja, í Þýskalandi virðist njósnari vera í innsta hring Hitlers og hann kemur öllum boðum um her- flutninga og áætlanir þýska hersins til Stalíns í gegnum ein- hvern gæðamann í Sviss. Nýi Hitlerinn forðast að koma fram opinberlega og ýmsir eru undr- andi á því hversu klaufskur hann er að ráða niðurlögum rússneskra sveita. Það er kannski ekki skrítið, þar sem njósnarinn í innsta hringnum lætur allt ganga rétta boðleið. En nýi Hitler er ekki svo vitlaus. Hann hefur á tilfinningunni, að eitthvað sé bogið við þetta og fyllist tortryggni. Aftur á móti semur honum og Evu Braun ljómandi vel. Lindsay baslar við að komast til Bretlands og tekst ekki vegna svika landa hans Wheelys, sem bruggar honum banaráð. Það upplýsist hver njósnarinn í innsta hringnum var og í stað þess að fá nú að njóta ávaxta af starfi sínu og áhættu lætur Stalín skjóta hann. Ágætis afþreyingarbók, í það lengsta og með of mörgum út- úrdúrum stundum. En verulega spennandi lesning, svona mestan hluta. Malcolm Lowry: Under the Volcano IJtg. Penguin books Malcolm Lowry var brezkur höfundur og gat sér orð fyrir ýmsar bóka sinna. Hann var rúmlega tvítugur þegar fyrsta bók hans Ultramarine var gefin út. Hann skrifaði ýmsar smásög- ur sem þóttu haglega gerðar og skáldsögur hans nutu vinsælda. Hann mun hafa byrjað að vinna að þessari bók Under the Vulc- ano, sem gerist í Mexíkó í kring- um 1940, en lauk henni ekki þá. Lagði hana á hilluna lengi og virðist hafa vafist fyrir honum að vinna hana. Hún kom út í fyrsta skipti 1947, en hefur síðan verið útgefin margsinnis og nú er búið að gera eftir henni kvikmynd, sem hefur fengið góða dóma, að því er ég hef ein- hvers staðar séð. Malcolm Lowry UnderThe Vokano Sögusviðið er Mexíkó. Fiestan stendur sem hæst og í hams- lausu og litskrúðugu mannhaf- inu er Geoffrey Firmin — fyrr- verandi ræðismaður, fyrrver- andi eiginmaður, alkóhólisti og öreigi, að lifa siðustu daga lífs síns. Hann neytir lyfja auk áfengis og fyrrverandi eiginkona hans og bróðir hans geta ekki annað en fylgst með eyðilegg- ingu hans, þau geta ekkert gert lengur til að hjálpa honum. Það er einhver magnaður seið- ur í frásögninni. Kannski ekki fjarri lagi að taka undir með þeim sem hafa líkt henni við The Catcher in the Rye og Lord of the Flies. En hún er sannarlega ekki fljótlesin. Það er hér fjarri því að vera ókostur. • • Oruggur sigur Danans Curt Hansen: Notfærði sér öll feil- spor andstæðinganna Skák Karl Þorsteins Það var ánægður Curt Hansen sem gekk út úr skáksalnum hér í Kiljava í dag, föstudag, eftir að hafa tryggt sér heimsmeistaratitil unglinga undir 20 ára í skák með öruggum sigri yfir Hickl frá V-Þýskalandi. Þessi rólegi og mjög svo einbeitti Dani frá Suður-Sjá- landi tefldi mjög örugglega í mót- inu og notfærði sér öll fleilspor í taflmennsku andstæðinga sinna til hins ýtrasta. Stóð hann því að lok- um uppi sem sigurvegari með 10,5 vinninga af 13 mögulegum. Hann tapaði engri skák, en gerði 5 jafn- teíli. Sovétmanninn Dreev, sem var einn efstur um tíma, virtist skorta taugastyrk til þess að halda út endasprettinn og hafn- aði í 2. sæti með 10 vinninga. Þriðja sætið er, þegar þetta er skrifað, enn óskrifað blað. Kiril Georgiev frá Búlgaríu hefur 9 vinninga og einungis 2 keppenda geta náð honum að vinningum. Þeir eru Sovétmaðurinn 011 og undirritaður, Karl Þorsteins, en innbyrðis skák okkar frá í dag fór í bið (sjá stöðumynd). Mér nægir jafntefli til að ná Georgi- ev að vinningum, en Oll þarf sig- ur til. Nái ég jafntefli reiknast íslensku hersveitinni hér á staðnum til að ég hafi tryggt mér áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Eftir að stutt minningarræða hafði verið flutt og keppendur höfðu risið úr sætum til minn- ingar um sovéska stórmeistar- ann Tigran Petrosjan, hóf ég skák mína gegn Tékkanum Stohl í fyrradag. Varð úr stutt jafn- tefli, enda hafði ég hug á að hvíl- ast fyrir átökin í 2 síðustu um- ferðunum. Það kom á daginn að sú hvíld reyndist vel, a.m.k. í 12. umferð þegar Skotinn Condie mátti rétta fram höndina til uppgjafar með hvítt eftir 41 leik. Mér þykir við hæfi að enda þennan pistil héðan frá Kiljava í Finnlandi með snöggri sigurskák hins nýbakaða heimsmeistara unglinga undir 20 ára, Curts Hansen frá Danmörku, gegn hinum fráfarandi Kiril Georgiev frá Búlgaríu, en sú skák var tefld í 11. umferð. Biðstaðan: Svart: Karl Thorsteins Hvítt: Lembit 011, Sovétr. Hvítur lék biðleik. Hansen — Georgiev. 1. d4 — Rf6, 2. Rf3 — e6, 3. c4 — c5, 4. Rc3 — d5, 5. cxd5 — Rxd5, 6. e3 — Rc6, 7. Bc4 — cxd4, 8. exd4 — Be7, 9. 0-0 — 0-0, 10. Hel — Rxc3,11. bxc3 — b6, 12. Bd3 — Bb7, 13. h4 - Bf6, 14. Rg5 - g6, 15. Dg4 - h5, 16. Dg3 - Re7, 17. Ba3 — Hc8 18. Rxe6 — fxe6,19. Hxe6 — Hc7, 20. Hael — HÍ7, 21. Bxg6 — Hd7, 22. Bxf7+ - Kxf7, 23. Hxf6+ — Kxf6, 24. De5+ - KI7, 25. De6+ — KÍ8, 26. Df6+ og svartur gafst upp. Upplýsinga- streymi til ferðamanna verði aukið HUGSANLEGAR úrbætur á upplýs- ingastreymi til innlendra og er- lendra ferðamanna, sem ferðast um ísland, var umræðuefnið á fundi stjórnarnefndar Ferðamálaráðs með þeim Hannesi Hafstein, formanni Slysavarnafélags íslands, og Óskari Ólasyni, yfirlögregluþjóni, á fimmtu- dag. í frétt frá Ferðamálaráði segir m.a.: Á undanförnum árum hafa Ferðamálaráð, Slysavarnafélags fslands, Umferðarráð og fleiri að- ilar, dreift upplýsingum til ferða- manna þar sem vakin er athygli á þeim hættum sem á stundum geta verið því samfara að ferðast um landið, ekki síst fyrir þá sem ekki eru kunnugir staðháttum og hinu breytilega íslenska veðurfari. Ofangreindir fundarmenn voru sammála um að upplýsinga- streymi skuli aukið eins og frekast er kostur nú þegar og að vinna skuli að uppsetningu fleiri aðvör- unarskilta á þeim stöðu sem hætt- ur leynast. Ákveðið var að ræða þessi mál nánar á fundi í september nk., og boða þá til fundar þá aðra aðila sem tengdir eru öryggismálum. Má þar nefna Vegagerð ríkisins, Umferðarráð og fleiri aðila.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.