Morgunblaðið - 09.12.1984, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1984
B 7
ætlar að vera í stuttan tíma en
sest svo að. Sömu sögu sagði okkur
oddvitinn í Hrísey, Björgvin
Pálsson sem keyrði með okkur um
vegi og vegleysur um eyjuna.
Hann ætlaði upphaflega að byggja
eitt hús í Hrísey, en þau urðu sí-
fellt fleiri og nú hefur hann verið í
eyjunni í 20 ár!
Eins og fleiri í eyjunni hefur
Ingveldur gegnt mörgum hlut-
verkum. Hún hefur um árabil ver-
ið með „apotek" staðarins, „ég var
með heilsugæslu fyrstu árin mín
hér, hafði þá samband við lækninn
á Dalvík, hann kom hingað bara í
neyðartilfellum en lét mig um að
útvega meðul, og í 20 ár var ég
með meðulin á staðnum."
Nú kemur læknir til Hríseyjar
einu sinni í viku en Ingveldur er
enn með meðulin.
Hún segist vera búin að taka á
móti 60—70 börnum frá upphafi,
jfyrstu tuttugu árin fæddu konur
svo til eingöngu í eyjunni, en nú
fæða þær allar á Akureyri.
„Það komu þó alitaf annað slag-
ið fyrir að fylgjur festust eða
eitthvað þessháttar, en þá lét ég
sækja lækninn. Ein barnsfæðing
raskaði lítið ró heimilanna hér áð-
ur fyrr, konurnar voru á fótum
fram á síðasta dag, það var kallað
í mig þegar þær voru komnar með
verki og eftir smá stund var allt
um garð gengið. Ég get ekki hugs-
að mér eðlilegri hlut en barnsfæð-
ingu. Það var ekkert mál að eign-
ast barn hér áður fyrr. Það er
eitthvað annað en núna.“
Og hún segist vera ósköp ánægð
með að vera komin yfir barneigna-
aldur. „Máttu spyrja mig hvað ég
sé gömul? Svo sannarlega! Ég er
53 ára og man ekki eftir því að
hafa verið á betri aldri, það trúið
því áreiðanlega enginn fyrr en
hann reynir það sjálfur!"
í dag sér Ingveldur um mæðra-
skoðun og ungbarnaeftirlit, „ég
hef verið með svona 5—7 börn á
ári“. í tómstundum hefur hún m.a.
tekið þátt í störfum leikfélagsins,
„lék Siggu gömlu í Deleríum í
fyrra. Jú, það er eitt neikvætt við
það að eldast, og það er að vera
ekki gjaldgengur í öll kvenhlut-
verkin lengur! “
Seinna fréttum við að Ingveldur
ætti það til að kasta fram einni og
einni vísu, og þessi vísa eignuð
henni sem varð vitaskuld til í
verkfallinu, er hún líkt og aðrir
gat ekki náð í uppáhaldstóbakið
sitt. Vísan er sungin við sama lag
og hlíðin mín fríða:
Svæli ég Salem
sigarettur núna.
í harðindum hálmur
var lagður fyrir kúna.
Mig er lagt á meira
mótlæti að þola
en beljur og bola
Kröflugos?
Kröflugos! Við rekum augun í
auglýsingu í glugga Kaupfélags-
ins. Undir þessari hrópandi fyrir-
sögn stendur skrifað smærri stöf-
um: „fyrirhugað er að halda leik-
listarnámskeið ef næg þáttaka
fæst. Allt áhugafólk velkomið og
einnig þið áhugalausu, komið og
fáið áhuga."
Það er leikklúbburinn Krafla
sem stendur fyrir þessari auglýs-
ingu. Við lítum inn hjá forsvars-
mönnum leikklúbbsins, þeim Þór-
laugu Arnsteinsdóttur formanni
og Veru Sigurðardóttur sem er
einn af stofnfélögum klúbbsins og
jafnframt fréttaritari Mbl. á
staðnum.
— Eru margir búnir að skrifa
sig niður á námskeiðið?
Þær skiptast á dularfullum
augnsendingum.
„Ætli við séum ekki búnar að
skrifa niður svona 10, þar af einn
sem við höfum ekki talað við enn.“
— Hafa hinir áhugalausu skil-
að sér?
„Það fá allir áhuga. Við höfum
gengið í hús og kallað í fólk á götu
með góðum árangri!"
Við fáum að vita að leikklúbbur-
inn var stofnaður í febrúar 1977,
og hefur sett upp sex leiksýningar,
flest gamanleikrit, Blessað barna-
Texti: Vajgeföur Jónsdóttir
Myndin Ámi Sæberg
lán, Barn í vændum, Beðið í
myrkri, Afbrýðisöm eiginkona,
Orrustan á Hálogalandi, Deleríum
Bubonis, „og ekki má gleyma
kabarettunum“ bæta þær stöllur
við, og segja Árna Tryggvason
leikara, sem á sumarhús í eyjunni
vera búinn að bjóða fram aðstoð
sína við kabarettsýningu næsta
vor.
„Okkur gengur yfirleitt ágæt-
lega að fá leikara í kvenhlut-
verkin, enda eru þau yfirleitt mun
færri í flestum leikritum, en það"
er verra með karlana, þeir hafa
víst svo mikið að gera!“
Um 20 manns eru félagar í
Kröflu, „það eru bara tveir karl-
menn í klúbbnum hérna núna,
hinir eru á sjó“.
Leikklúbburinn Krafla hefur
farið með sýningar í nágranna-
sveitirnar. „Við höfum m.a. farið
til Raufarhafnar og tvisvar til
Grímseyjar. í Grímsey fengum við
eitt sinn 64 áhorfendur af um
hundrað heimilisföstum íbúum,
áhorfendur voru a öllum aldri, frá
þriggja mánaða og upp úr. Við
settum jafnvel upp barnagæslu
meðan á sýningu stóð.“
Þessar umræður um barna-
gæslu leiða hugann að leikskólum
og sambærilegum stofnunum, og
við fáum þær upplýsingar að í
Hrísey sé ein dagmamma starf-
andi.
— Hvaða leikrit ætlar
Leikklúbburinn Krafla að taka til
sýninga í vetur?
„Við ætlum að sjá hvað kemur
út úr þessu námskeiði," segir Þór-
laug og við kveðjum þær stöllur
þar sem þær sitja yfir kertaljósi '
að spá og spekúlera í næstu
Kröflugosum.
Auk leikfélagsins eru fleiri félög
starfandi í eyjunni, ungmennafé-
lag, slysavarnardeild, Lyonsklúbb-
ur, kvenfélag og foreldrafélag.
Presturinn er að heiman „fór með
bátnum í morgun" segja þau Al-
vilda og hreppstjórinn Björn
Björnsson þar sem við stöndum og
horfum yfir grænu byltinguna.
„Leitt að þið skylduð ekki koma
fyrr,“ segir hreppstjórinn, „hér
var allt fullt af rjúpu fyrir nokkr-
um vikum, þær voru hér hundruð-
um saman."
— Þið takið ekkert fram hagla-
byssurnar og farið á rjúpnaveið-
ar?
Hreppstjórinn virðist hneyksl-
aður á spurningunni.
„Nei, við látum þá uppi á landi
um það,“ og bætir svo við „annars
er okkur sagt að það sé auðveldur
leikur að skjóta rjúpurnar sem
hafa verið hér á eyjunni, þær eru
allt of gæfar og gæta ekki að sér.“
Það er tekið að kvölda og tími til
kominn að bragða á Galloway
sneiðum og Brekkusnigli, en svo er
bjórlíkið nefnt í Brekku. Kjötið á
góðri leið með að verða ekta Gall-
oway að sögn Guðjóns Björnsson-
ar sveitastjóra, en hann var ráðs-
maður á Einangrunarstöðinni
fyrstu árin. Guðjón bætist í hóp
þeirra sem komu til eyjarinnar og
ætluðu í fyrstu ekki að vera lengi.
„Ég giftist konu héðan úr Hrís-
ey og langaði að prófa stemmning-
una á staðnum svona eitt til tvö
ár, en er búinn að vera í 21 ár.“
Hann segir Hríseyingum ekkert
að vanbúnaði, þurfi þó að bæta
hafnaraðstöðuna á Sandinum,
„Þar eru allt of mikil þrengsli,
jafnvel í verstu veðrum verður að
leggjast utan í stóra báta og láta
fólk brölta yfir þá.“
Stytta af gömlum guðföður eyj-
unnar, Jörundi Jörundssyni, sem
nefndur var Hákarla-Jörundur
ber við himinn á leið niður að
bryggju að Sævari. Við ákveðum
að koma aftur næsta dag og leita
uppi afkomendur hans.
NÆSTA SUNNUDAG:
FISKRÆKT
ER FRAMTÍÐIN
— segir Björn Ólason
afkomandi Hákarla-
Jörundar sem fæddur
er og uppalinn í Hrísey