Morgunblaðið - 14.12.1984, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.12.1984, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984 Fatastandararnir vinsælu Viöur, Ijós eöa dökkur. Verö kr. 1.300. Skóskápur Verö kr. 6.900. Skóskápur Verö kr. 6.900. Rococco kommóður Verö kr. 12.500. Innlögö skatthol 3 gerðir. Verö kr. 18.500—24.500. SENOUMGEGN PÓSTKHÖai VALHÚSGÖGN ÁRMÚU4 SÍMI82275 Sterkurog hagkvæmur auglýsingamióill! „Norræn samvinna á sér enga hliðstæðu“ „ÞETTA er mín fyrsta heimsókn til íslands og tilgangurinn er fyrst og fremst sá að kynnast þeim aðilum sem hafa með mál- efni Sameinuðu þjóðanna að gera hér á landi,“ sagði Stig Berglind, forstöðumaður upplýs- ingaskrifstofu Sameinuðu þjóð- anna á Norðurlöndum, þegar blaðamaður Morgunblaðsins hitti hann að máli er hann var staddur hér á landi fyrir skömmu. Stig Berglind tók ný- lega við starH þessu og er aðsetur skrifstofunnar í Kaupmanna- höfn. Hann var spurður nánar um hlutverk skrifstofunnar og samskipti Norðurlandanna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. „Ég hafði starfað á vegum sænsku sendinefndarinnar hjá Sameinuðu þjóðunum í New York í rúm fimm ár og var á leið heim til að taka aftur við fyrri störfum hjá sænska utanríkisráðuneytinu þegar mér bauðst þessi staða. Og í stað þess að fara aftur heim til Stokkhólms millilenti ég í Kaup- mannahöfn, þar sem ég mun dvelja fyrst um sinn og reyndar kann ég prýðilega við mig þar,“ sagði Berglind. „Á þessari skrif- stofu i Kaupmannahöfn starfa segir Stig Berg- lind, forstöðumað- ur Noröurlanda- skrifstofu Samein- uöu þjóöanna átta manns, þannig að þarna ríkir mjög þægilegur og heimilislegur andi. Þetta er svona eins og lítið sendiráð, en hlutverk skrifstof- unnar er fyrst og fremst að miðla upplýsingum og afla upplýsinga um hvaðeina er tengist starfsemi Sameinuðu þjóðanna. Skrifstof- unni er líka ætlað það hlutverk að samræma hin ýmsu verkefni og hugmyndir, sem Norðurlanda- þjóðirnar vilja vinna að í samein- ingu á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna. Samvinna Norðurlandanna á þessum vettvangi er mikil og góð og ég tel það ómetanlegan styrk fyrir þjóðir Norðurlandanna að geta á þennan hátt sameinað krafta sína enda eiga þau mörg sameiginleg hagsmunamál. Styrk- ur Norðurlandanna á alþjóða- vettvangi er því mikill og raunar meiri en stærð þeirra segir til um. Að mínum dómi er það fyrst og fremst vegna þess að þau hafa borið gæfu til að standa saman í flestum mikilvægum málum. Raunar er þessi samvinna Norður- landanna á alþjóðavettvangi ein- stök. Að vísu þekkjum við dæmi um samvinnu þjóða á ýmsum svið- um, en þessi norræna samvinna á sér enga hliðstæðu. Ég tel afar mikilvægt að hún haldist og eflist og það er meðal annars hlutverk skrifstofunnar að stuðla að því.“ Um heimsókn sína hingað til ís- lands sagði Stig Berglind m.a.: „Tilgangurinn var fyrst og fremst að kynna mig og kynnast ýmsum aðilum sem hafa með málefni Sameinuðu þjóðanna að gera á ís- landi. Vil ég þar sérstaklega nefna Knút Hallsson ráðuneytisstjóra í menntamálaráðuneytinu. Einnig hef ég hitt að máli ýmsa aðila sem hafa með utanríkismál að gera, m.a. Tómas Árnason formann utanríkismálanefndar Alþingis. Þá heimsótti ég Alþingi og hitti þar ýmsa þingmenn og einnig skákmeistarann ykkar, Friðrik Ólafsson, núverandi skrifstofu- stjóra Alþingis. í mínu starfi er mjög mikilvægt að ég kynnist að- Morgunbladiö/Friðþjófur. Stig Berglind, forstöðumaður upplýs- ingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna á Norðurlöndum. ilum sem hafa meö þessi mál að gera hjá þjóðum Norðurlandanna og raunar er það forsenda þess að upplýsingaskrifstofan okkar í Kaupmannahöfn geti þjónað til- gangi sínum. Meðal þeirra mála sem nú þarf að taka afstöðu til, og voru reyndar til umræðu milli mín og íslenskra aðila, er 40 ára af- mæli Sameinuðu þjóðanna á næsta ári. Það hafa ýmsar hug- myndir komið upp varðandi það hvernig minnast -skuli þessara tímamóta, en á þessu stigi get ég ekki sagt neitt ákveðið um hvað verður endanlega ofan á í þeim efnurn," sagði Stig Berglind. HÁLF SEX—HÁLF ÁTIA Frá kl. 17:30 — 19:30 alla daga bjóðum við sérstakan matseðil á einstöku verði. Menu Glóðarsteikt heilagfiski með rækjum og dillsósu kr. 255.- ☆ ☆ ☆ Lambahryggsneið Cafe de Paris með hrdsalati og bakaðri kartöjlu kr. 365.- ☆ ☆ * Nautalundir Bordelaise með hrásalati 0(> bakaðri kartöflu kr. 445.- ' Borðapantanir í síma 91-13303 VEITINGAHÚS AMTMANNSSTki 1 RPi'KJAVÍK SÍMl 91-13303 Móttaka norska sjónvarpsefnisins á íslandi: Mér sýnist þetta verðmæt tilraun - segir Ragnhildur Helgadóttir ÚTSENDINGAR norska sjónvarpsins um gervihnött til Svalbarða hefjast 22. desember og er Ragnhildur Helgadóttir, menntamála- ráðherra, mjög hlynnt því að íslendingar semji við Norðmenn um að fá að taka á móti þessum sendingum og miðla þeim um dreifi- kerfi íslenska sjónvarpsins. Þetta kom fram í samtali, sem blaðamaður Morgunblaðsins átti við ráðherrann í gær, en hún var þá nýkomin af fundi menntamála- ráðherra Norðurlanda í Osló. Ragnhildur Helgadóttir sagöist hafa fengið fregnir um, að í frétta- tíma sjónvarpsins á mánudag hefði verið fjallað um þetta mál og hefðu þar komið fram ýmsar vill- andi upplýsingar, sem hún kvaðst vilja leiðrétta. Það væri rangt, að dagskrá norska sjónvarpsins félli nákvæmlega saman við hina ís- lensku. „Við munum geta fylgst með allmiklu af norsku dag- skránni, ef af þessu verður," sagði hún. „Þar er um að ræða efni sem t.d. er sérstaklega ætlað öldruð- um, s.s. leikfimi, margvíslegt barnaefni og fréttaþættir. Við munum hins vegar ekki getað séð ýmislegt annað efni, s.s. kvik- myndir, sem sent er út á sama tíma og dagskrá íslenska sjón- varpsins." „Það, að nota núverandi dreifi- kerfi sjónvarpsins er ódýrasta leiðin, sem við getum farið til að taka á móti hluta af erlendu sjón- varpsefni um gervihnött. Mér sýn- ist þetta vera verðmæt tilraun, sem taka má mið af síðar meir, þegar við þurfum að móta afstöðu til aðildar að norrænum sjón- varpshnetti, sem er langtum kostnaðarsamara fyrirtæki," sagði Ragnhildur Helgadóttir. Menntamálaráðherra sagði að ^^skriftar-” síminn er 830 33 aðalkostnaður við móttöku norska sjónvarpsefnisins á Islandi fælist væntanlega í jarðstöðinni, sem þyrfti að reisa. Ríkisútvarpið teldi sig geta komið slíkri stöð á fót fyrir 2—5 milljónir króna, en ef Póstur og sími tæki að sér þetta verkefni mundi kostnaður nema 13,5 milljónum króna, að mati sér- fræðinga stofnunarinnar, enda hefðu þeir f huga mun fullkomnari móttökustöð. „Þetta er atriði, sem þessar stofnanir þurfa að semja um sín á milli,“ sagði ráðherra. „Því hefur verið haldið fram, að íslendingar þyrftu að greiða til- tekna fjárhæð fyrir afnot af hnettinum," sagði Ragnhildur, „en þeir ráðamenn í Noregi, sem ég hef rætt við, telja að þessi kostn- aður verði hverfandi, því að um tilraunastarfsemi er að ræða. Töl- urnar, sem íslenska sjónvarpið birti um þetta atriði, eru fjarri lagi að mati menntamálaráðherra Noregs, sem ég bar þetta mál und- ir. “ „Um höfundar- og flutningsrétt er það að segja, að fyrir liggur að norska ríkisstjórnin og norska út- varpið munu reyna að gera það mál sem hagstæðast fyrir okkur. Stjórn norska ríkisútvarpsins hef- ur t.d. samþykkt að allt það efni, sem kemur frá þeim, verði ókeyp- is, “ sagði ráðherra. Ragnhildur Helgadóttir sagði að næsta skref, sem taka þyrfti í þessu máli, væri að viðræður færu fram milli íslenska og norska ríkisútvarpsins. Hún sagði, að enn hefði engin ákvörðun verið tekin um hvort af móttöku sjónvarps- efnisins yrði hér á landi, en kvaðst sjálf telja það álitlegan kost, enda yki hann valfrelsi Islendinga um sjónvarpsefni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.