Morgunblaðið - 09.12.1984, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 09.12.1984, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1984 B 43 Duran Duran til Islands Tveir aðdáendur Duran Duran skrifa: Við erum hérna tvær 14 ára úr Árbænum og okkur finnst allt of lítið af popptónlist í sjónvarpinu og allt of mikið af frönskum og sovéskum sjónvarpsmyndum, sem Þessir hringdu . . . enginn horfir á. Það ætti að sýna vestra eða grínmyndir, sem allir geta horft á. Við viljum eindregið að tónleik- arnir með Duran Duran, sem sýndir voru í sjónvarpinu í sumar, verði endurteknir, því meirihluti unglinga hér á landi halda upp á Duran Duran. Við vitum að marg- ir myndu taka undir þessa ósk okkar. Að lokum viljum við að Skon- rokk verði lengra og einu sinni í viku og ef vantar efni í þáttinn er alltaf hægt að sýna ýmiss konar poppþætti. Einnig viljum við, eins og allir aðrir, að Duran Duran komi til tslands og haldi tónleika. Það hlýtur að vera hægt, því þeir fara til allra annarra landa, meira að segja Japans og Kína. Nú hættum við í bili, en von- umst til að eitthvað verði gert í þessu máli. Matur fyrir aldraða í Nessókn Hrefna Tynes hringdi: Laugardaginn 1. desember sl. birtist klausa í Velvakanda, þar sem talað var um að aldraðir gætu fengið keyptan mat á Dalbraut og í Lönguhlíð, en hvergi í vestur- bænum. Af þessu tilefni vil ég taka fram að frá 15. nóvember sl. geta aldr- aðir í Nessókn haft samband við Kvenfélag Neskirkju og pantað heitan mat. Þessi þjónusta er á þriðjudögum og fimmtudögum og er hægt að hringja í kvenfélagið á þeim dögum milli kl. 4 og 5. Nauð- synlegt er að hringja á þriðjudög- um ef fólk ætlar að fá mat á fimmtudögum og á fimmtudögum fyrir þriðjudaga. Að vísu hefur þessi þjónusta ekki mikið verið notuð, enn sem komið er, en hún er til staðar og verður vonandi bót á því. Kristín Bjarnadóttir hringdi einnig til að minna á þessa þjón- ustu Kvenfélags Neskirkju. Brennumenn mótmæla þar sem brennan á að vera. Það næsta sem gerist er að starfsmenn Reykjavíkurborgar koma og hirða dótið og henda því á haugana. Eftir því sem við best vitum fékkst leyfi fyrir brennunni þann 1. des. sl. Vlð undirritaðir mótmælum: Guðmundur P. Pálsson, Kristján Jónsson, Bjarni J. Þórðarson, Ólafur Jónsson, Brynjar Már, Sveinn Ingimundarson, Guðmundur Ingi. Nokkrir ungir menn höfðu sam- band við Velvakanda og vildu koma mótmælum á framfæri: Þannig er mál með vexti að sú hefð hefur verið í fjöldamörg ár að safnað er í áramótabrennu við Ægissíðu í Reykjavík. Upphaflega var alltaf byrjað að safna um og eftir miðjan nóvember. En síðan var þeim, sem söfnuðu, bannað það og hefur ekki mátt byrja fyrr en 1. desember undanfarin ár. Nú ber svo við að nokkrir dreng- ir höfðu hafið söfnun í áramóta- brennuna og komið dótinu fyrir, Nýja menn í samningamálin Kllilífeyrisþegi hringdi: Ég legg til að þeir, sem hafa á undanförnum árum verið að semja um kjör fyrir þá lægst laun- uðu í þessu landi, fari að hætta störfum. Kjör þessa fóiks fer nefnilega hríðversnandi með hverjum samningum. Þessir menn, sem hafa staðið í þessum samningum ár eftir ár og þykjast vera að berjast fyrir lág- iaunafólkið, hafa því miður alltaf farið þá leið að láta prósentu- hækkun gilda. Þetta gerir það að verkum að stöðugt breikkar bilið milli þeirra lægst launuðu og hinna sem við betri kjör búa. Ég skil ekki hvers vegna þessir menn eru ekki búnir að opna aug- un fyrir því að þessi leið gerir að- eins illt verra. Mér finnst tímabært að fá aðra menn í þeirra stað. Foreldrar Kennarar: Vegfarendur: Ökumenn: Hjólreiða- og bifhjólamenn Látið börnin bera endurskinsmerki. Notkun þeirra tryggir öryggi barnanna í umferðinni. Brýnið fyrir börnunum að fara varlega í um- ferðinni og gefið þeim góð ráð í þeim efnum. Hvert fótmál í umferðinni krefst umhugsun- ar og aðgæslu. Ljósker bifreiðanna verða að vera hrein og ljósin rétt stillt til þess að ljósmagnið nýtist sem best við aksturinn. Rétt notkun stefnu- ljósa auðveldar alla umferð. Hafið öryggisbúnað hjólanna í fullkomnu lagi. Munið ljósabúnaðinn, glitmerkin og bílafæluna. Klæðist ávallt yfirhöfnum í áber- andi lit. Sknjfbjýantur og kúlupenn[ + a i einum penna HALLARMULA 2, HAFNARSTRÆTI 18 e^5 SlGeA V/öga t 1/lveRan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.