Morgunblaðið - 14.12.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.12.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984 Fiskkaupendur bjóða 10%hækk- un fiskverðs — Fráleitt tilboð, segir Kristján Ragnarsson FULLTRÚAR fiskkaupenda í yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins lögðu í gær fram tilboð um 10% meðaltalshækkun fiskverðs. Segja þeir, að með því verði vinnslan að meðaltali á sléttu. Kristján Ragnarsson, annar fulltrúa fiskseljenda, segir að tilboð þetta sé fráleitt og skilji útgerðina eftir í enn verri stöðu en fyrir gengisfellinguna. Hækkun almenns fiskverðs hef- ur í nokkurn tíma verið til um- fjöllunar hjá Verðlagsráði og í gær fjallaði yfirnefndin um það í fyrsta sinn. Samkvæmt lögum á verðið að gilda frá og með 21. nóv- ember síðastliðnum til 31. ágúst á næsta ári. Friðrik Pálsson, framkvæmda- stjóri SÍF og annar fulltrúi fisk- kaupenda í verðlagsráði, sagði í samtali við Morgunblaðið, að for- sendur þessa tilboðs væru núver- andi markaðsverð, gildandi gengi og vinnulaun eins og samið hefði verið um frá áramótum. Hann Loðnuvertíðin: 400.000 lestir komnar á land TALSVERÐUR kippur kom í loðnuveiðina í gær og fram til klukkan 17 höfðu 26 skip til- kynnt um afla, samtals 17.200 lestir. Heildaraflinn á vertíðinni er nú orðinn rúmlega 400.000 lestir, en veiðum fyrir jólafrí fer senn að Ijúka. Skipin mega ekki halda úr höfn til veiða eftir 17. þessa mánaðar. sagði, að með gengislækkuninni hefði skapazt svigrúm til þess að reka fiskvinnslufyrirtæki með eðlilegum hætti, en vegna erfiðrar stöðu útgerðar og sjómanna hefði verið ákveðið að bjóða þessa hækkun. Hún þýddi þó, að eftir hana yrði meðalfyrirtækið rétt ofan hins margfræga núlls. Það væri ennfremur vafasamt fyrir saltfiskframleiöendur að bjóða þessa hækkun og setja vinnsluna með því niður á núllið, þar sem miklar blikur væru á lofti salt- fiskmarkaða, meðal annars vegna yfirvofandi 13% innflutningstolla á saltfisk í helztu markaðslöndum okkar. Kristján Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri LIÚ, sagði i samtali við Morgunblaðið, að tilboð þetta væri fáránlegt. Ef það ætti að verða að veruleika yrði staða út- gerðarinnar án undantekninga miklum mun verri en fyrir geng- isfellinguna. Vegna þess að af- komuútreikningar lægju ekki fyrir, hefðu útgerðarmenn ekki enn lagt fram kröfur um hækkun fiskverðs, en vitað væri að 20% hækkun þyrfti til að skila útgerð- inni í sömu spor og fyrir gengis- fellinguna. Honum skildist að það væri ætlun stjórnvalda að bæta stöðuna. Morgunblaðið/Árni Johnaen Víðir opnar stórmarkað í Mjóddinni VERSLUNIN Víðir opnar stór- markaö í Mjóddinni í dag, en þetta er þriðja verslun Vídis í höfuðborg- inni. A fyrstu hæð Víðis í Mjódd- inni er 2200 m2 verslun með miklu vöruúrvali, kjöt- og fiskborðum og m.a. heitum réttum og ávaxtatorgi. f 2300 m2 kjallara er vörugeymsla, fiskvinnsla og kjötvinnsla. Bakarí og bókabúð er einnig í stórmark- aðnum og leikherbergi fyrir börn. önnur hæð Víðishússins verð- ur byggð á næstunni og þar verða margs konar verslanir með allt annað en matvöru og á þriðju hæð verða þjónustugrein- ar. Myndin var tekin í gærkvöldi þegar um 60 manns voru á fullri ferð að Ijúka undirbúningi fyrir opnun kl. 9 í dag. Allt var að sjálfsögðu á rúi og stúi, en myndin sýnir aðeins lítinn hluta af versluninni. Viðskiptaráðherra íslands og Noregs: Allt gert til að koma í veg fyrir saltfisktolla Ú tvarpslagafrum varp- ið ekki afgreitt fyrir jól „ÞAÐ KOM FRAM í viðræðum okkar Asbjörns Haugstvedt, viðskiptaráð- herra Noregs, að þjóðirnar reyndu í sameiningu að koma í veg fyrir að tollar yrðu lagðir á innfiuttan saltfisk til aðildarlanda Evrópubandalagsins á næsta ári í tengslum við inngöngu Spánar og Portúgals í bandalagið. Það er mikilvægt, að þessar þjóðir geri sér grein fyrir því, að tollar á saltfi.sk hafi þau áhrif, að þeir hækki aðeins verðið á honum. Saltfiskurinn hefur verið þessum þjóðum þýðingarmikill þáttur í fæðuvali þeirra, en tollar og verð- hækkun gætu raskað því,“ sagði Matthías Á. Mathiesen viðskiptaráðherra í samtali við Morgunblaðið. útvegsráðherra Evrópubandalags- ins héldu fundi í Brussel dagana 19. og 20. þessa mánaðar og væri tollamálið þar á dagskrá. Ekki væri vitað hvort ákvörðun yrði tekin þá, en reynt vrði af fremsta megni að koma í veg fyrir það. MEIRIHLUTI er fyrir því á Alþingi að einkaréttur ríkisútvarpsins verði afnuminn og auglýsingar leyfðar, nema hjá kapalsjónvarpsstöðvum og -útvarpsstöðvum. Að sögn Halldórs Blöndal, formanns menntamála- nefndar neðri deildar hefur hins vegar orðið samkomulag í nefndinni um að láta afgreiðslu nýrra útvarps- laga bíða þangað til eftir jólafrí þing- manna. „Ástæðan er sú að erindi hafa verið að berast fram á seinasta dag og sumir nefndarmenn höfðu ekki mótað breytingartillögur. Ég legg áherslu á að þeim verði skilað á mánudag til þess að einstakir nefndarmenn geti mótað afstöðu sína og lagt málið fyrir í þing- flokkunum áður en þing kemur saman eftir jól," sagði Halldór Blöndal í samtali við blaðamann Morgunblaðsins síðdegis í gær. Halldór lagi áherslu á að I öllum aðalatriðum hefur náðst sam- komulag milli hans og ólafs Þórðarsonar. Stefnt er að því, að Spánn og Portúgal gangi í Evrópubandalag- ið 1. janúar 1986, en Evrópubanda- lagið áformar nú, aö leggja toll á innfluttan saltfisk og skreið til að- ildarlandanna frá og með 1. júli á næsta ári. Til þessa hafa hvorki verið í gildi tollar á saltfiskinn- flutningi til landa EvrÓDubanda- lagsins né Spánar og Portúgals. Matthías Á. Mathiesen sagði ennfremur, að íslenzk og norsk stjórnvöld hefðu með öllum hugs- anlegum ráðum beitt sér gegn því að þessi fyrirætlan Evrópubanda- lagsins nái fram að ganga. Hefðu viðskiptaráðherrarnir í viðtölum við fulltrúa bandalagsins og í bréfum til þess bent á að þessi ráðstöfun myndi brjóta í bága við yfirlýsta stefnu bandalagsins um frjáls alþjóðaviðskipti. Ennfremur hefði því verið haldið fram, að ekki hafi verið gefnar neinar raunhæfar ástæður fyrir því, að þessi tollur sé réttlætanlegur eða nauðsynlegur. Á fundi slnum í gærmorgun hefðu ráðherrarnir skipst á skoð- unum um hvað væri frekar hægt að gera til að koma I veg fyrir tollun á saltfisk og skreið. Sjávar- Námaleyfi Kísiliðjunnar við Mývatn: Náttúruverndarráð gegn endurnýjun til 20 ára — varasamt að raska botnlögum í syðri flóa, segir Arnþór Garðarsson líffræðingur UMSÖGN Nittúruverndarráðs um hugsanlega endurnýjun á leyfi Kísiliðj- unnar við Mývatn til efnistöku úr vatninu fer á borð iðnaðarráðherra um eða eftir helgina. Kísiliðjan hefur óskað eftir leyfi til gúrtöku úr vatninu í 20 ár. Samkvæmt niðurstöðum rann- sókna Kísiliðjunnar mun vera gúr á vatnsbotninum, sem nægir til vinnslu í 10—16 ár og eigi að halda áfram rekstri verksmiðjunnar að þeim tíma liönum þarf aö hefja vinnslu á botni syðri hluta vatns- ins. Áður en það verður leyft telur Náttúruverndarráð að ítarlegar rannsóknir þurfi að fara fram á svæðinu og hugsanlegum afleið- ingum botnröskunarinnar á lífríki vatnsins og umhverfi þess. Mun ráðið væntanlega gera tillögur um þær rannsóknir í umsögn sinni til ráðherra. „Kísiliðjan hefur haft bolmagn til að gera þær rann- sóknir, sem verksmiðjan þarf að gera og veit þannig hversu mikið efni er á vatnsbotninum, en Nátt- úruverndarráð hefur aldrei fengið krónu til að sinna sínum rann- sóknum við Mývatn," sagði Þór- oddur Þóroddsson. Arnþór Garðarsson, líffræðing- ur við Líffræðistofnun Háskóla ls- lands, sagði í samtali við blm. Morgunblaðsins að skv. niðurstöð- um rannsókna er þegar hefðu ver- ið gerðar myndi gúrinn í norður- hluta Mývatns endast í um það bil 16 ár. „Af ýmsum öðrum ástæðujn hefur þótt rétt að takmarka vinnslu á ýmsum svæðum í ytri flóanum, sem þýðir að það ætti að vera óhætt að vinna úr þeim hluta vatnsins í 6—10 ár til viðbótar. Þá verður það spurning hvort á að taka úr vatninu sunnan Teiga- sunds, þ.e. stærri hluta vatnsins. Það gæti orðið erfitt að nýta botn- efni þar m.a. vegna náttúruvernd- ar- og hagkvæmnissjónarmiða." Hann sagði að kjarni málsins hlyti alltaf að vera hverjar afleið- ingar róttæk röskun á dýpi Mý- vatns gæti haft. — En hvað mælir helst gegn því, að vinnslan færist í suður- hluta vatnsins? „Dýpkun Mývatns, röskun á botnlögum, veldur okkur áhyggj- um,“ sagði Arnþór. „Vatnið er allt grunnt og um leið og farið væri að dæla gúr upp af botninum væri verið að dýpka vatnið. Það gæti haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir dýralíf og gróður við Mývatn. Dýpkun vatnsins væri beinlínis í andstöðu við þær hugmyndir, sem lágu að baki setningu laganna." Hann sagði að fyrir utan dýpk- un á ákveðnum stöðum hefði vinnsla svokölluð „annars stigs áhrif", þ.e. að með hreyfingu á botnleðju á stórum svæðum færi allt vatnið í dýpra jafnvægi. „Við viljum sérstaklega vernda vestari hluta ytri flóans, þar sem er mjög grunnt. Okkar skoðun er sú, að það þurfi enn að gera ítarlegar rannsóknir á vatninu og lífríki þess til að skera úr um vafaatriði. Á meðan er afstaða náttúruvernd- armanna heldur íhaldssöm," sagði hann. Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn: Helgi Tómas- son hafnaði stöðu ballett- meistara HELGI Tóm- asson ball- ettdansari hefur hafnað stöðu ball- ettmeistara við Konung- lega leikhúsið í Kaup- mannahöfn. Ástæðan er sú, að Helgi gat ekki sætt sig við danskar skattareglur og auk þess náðist ekki samkomu- lag um faglegar breytingar, sem Helgi gerði að skilyrði fyrir ráðn- ingu. Að sögn Henrik Bering Liis- berg, leikhússtjóra Konung- lega leikhússins, hafði samkomulag tekist um launa- kjör. Hins vegar hefðu komið upp vandamál varðandi skatta, en samkvæmt dönskum skatta- lögum hefði Helgi orðið að greiða skatta í Danmörku og Bandaríkjunum af sömu tekj- unum, enda ekki í gildi samn- ingar milli þessara ríkja til að koma i veg fyrir tvísköttun. Jafnfram náðist ekki sam- komulag um breytta vinnu- tilhögun I leikhúsinu, meðal annars um breytingar varð- andi æfingatíma, sem Helgi setti sem skilyrði fyrir ráðn- ingu sinni. Helgi Tómasson hefur undanfarin ár starfað sem aðaldansari við New York City Ballet í Bandaríkjunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.