Morgunblaðið - 14.12.1984, Blaðsíða 66
66
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984
® 1984 Umversal Press Syndicate £-|
„5á sem selur notófc fxssa u'ikunA,
fter fefb tifc Hamail"
ást er ...
... að vaka með henni
þeyar hún getur ekki sof-
ið.
TM R«o U S Pat Otf atl nghts reserved
* 1979 Los Angeles Timea Syndicate
\ het
Ég tafðist við að leita að biluð-
um stöðumæli!
Nokkrar myndanna sýna áhrif
frá Picasso, en þetta eru áfeng-
isáhrif!
HÖGNI HREKKVÍSI
„ 5LEPPTU KÓLONNI þlNN/, SVO Vl£>
faOm út r?ártA þyncsÞ."
AC/DC ókrýndir
konungar rokksins
Nökkvi Klíasson, Sauðárkróki,
skrifar:
Mikið hlýtur Finnbogi Marin-
ósson að hata AC/DC. f grein
þeirri er hann skrifar í Morgun-
blaðið 2. desember sl. og nefnir
Risarokk í Karlsruhe birtir hann
sex flennistórar myndir af Van
Halen (4 af sama atriðinu) auk
lofsyrða um þá hljómsveit, þrátt
fyrir að þeir hafi verið rakkaðir
niður í Kerrak (sem er enskt tón-
listarblað) og fleiri tímaritum.
Ekkert talar F.M. um Ozzy
Osbourne (fyrir utan tvær fátæk-
legar setningar), hvað þá að hann
birti mynd af honum. Það hefði
Ozzy Osbourne þó svo sannarlega
átt skilið. En hvað um það. Ekki
var ætlunin að tala um Ozzy eða
VH, heldur hina ókrýndu konunga
rokksins AC/DC.
F.M. birtir eina hræðilega mynd
af Brian Johnson, söngvara
AC/DC, efst í hægra horninu á
bls. 72 og lætur þar við sitja. Við
þessa mynd er all furðulegur texti.
Hann byrjar strax á því að full-
yrða að AC/DC hafi verið hund-
leiðinlegir á Donington og ekkert
skárri í Karlsruhe. Ekkert skal ég
segja um hljómleikana í Karls-
ruhe, en ef þeir hafa verið eitthvað
í líkingu við þá er þeir héldu i
Donington, þá get ég fullvissað
lesendur um að þeir voru svo langt
frá því að vera leiðinlegir. Þvert á
móti.
HEILRÆÐI
Á heimilunum eru slys á börnum algengust. Unnt hefði
verið að komast hjá mörgum þessara slysa með meiri
fyrirhyggju og aðgát. Við jólabaksturinn og matseldina
verður að gæta þess vel að hrærivélin sé ekki í gangi og
heldur ekki hakkavélin, þurfi að bregða sér frá. Lítil hnáta
og lítill hnokki geta sem best klifrað upp á eldhúskollinn
og fest litlar hendur í þessum heimilistækjum. Njótum
undirbúnings jólanna með slysalausum dögum.
Sjálfur er ég mikill aðdáandi
AC/DC og þekki hljómsveitina út
og inn, kosti hennar og galla. Tel
ég mig því vel færan um að gagn-
rýna grein Finnboga. Ekki er
verra að sjálfur var ég staddur á
umræddum hljómleikum þann 18.
ágúst á kappakstursvellinum i
Donington, þar sem hljómleikarn-
ir voru haldnir.
F.M. segir: „Dagskráin reyndist
vera næstum sú sama og fyrir
þremur árum“. Það má vel vera að
dagskrá AC/DC hafi ekkert breyst
á þessum tíma, en hvaða máli
skiptir það í rauninni? Maður hef-
ur alltaf gaman af að sjá góða
mynd aftur og aftur og það sama
er að segja um hljómleika. Og hví
að breyta til þegar um 100 þúsund
áhorfendur mæta til leiks?
Ennfremur segir F.M.: „Löng
klaufaleg bil á milli laga og þess á
milli hamaðist Angus Young við
að gera sama hlutinn aftur og aft-
ur.“ Varðandi klaufalegu bilin, þá
er mín skoðun sú að þau séu til að
Þessir hringdu . . .
Lítum á dýrin
sem félaga
okkar á jördinni
Margrét Hjálmtýsdóttir hringdi:
í útvarpinu 3. desember sl. var í
þættinum Um daginn og veginn
sagt frá að hestar hafi verið flutt-
ir með skipum til slátrunar í út-
landinu. Eru þetta ekki slæmar
fréttir? í því tilefni kemur í huga
manns að við öll sem búum á jörð-
inni verðum að deyja, bæði menn
og skepnur. Hver vill þjást í angist
og kveljast á leið sinni í dauðann?
Hvers vegna fara menn þá þannig
með dýrin sín? Það hefur verið
sagt að hestar, þessar tryggu og
vitru skepnur, sem fluttir hafa
verið með skipum til útlanda, séu
oft sturlaðir af hræðslu og sjó-
veiki, enda löng leið og seinfarin
með skipi til meginlands Evrópu.
Kemur það ekki við samvisku
manna? Hvers vegna láta hesta-
eigendur leiða sig til slíkra verka?
Er ekki blönduð ánægjan vegna
auranna, sem þeir fá fyrir þarf-
asta þjóninn, eins og hestar voru
kallaðir fyrr á árum. Erum við
kannski lík því fólki í frumstæð-
um þjóðfélögum sem selur börn
sín til eymdarlífs fyrir pening?
Við höfum dýraverndunarlög
þar sem hvers konar ill meðferð á
dýrum er bönnuð. Varðar þetta
ekki sektun eða fangelsi að brjóta
slík lög sem önnur í þjóðfélaginu?
Hví eru ekki íslensk sláturhús
þannig að þau standist kröfur sem
gerðar eru til hrossaslátrunar?
Margar fleiri spurningar eru
áleitnar. En í þessum döpru hug-
leiðingum má ekki gleyma þvf að
margt gott fólk hér á landi eru
einlægir dýravinir, gera vel við
hesta sína og vill ekki að neitt illt
hendi þá. Þetta fólk hefur ómælda
ánægju af hestum sínum. Þannig
hefur það verið um aldir. Margar
hestavísurnar hafa verið ortar,
bækur um hesta hafa verið ritaðar
og einnig margar greinar i blöð
sem lýsa ágæti hestanna, skapi og
glæsileika að ógleymdum öllum
þeim hrífandi kvæðum sem skáld-
in hafa ort um góðhesta sína. For-
feður okkar lögðu ekki hrossakjöt
sér til munns. Trúlega hafa þeir
litið á hestinn sem vin sinn vegna
skynsemi hans og hollustu. Að
lokum: Við verðum að líta á dýrin
sem félaga okkar á jörðinni og ill
meðferð á þeim er engum óvið-
komandi ef við viljum kalla okkur
siðað þjóðfélag.
Fáum Listapopp
aftur á rás 1
Kolla hringdi:
Ég mótmæli því að Listapopp
hafi verið fært af rás 1 yfir á rás 2.
Þetta varð til þess að við, sem
búum úti á landi, getum ekki leng-
ur hlustað á þáttinn. Þarna er ver-
ið að mismuna þeim sem búa utan
höfuðborgarsvæðisins. 1 Reykja-
vík geta unglingarnir stundað
skemmtistaði, en ekkert slíkt er
fyrir okkur úti á landsbyggðinni.
Svo á að taka af okkur vinsælasta
tónlistarþáttinn til að kóróna allt.
Ég vil koma þeirri ósk á fram-
færi við þá sem stjórna útvarpinu
að færa Listapopp aftur á rás 1 á
sama tíma á laugardagseftirmið-
dögum, því miðnæturtíminn hent-
aði unglingum einnig ákaflega
illa.
Okur á mynd-
bandstækjum
8773-0735 hringdi:
Ég hef Iengi verið að hugsa um
að fá mér myndbandstæki, en ekki
látið verða af því ennþá. Ég kann-
aði hve mikil álagning er á þessum
tækjum, því mér fannst þau óeðli-
lega dýr, og komst þá að því að hér
á landi viðgengst gegndarlaust
okur á þessum tækjum, svo og
sjónvarpstækjum o.fl.
Ríkið tekur 75—80% toll af
þessari vöru. Ábyrgðartrygging er
5%, en þá greiðir kaupandinn í
raun og veru ábyrgð á tækinu, ef
eitthvað kemur upp á. Síðan er
fast álagningargjald kr. 920,- og