Morgunblaðið - 01.12.1984, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984
lós og ánægja..
Ledu-frístundalampinn er lampi þeirra
sem helga sig smáatriðum í frístundum
sínum. Frímerkjasafnarar,
hannyrðakonur, modelsmiðir og þeir
sem rýna í smátt letur ættu að kynnast
astor lampanum sem er Ijós og
stækkunargler í senn.
Rafkaup
Suðurlandsbraut 4 - Sími 81518
Umboðsmenn: Stapatell hf. Keflavik - Raftækjaverslun Sigurðar Ingvarssonar
Garði - Kjarm hf. Vestmannaeyjum - Kristall hf. Höfn Hornafirði - Verslun Sveins
Guðmundssonar Egilsstóðum - Raforka hf. Akureyri - Pollinn hf. Isafirði - Ljosvak-
inn Bolungarvik - Huspryði hf. Borgarnesi - Rafþjonusta Sigurdors JOhannssonar
Akranesi -
w
kertastjaki, 3 stæröir.
Hönnuður: Timo Sarpaneva. Mikiö úrval af kerta-
stjökum frá littala. Kerti frá Juhava OY. Margir litir
og geröir.
áf/\ KRISTJfin
?ÁSwsl<5GeiRSSon HF-
^ J LAUGAVEG113. REYKJAVIK SÍMI 25870
Aðventusamkoma
Digranesprestakalls
„Sjá, konungur þinn kemur til
þín.“ Það er vLssulega þakkarefni,
að enn gefst nýtt kirkjuár, — náðar-
ir frá Drottni.
Þetta er áréttað með aðventu-
samkomum safnaðanna og að
kvöldi aðventusunnudagsins er
enn boðið til hátíðar í Kópavogs-
kirkju.
Efnisskráin er fjölbreytt og til
hennar vandað, eins og jafnan áð-
un Dr. Björn Björnsson, prófess-
or, talar, kór Kársnesskóla syngur
undir stjórn Þórunnar Björnsdótt-
ur, Elín Þorgilsdóttir flytur jóla-
ljóð, Ágústa Ágústsdóttir syngur
einsöng, sr. Gunnar Björnsson
leikur á selló, kirkjukórinn syng-
ur, Guðmundur Gilsson leikur á
orgelið, Salómon Einarsson ávarp-
ar samkomugesti og endað verður
á andagt og almennum söng.
Sú er von okkar og bæn, að sam-
veran í helgidóminum megi eiga
aö þvi hlut að opna hugina fyrir
andblæ jólatímans, sem nú fer i
hönd.
Nýtt kirkjuár minnir á, að kon-
ungur sannleikans leitar okkar
enn, — að ríki Guðs er opið áfram,
en án tengsla við það verður eigi
til iengdar lifað, svo að líf sé nefn-
andi.
„Sjá, ég boða yður mikinn fögn-
uð.“
Við tökum undir lofgjörð ald-
anna og segjum: „Blessaður sé sá,
er kemur í nafni Drottins."
Verið hjartanlega velkomin.
Þorbergur Kristjánsson
Kirkjudagur Sel-
tjarnarnessafnaðar
Á morgun, 1. sunnudag í aðventu,
er kirkjudagur Seltjarnarnessafnað-
ar. Jafnan hefur verið mikið um að
vera þann dag og vandað til dag-
skrár. Þá befur einnig verið gert sér-
stakt átak í Ijáröflun til kirkjubygg-
ingarinnar. Að þessu sinni verður
Ijósahátíð í umsjá fermingarbarn-
anna í félagsheimilinu kl. 11. Þar
munu einnig koma fram ungir tón-
ILstarmenn úr Tónlistarskóla Sel-
tjarnarness ásamt kennara sínum,
Skarphéðni Einarssyni. Á kvöld-
samkomunni mun Andrés Björnsson
útvarpsstjóri tala, Elín Sigurvins-
dóttir mun syngur einsöng og skóla-
kór Seltjarnarness syngja undir
stjórn Margrétar Pálmadóttur.
t stað hinnar hefðbundnu laufa-
brauðs- og kökusölu verður efnt til
happdrættis með mörgum góðum
vinningum m.a. utanlandsferö. Þá
verður einnig nú á aðventu boðin
til kaups nýja barna- og fjöl-
skyldu-hljómplatan „Og það varst
þú,“ sem gefln er út á vegum
Skálholtsútgáfunnar, en sölulaun-
in munu renna óskert til kirkju-
byggingarinnar ásamt ágóða af
sölu happdrættismiða, en dregið
verður um vinninga þann 20. des-
ember. Sýnum samstöðu og veit-
um góðu málefni lið með þvi að
taka vel á móti sölufólki.
Byggingu kirkjunnar hefur mið-
að vel áfram með góðra manna
hjálp og vonandi tekst nú sem og
ávallt áður að safna nægjanlegu
fjármagni til frekari framkvæmda
við næsta áfanga, en vonast er til
að á næsta ári verði mögulegt að
taka hluta af safnaðarheimilinu í
notkun fyrir starfið
Frank M. Halldórsson
Sýnum
SNORRAHÚS
um helgina
að Hverafold 70, Grafarvogi
HÚSASMIÐJAN HE
SÚÐARVOGI 3—5, REYKJAVÍK SÍMI: 687700