Morgunblaðið - 14.12.1984, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 14.12.1984, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLADID, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984 JÓHANN ÓLAFSSON & CO. HF. 120 dr segir sína sögu ímeiraenöldhefur r|rJri=í=t=líl| verið íJararbroddi í gerð heimilstœkja Fá fyrirtæki geta státað af slíkri "I OQ A T? A reynslu. Þess vegna getur þú treyst Z"HvT\ því að þegar þú kaupir brauðrist REYNSLA frá GROSSAG þá kaupir þú vandaða XRYGGIRGÆÐIN vesturþýska gæðavöru. ■mhbmm Domus, Laugavegi 91 Glóey, Ármúla 28 H.G. Guðjónsson, Suðurveri Jón Loftsson, Rafdeild Mikligarður við Sund Rafbúð Dómus Medica, Egilsg. 3 Rafbúðin, Auðbrekku 18 Rafha, Austurveri Rafmagn, Vesturgötu 10 UTSOLUSTAÐIR: Rafviðgerðir hf., Blönduhlíð 2 Mosraf, Mosfellssveit Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesi Rafblik, Borgarnesi Verzlunin Kassinn, Ólafsvík Húsið, Stykkishólmi Straumur h.f. ísafirði Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri Raftækjaversl. Sveins Guðmundssonar, Egilsstöðum Elías Guðnason, Eskifirði Kaupfélag Rangæinga, Hvolsvelli Kaupfélag Árnesinga, Selfossi Reynir Ólafsson Rafbúð, Keflavík Ágangur vargfugls er helsta áhyggju- efni varpbænda Sigurlaug Bjarnadóttir kosin for- maður Ædarræktarfélags íslands „UNDANFARIÐ ár hefur verið varpbændum fremur bagstætt, dúntekja með betra móti og batnandi markaðshorfur. Vestur-Þýzkaland hefir undanfarin ár verið helzta markaðsiandið en einnig hafa Japanir sýnt áhuga á íslenzkum æðardún nú á siðustu árum. Gangverð á dún er nú allt að 9 þús. kr. fyrir Idlóið. íslenzkur æðardúnn er f miklu áliti erlendis sem sérstök gæðavara. Var á aðalfundinum lögð mikil áherzla á, að fslenzkir dúnframleiðendur slökuðu hvergi á f ítrustu vöruvöndun, bæði hvað snerti hirðingu og hreinsun dúnsins.“ Þetta kemur fram f fréttatilkynn- ingu frá Æðarræktarfélagi íslands, en aðalfundur félagsins var haldinn fyrir skömmu. Var þetta 15. starfsár félagsins. Fundinn sóttu félagsmenn hvaðanæva af landinu, en nú eru 10 félagsdeildir starfandi i öllum landshlutum nema Suðurlandi. Dúnframleiðendur munu nú um 300 talsins á landinu, og magn af hreinsuðum dún um 2.500 kg árlega, en það er um helmingur þess dún- magns, sem fékkst hérlendis á fyrstu áratugum þessarar aldar. í fréttatilkynningu segir einnig: „Helzta áhyggjuefni varpbænda er nú sem fyrr ágangur vargfugls; svartbaks og fleiri mávategunda, hrafns og arnar á varplönd. Refur og minkur koma þar einnig viö sögu. Þá hafa og stórauknar hrognkelsa- veiðar hin síöari ár valdið umtals- verðu æðarfugladrápi í netalögnum. Hefir Æðaræktarfélagið þrásinnis mælst til að kannað yrði, hvort ekki mætta fresta fyrstu netalögnum að vorinu til þess tíma, er æðarfuglinn er að mestu sestur upp i varplöndin. Fram kom á fundinum nokkur gagnrýni og gremja vegna ásakana náttúruverndarsamtaka í fjölmiðl- um í garð æðarræktarmanna. Var ítrekað það viðhorf Æðaræktarfé- lags íslands, að sameina verði sjón- armið náttúruverndar og atvinnu- hagsmuna i æðarræktarmálum og viðhalda jafnvægi í lífríki íslands á öllum sviðum. Margt bendi til, að því jafnvægi sé nú ógnað með of- fjölgun vargfugla, sem bitnar einna harðast á æðarfuglinum en einnig á fiski i ám og vötnum. Því megi hvergi slaka á i viðleitni til að halda varginum í skefjum. f þessu sambandi voru samþykkt- ar einróma á fundinum svohljóð- andi ályktanir I. „Aðalfundur ÆÍ 10. nóv. 1984 óskar eindregið eftir því við viðkom- andi stjórnvöld, að heimiluð verði áfram lyfjanotkun til fækkunar og varnar gegn flugvargi. Enn rikir það ófremdarástand vfðast hvar um landið, að beita verður öllum tiltæk- um ráðum til að halda meinfugla- stofnum í skefjum." II. „Á hverju ári valda vargfuglar; svartbakur og fleiri mávategundir, hrafn og örn stórfelldum skaða á æðarvarpi hérlendis. Það er álit vfsindamanna að það sem mestu valdi um stofnstærð þessara fuglategunda sé fæðufram- boð á hverjum tfma. Æðarræktarfé- lag fslands bendir á, aö úrgangs- haugar við fiskvinnslustöðvar og sláturhús víðsvegar um landið séu hinar ákjósanlegustu uppeldis- stöðvar fyrir vargfugl og stuðli þvi beint að óæskilegri fjölgun hans. Aðalfundur Æf, haldinn 10. nóv. 1984, telur nauðsynlegt að gengið sé rikt eftir, að viðlögðum sektum, að gildandi reglugerðum um meðferð fiski- og sláturúrgangs sé framfylgt. Hið sama gildir um almenna sorp- hirðu á vegum sveitarfélaga. Aðalfundurinn heitir á alla hlut- aöeigandi aðila, að gegna skyldum sínum í þessum efnum, er varða f senn atvinnuhagsmuni og menning- arlega umgengni." Við stjórnarkjör baðst formaður félagsins, Ólafur E. Ólafsson, fyrrv. kaupfélagsstjóri i Króksfjarðarnesi, undan endurkjöri, en hann hefir verið formaður Æðarræktarfélags fslands undanfarin 11 ár. Voru ólafi þökkuð mikil og gifturfk störf f þágu félagsins. Nýr formaður var kjörinn Sigur- laug Bjarnadóttir frá Vigur og með henni f aðalstjórn Eysteinn Gisla- son bóndi i Skáleyjum og Jónas Helgason bóndi í Æðey. f varastjórn voru kjörnir Árni Snæbjörnsson frá stað á Reykjanesi, búfræðikennari á Hvanneyri, og sr. Þorleifur Krist- mundsson, Kolfreyjustað." Gjaíavöair Njotið þcss nö geía gööa £jöííállega ú'jöí frá Rosenthal Gjafavörur frá Rosenthal hafa hlotiö heimsviðurkenningu fyrir afbragðshönnun og framúrskarandi gæöi! Þess vegna hafa Rosenthal vörurnar tvenns konar gildi — jafnt fyrir þann sem gefur og þann sem þiggur. Njótið þess að gefa góöa gjöf — fallega gjöf, sem segir meir en orð fá lýst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.