Morgunblaðið - 09.12.1984, Side 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1984
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Lúsíubrauð
og smákökur
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
úsíuhátíð er
einkum hald-
in í Svíþjóð,
þar sem hin
ljósum
krýnda,
syngjandi Lúsía ásamt
meyjum sínum færir fólki
Lúsíubrauð í rúmið að
morgni hins 13. desember.
Lúsía var dýrlingur frá
Sikiley sem dó árið 304.
Var hún fyrst dýrkuð á ít-
alíu en síðar norður um
Evrópu. Tveir kirkjur á
íslandi voru helgaðar
Lúsíu í katólskum sið. í
annarri þeirra var eina
Lúsíumyndin, sem getið
er um að til hafi verið á
Norðurlöndum fram á 16.
öld. Eftir siðaskiptin varð
mikil breyting á eðli
Lúsíu á Norðurlöndum og
hún varð smám saman að
hættulegum myrkravætti
í skammdeginu eins og
Grýla á íslandi. Á sama
hátt og íslensku jólasvein-
arnir hafa bætt ráð sitt
hina síðari áratugi, er sú
Lúsía sem heiðruð er í
Svíþjóð á okkar dögum
bæði góð og fögur.
Á síðari árum hefur
Sænsk-íslenska félagið
haldi Lúsíuhátíð hér á
landi, en fyrst mun Lúsíu-
hátíð hafa verið haldin á
Akureyri árið 1946. Þá
hafði sænskur maður,
Gösta Myrgart, komið til
Akureyrar til að æfa
karlakór Akureyrar. Á
hljómleikum sem haldnir
voru í Nýja bíói 13. des-
ember komu nokkrar
stúlkur, nemendur úr
Menntaskólanum á Akur-
eyri, fram sem Lúsíur.
Voru þær 11 talsins,
klæddar hvítum kyrtlum
og báru logandi kerti, en
sú sem fremst gekk bar
járnkórónu á höfði með 5
logandi kertum. Var það
Guðrún Tómasdóttir
söngkona sem söng þar
einsöng, Ave María eftir
Schubert, en hinar 10
Lúsíurnar sungu síðar
ásamt henni Santa Lúsia
við texta sem birtist hér
með laglínum úr laginu.
Fleira er á boðstólum í
þætti þessum en hið
sænskættaða Lúsíubrauð,
svo sem piparhnetur sem
munu vera danskar jóla-
kökur og íslenskar gyð-
ingakökur, sem mörgum
finnst ómissandi kökur á
jólunum.
Lúsíubrauð
500 g hveiti
1V2 dl sykur
'k tsk salt
1 g saffron (mjög dýrt fagurgult
krydd)
50 g pressuger eða þurrger
1 eggjahvíta
1 egg
150 g smjörlíki
1 'k dl mjólk
1 eggjarauða + 1 tsk volgt vatn
nokkrar kúrennur
1. Sigtið saman hveiti, sykur og
salt.
2. Bræðið smjörlíki, kælið örlít-
ið.
3. Hitið mjólkina í 35°C. Þið
getið fundið hitastigið með því
að dýfa litlafingri í mjólkina. Ef
hvorki finnst hiti né kuldi er
mjólkin mátulega heit.
4. Hrærið gerið út í mjólkina, ef
þið notið pressuger, en stráið út
í hveitið, ef þið notið þurrger.
5. Myljið saffronþræðina út í
mjólkina. Best er að steyta þá í
morteli. Stundum er saffron í
duftformi.
6. Blandið saman mjólk
(pressugeri), eggjahvítu, eggi og
smjörlíki. Hrærið út í hveiti-
blönduna með sleif eða setjið í
hrærivél. óþarfi er að hræra
lengi.
7. Breiðið þunnt stykki eða
plast yfir skálina, setjið volgt
vatn í eldhúsvaskinn (35°C), lát-
ið skálina standa í vatninu þar
til deigið hefur lyft sér.
8. Hnoðið deigið síðan með ör-
litlu hveiti og mótið brauð eins
og á myndinni.
9. Penslið brauðin með eggja-
rauðu/vatni, setjið nokkrar kúr-
ennur ofan á.
10. Breiðið stykki yfir brauðið,
og látið lyfta sér meðan bakara-
ofninn er að hitna.
11. Hitið bakaraofninn í 210°C.
Bakið brauðin í miðjum ofninum
í u.þ.b. 10 mínútur.
Athugið
Saffron er mjög dýrt krydd,
sem er oftast selt sem þræðir. I
einu kryddboxi eru 2—3 g af
kryddinu. Boxið virðist nærri því
tómt. Þetta kryddbox kostar á
þriðja hundrað krónur. Saffron
gefur sérstakt bragð. Mér vitan-
lega getur ekkert annað krydd
komið í þess stað. Ég hefi nokkr-
um sinnum rekið mig á, að af-
greiðslufólk í verslunum bendi
fólki á að kaupa annað fagurgult
krydd, sem heitir turmerik. Það
krydd er ódýrt, en á ekkert skylt
við saffron annað en litinn.
Betra er að sleppa kryddi alveg í
brauðin en nota turmerik.
Piparhnetur
125 g smjörlíki
375 g syróp
125 g púðursykur
500 g hveiti
Vi tsk kanill
'k tsk negull
1 tsk engifer
'h tsk pottaska (lyftiefni sem
fæst víða)
'k tsk hjartarsalt
1. Setjið smjörlíki, syróp og púð-
ursykur í pott, látið sjóða upp.
2. Hrærið pottöskuna út með 'h
msk af vatni og setjið út í pott-
inn, þegar suðan er alveg farin
úr.
3. Blandið saman hveiti, hjartar-
salti, kanil, negli og engiferi.
Hrærið út í pottinn með sleif.
4. Látið deigið standa við stofu-
hita í 2—3 daga.
5. Mótið litlar kúlur úr deiginu.
Leggið á smurða bökunarplötu
og bakið við 190°C í 10 mínútur.
Stærð kúlanna er á við stóra
heslihnetu. Athugið: Þetta deig
geymist mjög vel, jafnvel vikum
saman, en ef þið ætlið að geyma
það, þarf það að vera á köldum
stað. Takið það úr kuldanum
nokkrum klst. áður en það er
mótað.
Gyðingakökur
100 g smjör
100 g smjörlíki
150 sykur
2 egg
425 g hveiti
Vi tsk hjartarsalt
8 steyttar kardimommur (má
sleppa)
200 g möndlur
2 msk sykur
1. Setjið hveiti, sykur og hjart-
arsalt í skál ásamt steyttum
kardimommum.
2. Skerið smjörið og smjörlíkið
smátt og nuddið saman við
hveitið.
3. Sláið eggin sundur og bætið
saman við deigið.
4. Hnoðið deigið vel saman þar
til það er alveg sprungulaust.
Geymið deigið á köldum stað í 6
klst.
5. Fletjið deigið eins þunnt út
og þið getið. Mótið kringlóttar
kökur með glasi.
6. Þeytið eggjahvíturnar saman
með gaffli.
7. Afhýðið möndlurnar með því
að hella yfir þær sjóðandi vatni
og láta þær standa í því í 5 mín-
útur.
8. Saxið möndlurnar með hníf.
Setjið sykur saman við þær.
9. Smyrjið kökurnar með eggja-
hvítu og stráið möndlunum og
sykrinum yfir.
10. Hitið bakaraofninn í 180°C
og bakið kökurnar í miðjum
ofninum í 10 mínútur.
Hæ og hó.
i dag drögum vid Hreinn um 9
Fisfier Price kubbakassa frá
Kristjánsson hf.
Númerin eru:
213313 61961 118944 144289
28287 136364 128446 197468
198988
Vinningshafar hafi samband við
skrifstofu S/Á/Á i síma 91-82399.
Ps. Það skiptir engu máli hvenær
miðarnir voru greiddir.