Morgunblaðið - 19.08.1984, Page 53
MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 19. ÁGtJST 1984
53
mönnum sveitarinnar, sem eftir
dómsúrskurð hafa læst hinni und-
arlegu líkkistu með innsiglaðri
stállæsingu. Margir, meðal annars
sóknarpresturinn, hafa krafist
bess að líkið verði grafið eða
brennt eins og eðlilegt er. En ekki
virðist vera hægt með lagabanni
að meina lækninum að geyma
konu sína á þennan hátt, enda hef-
ur dr. Martineau ráðfært sig við
faerustu lögfræðinga Frakklands
frá upphafi.
Bað um það sjálf
Það er í fyrsta lagi bæjarstjór-
inn eða sóknarráðsformaðurinn í
Nueil-sur-Layon, sem er í nöp við
notkun djúpfrystisins á þennan
máta. Formaðurinn, Moise Podet
sagði nýlega í viðtali við franska
blaðið Le Figaro: „Það er ekkert
sem mælir gegn því að hver sem er
geti jarðað ættingja sinn í eigin
garði eða kjallara nema ef ekki
eru fengin tilskilin leyfi yfirvalda
til að gera svo og ekki er farið
eftir þeim nákvæmu og ströngu
reglum, sem gilda um greftranir
utan kirkjugarða. Líkið af frú
Leroy hvílir í dag í kistu í klefa,
sem dr. Martineau hefur innréttað
í gömlum kjallara undir höllinni
sinni og ég hef ekkert vald til að
banna honum að koma kistunni
fyrir í djúpfrysti. Þar sem engin
lög eru til yfir slíkt verður þessu
víst ekki breytt."
í annan stað hafa aðstandendur
hinnar látnu látið í sér heyra
vegna þessara óvenjulegu fram-
kvæmda dr. Martineau og staðfest
það sem læknirinn hefur ætíð
haldið fram, nefnilega að konan
bans hafi sjálf beðið um að hún
yrði fryst eftir dauða sinn.
Málið er í athugun bæði hjá yf-
irvaldinu í sveitinni og ríkissak-
sóknara en hvorugir hafa séð
ástæðu til að grípa til harkalegra
aðgerða. Dr. Martineau hefur í
millitíðinni verið bannað að rjúfa
innsiglið á djúpfrystinum og hon-
um hefur verið skipað að gæta
þess vendilega að hitastigið í
frystinum haldist stöðugt í mínus
60 gráðum.
Læknirinn sagði í viðtali við Le
Figaro að hann vonaði að kona
hans gæti verið endurlífguð „í
kringum árið 2030, í þann tíð er
sjúkdómurinn, sem varð henni að
aldurtila, mun vonandi verða sigr-
aður og læknanlegur." Og í Le
Monde leggur hann á sama tíma
áherslu á að líkurnar á endurlífg-
un séu með minnsta móti vegna
þess að hún snýst um líkama, sem
er þegar dauður.
Hugmyndir um endurlífganir
eftir frystingu hafa löngum þótt
áhugaverðar manna á meðal en
frönsku blöðin hafa það eftir sér-
fræðingum að allt tal um að lífga
við dauðar manneskjur eigi ekki
við nein rök að styðjast heldur sé
aðeins vísindaskáldskapur, sem
byggður er á stöðu vísindanna í
dag. Sá ávinningur sem fengist
hefur hin síðari ár snýst um lang-
tímavarðveislu á sæðisfrumum,
eggfrumum, blóðkornum og síðan
líffæra og fóstra. Varðveisla í
frosti hefur í för með sér að ís-
kristallar myndast, en allar frum-
ur í mannslíkamanum eru að
miklum hluta úr vatni og tilraunir
beinast nú að því að finna aðferð
til frystingar þar sem þetta
vandamál yrði yfirunnið. Innan
dýraheimsins eru til dæmi þess að
skordýr hafi lifnað við eftir að
hafa verið fryst i mínus 20 til 40
gráðum en þá hefur verið fólgið í
þeim líf þrátt fyrir frostið. Endur-
lífgun á dauðum líkama, sem
varðveittur er í frosti, er ómögu-
leg í sjáanlegri framtíð. Það næsta
sem hægt er að hugsa sér er fryst-
ing á sjúku en lifandi líffæri þar
til fundin hefur verið upp aðferð
til að lækna það, segja frönsku
sérfræðingarnir. Frystingin verð-
ur því að eiga sér stað áður en
maðurinn með ljáinn knýr dyra.
— ai.
Öllum hinúm fjölmörgu sem minntust mín á 85 ára
afmæli mínu meö kveöjum, skeytum og gjöfum sendi ég
hugheilar þakkir og kveðjur.
Lifið heil.
Vilhjálmur Hinrik Ivarsson.
£——11 n||
in I jl DI'L
FRA HEKLU ?
í ÁGÚSTMÁNUÐI GEFUM VIÐ
10% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTT
Á ÉFTIRTÖLDUM VÖRUM í
ALLA BÍLA SEM VIÐ
HÖFUM UMBOÐ FYRIR
Dæmi um verð:
=£i
Kerti......
Platínur ..
Kveikjulok
Viftureimar
Tímareimar
Loftsíur ..
Smursíur .
Bensínsíur
Þurkublöð
Bremsuklossar
.Frákr. 40+10%
..— 50+10%
..— 95+10%
45+10%
. .— 145+10%
195+10%
..— 155+10%
..— 35+10%
..— 75+10%
- 285+10%
Bremsuborðar -
Bremsudælur .-
Vatnsdælur .. -
VIÐURKENND VARA
í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
Auói
110+ 10%
440+ 10%
410+ 10%
MrrsuBssHi
NÖTORS
r
HEKLA HF
Laugavegi 170 -172 Sími 21240
10% AFSLÁTTUR