Morgunblaðið - 19.08.1984, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST1984
Reyfarí ársins:
Hann geymir
konu sína í
frystikistu
Reyfari ársins gerist í Frakklandi
í litlum kiefa í kjallara undir 300 ára
gamalli höll í Loire-dalnum en þar
hefur læknir á eftirlaunum geymt
líkiö af konu sinni í djúpfrysti í
marga mánuöi í þeirri von að lækna
vísindin muni einhverntímann f
framtíöinni auönast aö kalla hana
aftur til lífsins. Menn eru ekki á eitt
sáttir um hvort líkja eigi þessu fram-
taki læknisins við ævintýriö um
Þyrnirós eða hryllingssöguna um
Frankenstein. Kannski þaö liggi þar
mitt á milli.
Breuil-höll liggur í útjaðri bæj-
arins Nueil-sur-Layon í grennd
við Saumur. Hinir 1500 íbúar bæj-
arins hafa ætíð litið lækninn frá
París, Raymond Martineau, sem
keypti höllina árið 1970 og notaði
lengi aðeins um helgar, sem frum-
legan bóhem. Klæðastíll hans og
lífsstíll allur þótti þeim í hæsta
máta undarlegur og gamli bíllinn
hans, sem var eins og hann væri
að hruni kominn, var heldur ekki
alveg venjulegur. En við það sætti
fólkið sig. Það var fyrst þegar tíð-
indin um lát konunnar hans
spurðust út, að dr. Martineau fór
að gerast umdeilanlegur. Það fóru
að gerast hlutir, sem „voru ekki
alveg samkvæmt kaþólskunni"
eins og sagt er í Frakklandi.
Raymond Martineau, sem er 62
ára gamall, dró sig í hlé í fyrra og
flutti alfarið í höllina sína, sem
eftirlaunamaður. í 18 ár hafði
hann verið prófessor við lækna-
deild í háskóla í París og starfað
við lækningar en sérgrein hans
voru kvensjúkdómar. Eftir að
hafa keypt höllina í Nueil-sur-
Layon hafði hann einnig lækna-
stofu um árabil í Thouars, nær-
liggjandi kaupstað. Það var þar,
sem hann komst yfir gríðarstóran
djúpfrysti, sem hann flutti í höll-
ina til sín og sagði að hann vildi að
hann yrði frystur í honum eftir
dauða sinn.
Konan dó á undan
Það var þó ekki hann, heldur
kona hans Monique Leroy, sem
kom til með að nota djúpfrystinn.
Dr. Martineau og Leroy höfðu bú-
ið saman í 20 ár og átt son, sem nú
er 18 ára. Hún lést í mars síðast-
liðnum, 48 ára gömul, af ólækn-
andi sjúkdómi og eftir að læknir-
inn hafði orðið sér úti um leyfi til
„greftrunar á einkalóð", færði
hann iík konu sinnar heim af spít-
alanum í París og setti það í
djúpfrystinn, sem í fyrstu stóð í
einu af útihúsum hallarinnar.
Seinna meir lét hann leggja raf-
magn niður í klefa einn í kjallara
hallarinnar, sem nú er einskonar
djúpfryst grafhýsi.
Framtak læknisins hefur verið
meginumtalsefnið á hinum þrem-
ur kaffihúsum bæjarins nú um
skeið og allra handa sögur eru á
kreiki. Hinir vísindalegri bæj-
arbúar benda á, að tilraunin sé
ekki tekin mjög alvarlega né
byggð á traustum grunni.
Dr. Martineau, lítill, tauga-
óstyrkur maður með innfallið and-
lit og djúp, dökk augu, er iðinn við
að sýna blaðamönnum frá París
grafhýsið og höllin hefur marg-
sinnis verið heimsótt af lögreglu-
Læknirinn Raymond Martineau viö dyrnar að grafhýsi konu sinnar.
BÍLVANGUR Sf=
L. I I ! ! I i
HOFÐABAKKA 9 124 REYKJAVIK 5IMI 687B00
Valid er audvelt!
Þýskur hágæöavagn á frá-
bæru veröi.
Öryggi — Ending — Sparneytni
Verð frá 390.000.-
Hagstæðir greiösluskilmálar.
Sjóstangaveiðar:
Akureyrarmót 31.
ágúst og 1. sept.
Sjóstangaveiðimót Akureyrar
verður haldiö 31. ágúst og 1. sept.
nk. Róiö verður frá Dalvík.
Keppt verður um 40 verðlauna-
gripi að þessu sinni í tilefni 20 ára
afmælis Sjóstangaveiðifélags Ak-
ureyrar. Mótið verður sett í Sjall-
anum fimmtudaginn 30. ágúst kl.
20.
Kúrdar ráðast á þorp
í Austur-Tyrklandi
Ankara, 17. ágÚHt. AP.
HKRSKÁIK Kúrdar réðust inn í
tvö þorp í austurhluta Tyrklands á
miövikudag og felldu þar einn her-
mann og tólf óbreytta borgara, að
því er hin opinbera fréttastofa í
Ankara greindi frá í dag.
I þorpinu Eruh, sem er í 90 km
fjarlægð frá landamærum íraks,
sprengdu þeir upp lögreglustöð
og í þorpinu Semdinli, sem er í
30 km fjarlægð frá landamærun-
um, réðust þeir á herbækistöð og
lögreglustöð.
Heimildarmenn AP segja að
um 300 Kúrdar hafi tekið þátt í
árásum þessum. Þeir skildu eftir
sig áróðursblöð um sjálfstæðis-
fyrirætlanir Kúrda, sem merkt
voru samtökunum Apocular, en
þau eru illræmd fyrir ofbeldis-
verk. Samtökin kenna sig við
marxisma og lenínisma, eru tal-
in bera ábyrgð á allt að 250 póli-
tískum morðum á undanförnum
árum.