Morgunblaðið - 14.12.1984, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 14.12.1984, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR14. DESEMBER 1984 líu lídar Ijúflingsmeyjar jbula eftir Theódóru Thóroddsen Rammíslensk, glettin og ævintýraleg eins og þessari snjöllu skáldkonu einni er lagið. Myndskreytt af Katrínu Thóroddsen. Bók fyrír börn á öllum aldri. Twíítíar. (síonSságá) Lágmúla 5,108 Reykjavík, sími 91 685111 N ey tendasam tökin mótmæla ummælum í sjónvarpsþætti „KTJÓRN Neytendasamtakanna mótmælir hardlega ummælum, sem fram komu f sjónvarpsþættinum „Heilsað upp i fólk“ laugardaginn 8. desember sl. f þættinum var mjög ómaklega vegið að forystu Neytenda- samtakanna og hún sökuð um andúð i bændum, auk þess að vera úr tengslum við neytendur ( landinu,“ segir í samþykkt stjórnar Neytenda- samtakanna sem Mbl. hefur borist Þar segir ennfremun „Stjórn Neytendasamtakanna bendir á, að forystumenn samtak- anna hafa aldrei ráðist að bænd- um, heldur hefur skipulag land- búnaðarins verið gagnrýnt, auk þess sem bent hefur verið á hátt verð ýmissa landbúnaðarvara. Það er mjög fróðlegt í þessu sambandi að hlutur launa bóndans í verði landbúnaðarvara hefur stöðugt farið minnkandi á síðustu 15 árum. Það er einnig athyglisvert, að á sama tíma og bændum var gert að draga úr mjólkurframleiðslu, á ár- unum kringum 1979, jókst manna- hald í mjólkursamlögunum. Það er því Ijóst að einkaneysla bænda á ekki sök á háu verði landbúnaðar- vara, heldur milliliðir og rangt skipulag. Hvað varðar fullyrðingar í þætt- inum um að Neytendasamtökin séu úr tengslum við neytendur, má benda á að aldrei fyrr hafa jafn margir gengið til liðs við samtökin, eins og á síðustu mánuðum. Tala félagsmanna hefur á þessum tíma vaxið um 30%. Jafnframt má minna á, að góð tengsl samtak- anna við almenning komu skýrt i ljós, þegar rúmlega 20.000 neyt- endur á höfuðborgarsvæðinu skrif- uðu undir áskorun um að einokun á sölu kartaflna yrði afnumin. Undirskriftasöfnun þessi stóð þó aðeins yfir i tvo daga í matvöru- verslunum. Að lokum ítrekar stjórn Neyt- endasamtakanna mótmæli sin, og krefst þess að hlutleysi sjónvarps- ins verði betur í heiðri haft í fram- tíðinni. SÍNE-deildin í Gautaborg: Lánasjóðnum verði gert kleift að standa undir hlutverki sínu Á FUNDI SÍNE-deildarinnar í Gautaborg 28. nóvember var sam- þykkt ályktun þess efnis, að Lána- sjóði ísl. námsmanna verði veitt sú fjárupphæð, sem nauðsynleg er til þessað honum sé kleift að standa undir því hlutverki sínu að skapa jafnrétti til náms. Fundurinn krefst þess einnig að viðunandi lausn verði fundin á málefnum nema á fyrsta ári og að þeim verði ekki fórnað á altari hinnar fölsku samábyrgðar, eins og segir í ályktuninni. Þar segir ennfremur: Pundur SÍNE-deildarinnar i Gautaborg krefst þess að lána- sjóðnum verði veitt sú fjárupphæð sem nauðsynleg er til þess að hon- um sé gert kleift að standa undir því hlutverki sinu að skapa jafn- rétti til náms. Fundurinn krefst þess einnig að viðunandi lausn verði fundin á málefnum „fyrsta árs nema“ og að þeim verði ekki fórnað á altari hinnar fölsku sam- ábyrgðar. Þá hefur deildin sent mennta- málaráðherra, Ragnhildi Helga- dóttur, bréf, sem SÍNE-deildin hefur sent Morgunblaðinu. Þar er þess krafist að ekki verði hróflað „við skylduaðild að SÍNE, fyrr en SÍNE-félagar sjálfir kynnu að krefjast þess“. Allir skíðamenn vilja komast á toppinn skíði í úrvali Einnig aðrar heimsþekktar skídavörur koflach KBMA j£N€XR€» skíðabindingar skíöaskór skíðastafir skíðaskór Jólatilboð okkar: skíði kr. 1.200,- ¥IST!1M©ST Laugavegi 178. Símar 16770 — 84455.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.