Morgunblaðið - 09.12.1984, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1984
B 31
Spánn og Portúgal í EB:
Inngangan
frestast
trúlega
Brussel. 6. desember. AP.
FLEST ÞYKIR nú henda til þess að
fjölgunin innan Evrópubandalags-
ins, sem var á dagskrá 1. janúar
1986 verði frestað. Spánn og Portú-
gal áttu þá að taka sæti í bandalag-
inu, en mörg vandkvæði hafa orðið
til þess að óttast er að færa verði
aftur um óákveðinn tíma inngöngu
þeirra.
í Brussel er nú nýlokið leiðtoga-
fundi bandalagsríkjanna tíu og
endurspegluðu viðræðurnar þar
nokkuð vel þau vandamál sem
uppi eru, en þau snúa að ýmsu,
m.a. vínframleiðslu Spánar og
Portúgals, fiskveiðum og fleiru. Þó
tókst leiðtogunum að koma sér
saman um ýmis tilboð til handa
inngönguþjóðunum, en þar setti
strik í reikninginn, að gríski full-
trúinn áskildi sér rétt fyrir hönd
stjórnar landsins, að setja stólinn
fyrir dyrnar og hefta framgöngu
inngöngunnar, ef ekki tækist að
afla aukins fjármagns til að efla
landbúnað og iðnað í landinu.
Forsætisráðherra
Nýja-Sjálands:
Mótmælir
kjarnorku-
tilraunum
Frakka
WHIjntjlon, 7. desember. AP.
DAVID Lange, forsætisráðherra
Nýja Njálands, sendi í dag frá sér
harðorð mótmæli vegna kjarnorku-
vopnatilrauna Frakka við Mururoa-
eyjar í Nuður-Kyrrahafi í vikunni.
Lange sagði að sérfræðingar á
Nýja Sjálandi hefðu orðið varir
við tvær tilraunasprengingar neð-
anjarðar síðustu daga. Hin öflugri
þeirra varð í morgun, en hin sl.
sunnudag. Lange kvað það ekki
skipta máli hver styrkur spreng-
inganna væri, heldur hitt að
Frakkar héldu þessum tilraunum
áfram þó að fyrir lægju skýlaus
mótmæli við þeim frá stjórnvöld-
um og almenningi á Nýja Sjálandi
og öðrum ríkjum í Suður-Kyrra-
hafi.
Bangladesh:
Sovétmenn
bjóðast til
að reisa
kjarnorkuver
PhaKa, Bangladesh, 5. deaember. Al*.
SOVÉTRÍKIN hafa boðist til að fjár-
magna gerð 440 megavatta kjarn-
orkuvers í norðvesturhluta Bangla-
desh, að því er erlendir sendiráðs-
menn sögðu í dag.
Sögðu þeir einnig, að Sovét-
menn settu það skilyrði fyrir að-
stoð sinni, að samkomulag tækist
um nokkur pólitísk atriði, en vildu
ekki skýra það nánar.
Samskipti ríkjanna biðu hnekki,
þegar 14 sovéskir utanríkisþjón-
ustumenn og sendiráðsstarfsmenn
voru reknir úr landi í desember í
fyrra, sakaðir um starfsemi sem
samræmdist ekki stöðu þeirra.
Bangladesh hefur enn ekki svar-
að tilboði Sovétmanna að sögn
heimildarmannanna.
Ingólfur opnar
jólatréssölu
BJöRGUNARSVEIT Ingólfs mun
opna jólatrjáamarkaði sína mánu-
daginn 10. desember og verða þeir
á eftirtöldum stöðum: A tjaldstæð-
inu í Laugardal, í Mjóddinni í
Breiðholti, í Gróubúð — björgun-
arstöð sveitarinnar á Grandagarði
og við verzlunina Glóey í Ármúla.
{ fréttatilkynningu frá Ingólfi
segir að sveitin muni kappkosta
að vera með gott úrval trjáa á
Ein af torfærubifreiðum Björgun-
arsveitar Ingólfs.
bezta fáanlega verði. Kredit-
kortaþjónusta verður á öllum
stöðunum. Öll vinna sveitarinn-
ar er unnin af sjálfboðaliðum.
Tækjakostur sveitarinnar krefst
mikils viðhalds og reksturs-
kostnaðar og er nær eingöngu
fjármagnaður af frjálsu fram-
lagi borgarbúa. Því — segir í
frétt frá Ingólfi — væntum við
þess að borgarbúar taki okkur
vel í fjáröflun Björgunarsveitar
Ingólfs.
HINSEGIN SÖGUR
FORLAGK) kynnir
qlettileqa qóðar bækur
á viðráðanlegu verði
Guðbergur Bergsson
Skáldið skyggnist inn í leyndustu afkima þjóðlífsins og
dregur sitthvað fram í dagsljósið. Þrettán sögur eftir einn
fremsta og frumlegasta rithöfund okkar. Meðal þeirra má
nefna Hanaslag hommanna, Undrið milli læranna, Sætu
ánamaðkastúlkuna og Náttúrulausa karlinn. Seiðandi sögur
- tileinkaðar ástarlífi Tslendinga á öllum sviðum.
Þórarinn Eldjárn
Þórarinn hvessir stílvopnið og yrkir á opinskáan hátt um
lífsreynslu sína og stöðu sem listamaður. Honum verður
málið, máttleysi þess og möguleikar að yrkisefni og á
skorinorðan hátt yrkir hann um líf þjóðar sinnar í andlegu
stefnuleysi og tilfinningadoða. Áleitin jjóð sem hitta í mark.
Verð kr. 494,00.
Verð kr. 691,60.
EKKERT SLOR
Rúnar Helgi Vignisson
Sögusviðið er Fiskhúsið hf. í iðandi mannlífi sögunnar birtast
ungir þorpsbúar sem fengið hafa slor í hárið og dreymir
drauma um lífið utan frystihússins. Oftar en ekki tengjast
draumar þeirra hinu kyninu sem flögrar fyrir augum þeirra
meðan bónusinn sveiflar sviþunni yfir mannskapnum. Ólg-
andi og óstýrilát skáldsaga ungs höfundar. Verö kr. 494,00
GAGA
Ólafur Gunnarsson
Saga Valda í sjoppunni, mannsins sem ákveður að skipta
um plánetu og vaknar morgun einn á Mars. Saga mannsins
sem lesið hefur yfir sig af tískusögum okkar tíma, líkt og
henti Don Ki'kóta forðum daga. Sagan um átök einfarans
sjúka við sljóan og tilfinningadauðan heim. En er Valdi alveg
gaga? - Meistaraleg skáldsaga eins af ág^tustu rithöfundum
Okkar. Verð kr. 494.00. ““
BRÚÐUBILLINN KYNNIR:
AFMÆLISDAGURINN
HANS LILLA Helga Steffensen
Hvaða börn kannast ekki við Brúðubílinn? Nú
situr Gústi frændi við stýrið og flytur gesti í
afmælið hans Lilla. Allir krakkar eru velkomnirl -
Ein fallegasta barnabók sem út hefur komið á
íslandi. Prýdd fjörutíu stórum litmyndum.
Verð kr. 389,00
NY MYNDASAGA:
^fyuí?TILU=lKS
^Gdyrið grálynda -feitur,
e'9/no«^ atur* ur)dirförull, hrekkjóttur,
morgunsvæfur, matgráðugur.
Samt er Grettir ómótstæðilegur.
Kattahatarar elska hann líka ef hann nær
að læsa í þá klónum. Verð kr. 163,00.
FORLAGIÐ
FRAKKASTÍG 6A, SÍMI9I-25I88