Morgunblaðið - 09.12.1984, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.12.1984, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1984 B 25 Dansað á Framtíðarballi í SjálfsUeðishúsinu veturinn 1954—1955. Gangaslagur skólaveturinn 1954—1955. skrifaði undir eftirfarandi yfirlýs- ingu: „Af hagkvæmum og sögu- legum ástæðum teljum vér sjálf- sagt, og raunar skylt, að Mennta- skólinn í Reykjavík starfi fram- vegis, svo sem hingað til, í hinum virðulegu og sögufrægu húsakynn- um á lóð sinni við Lækjargötu." Pálmi rektor var meðal þeirra fimm, sem sögðu nei við tillögu Kristins Ármannssonar, og gerði Pálmi svofellda grein fyrir at- kvæði sínu: „Ég óttast, að sam- þykkt þessarar tillögu hafi það í för með sér, að enn dragist, að hafizt verði handa um útbætur á húsnæðismálum skólans, en þær tel ég enga bið þola. í annan stað tel ég mig bundinn af því jáyrði, sem ég hef goldið fyrri ákvörðun- um ráðuneytisins um þessi mál. Pyrir því segi ég nei.“ Það reynd- ist rétt hjá Pálma Hannessyni, að samþykkt þessarar tillögu hafði það í för með sér, að ekkert var gert um sinn í byggingarmálum Menntaskólans. Ekki verður séð, að Bjarni Benediktsson hafi gert neitt til þess að bæta úr húsnæðis- þörf skólans, en Bjarni var menntamálaráðherra til 1956. Það var ekki fyrr en árið 1963, í ráðherratíð Gylfa Þ. Gíslasonar og rektorstíð Kristins Ármanns- sonar, að hafizt var handa um að reisa nýbyggingu þá, sem nefnd er Casa nova. Með stöðvun framkvæmda við Hamrahlíð árið 1954 hafði sú stefna Pálma Hannessonar orðið undir að flytja skólann og reisa honum nýja byggingu. Þarf vart að draga í efa, að honum féll þungt að þurfa að hlíta þessum úrslitum. Allt frá árinu 1942 hafði rektor gert það, sem í hans valdi stóð, til þess að bæta úr húsnæðis- þörf stofnunarinnar og siðast lagt sjálfur fram mikla vinnu við und- irbúning og hönnun byggingar, sem reisa skyldi af stórhug. Sú vinna var nú öll unnin fyrir gýg. Tvær minnisverðar athafnir voru á sal þennan vetur báðar í janú- armánuði. Á jólaskákmótinu í Hastings vann Friðrik ólafsson fyrsta mikilsverða skáksigur sinn erlendis. Hann var þá nemandi í 5. bekk, og á fyrsta skóladegi eftir heimkomuna var honum fagnað með sérstakri samkomu á sal. Kristinn Ármannsson, settur rektor, færði Friðriki heillaóskir og 1000 kr. að gjöf úr skólasjóði. Þá tilkynnti inspector scholae, að Friðrik hefði verið útnefndur heiðursskólabróðir. Mun sú upp- hefð aðeins hafa hlotnazt Friðriki einum. Um sömu mundir var fjall- göngukappinn Sir Edmund Hillary í heimsókn á fslandi. Hann kom í skólann, var viðstadd- ur morgunsöng og ávarpaði nem- endur. Af Skólablaðinu komu út sjö tölublöð þennan vetur, og var þetta óvenjuvandaður og frumleg- ur árgangur undir ritstjórn Ólafs Pálmasonar. Meðal sérkenna var sú hugmynd að nota rúnaletur í fyrirsagnir í einu tölublaðinu. Meðal efnis í Skólablaðinu þennan vetur voru svipmyndir úr skólalífi og mynd af kennaraliðinu. Þetta var fyrsta hópmyndin, sem tekin hafði verið af því liði síðan 1880! Töluverða athygli vakti, að á að- aldansleik skólans í Sjálfstæðis- húsinu 6. apríl voru leikin nokkur atriði úr Narfa, leikriti Sigurðar Péturssonar. Það var fyrst leikið í Reykjavíkurskóla hinum gamla eða Hólavallarskóla árið 1799. — Fimmtabekkjarferð var farin um Vesturland og m.a. komið að Reykhólum (þar syg^u menn tvö hundruð metrana) 'Og í Bjarkar- lund. Við skólaslit vorið 1954 talaði Gunnar Thoroddsen borgarstjóri fyrir hönd 25 ára stúdenta og af- henti skólanum ræðustól að gjöf frá þeim félögum. Er þetta hinn ágætasti gripur, skorinn í eik af Ríkharði Jónssyni. Formælandi gefenda lét þau orð falla með stólnum, að hann ætti að fylgja húsinu. Þóttust menn sjá, að þessi athugasemd ætti að vera innlegg í deilurnar um nýja skólabyggingu og að 25 ára stúdentar vildu hafa skólann áfram í gamla húsinu og miðuðu gjöf sína við það. Veiði Video Kænn veiðimaður fangar fleiri fiska. Ljóstrað upp um veiðiaðferðir sérfræðinga. Hvert myndband er kennslustund heima í stofu, sem hægt er að horfa á aftur og aftur. íslenskur texti. Kr. 1.980.- i » » i I t i t i i i i i » i t i i TYING TROUT FLIES □ gomín. FLY FISHING FOR TROUT □ 6omín. NAFN _____________________________________________ HEIMILISFANG UNDIRSKRIFT Vorum að fá ullarkápur og jakka. Einnig gott úrval af dömuskóm. SKÓVERSLUN VIÐ ÓÐINSTORG SÍMI 14955

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.