Morgunblaðið - 09.12.1984, Side 6

Morgunblaðið - 09.12.1984, Side 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1984 rísey? Ja, þar ku vera besti bjór- inn á landinu." „Hrísey? Klassastaður, ég fór þangað í sumar og borðaði bestu nautasteik sem ég hef fengið innan íslensku iandhelginnar." „Hrísey? Var það ekki þar sem Jörundur hákarla- bani bjó?“ Eitthvað á þessa leið hljóðuðu athugasemdir starfsfélaga er fréttist af fyrirhugaðri Hríseyj- arför. Sjálfur vissi blaðamaður ósköp lítið um eyjuna. Eitthvað rámaði hann þó í fjölskylduferð þangað fyrir nokkrum árum, en þær minningar voru tengdar gönguferð í kalsaveðri út að nautabúinu og er þangað kom fékk enginn að skoða nautin, því veðrið var svo vont að það var ekki naut- um út sigandi og auðvitað engum hleypt inn í sóttvarnarstöðina. En nú er ætlunin að reyna að fá smá nasasjón af mannlífinu í eyj- unni, að svo miklu leyti sem það er unnt á einum degi. Við Árni Sæ- berg ljósmyndari tökum því dag- inn snemma, fljúgum til Ákureyr- ar og þaðan er brunað eftir ísi- lögðum vegi út á Árskógssand. Ferjan Sævar fer þrjár ferðir á dag milli lands og eyju, en auk þess er hægt að fá bátinn leigðan svotil hvenær sem er. Siglingin tekur ekki nema um 15 mínútur og því auðvelt að skjótast á milli, og margir Hríseyingar fara margar ferðir á viku. Um mánaðarmótin október-nóvember hafði báturinn flutt 24.561 farþega á milli í 1641 ferð. Ferðamannastraumur hefur farið vaxandi til eyjunnar í sumar, þar sem aðstaða fyrir tjaldgesti hefur verið bætt og veitingahús tók til starfa sl. vor. Næsta sumar er áætlað að ferðum verði fjölgað, komið verður upp gistiaðstöðu í veitingahúsinu fyrir a.m.k. 6 manns, og lokið verður við að bæta aðstöðu fyrir tjaldgesti, m.a. kom- ið þar upp sturtum. Og innkaupakarfa rúllar í takt viö sjávarganginn... Þennan föstudagsmorgun er verið að flytja vörur úr landi í kaupfélagið á eyjunni, vörurnar eru fluttar einu sinni í viku og frá áramótum hefur Sævar flutt 220 tonn af ýmsum varningi. Um borð eru því hlaðar af vörum, og innkaupakarfa rúllar í takt við sjávarganginn. Græna byltingin hefur greinilega haldið innreið sína í Hrísey, eitt hið fyrsta sem mætir augum okkar eru breiður af höfrum sem settir voru niður í vor. Við göngum fram hjá gömlum verbúðum sem eru skemmtilegar leifar gamla tímans á staðnum, nú eru uppi umræður í hreppnum hvort eigi að rífa skúrana eða reyna að varðveita þá. í Hrísey eru flestir annað hvort gangandi eða á hjóli. Bílana geyma þeir hinsvegar uppi á sand- inum í bílageymslum sem þeir eiga þar, sum heimili eiga tvo bíla. Við tökum stefnuna á Kaupfélagið á staðnum, okkur hafði verið bent á konu sem hét Alvitur og fannst tilvalið að leita hana uppi. Af- greiðslustúlkan í Kaupfélaginu brosir út í annað og hefur eflaust hugsað mér sér að það væri ekki einleikið hverju hægt væri að ljúga að þeim þarna fyrir sunnan. „Getur ekki verið að hún heiti Alvilda?" Ekki loku fyrir það skotið, mátti a.rfi.k. athuga málið, okkur er bent á hús i grennd við Kaupfélagið og þar er Alvilda Möller á tröppun- um. Alvilda kunni svör við öllu, þótt hún segðist ekkert vita um Hrísey „flutti hingað frá Siglu- firði á síldarárunum". Sólarlampar, mynd- bandaleiga og bjórlíki I Hrísey búa nú um 275 manns, að sögn sveitarstjórans Guðjóns Björnssonar. Þar mun hafa verið Yfir kertaljósi er spáð og spekúlerað í næstu Krötlugosum. 1‘órlaug Arn- steinsdóttir formaður og Vera Sigurðardóttir, einn af stofnendum klúbbs- ins. Guðjón Björnsson sveitarstjóri er í hópi hinna mörgu sem ætlaði að prófa stemmninguna en er búinn að búa í eyjunni í 21 ár! Athafnamaður á hjóli. Undir yfirborði kaffíbrúsakarlsins leynist ein aðal- driffjöðrin í eyjunni. búið frá því á landnámsöld, er Narfi Þrándarson nam eyjuna. Hrísey er önnur stærsta eyjan við landið, aðeins Heimaey er stærri. Eyjan er eins og áður sagði skammt undan ströndinni um 8 ferkílómetrar að flatarmáli, og segja sumir að hún sé leifar af strandlengjunni sem einhvern tíma hafi verið áföst við Árskógs- strönd. Sökum nálægðar við land og góðra samgangna eru íbúar ekki hinir dæmigerðu eyja- skeggjar, fylgjast vel með því sem er að gerast annarstaðar á land- inu, þar er því hægt að finna bæði sólbaðstofu og myndbandaleigu sem virðist orðinn ómissandi þátt- ur í þjóðarmenningunni. Og ekki má gleyma bjórlíkinu, sem bragð- ast a.m.k. ekki ver í Hrísey en annarstaðar, ótrúlega líkt hinum ósvikna bjór sem fæst aðeins í út- löndum. Athafnamaöur á hjóli Kaupfélagið í Hrísey gerir út togarann Snæfell, og Kaupfélagið veitir flestum íbúum vinnu. Örfáir vinna annars staðar, í Sparisjóðn- um, við Barnaskólann, á nauta- búinu, á Trésmíðaverkstæði eða hjá ungum athafnamönnum stað- arins. Birgir Sigurjónsson er einn þeirra. Hann keypti bát vorið 1979 í félagi við mág sinn Smára Thor- arensen. „Við stofnuðum fyrirtækið Borg hf. og konur okkar, Steinunn Sig- urjónsdóttir og Hólmfríður Jó- hannesdóttir eru meðeigendur." Veturinn 1981 byrjuðu þeir að verka fiskinn sjálfir, „hengdum fyrst út skreið í þar tilgerðum hjöllum sem við komum upp með aðstoð góðra manna, keyptum svo tilbúið hús frá Héðni, og erum ein- göngu með saltfisk og skreið. Árið ’82 þróaðist útgerð hér á staðnum, við fórum á línu, og brátt vantaði húsnæði fyrir aðkomufólk. Við stofnuðum dótturfyrirtæki Borg- ar, Brekku hf. og keyptum húsið Brekku sem verbúð. Þegar við höfðum veitt upp í kvótann, var fyrirséð að húsnæðið yrði ónotað í óbreyttu ástandi og hófumst þá handa við að breyta Brekku í veit- ingastað." Veitingastaðurinn Brekka er opinn allt árið um kring, og sér- hæfir sig m.a. í réttum úr nauta- kjötinu sem hvergi fæst annar- staðar á landinu. Á matseðlinum má sjá rétti sem minnir á uppruna kjötsins, Galloway sneiðar og fíeira álíka, en holdanautastofn- inn er sem kunnugt er ættaður frá Skotlandi. Birgir er með hug- myndir um að stækka veitinga- stofuna, eins og er tekur salurinn 35 manns í sæti, en þyrfti að vera stærri þegar þannig stendur á. Hann segist vera með um 12 manns í vinnu og hefur ýmislegt fleira á prjónunum, sótti m.a. um að setja upp refabú í eyjunni til að nýta fiskúrgang en sú hugmynd var ekki samþykkt. „Það þarf að koma upp fleiri at- vinnumöguleikum og fjölbreytt- ari.“ Hann segir eyjabúa þurfa tíðari ferjuferðir, og auk þess þurfi að gera staðinn byggilegri m.a. með ýmiskonar þjónustu fyrir ferðafólk. Birgir er fæddur og uppalinn í Hrísey en hefur ver- ið búsettur í Reykjavík og á Akur- eyri, og eins og margir aðrir at- hafnamenn segist hann hafa verið mikill villingur er hann var litill. „var alltaf sendur í sveit". Á fámennri eyju eins og Hrísey gegnir hver maður mörgum hlut- verkum, Birgir hefur m.a. tekið að sér að gera að sárum félaga sinna sem lent hafa í vinnuslysum, og saumað saman margan skurðinn. „Lærði það í Stýrimannaskólanum í gamla daga.“ Það er farið að nálgast hádegi og allir á leiðinni heim til sín í mat, ýmist gangandi eða hjólandi- Birgir tekur fram hjólhestinn og er samferða okkur frá fiskhúsinu upp að veitingahúsinu Brekku. Hafnaöi styrknum en búin aö vera í 30 ár „Ertu komin?" í húsi rétt ofan við veitingastaðinn Brekku býr ljósmóðir eyjunnar, Ingveldur Gunnarsdóttir, og virðist ekkert undrandi þótt blaðafólk Mbl. ryðj- ist inn á hana. Hún býður upp á ilmandi kúmenkaffi, og segist ekki geta hugsað sér að vera annar- staðar en í Hrísey. „Ég er þannig manneskja að ég kann alltaf best við mig þar sem ég er. Ég er alin upp í Flateyjardal, og ætlaði mér að vinna hér í Hrísey að loknu ljósmæðranámi. Ég hef oft hent gaman að því að þegar ég var • náminu fyrir um 30 árum, var mér boðinn styrkur frá Hríseyjar- hrepp með því skilyrði að vinna í þrjú ár í eyjunni að námi loknu- Það fannst mér allt of langur timi og hafnaði því styrknum. En hér hef ég nú verið í 30 ár!“ Það virðist nokkuð algengt • Hrísey eins og reyndar fleiri eyj- um við landið, að fóik kemur og

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.