Morgunblaðið - 09.12.1984, Blaðsíða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1984
Ég öskra af
tilfinningu
Lilja K. Möller. Morgunblaðið/Bjarni.
— segir Lilja K.
Möller höfundur
• •
Oskursins, nýrr-
ar skáldsögu sem
AB gefur út
„Öskrið?“ — „I»að táknar til-
finningarnar í bókinni. Flestar
bækur sem maður les eru heftar,
án tiirinningaólgu; það er eins og
margir höfundar geti ekki eða vilji
ekki setja á blað þær tilfinningar
sem í þeim búa. Ég hefti mig ekki
og því get ég flogið á vængjum
ímyndunaraflsins hvert sem er,“
segir ungur rithöfundur, Lilja K.
Möller, um óvenjulegt heiti bókar
sinnar — Öskrið — sem Almenna
bókafélagið hefur nýlega gefið út.
I»etta er fyrsta bók Lilju, en hún
hefur starfað við blaðamennsku
um nokkurra ára skeið.
Aðalpersóna sögunnar, Ára, er
tilfinningarík, hamslaus og
fremur ósjálfstæð stúlka á milli
tvítugs og þrítugs, sem á í sí-
felldri baráttu við tilfinninga-
leysi sinna nánustu, móður sinn-
ar sem ekki getur sýnt henni
blíðu, og sambýlismanns sem
hugsar um það eitt að græða
peninga. Ósjálfstæði Áru á ræt-
ur að rekja til ríkrar þarfar
hennar fyrir ástúð og hlýju, því
hún er reiðubúin til að kosta til
öllu til að fá þessari þörf sinni
fullnægt. Frelsi hennar í sögulok
felst í því að hún yfirvinnur
þessa þörf sína og tekur sjálf
ákvörðun um að veita því nýja
lífi sem hún ber undir belti þá
ást og hlýju sem hún þráði en fór
á mis við.
Það skilur hver og einn þessa
bók á sinn hátt,“ segir Lilja, þeg-
ar blaðamaður bar undir hana
þessa túlkun. „Frá mínum sjón-
arhóli séð er sagan fyrst og
fremst skammir til mannkyns-
ins fyrir tilfinningaleysi og leik-
araskap. Menn eru sífellt að
leika einhvern annan mann en
þeir hafa að geyma, bara til að
reyna að passa inn í einhverja
þægilega ímynd. í stað þess að
þora að koma fram eins og þeir
eru og láta sínar réttu tilfinn-
ingar í ljós. En hitt er líka rétt,
að þetta er bók um draumlynda
konu og tilfinningasnauðan
mann — tvö öfl sem eiga í sí-
felldum átökum í öllu okkar lífi.“
— Ertu reið ung kona? Reið
út í samfélagið, kerfið, karl-
menn?
„Nei, ég verð ekki reið, ekki
nema réttlætiskennd minni sé
misboðið á einhvern hátt. Hins
vegar skrifa ég betur þegar ég er
reið, en það er annað mál. Þessi
bók mín er ekki árás á samfélag-
ið sem slíkt. Hún er heldur ekki
innlegg í kvenréttindabaráttuna,
ég „öskra" ekkert frekar á
karlmenn en konur. Ef konur
gera ekkert annað en berjast við
karlmenn um réttindi eru þær
um leið farnar að kúga þá, snúa
dæminu við. Og ég er á móti kúg-
un, enda er kúgun aðeins eitt
form af tilfinningaleysi."
— Er Öskrið að einhverju
leyti sjálfsævisaga?
„Nei, það stendur á bókinni að
þetta sé skáldsaga ættuð úr hug-
arfylgsnum höfundar."
— Nú er aðalsögupersónan
kona. Er sagan frekar stíluð á
konur en karlmenn?
„Alls ekki. Ég hef talað við
nokkra karlmenn sem hafa lesið
bókina og þeim finnst flestum að
hún höfði til sín, auki þeim
skilning á tilfinningalífi
kvenna."
— Er Öskrið „alvarleg" bók?
„Það efni sem hún fjallar um
er alvarlegt, dramatískt. Hins
vegar er töluverður húmor í bók-
inni, kannski gálgahúmor. Húm-
orinn er nauðsynlegur, sjálf hef
ég lifað erfiðu lífi og hefði aldrei
komist í gegnum það án kímni.
Það er því ekki óeðlilegt að sag-
an dragi dám af skapara sínum.“
GPA
Sarasota, Florida, U.S.A.
Tvö lúxusherbergi og tvö baöherb. í íbúöarblokk
til leigu. Hægt er aö synda í Mexíkóflóa eða í
okkar fallegu sundlaug og fara í tennis. Frábærir
veitingastaöir og öll önnur þjónusta fyrir ferða-
menn. Skrifiö eöa hringið eftir upplýsingabæklingi.
Sarasota Surf — Racquet Club,
5900 Midnight Pass Road,
Sarasota, Fl. 33581. Sími 1-813-349-2200.
Sýning
í dag ki.13-17
Sjáumst!