Morgunblaðið - 09.12.1984, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 09.12.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1984 B 29 Fréttapunktar Bond stendur víðar f ströngu en við Jökulsárlónið í næstu myndinni í þessar vinsælu seríu, A View to a Kill. Hér er kappinn í byssuleik efst í Eiffelturninum. Myndin verður frumsýnd í London í júní á sumri komanda. Nýjasta tískustefnan í kvik- myndagerð vestra er umhverfis- verndarmyndir. Sú nýjasta þeirra er The River, með Sissy Spacek og Ástralanum vinsæla, Mel Gibson. Fara þau með hlutverk hjóna, en land þeirra er að fara undir vatn vegna virkjunarframkvæmda. Höfuðpaur aflstöðvarinnar er Scott Glenn, eftirminnilegur úr Urban (kiwboy og ekki síður þeim sem hafa séð hann i hlutverki Al- an Shepards, geimfara í The Right Stuff. Bakhjarlar myndarinnar eru ekki af verri endanum. Leikstjórn- in er í höndum Mark Rydells (On Golden Pond), framleiðendur eru þeir Robert Cortes og Edward Lewis (Missing) og handritið er skrifað af Robert Dillon og Julian Barry. Kvikmyndatökumanninn þarf ekki að kynna fyrir kvik- myndaáhugafólki, hann er Vilmos Zsigmond. Ein af vinsælli myndum ársins er af svipuðum toga spunnin og The River, nefnist hún Country, með þeim hjónaleysunum Sam Shepherd og Jessicu Lang. Næsta mynd Paul Mazurskys verður Jerry Saved From Drowning og verður hún gerð á vegum Touchstone-arms Walt Disney. Handritið skrifaði Mazursky ásamt Leon Capetanos en þeir unnu í félagi að næstu mynd leik- stjórans á undan, Moscow on the Hudson. Give My Regards to Broadstreet, er heiti myndar sem byggð er á handriti Paul McCartneys og sjálfur fer hinn roskni erkibítill með aðalhlutverkið. En frægð Páls virðist ekki duga til að halda myndinni á floti, hún hefur valdið vonbrigðum og hlotið heldur dræma aðsókn. Allþekkt nöfn eru á leikara- skránni: Bryan Brown (The Thorn Birds), Sir Ralph Richardson, Tracey Ullman og eiginkonurnar Barbara Bach, sem er Austfirð- ingum kær, og Linda McCart.ney. Richard Gere hefur nýlokið að leika titilhlutverkið í Biblíumynd- inni King David. Þriðja umhverfisverndarmynd- in sem athygli hefur vakið á þessu ári nefnist Places in the Heart, með einni hæfileikaríkustu leikkonu Hollywood, Sally Field. Nýjasta mynd Meryl Streep nefnist Plenty, og verður hún frumsýnd fljótlega í London (og skömmu síðar á fslandi, f Regn- boganum). Meðleikarar Streep eru Sir John Gielgud, sá er ekki aldeil- is af baki dottinn, gamli maður- inn, Tracey Ullman og Sting. Sú aldna kempa, John Huston, lætur ekki aldurinn á sig fá og er nýbyrjaður á einni mynd til við- bótar, Prizzi’s Honour. Dóttir hans, Anjelica, fer með aðalhlutverkið ásamt sambýlismanni sínum, Jack Nicholson. Þá prýðir og myndina ein eftirtektarverðasta leikkonan á síðustu árum, Kathleen Turner (Body Heat, Romancing the Stone). Stjörnugjöfin Stjörnubíó: Educating Rita ☆☆☆☆ Moskva við Hudsonfljót ☆☆‘/2 Háskólabíó: í bliðu og striðu ☆☆☆ Austurbæjarbíó: Garp ☆‘/2 Nýja Bíó: Dalalíf ☆'/2 Laugarásbíó: Vertigo ☆☆☆☆ Laugarásbíó: Slapstick ☆ Bíóhöllin: Rafdraumar ☆☆ Bíóhöllin: Splash ☆☆'/2 SV. James Mason í síðustu mynd sinni, The Shooting Party, ásamt hinum sprelllifandi John Gielgud. ísland í „Variety“ Wednesday, October 10, 1984 [ty dy Al- “Star ■'Ynnor 1 imas’ Ifor in- ItO 9' The Little Web That Could holds. — It has one stn'4 ning news p'* plete ’ Reykjavik. Even with both license fecs and advertising. Icelandic Television has a budget of barely more than $7,000,000,|ppually, but it’s a network, and it keeps plugging away with grit and d>iecj ' Consider these facts about a networkov. 1 -ial \ «\«" ns rviy ce"s° v.e'ie*'\Y\e'' \ W\\c' r °wn pnri— e lo din ,„o<\ átivuivu Jilf fcttK Xcc\^ cC<\s*es, at the Foto Kine in Cologne. 0t\c «,octo Sales Key for •’>, %ouPme/i/ Atoinic Station’ We<f\ Reykj, nþ" A\Ot ,ov I y in""- '"°L\e\s <v |,s,op"- 1 lí"a \ .,\t\e° y ol ICELAND TEAM BUSY WITH ‘LIFE’ PREMIERE; PLAN 2 ’85 LENSINGS Reykjavik. A production team that is thriv- copiiof satellite ing by lcelandic standards is pro- | Briti Pocke.- ' ‘u d<P into I are 1 a Peri/ou, / „,6f Swe,°'v being e.v. / _.0' f sr'-^’/Sa .JÍSK-ste' withs Ud. made / ,n‘° 0| j this f"mg so/ne / Hed an EDcanuwcw. I DaraliJi Variety, biblía bandaríska skemmtibransans, fjallaði nýlega um kvikmyndagerð á Norðurlönd- um. Mest pláss fengu milljónaþjóð- irnar, en Island var einnig inni f myndinni. Kemur margt merkilegt fram í þessari umfjöllun, og er Ifka gaman að sjá hvað það er sem vekur mesta athygli útlendinga. í yfirliti kemur fram að á ís- landi eru 64.000 sjónvarpstæki, ein ríkisrekin sjónvarpsstöð, en fram séu komnar tillögur um ný lög þess efnis; 42 kvikmyndahús og árið 1983 hafi 1.320.000 miðar ver- ið seldir í Reykjavík; að andvirði 122 milljóna ísl. króna; 27.000 myndbönd, 2.500 titlar á boðstól- um og veltan 148.500 krónur. Blaðið greinir frá sérstöðu ís- lands hvað aðsókn varðar. Stóru erlendu kvikmyndafyrirtækin gera sér ekki fulla grein fyrir smæð landsins, en engu að síður er aðsóknin hlutfallslega meiri en i öðrum löndum: tíu miðar á hvert nef. Blaðið vitnar í bréf sem Grét- ar Hjartarson sendi fram- kvæmdastjóra American Film Market í Los Angeles og kemur m.a. fram að á árum áður hafi Danir keypt sýningarréttinn á bandarískum myndum fyrir um það bil 35.000 dollara, en síðan hafi Danir selt íslenskum kvik- myndahúsum sýningarrétt fyrir Island á allt að 15.000 dollara. Grétar bendir á að þessi ósvinna hafi viðgengist allt of lengi. Aðeins tveir kvikmyndaleik- stjórar eru nefndir, Þráinn Bert- elsson og Þorsteinn Jónsson. Sagt er frá vinsældum Nýs lífs og af- sprengi þeirrar myndar sem ný- lega sé búið að frumsýna, enn- fremur að þriðja mynd þeirra fé- laga Þráins og Jóns Hermanns- sonar, Skammdegi, sjái dagsins Ijós eftir áramót. Dalalíf kostaði rúmar 7 milljónir (220.000 doll- ara), en framleiðendurnir fengu engan styrk úr Kvikmyndasjóði þar sem myndin þótti af léttara taginu. Skammdegi kostaði hins vegar um 9 milljónir (300.000 doll- ara) og fengu framleiðendur 2 milljónir frá Kvikmyndasjóði (64.000 dollara). Blaðið segir að kvikmyndaframleiðendur íslensk- ir þurfi að leigja kvikmyndahús til að sýna myndir sinar. Jón Her- mannsson segir að þeir félagar muni byggja kvikmyndahús strax og þeir hafi efni á. Blaðið minnist á Atómstöðina, sem er dýrasta kvikmynd sem ís- lendingar hafi framleitt (kostaði 600.000 dollara), og að eina leiðin fyrir framleiðendurna til að ná endum saman sé að selja myndina erlendum dreifingaraðilum. Blað- ið segir að 60.000 manns hafi séð myndina þegar hún var sýnd hér- lendis og hafi 250.00 dollarar kom- ið í kassann. örnólfur Árnason segir í viðtali við blaðið að þeir geti svo sem skrapað upp í kostnað á tveimur til þremur árum, en þar sem svo erfitt sé að fjármagna kvikmyndir á Islandi, (skamm- tímalán), þá verði þeir að selja sýningarréttinn til stórra fyrir- tækja erlendis svo þeir geti haldið áfram að gera kvikmyndir. Blaðið getur þess að ekkert kvikmynda- ver sé til á Islandi og hafi Átóm- stöðin verið tekin í vöruhúsi. Blaðið segir frá Árna Samúels- syni og Bíóhöllinni, sem er stærst kvikmyndahúsa í Reykjavík. Blað- ið segir að Árni sé að koma á fót myndbandaleigu, Sam Video, sem synir hans tveir, Björn og Alfred, stjórni, ásamt konu Árna, Guð- nýju, og dótturinni Elísabetu. Árni segir að aðsókn fyrstu átta mánuði þessa árs hafi aukist um 17% frá árinu áður. (slenska sjónvarpið og Kvik- myndaeftirlitið fá talsverða um- sögn i blaðinu. Blaðið segir að ný lög hafi sett Kvikmyndaeftirlitið út af laginu, en Níels Árni Lund, einn sjötti Kvikmyndaeftirlitsins, segir í samtali við blaðið að eftir- litið muni auka starfsemi sina i samræmi við nýju lögin. Kvik- myndahúsin halda sérstakar sýn- ingar fyrir Kvikmyndaeftirlitið, sem segir til um hvort banna eigi myndina eður ei. Niels Árni Lund segir að eftirlitið hafi skoðað 2.000 myndir frá í febrúar, en um 500 myndbönd séu á markaðnum sem enn eigi eftir að skoða. Það er þvi nóg að skoða hjá sexmannanefnd- inni. fslenska sjónvarpið þykir all sérstakt fyrir margra hluta sakir. Hvort það er á eftir þróuninni eða undan er ekki aðalmálið, heldur eru taldir upp helstu punktar sem gera það sérstakt: Sjónvarpið hefur eitt stúdíó, sem þýðir að upptökur og æfingar verða að biða meðan útsending stendur yfir. Minnst er á nýju út- varpshöllina sem verður tilbúin eftir 2—3 ár. — Starfsemi sjón- varpsins lá niðri allan júlímánuð ár hvert, þar til fyrir tveimur ár- um. Sjónvarpið sendir ekki út á fimmtudögum og vekur það at- hygli. — Sjónvarpið borgar aðeins 2.600 krónur fyrir hverja mínútu af aðkeyptu efni, sem gerir sjón- varpinu erfitt að keppa við kvik- myndahús. En þess ber að geta að sjónvarpið er ríkisrekið og eina löglega sjónvarpsstöðin i landinu. Blaðið minnist á nýju lögin um afnám einkaréttar sjónvarpsins, sem enginn veit hvort verða sam- þykkt á þessari öld. Sjónvarpið sendir út 30 klukkustundir á viku, og þykir sérstakt að útsendingum ljúki um ellefu á kvöldin. Engar áfengis- eða tóbaksauglýsingar eru leyfðar í sjónvarpinu. Þar sem sjónvarpið framleiðir engar aug- lýsingar gefur það mikla mögu- leika fyrir einkafyrirtæki. Af er- lendu efni í sjónvarpinu kemur 35% frá Bretlandi en 28% frá Bandaríkj unum. Þá minnist blaðið á kapalstöðv- ar i einkaeign, einnig Frjálsa fjöl- miðlun hf., sem er í eign Dag- blaðsins, og ræðir við Jónas Krist- jánsson, ritstjóra. Rifjað er upp þegar ísl. sjónvarpið fór í sumarfrí sitt 1982 og einkaaðilar keyptu sýningarrétt á knattspyrnu- leikjum í heimsmeistaramótinu það ár. Jónas segir að erfitt sé að dæma um framvindu laganna, en segir jafnframt að einkastöðvum verði komið á fót strax og það verði löglegt. HJÓ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.