Morgunblaðið - 09.12.1984, Síða 17

Morgunblaðið - 09.12.1984, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1984 B 17 A ráðstefnunni sagði dr. Rosenthal ... að 30 af 34 sjúklingum hefðu breyst í vvorglatt“ fólk pegar þeir voru látnir vera í björtu ljósi ... SJÁ: Slen & þunglyndi BLOÐBAÐ Ekkert lát á ofsóknunum jT í Iran Baháíar og gyðingar í íran hafa þúsundum saman flúiö ofsóknir í heimalandi sínu og komist til Pakistan. Þaðan leita þeir eftir pólitísku hæli á Vestur- löndum. Frá þessu hefur lítt verið skýrt opinberlega og er megin ástæðan náin viðskiptatengsl Pak- istans og írans. Talsmaður Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna skýrði ný- lega frá því í Islamabad í Pakistan að á síðustu þremur árum hefði tugum þúsunda Baháía tekizt að komast frá íran til Pakistans, en þaöan hafa þeir dreifst til ýmissa Evrópulanda auk Bandaríkjanna, Kanada og Ástralíu. Baháíar sæta meiri ofsóknum í íran en fólk af öðrum trúflokkum vegna þess að þeir eru sannfærðir um að öll trúarbrögð séu í grund- vallaratriðum þau sömu. Stjórn- völd á Vesturlöndum hafa gert lít- ið til þess að hjálpa þeim til að flytjast búferlum en söfnuðir Ba- háía í Evrópu og Norður-Ameríku hafa gengist fyrir fjársöfnunum, reynt að hafa áhrif á þjóðþingin í löndum sínum og útvegað flótta- mönnum farmiða og vegabréfsá- ritanir. Baháíarnir, sem koma frá íran, hafa ófagrar sögur að segja. Þeir hafa meðal annars skýrt frá því að byltingarverðir hafi drepið heilar fjölskyldur. Þá hafi konum verið nauðgað, áður en þær voru drepn- ar eða þvingaðar til að ganga af trú sinni, og ennfremur hafa börn verið skotin við landamærin til að koma í veg fyrir að foreldrar þeirra stykkju úr landi. Þess eru líka dæmi að fólk hafi verið látið greiða stórfé í mútur til að fá brottfararleyfi en brögð verið af því að landamæraverðirnir hafi hirt peninga og rekið fólkið við svo búið aftur til Teheran. Herforingjastjórninni í Pakist- an hefur verið óljúft að skýra frá morðum og illri meðferð á fólki í íran vegna þess að samskipti landanna eru náin sem fyrr er sagt. Stjórnin í Teheran hefur samt á undanförnum árum hvatt Baháíar hafa raunar löngum verið ofsóttir í íran. Myndin af þessum tveimur í hlekkjum er frá 1896. Múgurinn ræðast að einum af helgi- dómum Baháía. til trúbyltingar í Pakistan. En að undanförnu hefur hún látið af allri gagnrýni í garð Pakistana vegna þess að íranir eru mjög háðir innflutningi frá þeim vegna Persaflóastríðsins við Iraka. Um 50.000 efnaðir kaupsýslu; menn og iðnaðarmenn hafa flúið frá Teheran og setzt að í Pakistan. Þeir hafa komið þar á fót fyrir- tækjum. Þúsundir manna af ætt- flokki Baluch í íran hafa einnig flúið til Pakistans vegna þess að þeir hafa verið ofsóttir og þvingaðir til þess að taka þátt í bardögum við íraka. Þá hafa Pak- istanar veitt viðtöku um það bil þremur milljónum Afgana. Það er því allt annað en auðvelt fyrir þá að taka við fleiri flóttamönnum frá íran, og ekki sízt þar sem um „vinveittar" þjóðir er að ræða og með sömu trúarbrögð. — JOHN STOKES IIMFEHDARMAL Kassinn sem kjaftar frá Hong Kong er sú borg á heims- byggðinni þar sem umferðar- öngþveitið er mest og nú er nýtt áhyggjuefni að bætast við hjá bíl- stjórunum þar. Innan þriggja ára á hver einasti bíll að vera kominn með lítið box, á stærð við venjulegt myndband, sem soðið verður fast fyrir aftan númerið að framan og mun, ef allt gengur eftir, koma í veg fyrir verstu „æðahnútana" í gatna- kerfinu. Raunverulega er um það að ræða, að stjórnin í krúnunýlend- unni ætlar að selja aðgang að mið- borginni á mesta umferðartíman- um. Ökumenn í öðrum löndum hafa fulla ástæðu til að óttast tilraunina í Hong Kong. Að vísu hefur hún komið til tals í Bretlandi og verið hafnað en nú eru breskir tölvu- og rafeindasérfræðingar að verða sér úti um dýrmæta reynsiu með því að koma svona kerfi upp í Hong Kong. Ekki tekur nema tíu mínútur að koma fyrir „rafeindanúmerinu" eins og ökumenn eru farnir að kalla boxið sem tekur við sér og skráir ferðir bílsins þegar hann fer fram- hjá móttakara í götunum á vissum NIGERIA Mál að linni, finnst þeim hjá Amnesti Aftökusveitir hafa tekið af lífi rösklega 70 manns í Nígeríu frá því að herinn tók þar öll völd undir forustu Buhari hershöfð- ingja. Þeir, sem dæmdir hafa verið til dauða, hafa stundum verið flutt- ir til heimahaga sinna og skotnir fyrir framan fjölskyldur sínar. Síðustu aftökurnar sem sögur fara af þar um slóðir áttu sér stað í Port Harcourt fyrir skömmu. Sex menn, sem fundnir höfðu verið sek- ir um vopnað rán, voru leiddir fyrir aftökusveit á íþróttavelli bæjarins. Samtökin Amnesty Internation- al hafa farið þess á leit við ríkis- stjórn Nígeríu að hún láti af þess- um aftökum. í málaleitan samtak- anna segir, að mikill áhorfenda- skari fylgist jafnan með þegar líf- tímum dagsins, en þeim hefur verið komið fyrir í um 200 aðalgötum og gatnamótum, sem liggja að mið- bænum. Raunar er varla rétt að tala um vissan tíma því að hann stendur frá 7 á morgnana til 7 á kvöldin og í hvert sinn sem bifreið fer framhjá sendir móttakarinn boð eftir símalínum til tölvumiðstöðv- ar, sem skráir númer viðkomandi bifreiðar, dagsetningu og tíma dagsins. Við mánaðamót fær bíleigandinn reikninginn fyrir afnotin af gatna- kerfi miðbæjarins á mesta umferð- Herforingjarnir eru ósparir á líf- látsdómana. látsdómum sé framfylgt og að ekki sé óalgengt að börn séu meðal áhorfenda. Innanríkisráðherra Nígeríu, artímanum. Meðalreikningurinn gæti verið þetta 18—32 dollarar, 720—1280 ísl. kr., á mánuði og aukaútgjöldin á ári um 400 dollar- ar, um 16.000 ísl. Umræðan í Hong Kong um þetta mál er dálítið taugaveiklunarkennd og menn langar að vita hve miklar upplýsingar munu verða skráðar á reikninginn. Ætlar „stóri bróðir" að fara að fylgjast með ferðum hvers einasta manns? Verður fjölskyld- unni kannski sagt nákvæmlega frá því hvar ökuþórinn var á ferð síð- asta mánuðinn? Sumir óttast líka, að nýja kerfið geti fjölgað umferðarhnútunum þannig, að menn taki allt í einu upp á því að snúa við á óheppilegum stöðum til að forðast gjaldheimtu- manninn í götunni. Af þessu hafa Hong Kong-búar nokkrar áhyggjur en John Dawson, talsmaður Transpotech, breska fyrirtækisins, sem sér um að koma upp kerfinu, segir, að innheimtan verði með alveg sama sniði og hjá símanum. „Áætlað er, að þrír fjórðu daglegs aksturs í Hong Kong verði ekki skattlagðir," segir Dawson. „Svarti kassinn er þannig úr garði gerður, að það á ekki að vera hægt að fikta neitt við hann og með allar upplýsingar er farið sem algert trúnaðarmál.“ - SUE BAKEK hvatti einn ríkisstjóra landsins til þess í september sl. að láta hraða fullnægingu dauðadóma til þess að rýmka í fangelsum landsins, en samkvæmt nýjustu fréttum bíða nú rúmlega 800 manns þess að verða teknir af lífi í Nígeríu. Þær herforingjastjórnir sem far- ið hafa með völd þarna í landinu hafa jafnan iðkað það að láta taka menn af lífi opinberlega til þess að halda uppi lögum og reglu, eins og það er orðað. Lengi vel var algengt að fullnægja dauðadómunum í Bar Beach í Lagos og sjónvarpa frá af- tökustaðnum. í júlí sl. gengu í gildi lög, þar sem kveðið er á um, að menn verði leiddir fyrir aftökusveitir ef þeir hafa gerst sekir um peningafals- eða íkveikjur. Amnesty International fer þess nú á leit við æðsta herráð Nígeríu að það breyti dauðadómum þeim, sem það fær til staðfestingar og fái dómstóla landsins til þess að haga refsingum í samræmi við það, sem þykir réttlátt og sanngjarnt meðal lýðræðisþjóða. - RI('HAKI) HALL KÍNA/TÍSKAN Hætt að þykja fínt að vera luralegur Svínahirðir í Kína leitaði ný- lega til „Flokksins" síns og bað hann þess lengstra orða, að hann losaði sig við stórpólitískt vandamál: Hvort átti hann heldur að klæðast upp á vestræna vísu eða nota bara gamla maójakkann sinn þegar hann öslaði forina á eftir svínunum sínum? Það, sem olli svínahirðinum áhyggjum, voru tilmæli Hu Yaob- ang, aðalritara kommúnista- flokksins, í fyrra mánuði þegar hann skoraði á Kínverja að sýna í verki stuðning sinn við umbóta- stefnu flokksins með því að ganga í nýtískulegum fötum. í Kína þýð- ir það að klæðast eins og Vestur- landamenn. Nýsköpun er lykilorðið í kín- verskum stjórnmálum nú um stundir og svínahirðirinn er að reyna að átta sig á því hvað það þýðir. Fyrir Deng Xiaoping þýðir það, að um aldamótin hafi þjóðar- framleiðslan verið fjórfölduð og Kína orðið þróað land eftir 50 ár. Það er að segja, ef það tekst að koma „vinstrivillunni", sem Deng kallar maóismann, fyrir kattarnef og gefa nýsköpuninni lausan tauminn. Það er þess vegna sem Kínverjar eiga að fara í vestræn föt en kasta maóklæðunum. Nú er það svo í Kína, að það er engin ný bóla að flokkurinn skipti um kúrs og þess vegna vilja menn hafa vaðið fyrir neðan sig, sér- staklega menntamennirnir. Ein- hvers staðar á kistubotninum eiga þeir enn snjáðu og bættu maófötin sín ef það skyldi nú allt í einu ríða á lífi þeirra að líta út eins og ör- eigi. Vestrænu fötin eru stundum allra andst.vggð, stundum það eina rétta. Það, sem flokkurinn getur þó alltaf reitt sig á, er að fólkið játar allt með vörunum. Það kemur Kínverjum ekkert á óvart þótt þeir þurfi að sýna flokknum hollustu með ýmsum hætti en það, sem þá langar til að vita, er hvað kemur næst. Fyrir réttu ári var skorin upp herör gegn andlegri mengun, smáborg- aralegu klámi eins og það var kall- að, og ungar konur með axlasítt hár stöðvaðar á götum úti og skip- að að setja hárið í tagl. Verkamað- ur í verksmiðju var neyddur til að gagnrýna sjálfan sig fyrir að eiga í fórum sínum eftirprentun af málverki eftir Botticelli og tíbesk- ir hirðingjar voru varaðir við að skemma sjálfa sig með því að lesa franska rithöfundinn Jean Paul Sartre. Þessi herferð var runnin undan rifjum andstæðinga Dengs og í mánuð eða tvo fóru þeir sínu fram. Einstaklingshyggju, öllu, sem út- lent var, og nýsköpuninni var út- húðað en gömlu byltingarhugsjón- irnar hafnar upp til skýjanna. Þá náðu Deng og hans stuðnings- menn undirtökunum á ný. í janúar á þessu ári baðst Hu, aðalritari kommúnistaflokksins, opinberlega afsökunar á því í ræðu að hafa ekki komið því við að mæta í vestrænum fötum og hundruð milljóna Kínverja vissu þá hvað klukkan sló. Að vera „fal- legur og fínn“ var nú aftur orðið ofan á og þýðir t.d. sítt hár, vara- litur og klæðnaður, sem leyfir sköpulaginu að njóta sín. Það er því ekki að undra þótt einn vesæll svínahirðir hafi lent í ógöngum þegar hann fór að velta fyrir sér tiskunni. - JONATHAN MIRSKY

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.