Morgunblaðið - 09.12.1984, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1984
B 27
Óháð stofnun
British Council er sjálfseign-
arstofnun, sem ekki er rekin í
ágóðaskyni, og nýtur hún sams
konar verndar hins opinbera í
Bretlandi og góðgerðarsamtök.
Rekstrarfé fær stofnunin frá
stjórnvöldum, nánar tiltekið
utanríkisráðuneytinu, og nemur
framlagið á fjárhagsárinu, sem nú
er að líða, 95 milljónum sterl-
ingspunda (jafnvirði um 4,6 millj-
arða íslenskra króna). Þá hefur
British Council verið falin umsjón
með margvíslegum styrkjum til
þróunaraðstoðar og fleiri málefna,
sem eykur verulega umráðafé
stofnunarinnar.
Starfsemi British Council fer nú
fram í 81 ríki. Starfsmenn stofn-
unarinnar í Bretlandi eru 1.600 og
erlendis eru þeir 2.550. Um er að
ræða mjög fjölbreytilegan hóp:
landbúnaðarráðunauta, lista-
menn, kennara, bókaverði, lækna,
visindamenn og tæknimenn.
ish Council á fslandi. Hann sagði
að námsstyrkjum til fslendinga
hefði fjölgað á þessu ári og væru
nú sjö. Sagðist hann eiga von á því
að þeim fjölgaði enn á næstá
skólaári.
Sem fyrr segir eru námsstyrk-
irnir aðeins hluti af starfi British
Council á fslandi. Annar þáttur er
t.d. að styrkja íslendinga til kynn-
isferða til Bretlands og Breta til
að heimsækja fsland. Hafa margir
læknar og vísindamenn farið í
slíkar ferðir og talið þær mjög
gagnlegar. Nýlega hafa farið í
boðsferðir skólastjóri Tónlistar-
skóla Akureyrar, framkvæmd-
astjóri Listahátíðar, háskólarekt-
or og ráðuneytisstjóri
menntamálaráðuneytisins. svo
einhverjir séu nefndir. f sumar
sem leið dvöldust ennfremur hér á
landi á vegum British Council
tvær kennslukonur, Janette Price
og Marian Geddes, og stóðu fyrir
námskeiði um enskukennslu. Hafa
margir aðrir Bretar komið í svip-
uðum tilgangi til landsins á und-
anförnum árum.
Menningarsamstarf
British Council hefur styrkt
margs konar menningarsamstarf
íslendinga og Breta, og þ.á m. lagt
lóð á vogarskálar Listahátíðar.
Stóð stofnunin t.d. að komu Lond-
on Symfonia Orchestra á hátíðina
1982. Kvaðst Richard Thomas vera
að vinna að því, að British Council
styrkti breska listamenn til að
koma á Listahátíðina 1986.
Hálfrar aldar afmælis British
Council verður minnst hér á landi
dagana 12.—15. desember, en þá
kemur hingað viðkunnur leikhóp-
ur, London Shakespeare Group,
sem starfað hefur á vegum stofn-
unarinnar frá 1968 og ferðast víða
um heim til að kynna verk Shake-
speares og enska tungu. Hópurinn
kemur hingað frá Japan og fer síð-
an að öllum líkindum til Svíþjóð-
ar.
Caríler
Paris
ÚR — SKARTGRIPIR — LEÐURVÖRUR
GARÐAR ÓLAFSSON, ÚRSMIÐUR, LÆKJARTORGI, 10081.
Komið og skoðið Honda Civic Sedan fjölskyldubílinn ok kynnist bíl nýrrar tækni og nýrra
hugmynda.
Honda hefur tekist að gera lítinn bíl stóran með því að auka farþega- og far?ngursrými án þess
að stækka bílinn. Þess vegna hefur Honda Civie Sedan þægindi stærri bíla.
Honda Civic Sedan er með nýrri 85 hestafla vél, sem þó er sparneytnari en margar minni vélar.
Hin nýja „Sportec“ fjöörun ásamt nákvæmu tannstangarstýri gerir Honda ('ivic Sedan frábæran
í akstri.
Honda Civic Sedan sameinar þægindi, afl og örvtrtri.
Honda Civic Sedan er „einstakur" wjjjjr
Tæknilegar upplýsingar:
Viöbragö: 11,5 sek/100 km. .
LxBxH: 4,145x1,63x1,385 m. ' |T " i C1VIC
Hæö undir 1. punkt 16,5 sm. m |i V L— -
Farangursrými: 420 lítrar. V :,w<
Verö frá 427.500,- á götuna.
Gengi: Yen: 0,16140.
-door Sedan
dinder transversely mounted • Displacement
' torque 105 N m (10 7kg-m) 3 500 mm
Einstakur hefur varla verið
hentug lýsing á smábíl.
Þar til nú
á íslandi, Vatnagöröum 24, símar 38772
- 39460.
fHoíripmMaífoifo
Askriftarsíminn er 83033